Episodios
-
Andrea Rún Carlsdóttir er viðmælandi þáttarins. Andrea starfar sem jógakennari og nuddari og hefur lært hvoru tveggja. Þá hefur hún einnig lært hugleiðslujóga, Yoga Nidra, sem snýst um að ná algerri djúpslökun. Í þættinum ræðum við kostina við að hugleiða, leiðir til að læra að hugleiða og tökum eina lauflétta öndunaræfingu sem getur hjálpað til við að ná hugarró.
-
Andrea Rún Carlsdóttir starfar sem jógakennari og nuddari og hefur lært hvoru tveggja. Þá hefur hún einnig lært hugleiðslujóga, Yoga Nidra, sem snýst um að ná algerri djúpslökun. Hér leiðir hún okkur í gegnum ca. 30 mínútna hugleiðslu . Hugleiðslan byrjar á 1:40 - Komum okkur vel fyrir og leyfum okkur að ná algerri djúpslökun saman. (Bannað að dæma að ég sé að anda hátt þarna á hliðarlínunni).
-
¿Faltan episodios?
-
Indíana Nanna Jóhannsdóttir er viðmælandi minn í þessum þætti af Aðeins meira en bara GYM. Indíana hefur gert það gott sem þjálfari síðustu ár og gaf nýverið út bókina Fjarþjálfun. Hún hefur leyft fólki að fylgjast með sínu daglega lífi á Instagram-síðu sinni en þar deilir æfingum, tæknilegum atriðum, uppskriftum og fleiru með fylgjendum sínum.
-
Silja Úlfarsdóttir, fyrrum afrekskona í frjálsum er viðmælandi þessa fyrsta þáttar 2020. Silja hefur í gegnum tíðina unnið með fullt af íþróttafólki úr ýmsum greinum. Þá hefur hún þjálfað það í snerpu og hlaupastíl og þjálfar bæði atvinnumenn, unglinga og unga krakka. Á dögunum setti hún af stað verkefni sem heitir Klefinn.is og er nýr fjölmiðill fyrir íþróttafólk. Í ljósi umræðna um íþróttafólk og styrki frá fyrirtækjum síðasta haust fannst Silju hún knúin til að demba sér í þetta verkefni en hún hafði lengi gengið með hugmyndina.
Þátturinn er á vegum Útvarp 101.
-
Arnar Pétursson (eða Addi Pé) hefur í gegnum tíðina bæði æft og þjálfað hlaup sem hefur skilað góðum árangri enda sjöfaldur Íslandsmeistari í maraþoni. Hann gaf nýverið út bókina Hlaupabókin þar sem hann hefur tekið saman ýmis mikilvæg atriði um hlaup eins og upphitun, að vita tilganginn og hausinn í löngu hlaupi. Í þættinum ræðir Birna við hann um algeng byrjendamistök, langtímamarkmið og hvernig maður hættir að hata hlaupabrettið.
Þátturinn er á vegum Útvarp 101.
-
Júlían J.K. Jóhannsson bætti sitt eigið heimsmet þegar hann lyfti 405,5 kg þann 23. nóvember síðast liðinn. Júlían er 26 ára gamall og hefur stundað kraftlyftingar síðan hann var 15 ára en honum hefur vægast sagt gengið vel á þessum 11 ára ferli. Á síðasta ári stimplaði hann sig inn sem heimsmeistari þegar hann tvísló fyrra heimsmetið (397,5 kg) þegar hann lyfti 398 kg í annarri lyftunni sinni og svo 405 kg í þriðju og síðustu lyftunni. Í þættinum fer hann í gegnum mótið og heimsmetið ásamt því að tala um stress og áhættur, markmið og framhaldið.
Þátturinn er á vegum Útvarp 101.
-
Arnhildur Anna Árnadóttir er viðmælandi minn í þessum þætti. Hún er 27 ára félagsfræðingur og förðunarfræðingur, ljúf og kát en ekki síst magnaður íþróttamaður og hefur stundað kraftlyftingar í nokkur ár. Þar sem hún er sérfræðingur í að lyfta þungu spurði ég hana út í kraflyfturnar þrjár, hugarfar, litlu atriðin og svo leiddi hún mig í gegnum sína fullkomnu hnébeygju. Hún segir frá muninum á því að taka styrktaræfingu og Max-æfingu ásamt því hvernig hún stillir sig inn fyrir slíka æfingu. Um er að ræða spjall sem gírar þig í gang fyrir næstu (þungu) æfingu.
