Episodios
-
Í þættinum í dag verður meðal annars rætt við íslenska nemendur í erlendum háskólum. Margir þeirra hafa flúið heim til Íslands á meðan á ástandið gengur yfir. Þeir lýsa breyttum aðstæðum í náminum, fjar-fyrirlestrum á nóttunni, dansæfingum á stofugólfinu og hópavinnu tímabelta á milli. Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands, ræðir um covid-kennslu og áhrif faraldursins á framtíð menntunar. Við heyrum um hjón sem hafa bæði þurft að skrá sig á atvinnuleysisbætur, í fyrsta skipti á ævinni, nú þegar þau nálgast sextugt En við byrjum á nafnlausri frásögn sem við fengum senda inn í gegnum vefinn okkar, sögur úr kófinu.
-
Í dag ætlum við að rýna í framtíðina. Við heyrum af atvinnulausum leiðsögumanni, förum í fámennt brúðkaup í Grasagarðinum og ræðum við Björn Þorsteinsson heimspeking um heiminn eftir covid.
-
¿Faltan episodios?
-
Í þætti dagsins skoðum við upphaf lífsins og endalok. Við fylgjumst með ungu pari eignast sitt fyrsta barn í miðju kófi. Við heyrum sögu Bjarna Líndal sem missti konuna sína, Ágústu Ragnhildi Benediktsdóttur úr Covid-19 í byrjun apríl. Og við ræðum við séra Sigurð Jónsson um mikilvægi táknrænna athafna á borð við útfarir og hvað gerist þegar hefðum og venjum er raskað á okkar erfiðustu stundum.
-
Í þætti dagsins skoðum við upphaf lífsins og endalok. Við fylgjumst með ungu pari eignast sitt fyrsta barn í miðju kófi. Við heyrum sögu Bjarna Líndal sem missti konuna sína, Ágústu Ragnhildi Benediktsdóttur úr Covid-19 í byrjun apríl. Og við ræðum við séra Sigurð Jónsson um mikilvægi táknrænna athafna á borð við útfarir og hvað gerist þegar hefðum og venjum er raskað á okkar erfiðustu stundum.
-
Áttundi þátturinn af sérútgáfu Lestarinar, Fordæmalausir tímar. Í þessum þáttum reyna dagskrárgerðarmenn Lestarinnar að skrásetja hina undarlegu tíma sem við erum að upplifa, það hvernig fólk er að takast á við lífið í miðjum Covid-19 heimsfaraldri.Þar eru sagðar persónulegar sögur úr kófinu, við heimsækjum framlínuna í baráttunni við faraldurinn og veltum fyrir okkur framtíðinni. Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að fréttum og upplýsingamiðlun. Við fylgjum blaðamanni Stöðvar 2 á daglegan upplýsingafund Almannavarna. Rætt verður við Kristjönu Ásbjörnsdóttur faraldursfræðing við háskólann í Washington, en hún hefur þurft að rökræða um faraldurinn við sjálfskipaða sérfræðinga á samfélagsmiðlum undanfarnar vikur. Og við ræðum um upplýsingaóreiðu og áreiðanleika frétta við þá Finn Dellsén, heimspeking, og Hauk Má Helgason, rithöfund og blaðamann.
-
Sjöundi þáttur sérútgáfu Lestarinnar: Fordæmalausir tímar. Í þættinum í dag fáum við innsýn í störf framlínustarfsfólks á Landspítalanum. Við heyrum í hjúkrunarfræðingi, geislafræðingi, lækni og sjúkraliða svo eitthvað sé nefnt. Heyrum um hlífðarbúninga og handþvott, ótta, samstöðu, andlát og bata. Og undir lok þáttar verður rætt við Örnu Hauksdóttur, prófessor við læknadeild háskóla íslands, um heilsufarsleg áhrif samfélagslegra áfalla.
