Episodi
-
Pavel tekinn í körfuboltayfirheyrslu og labbaði út í miðju viðtali!
-
Síðasti þáttur Brodies á útvarp 101. Risa tilkynning. Pavel Ermolinskij var gestur þáttarins en hann endaði á að labba út úr miðju viðtali!
-
Episodi mancanti?
-
Sama ruglið. Nýr þáttaliður leit dagsins ljós. Axel Birgis jarðaður af sínum eigin quotes
-
Kristófer Acox og Bjössi Kri slegnir út af laginu með krefjandi spurningum úr körfubolta yfirheyrslunni í síðasta þætti af útvarpsþættinum Brodies.
-
Donna Cruz kíkti á Brodies strákana þar sem hún talaði um nýja starfið sitt hjá Arena gaming, svaraði nokkrum laufléttum spurningum og sagði strákunum áhugaverða sögu
-
Ægir Þór hringdi inn í þáttinn og ræddi um körfuboltann og mögulegan tónlistarferil
-
Fullur bátur. Framkvæmdarstjóri Geosea og stórvinur þáttarins Ármann Örn hringdi inn í þáttinn þar sem hann var staddur í kóngsins Köben að keyra í sig með bræðrum sínum. Axel Birgis tók Bjössa og Kristó í rosalega körfuboltayfirheyrslu.
-
Fullur bátur hjá Brodies í þessum þætti. Bjössi loksins kominn heim úr sumarfríi. Körfuboltamaðurinn Ægir Þór hringdi inn í þáttinn og ræddi mögulegan tónlistarferil sinn ásamt því að Donna Cruz kom sem gestur þáttarins í létt spjall og sagði áhugaverða sögu
-
Brodies einum færri í stúdíó þennan laugardaginn. Bjössi í KR ennþá úti á spáni að bronza sig.
-
Brodies voru tveimur færri þennan laugardaginn en það gerði lítið til þar sem þeir fengu gestastjórnandann og böðulinn Sigurð Már til að stýra með sér í staðinn. Nýjir dagskrárliðir litu dagsins ljós og Partý Reynir kom sem gestur.
-
DJ Jay-O, Eigandi b5 talar um opnun staðarins í nýju húsnæði seinna á þessu ári.
-
Elvar Már Friðriksson fer yfir það hvernig er að vera Instagram husband hjá einni af meðlimum LXS.
-
Strákarnir mættir aftur eftir sumarfrí. þeir voru allir í stúdíói þennan laugardaginn. Elvar Már Friðriksson Fór yfir það hvernig er að vera kærasti meðlims úr LXS hópnum.
-
Geggjað viðtal við strákana í Æði þar sem þeir meðal annars skera úr um hvað er raunverulega stórt typpi. Einnig þurfa þeir að gera upp á milli sín í "giftast, sofa hjá, senda út í sveit"
-
Strákarnir voru manni færri þennan þáttinn þar sem Bjössi stakk af til london án nokkurs fyrirvara. Hann fékk að gjalda fyrir það í þættinum þar sem hann var gasaður all hressilega. Gestur þáttarins var af dýrari sortinni í þetta skiptið en það var enginn annar en Jónas Óli betur þekktur sem Dj Jay-O en hann fór ítarlega yfir enduropnun B5 sem mun eiga sér stað seinna í sumar.
-
Menn rakir í stúdíói. Mikið hlegið. Mikið gaman.
-
Samkomutakmörkunum var aflétt á miðnætti og besta veður ársins leit dagsins ljós i þokkabót. Góður banter í stúdíoi og æskuvinahópur Kristófers mætti með læti fyrir utan. Gestir þáttarins voru strákarnir í Æði og úr varð skemmtilegt viðtal þar sem strákarnir svöruðu erfiðum spurningum á mjög skemmtilegan hátt.
-
Strákarnir voru manni færri þennan þáttinn en Kristófer leit þó snöggt við í stúdíói til að heyra í strákunum. Óvenju mikill banter í þessum þætti en allir mjög hressir engu að síður.
-
Kristófer Acox fór yfir vikuna á Patreksfirði, mögulega búinn að finna ástina í kjallaraíbúð. Brodies voru þrír í stúdíóinu en Axel hringdi inn frá Sjómannadeginum á Ólafsfirði og lýsti stemninguna sem ríkti þar.
Strákarnir fóru yfir næturlíf kvöldsins og tóku svo stefnuna á 203 þar sem Flóni tróð upp með tilheyrandi látum.
-
Mikil spenna var í loftinu þegar Kristófer Acox og Björn Kristjánsson hittust í stúdíóinu daginn eftir að KR sló Val út úr 8 liða úrslitum. Kristófer er þar af leiðandi kominn í sumarfrí og er ekki mikill vinur Bjössa í KR þessa dagana en Freyr og Axel voru ekki lengi að skipta úr því að vera Valsarar í grjótharða KR-inga, enda þekktir fyrir að vera alvöru bandwagoners.
Strákarnir fóru yfir fréttir vikunnar, Freyr reyndi að fara yfir Nýsköpunarvikuna sem er í gangi en það lenti á daufum eyrum hjá hópnum þar sem hvorki var minnst á körfubolta né næturlíf.
Axel skellti í leik sem hann hafði séð á Tiktok en sitt sýnist hverjum hversu vel hann skilar sér í útvarpsþætti.
- Mostra di più