Episodios
-
Í þessum lokaþætti vetrarins kynnum við okkur tvær bækur og heyrum lag Barnamenningarhátíðar í ár. Heillaspor - Gildin okkar er ný bók fyrir ungt fólk og fjölskyldur sem fjallar um gildi eins og gleði, þakklæti, vináttu, hugrekki og fleiri sem geta nýst til að leggja grunn að betra lífi. Bókin er skrifuð af Gunnari Hersveini og Helgu Björgu Kjerúlf og myndlýst af Heru Guðmundsdóttur. Í Krakkakiljunni segir Sölvi Þór bókaormur frá áhugaverðri bók sem kom út í íslenskri þýðingu í fyrra. Hún fjallar um stelpu í samtímanum sem lendir í óvæntum atvikum sem tengjast norrænni goðafræði. Barnamenningarhátíð er hafin en hún stendur yfir í allt sumar með viðburðum um alla borg. Lag hátíðarinnar í ár var samið af Euro-stjörnunni okkar, Daða Frey í samstarfi við krakka í fjórðu bekkjum grunnskóla Reykjavíkur. Tónlist: Hvernig væri það? - Daði Freyr Gestir: Helga Björg Kjerúlf, einn höfundur Heillaspora Sölvi Þór Jörundsson, bókaormur Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Sigyn Blöndal
-
Í Krakkavikunni í kvöld verður farið yfir helstu Krakkafréttir. Þar verður meðal annars rætt við fótboltakrakka í Grindavík sem fengu að snúa aftur á æfingu, fjallað verður um glóandi myndir af Júpíter og uppáhaldsbók í Krakkakiljunni. Í kvöld segir Móey bókaormur frá bókinni Koparborgin. Gestir: Móey Kjartansdóttir, bókaormur Atli Dagur og Dagmar Edda, barnaþingsmenn Sesselja Traustadóttir hjá Hjólafærni á Íslandi Mikael Máni og Marinó Freyr, UMFG Anna Ýr og Natalía Nótt, UMFG Jón Arnór Pétursson, leikari Vala Frostadóttir, leikkona Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
¿Faltan episodios?
-
Í kvöld segjum við meðal annars frá nýrri barnabók um kórónuveiruna, íslenskum krökkum sem komust loksins á fótboltaæfingu, risageitungum í Bandaríkjunum og heyrum af uppáhaldsbók í Krakkakiljunni. Gestir: Bríet Mirra Guðmundsdóttir, 8 ára eftir 6 daga Jón Marínó Bjarnason, 8 ára Katrín Eva Jóhannesdóttir, 6 ára Embla Ósk Pétursdóttir, 7 ára Saga Jörundsdóttir, 6 ára Sölvi Þór Jörundsson, 11 ára Heimir Halldórsson, 8 ára. Þórdís Gyða Grímarsdóttir, 8 ára Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
Í þættinum fáum við Krakkafréttir síðustu daga og heyrum svo á bókaormaspjall um bókina Friðberg forseta eftir Árna Árnason. Bókaormur þáttarins er Guðbjörg Marý Eyjólfsdóttir. Gestir: Guðbjörg Marý Eyjólfsdóttir, bókaormur Árni Árnason, rithöfundur Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
Í þættinum fáum við Krakkafréttir síðustu daga og heyrum svo á bókaormaspjall um bókina Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna eftir Bjarna Fritzson. Bókaormur þáttarins er Rúnar Gauti Kristjánsson. Gestir: Rúnar Gauti Kristjánsson, bókaormur Bjarni Fritzson, rithöfundur Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
Í þættinum fáum við helstu Krakkafréttir undanfarinna daga og hlustum svo á bókaormaspjall um bókina Nornasaga - Hrekkjavakan eftir Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur. Sigyn Blöndal tekur á móti henni ásamt Sunnevu Kristínu bókaormi og þær ræða bókina ofan kjölinn. Við heyrum betur í þeim hér á eftir en við byrjum á Krakkafréttum. Gestir: Sunneva Kristín Guðjónsdóttir, bókaormur Kristín Ragna Gunnarsdóttir, rithöfundur og myndskreytir Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Sigyn Blöndal
-
Í þættinum í kvöld förum við yfir helstu Krakkafréttir og fáum bókaormaspjall um íslenska barnabók í seinni hluta þáttar. Í kvöld ræða Vigdís Una bókaormur og Sigrún Elíasdóttir um bókina Leitin að vorinu. Gestir: Sigrún Elíasdóttir, rithöfundur Vigdís Una Tómasdóttir, bókaormur Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
Í þættinum í kvöld förum við yfir helstu Krakkafréttir og fáum að heyra bókaormaspjall um íslenska barnabók. Í kvöld tekur Sigyn á móti þeim Ævari Þór og Lúkasi Myrkva til þess að ræða bókina Þinn eigin tölvuleikur. Gestir: Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur Lúkas Myrkvi Gunnarsson, bókaormur Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Sigyn Blöndal
-