-
Í þetta sinn beinum við sjónum okkar stöðu listanna í heimsfaraldrinum. Við fylgjumst meðal annars með meðlimum Vesturports taka niður sett sem aldrei var notað, þar sem ekki er hægt að halda tveggja metra reglunni við tökur á sjónvarpsþáttum. Við heyrum sögur af listamönnum sem misst hafa lífsviðurværið vegna veirunnar. Og við ræðum áhrif faraldursins á listsköpun og miðlun í gegnum netið við þau Ásgeir Ingólfsson, menningarblaðamann, og Margréti Elísabetu Ólafsdóttur, listfræðing.
-
Í þessum fimmta þætti sérútgáfu Lestarinnar: Fordæmalausir tímar, tökum við þátt í samfélagslega ábyrgu stórafmæli, 90 ára afmælisveislu sem breyttist úr fjölmennu partýi í bíltúr um borgina. Þrátt fyrir samkomubann hefur grunn- og leikskólum landsins verið haldið opnum undanfarnar vikur. Við heimsækjum leikskólann Kvistaborg og fræðumst um hvernig tekist er á við faraldurinn þar. Og Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor í heimspeki, spjallar um tengsl og umhyggju á tímum samskiptafjarlægðar.
-
Fjórði þátturinn í sérútgáfu Lestarinnar: Fordæmalausir tímar. Í dag ræðum við um tækni, um það hvernig stjórnvöld og einstaklingar hafa notað tæknina til að berjast gegn veirunni og veltum fyrir okkur hvort langvarandi samkomubann muni breyta tækninotkun almennings til frambúðar. Við ræðum við Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóra netöryggisfyrirtækisins Syndis, og Thamar Melanie Heijstra, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands Við sláumst í för með meðlimi smitrakningarteymis Ríkislögreglustjóra og fylgjumst með vinnu þess bakvið tjöldin. Og svo heyrum við samtal ungs pars sem hefur verið aðskilið í þrjár vikur vegna veirunnar og heldur sambandinu gangandi í gegnum fjarskiptabúnað.
-
Ást, stríð og einmanaleiki kemur við sögu í þættinum í dag þar sem samskipti eru rauði þráðurinn. Við heimsækjum hjálparsíma Rauða krossins, en aukið álag er á starfsfólk vinalínunnar á tímum fordæmalausrar innilokunar og einangrunar. Við kynnumst frumlegum leiðum sem eldri hjón hafa fundið til að tjá ást sína í sóttkví. Og við ræðum um orðræðu stjórnmálanna á tímum faraldurs við Guðmund Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði.
-
Annar þátturinn í sérútgáfu Lestarinnar: Fordæmalausir tímar. En um þessar mundir helgar Lestin tvo þætti í viku sögum úr faraldrinum. Að þessu sinni verða tómir ferðamannastaðir heimsóttir, erlent hótelstarfsfólk og einmana ferðalangur verða meðal annars á vegi Lestarinnar. Við fylgjumst með fjölskyldu sem púslar æskuminningum fjölskylduföðurins saman í gegnum fjarfundabúnað. Og rætt verður um samfélagsleg áföll og minningar við Gunnþórunni Guðmundsdóttur bókmenntafræðing.
-
Í dag hefur göngu sína sérútgáfa Lestarinnar: Fordæmalausir tímar, sem verður á dagskrá tvisvar í viku á meðan samkomubanni stendur. Við heyrum persónulegar sögur, förum í vettvangsferðir og veltum fyrir okkur þeim spurningum sem upp koma um samfélagið nú og í framhaldi faraldursins. Í þætti dagsins heyrum við m.a. sögu Pálma Gunnlaugs Hjaltasonar matreiðslumanns og alkóhólista og ræðum um þá stöðu sem faraldurinn setur fólk með fíknivanda í. Við tókum einnig púlsinn á nokkrum samkomustöðum örfáum klukkustundum áður en hert samkomubann gekk í gildi á miðnætti síðastliðinn þriðjudag. Við heimsækjum hverfisbarina Moe?s og Álfinn í Breiðholti, hárgreiðslustofuna Blanco og skemmtistaðinn Röntgen