Þátturinn er á vegum Útvarp 101.
-
Unnar Helgason er gestur minn að sinni en Unnar veit sitt hvað um þjálfun, heilsu og álag við líkamsrækt. Sjálfur er hann í hörkuformi og er einn af þessum sem byrjaði í CrossFit áður en allir byrjuðu í CrossFit. Hann hefur lagt sitt af mörkum við að efla CrossFit samfélagið á Íslandi og var til dæmis meðal þeirra sem komu CrossFit Akureyri á laggirnar en sömuleiðis hefur hann þjálfað CrossFit út um allan bæ. Ekki nóg með að vera fáranlega mikill CrossFit nagli heldur þá er hann líka búinn að vera að taka íþróttamenn eins og Gunnar Nelson í gegn og hjálpað til við að koma þeim í sitt besta form. Í þættinum töluðum við um muninn á ofþjálfun og of mikilli þjálfun, mikilvægi endurheimar og hvort öll þau tæki og tól sem fyrirtæki segja að hjálpi við endurheimt raunverulega skili árangur.
Þátturinn er á vegum Útvarp 101.
-
Vala Rún Magnúsdóttir er viðmælandi minn í nýjasta þætti Aðeins meira en bara GYM. Vala er 22 ára gömul, er að læra rekstrarverkfræði í Háskólanum í Reykjavík, situr í stjórn ungra athafnakvenna, er samskiptastjóri Stelpur styðja stelpur, starfar hjá Veitum sem svæðisstjóri, einn þáttastjórnenda hlaðvarpsins Þegar ég verð stór en ásamt þetta öllu er Vala fyrrum skautadrottning. Vala byrjaði fimm ára að læra á skauta og það má segja að hún hafi orðið heltekin af íþróttinni þar sem hún hefur ekki enn kvatt ísinn og starfar nú sem skautaþjálfari. Í þættinum ræðum við vald þjálfara, hvenær það er of langt gengið, umræðuna síðustu misseri og hvernig áherlsurnar hafa breyst.
Þátturinn er á vegum Útvarp 101.
-
Katrín Steinunn Antonsdóttir er 26 ára spretthlaupari sem leggur áherslu á 100 og 200 metra spretti. Katrín byrjaði tvítug að æfa spretthlaup eftir að hafa æft handbolta og fótbolta á sínum yngri árum. Við ræddum hvernig það var að koma seint inn í íþróttina, hvernig hugarfarið hefur breyst, muninn á því að vera í hópíþrótt og einstaklingsíþrótt og mikilvægi þess að treysta á æfingaferlið. Katrín er þessa stundina að byggja sig upp fyrir næsta keppnistímabil og er spennt fyrir framhaldinu, enda nóg eftir.
Þátturinn er á vegum Útvarp 101.
-
Böðvar Tandri Reynisson, betur þekktur sem Böddi er viðmælandi minn í þessum öðrum (semi fyrsta) þætti af Aðeins meira en bara GYM. Böddi, er 22 ára gamall, hann er að læra verkfræði í HR, æfir lyftingar og er (að mínu mati) mjög góður í að lyfta þungu. Hann hefur verið að þjálfa í nokkur ár núna, bæði einkaþjálfun og hópþjálfun og er í dag yfirþjálfari Víkingaþreksins í Mjölni. Ég get vottað fyrir það að Böddi er góður þjálfari þar sem hann hefur pússað ýmsar hreyfingar hjá mér og hjálpað mér að ná ótrúlegustu þyngdum upp. Um er að ræða einlægt og innihaldsríkt spjall þar sem Böddi fer yfir reynslu sína sem þjálfari, markmið, áherslur og algeng mistök hjá þjálfurum.
Þátturinn er á vegum Útvarp 101.
-
Tvíburarnir Benedikt (Bensi) og Halldór (Dóri) Karlssynir eru viðmælendur í fyrsta þætti Aðeins meira en bara GYM. Bensi og Dóri eru ekki bara sjarmatröll í fantagóðu formi heldur einnig afar vel að sér í CrossFit og öllu sem því tengist. Í þættinum voru fyrstu tvær æfingarnar af Open-inu gerðar upp ásamt því að spá í hvað kæmi næst, hverjum er gaman að fylgjast með og hvort fólk viti yfir höfuð muninn á röddum þeirra bræðra (ATH! þær eru mjög líkar).
Þátturinn er á vegum Útvarp 101.