Í þættinum í kvöld förum við yfir helstu Krakkafréttir og fáum að heyra bókaormaspjall um nýja íslenska barnabók. Í kvöld er rætt við rithöfundinn Ármann Jakobsson og Móey Kjartansdóttur, bókaorm. Bók kvöldsins er Bölvun múmíunnar. Gestir: Móey Kjartansdóttir Ármann Jakobsson Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
Í þættinum í kvöld förum við yfir helstu Krakkafréttir og fáum að heyra bókaormaspjall um nýja íslenska barnabók. Í kvöld tekur Sigyn Blöndal á móti rithöfundinum Ásrúnu Magnúsdóttur og Ísabel Dís Sheehan, bókaormi. Bók kvöldsins er Ævintýri Munda lunda. Bókaormur dagsins: Ísabel Dís Sheehan Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
Í Krakkavikunni í kvöld förum við yfir helstu Krakkafréttir og við fáum að heyra bókaormaspjall í Krakkakiljunni. Í þessum þætti kemur Frosti Freyr Davíðsson, 11 ára ljóðskáld, til okkar í heimsókn og segir okkur frá ljóðabók sem hann gaf út upp á eigin spýtur í fyrra sem heitir Lífið og leikendur. Gestur Krakkakiljunnar: Frosti Freyr Davíðsson, 11 ára. Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
Í Krakkavikunni í kvöld förum við yfir helstu Krakkafréttir og við fáum bókaormaspjall Krakkakiljunnar. Bók dagsins er Randalín, Mundi og leyndarmálið eftir Þórdísi Gísladóttur. Bókaormur dagsins: Dýrleif Hrafnsdóttir Thoroddsen. Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
Í Krakkavikunni í kvöld förum við yfir helstu Krakkafréttir og við fáum bókaormaspjall Krakkakiljunnar. Bók dagsins er Draumaþjófurinn eftir Gunnar Helgason. Bókaormur dagsins: Sölvi Þór Jörundsson, 11 ára. Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
Í Krakkavikunni í kvöld förum við yfir helstu Krakkafréttir og við heyrum fyrsta bókaormaspjall Krakka-Kiljunnar. Þar verður fjallað um bókina Sipp, Sippsippanipp og Sippsippanippsippsúrumsipp Blævi Guðmundsdóttur. Bókaormur dagsins: Kári Tuvia Kjartansson, 8 ára Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
Í Krakkavikunni í kvöld verður farið yfir helstu Krakkafréttir vikunnar og við heyrum fyrsta bókaormaspjall Krakka-Kiljunnar. Þar verður fjallað um bókina Langelstur að eilífu eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur sem hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin í síðustu viku. Bókaormur dagsins: Maríam Jökla, 8 ára Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
Í þættinum förum við yfir Krakkafréttir liðinnar viku, fræðumst um bóndadaginn og hlustum aðeins á tónlist sem vakti mesta athygli á Grammy-verðlaunahátíðinni í Bandaríkjunum. Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
Nýlega kom út bók með öllum fjórum bókunum um Blíðfinn eftir Þorvald Þorsteinsson. Þær komu út á árunum 1998-2004 en nú eru þær allar aðgengilegar í einu bindi og það með nýjum teikningum Lindu Ólafsdóttur. Linda kemur í þáttinn og segir frá teikningunum, sköpunarferlinu og sinni reynslu af sögunum af Blíðfinni. Einnig verður farið yfir helstu Krakkafréttir liðinnar viku. Gestur: Linda Ólafsdóttir, teiknari og myndhöfundur Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
Í þættinum í kvöld förum við yfir helstu Krakkafréttir og kíkjum á nokkur gömul brot úr Krakka-Kiljunni frá 2018. Ný Krakka-Kilja er að fara af stað og við erum spennt að takast á við allar barna- og unglingabækurnar sem komu út árið 2019. Tónlist: I'm taking it back - Hljómsveit Upptaktsins og GDRN Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
Í dag er þrettándinn og þá kveður fólk jólahátíðina. Í þessum þætti fræðumst við þess vegna aðeins um áramót og kynnum okkur þrettándahátíðina. Við heyrum af allskonar gömlum og skemmtilegum siðum og venjum, álfum, huldufólki og talandi kúm. Gestur: Björk Bjarnadóttir, umhverfisþjóðfræðingur Umsjón: Jóhannes Ólafsson
-
Í þessum sérstaka áramótaþætti ætlum við að horfa yfir farinn veg og kynna okkur allt það skrítna og skemmtilega sem gerðist á árinu. Við förum yfir helstu krakkafréttir í fyrrihluta þáttar og í síðari hluta fáum við brot úr allskonar skemmtilegu sem var á dagskrá í barnamenningu árið 2019. Tónlist: Dance Monkey - Tones and I Umsjón: Jóhannes Ólafsson
- Mostrar más