Folgen
-
Oftast finnst okkur ákvarðanafælni vera ókostur í fólki, en í þætti dagsins hefði verið gríðarlega gott ef engar heimskulegar ákvarðanir hefðu verið teknar. Heimskir menn hitta aðra heimska menn og úr verður súpa af kjaftæði.
Þátturinn er í boði Hopp, Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Sjóvá og Sjónvarps símans.Mál hefst: 12:03
-
Góðan daginn fimmtudaginn!
Þáttur dagsins er ömurlegur, venju samkvæmt. Lítið barn leggur af stað í skólann og kemur aldrei aftur heim. Málið áhugavert, niðurstaðan hræðileg.
Þáttur dagsins er í boði Hopp, Ristorante, Símans, Good Good, Nettó og Happy Hydrate.
-
Fehlende Folgen?
-
Fimmtudagsfimmtudagur sem við eyðum saman í suðurríkjunum. Það er Alabama í dag þar sem fyrirmyndardrengur heimsækir ættingja sína með vægast sagt ömurlegum afleiðingum. Bjakk tuff sem aldrei fyrr.
Þátturinn er í boði MFitness, Hopp, Happy Hydrate, Ristorante, Nettó, Smash og Símans.
Mál hefst: 18:05
-
Hafiði heyrt um stelpuna sem var tekin og geymd í kjallara? Þetta er sú saga, nema ný, en samt gömul. Alveg gjörsamlega ömurlegt og óþolandi en samt alltaf jafn ótrúlega merkilegt.
Í boði Ristorante, Happy hydrate, Sjóvá, GoodGood, Hopp, Smash og Símans.
Mál hefst: 12:10
Þolandi: Natascha Kampusch
Gerandi: Wolfgang Priklopil -
Oft var ógeð en nú er óóóóógeð. Bylgja segir Unni sögu ungrar stelpu, og svo unglingsstúlku og svo konu, sem verulega óvænt lendir í aðstæðum sem engin, aldrei, ætti að lenda í. En vitið þið hvað hún er? SURVIVOR!
Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Hopp, Nettó, Ristorante, Smash og Sjónvarps Símans.Mál hefst: 10:37
-
Góðan daginn, fimmtudaginn!
Eina sem er krúttlegra en krúttleg ungabörn eru krúttlegir eldri borgarar, eins og þau sem því miður hljóta algjörlega hræðileg örlög í þætti dagsins. Ömurlegt mál, innilega ömurlegt frá a-ö.
Þáttur dagsins er í boði Hopp, Good Good, Happy Hydrate, Smash, Ristorante og Sjóvá.
Mál hefst: 7:46
Gerandi: Daniel Marsh.
Þolendur: Oliver Northrop og Claudia Maupin. -
Góðan daginn raunfimmtudaginn!
Systur eru mættar í stúdíó í hendingskasti til að taka upp nýjan þátt sökum alvarlegrra heimsku. Bylgja segir núna sögu ótrúlegrar konu sem á ótrúlega stuttri ævi hefur sigrast á alls konar.Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Smash, MFitness, Happy Hydrate og Hopp.
Mál hefst: 22:38.
-
Góðan daginn, fimmtudaginn.
Rúmlega 200 þættir og alltaf er þetta nú jafn ógeðslega ömurlegt. Í þætti dagsins segir Bylgja, á 1,75 hraða, frá viðbjóðslegum manni sem ferðaðist um gervöll Bandaríkin, alls ekki til að skoða söfn.
Þátturinn er í boði GoodGood, Happy Hydrate, Ristorante, Smash! og Sjóvá.
Mál hefst: 14:03 -
Góðan daginn, fimmtudaginn.
Í þætti dagsins segir Unnur frá tveimur ungum stelpum sem hljóta mjög ömurlega og hræðilega dauðdaga, sem síðan leysast ekki fyrr en löngu seinna.
Í leiðinni kemur í ljós að þetta var allt svo miklu meira og ógeðslegra en nokkurt okkar hefði getað giskað á.
Áhugavert samt, en fyrst og fremst hræðilegt.
Þáttur hefst: 7:38
Þáttur dagsins er í boði Good Good, Smash! Ristorante, Happy Hydrate og Nettó.
-
Góðan daginn, fimmtudaginn.
Bylgja segir frá algjörlega ömurlegu máli í úthverfum Bandaríkjanna þar sem unglingsdrengir taka örlög fólks í sínar hendur og hefðu betur sleppt því.
