Episodes
-
Fáir þekkja betur hvernig fangelsiskerfið virkar en þeir sem hafa farið í gegnum það. Hvað segir maður sem aldrei átti von á að lenda í fangelsi um kerfið sem hann trúði að virkaði? Viðmælendur í þættinum eru Elmar Svavarsson, fyrrverandi fangi, og Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra.
-
Einn stærsti þátturinn í betrun fanga á Íslandi á að eiga sér stað á Vernd. Þar eru fangar búsettir í grónu hverfi í Laugardalnum og sinna vinnu eins og hver annar samfélagsþegn. En hvað á sér stað þar? Viðmælendur í þættinum eru Þráinn Farestveit, framkvæmdastjóri Verndar, og ónafngreindur fangi sem afplánar á Vernd.
-
Episodes manquant?
-
Í hvaða stöðu eru fangar þegar þeir fara að taka fyrstu skrefin út í samfélagið eftir betrunarvist? Yfirleitt fá þeir fyrstu tækifærin á Vernd eða í samfélagsþjónustu. Viðmælendur í þættinum eru Þorlákur Ari Ágústsson, fyrrverandi fangi, María Jónsdóttir og Ragnhildur Ólafsdóttir, náms- og starfsráðgjafar hjá Vinnumálastofnun, Silja Ingólfsdóttir og Aðalheiður Jónsdóttir, starfsmenn Rauða krossins í Kópavogi, og Örn Ragnarsson, verkefnisstjóri Fatasöfnunar Rauða krossins. Umsjón: Aðalsteinn Kjartansson.
-
Á Íslandi er talað um betrunarvist í fangelsum en ekki bara refsivist. Í fyrsta þætti skoðum við hvað felst í fangelsisvist hér á landi, hvað í kerfinu er hugsað sem betrun og hvaða áhrif fangelsisvist hefur á hæfni einstaklinga til að taka þátt í samfélaginu að afplánun lokinni. Rætt er við Pál Winkel fangelsismálastjóra, Guðmund Inga Þóroddsson, fanga og formann Afstöðu, Maríu Jónsdóttur og Ragnhildi Ólafsdóttur, náms- og starfsráðgjafa hjá Vinnumálastofnun, og Kristjón Kormák Guðjónsson, ritstjóra DV.