Episodes
-
Tonny by Sigga Dogg
-
Muniði þegar ég keyrði um landið og blaðraði stjórnlaust um allskonar?
Ég veit þú trúir því kannski ekki...en fólk er búið að vera biðja um MEIRA SVOLEIÐIS!
Og þar sem kynfræðslan er að fara svona hressilega af stað og ég er að fara rúnta um landið (enn eina ferðina) þá ætla ég að bjóða þér að vera með mér.
Ef þú ert nýr hlustandi þá já - hljóðgæðin eru ekki góð. Það er bara þannig. Stefni ekki á að laga það.
Og ég fann ekki upphafs og endalagið mitt en ég mun leita að því, lofa.
Og ég fer um sjúklega víðan völl - við erum að tala um allskonar alltaf.
Njóttu :) -
Missing episodes?
-
Ég hef verið að pæla lengi í fantasíum (ÞVÍ ÞÆR ERU SVO MIKILVÆGAR!)
og ætla af því tilefni að hendast í að halda kvöldstund um það fyrirbæri!
Hverjar eru algengustu fantasíurnar og hvað þýða þær?
Má fantasera um hvað sem er og hvern sem er, hvernig sem er?
Hvað segir fantasían manns um mann?
Hvernig býr maður til fantasíu?
Hvernig aðgreinir maður á milli fantasíu og raunveruleika?
Hvernig skapar maður öruggt rými í sambandinu sínu til að ræða fantasíuna sína?
Viðburðurinn fer fram
fimmtudaginn 24.september
kl.19:30 - 22.30
í lokuðu rými í versluninni Losta /vinnurými Siggu Daggar kynfræðings í Borgartúni 3.
ATH - Takmarkaður fjöldi þátttakanda.
Verð fyrir einstakling: 3900 kr
Verð fyrir par: 6900 kr
Nánari upplýsingar:
instagram.com/sigga_dogg_sexologist/
facebook.com/siggadogg.is -
Maður á svölunum, edik í brúsa með blómadropum, skilnaður, bókaskrif, hor og kaffibolli - bara beisikk mánudagur.
-
Hljóðgæðin eru ekki frábær...en ég LOFA að pælingarnar eru það... eða kannski ekki! Úff, datt á smá trúnó og allskonar pælingar um ást og ástarsorg en svo kom svo hressileg vindhviða að ég hætti í miðri hugsun og fór að hlusta á tónlist og syngja og dansa með!
En hér er ég, meðfram Sæbraut, að syrgja ástina og hoppa á steinum. -
💞 Við Andrea sem er með Líf kviknar, og nú bráðum Líf dafnar, settumst niður, sprittuðum hendurnar, fengum okkur rauðvín og opnuðum línuna fyrir spurningar um kynlíf og móðurhlutverkið og af nógu var að taka! 💞
Þetta er hljóðupptakan af beinni útsendingu á Instagram 19.apríl 2020 💘 -
Spurt & Svarað með Siggusinni!
Hvað töluðum við EKKI um?
Kynlíf á túr, að koma út sem bi í gagnkynhneigðu sambandi, líkamsímynd, slit, þröngar píkur, grindarbotninn, samskipti, undirgefni, ástarsorg, sambönd, ástina, kynlíf, sjálfsfróun, fullnægingar og svo meira kynlíf - minnir mig...! -
Seinni hluti píkupartísins sem fer aðeins meira inn á sjálfsfróun og fullnægingar og skvört og g-blettinn og vörurnar sem geta leyst allskyns píkukvillaleiðindi - meira hér
https://florealis.is/vorur/ -
Ég var með beina útsendingu á INSTAGRAM um píkuna a til ö!
Það var talað um píkuna, bara píkuna og EKKERT annað því það má! og þarf!
Við auðvitað byrjuðum á að skilgreina hvað einkennir góða píkuheilsu - bráðnauðsynlega upplýsingar að hafa, ættum eiginlega að gera segul til að setja á ísskápinn!
En hvað töluðum við ekki um...?!