Þátturinn er í boði Smash!, Ristorante, Sjóvá og Happy Hydrate.
Mál hefst: 12:44
-
Þáttur dagsins bíður uppá allskonar hringavitleysu og margs konar rugling en það er hálft í hvoru af því að Unnur er að segja frá og af því að málið er alveg galið.
Þetta er auðvitað alltaf jafn hrikalega sorglegt og ömurlegt og vanalega en í þetta skiptið hlýtur ungur drengur alveg hræðileg örlög fyrir það eitt að hanga á spjallrásum internetsins.
Þátturinn er í boði Nettó, Mfitness, Happy Hydrate, Stöð 2+ og Ristorante
Mál hefst 7:18 en óklipptan þátt má finna inná pardus.is/mordcastid
-
Í þætti dagsins eru systur enn og aftur staddar í Ástralíu. Í þessum þætti segir Bylgja frá sögu yndislegs unglings sem lenti í rigningu og þar af leiðandi í hræðilegum aðstæðum. Og allt endar ömurlega, eins og eiginlega alltaf.
Þátturinn er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Sjóvá, GoodGood og Stöð 2+.
Mál hefst: 07:43
-
Góðan daginn, tvöhundruðasta fimmtudaginn!
Mjög margir þættir að baki og að því tilefni er alveg ógnar langur þáttur í dag. Hrikalegt mál með allskonar hörmulegu, en það er þó allavega upplýst. Eða við höldum það allavega. Kannski?
Þátturinn er í boði Ristorante, Stöð 2+, Happy Hydrate og Nettó.
Mál hefst 7:35.
-
Tvær tættar og ein á vitlausu tímabelti hittast og ræða ákaflega kaótískt um allt og ekkert. Svo segir Bylgja frá hvarfi húsmóður í norskri sveit.
Þátturinn er í boði Ristorante, Sjóvá, Happy Hydrate, GoodGood, Stöð 2+ og MFitness
Mál hefst: 16:36
-
Í fyrsta opna þætti ársins segir Unnur okkur frá lítilli stelpu sem langaði bara að labba heim til sín. Þið getið eflaust giskað á hvernig það gekk.
Þátturinn er í boði Ristorante, Happy Hydrate og Nettó.
Mál hefst: 04:28.
-
Sæmilega gleðilegan fimmtudaginn, þann síðasta árið 2023.
Unnur segir frá konu sem sagði aldrei satt og hvernig áhrif það hafði á ótal manneskjur í kringum hana.
Þátturinn er í boði Ristorante, Swiss Miss, Happy Hydrate, Sjóvá, Nettó, GoodGood, Pringles og Stöð 2+.
Mál hefst: 08:00
-
196. Orð dagsins er: True Detective
Unnur segir sögu af því hvernig kona ein gerðist sinn eigin einkaspæjari, en nýtti kraftana til ills en alls ekki góðs.
Þátturinn er í boði Stöð 2+, Nettó, Ristorante, Swiss Miss, Sjóvá, GoodGood, Pringles og Happy Hydrate.
Mál hefst: 09:02
-
Unnur segir í mjög löngu máli frá mjög skrítnu máli sem gerðist fyrir langa löngu í okkar besta Noregi. Maður tekur ítrekað rangar ákvarðanir og það hefur slæm áhrif á fjölda (gamals) fólks.
Þátturinn er í boði Happy Hydrate, Stöð 2+, Ristorante, Sjóvá og Swiss Miss.
Mál hefst: -
Bylgja fer með okkur og ykkur á hræðilegar slóðir í dag þar sem ágætis vinátta (ofan og neðan mittis) endar vægast sagt á ógeðfelldan hátt.
Einnig öpdeit af litla, franska Emile og Natalee Holloway.
Þátturinn er í boði Ristorante, Sjóvá, Happy Hydrate, Swiss Miss og Stöð 2+.
Mál hefst: 17:35.
-
Góðan og gleðilegan fimmtudaginn.
Þátturinn í dag er þemaþáttur í samstarfi við Stöð 2+ og í honum segir Unnur frá konu sem átti í ákveðnu basli með félagsleg samskipti og og það er spurning hvort hún hafi hlustað of mikið á sakamálahlaðvörp?
Þátturinn er í boði Stöð 2+, Happy Hydrate, Ristorante, Swiss Miss og Sjóvá.
- Mehr anzeigen