Episodit
-
Grár köttur snýr aftur og færir okkur sögur af verslunarmannahelgum fyrri tíma. Við heyrum af pössunarpíunni sem steig á svið í Húnaveri, bítlinum sem ræddi við Boga, Uxanum þar sem allt fór úrskeiðis og auðvitað kíkjum við á Þjóðhátíð. Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
-
Grár köttur skoðar hugmyndina um alvöru konur út frá kvenlíkamanum, móðurhlutverkinu, hinseginleikanum og kynlífsdúkkum.
-
Puuttuva jakso?
-
Grár köttur er með óvenjulegu sniði að þessu sinni en þátturinn var tekinn upp fyrir framan áhorfendur í samstarfi við Hinseginleikann. Sagðar eru hinsegin sögur af hinsegin fólki; sögur af orðum, skápum og skemmtistöðum.
-
Í dag fær Grár köttur fyrirboða úr geimnum, frá líkamanum og að handan. Fjallað er um fyrirboða tengda hafinu, dauðanum og gestakomum, halastjörnu sem ávallt snýr aftur og fæðinguna sem fór af stað í IKEA - eða hvað?
-
Í Gráum ketti dagsins er fjallað um drauma og draumóra. Við skyggnumst í gamlar sögur af berdreymi, heyrum af draumi um barn og kynnum okkur banvæna hugaróra eltihrellis Bjarkar Guðmundsdóttur. Þátturinn inniheldur atriði sem kunna að valda óhug.
-
Grár köttur ræðir við listakonuna Völu Höskuldardóttur um karlmennsku, heyrir söguna af því þegar Dóri DNA varð skotinn í strák og hugmyndir Gunnars Nelson um ástina. Þá spáir kötturinn í vönunarótta í kvikmyndinni Fight Club, sem á tvítugsafmæli um þessar mundir, og fer í herraklippingu með fimm barna föður.
-
Í dag fjallar Grár köttur um dularfull veikindi: útvarpsmanninn sem hikstaði stanslaust í hálfan mánuð og barn sem í 14 ár varð veikara og veikara án þess að nokkur skildi hvað bjátaði á.

Þennan föstudaginn skoðar Grár köttur ljósmyndir úr íslenskum veruleika. Við vefum ástarsögu inn í vinnuna á bakvið Instagram-myndir áhrifavaldsins Tönju Ýrar, sjáum bera karlabossa á kvennafrídeginum og rifjum upp nóttina þegar Kristinn Magnússon tók ljósmynd sem setti íslenskt samfélag - eða allavega samfélagsmiðla - á hliðina.

Í dag segir Grár köttur sögur af fyrstu skiptum, m.a. klúðurslegum kossi, vandræðalegum vangadansi, austfirskum bónda sem kom í fyrsta skipti til Reykjavíkur á áttræðisaldri og fyrsta skiptinu sem transkona kom opinberlega fram á Íslandi.

Í þætti dagsins heyrum við sögur af aukaverkunum - óvæntum afleyðingum lyfja, laga, og lagasmíða fyrir unga konu, íslenska poppstjörnu og síðast en ekki síst: seli. Við byrjum (eins og svo margar unglingsstúlkur) á pillunni en leið okkar liggur þó einnig í jarðarför og í Húsdýragarðinn.

Í dag fjallar Grár köttur um börn, eða nánar tiltekið hvernig þau verða til. Það ferli á að vera skemmtilegt, allavega svona í upphafi, en þó við eyðum mikilli orku í að koma í veg fyrir barneignir snemma á lífsleiðinni reynist það stundum þrautin þyngri að búa til börn þegar upp er staðið. Í þættinum í dag heyrum við þrjár sögur af ófrjósemisvanda, um drauma sem virðast aldrei ætla að rætast og líkama sem bregðast.

Grár köttur læðist um íslenska náttúru og segir sögur af þremur íslenskum umhverfisskæruliðum. Kona fer í stríð á sauðskinnsskóm, Laxdælingur fremur hryðjuverk og ruslahaugur kippir stjörnusérfræðingi niður á jörðina.

Eftir 76 ár af smygli og heimabruggi var bjórbanninu á Íslandi loks aflétt þann 1. mars árið 1989. Leiðin frá bannárunum til bjórsins var nokkuð skrautleg en hana fetar Grár köttur í þætti dagsins með aðstoð Stefáns Pálssonar sagnfræðings, Davíðs "sem keypti ölið" Scheving, frumkvöðlanna á bakvið Gauk á stöng og bjórlíkið sem og Steingríms J. Sigfússonar Alþingismanns sem mælti gegn bjórfrumvarpinu á sínum tíma.
-
Eins manns rusl er annars fjárssjóður - og öfugt. Í þættinum í dag heyrum við þrjár sögur af hlutum sem fundust undir gólffjölum, uppi á háalofti og milli þilja, hlutum sem bæta kannski ekki miklu í baukinn en eru, á mjög ólíkan hátt, kannski gulls ígildi.
- Näytä enemmän