Bólur, útferð, lykt, bleyta, skvört, gbletturinn, snípurinn, leghálsinn, unaður, fullnægingar, barmar, lýtaaðgerðir, nærbrækur og sjálfsfróun...og margt margt fleira því spurningalistinn var næstum endalaus!
Anna Lind læknir heiðraði okkur með nærveru sinni og fróðleik um allt PÍKUTENGT - ég meina, vissirðu að maður þarf að pissa rétt? Og að læra inn á útferðina sína? Og það má nota píkusápu í andlitið?! Ég lærði svo ótal margt og ég vona að þið hafi gert það líka!
Ég náði meira að segja ekki að fara yfir allt sem ég þurfti að segja og því bætti ég við part 2 - hann er þáttur no.60!
Takk fyrir að hlusta og vera með!
Þessi þáttur var í samstarfi við Florealis - bestu píkuvörurnar fyrir allskyns píkukvilla! Sjá meira hér https://florealis.is/vorur/ -
I AM FREEZING MY CLIT OFF!
snow storm and social distancing and corona virus and hornyness and fantasies - are you here for it all? -
Fólk virðist vera að kafna úr greddu - það er bara þannig!
En við skulum ekki alveg missa okkur og gleyma grindarbotninum, typpi og píkur, gerið það með mér á meðan þið hlustið!
Koma svo, kreppa sleppa kreppa sleppa... -
SÓL ÞAÐ VAR SÓL Í DAG!
Og ég fór á hótel yfir helgina með titrarana mína og sleipiefni - það er sjálfsást í lagi! -
Ertu í sóttkví?
Óttastu samgöngu og/eða útgöngubann?
Ertu bara heima hjá þér að kafna úr greddu og langar að fá smá gott í kroppinn en ert líka með Covid kvíða?
Gjörðusvovel - símasex! -
Ertu í sóttkví?
Ertu á leið í sóttvkí?
Ertu með Corona kvíða?
Ertu búin að horfa á Love is Blind?
Þetta er þátturinn fyrir ÞIG! -
jájájájá ég veit ég veit, ég er búin að vera andlega fjarverandi!
En hvernig er það að reyna að finna ástina í dag?
Ég er svolítið búin að vera pæla í þessu og ræða þetta við mann og annan, aðallega samt raddirnar í hausnum mínum og við sjónvarpið. Er hægt að finna ástina á tímum raunveruleikasjónvarps og smáforrita?! -
Einstakur viðburður í sögunni.
(var það ekki annars?!)
Við þrjú leiddum saman hesta okkar og spjölluðum um allskonar á IG í vikunni en hér er upptakan af því spjalli - NJÓTTU!
og GLEÐILEGA HÁTÍÐ! -
Ég er í Helsinki í vinnuferð og viti menn - kemur í ljós að bandaríski tónlistamaðurinn T.I. fer árlega með dóttur sína til læknis til að staðfesta órofið meyjarhaft.
Hvar á ég að byrja?!
Þetta er stutt og laggott en mikilvægt! -
Ég lenti í skemmtilegri uppákomu á Konukvöldi í Hveragerði um helgina og það fékk mig til að hugsa um allskonar... mikilvægi munnmaka, druslustimpilinn, karlmennsku og karlmenn og bara lífið almennt.
Eða svona þannig. -
I am going to Mexico in just under a week and I CAN NOT WAIT!
But I also have so much going on at the moment - it is CRAZY!
I am organising my CockChat event here in Iceland, and participating in a workshop for the Prime Ministers Ministry, doing stand-up all over and going to Finland for Sexpos 50year celebration!
So yeah. PARTY as always! -
Hefurðu pælt í lengdinni á typpinu þínu?
Hefurðu mælt á þér typpið?
Hvað finnst þér um punginn þinn?
Þrífurðu typpið fyrir notkun með félaga?
Hvar finnst þér best að rúnka þér?
Ég er aðeins að pæla í typpum þessa dagana... og með könnun, endilega taktu þátt - bara gaman :)
https://forms.gle/4YjTBqLDxYnDMMM96 - Show more