Episoder
-
Í þessum þætti segir Sólrún okkur frá líkamsmyndar pælingum sínum í tengslum við brúðkaupið hennar. Kjóllinn, förðunin, sokkabuxurnar, brúðkaupsmyndirnar, útlitspressan og fleira og fleira. Brúðkaup geta haft mikil áhrif á líkamsmyndina og geta neikvæðar tilfinningar gagnvart útlitinu, sem mögulega hafa lengi legið í dvala, poppað upp. Elva reynir sitt besta að peppa Sólrúnu enda fyrrum brúður og tengir við margt sem Sólrún hefur áhyggjur af.
Lifið í lukku en ekki í krukku! -
Í þessum þætti fjalla þær Sólrún og Elva um ólíka hegðun kynjanna á Tinder. Einnig segir Sólrún frá öðrum sérkennilegum stefnumóta forritum eins og ísskápa appinu.
Elva talar um the male gaze á Tinder og the female gaze.
Sólrún segir okkur frá áhugaverðum hugmyndum og rannsókn á því hvernig hættulegar aðstæður geta kveikt á ástartilfinningum.
Þetta og margt margt fleira babl :) -
Mangler du episoder?
-
Páska-babl þáttur
Í þessum þriðja þætti annarrar seríu spjalla þær Sólrún og Elva um ýmislegt t.d vigtun hjá skólahjúkrunarfræðingum, sjónvarpsþætti eins og Love Island og Bridgeton, heilögu þrenninguna í fasteigna- og fatakaupum, fitufordóma í heilbrigðiskerfinu, líkamsímynd karla og útlits stríðni. -
Í þessum þætti af Bodkastinu segir Sólrún frá því hvernig fitufordómar geta birst á vinnustöðum. Farið er í fitu og útlits spjallið á kaffistofunni, megrunarmenninguna, Biggest Loser og aðrar þyngdartaps aðgerðir eða átök á vinnustöðum. Einnig fer Sólrún yfir þau atriði sem mikilvægt er að hafa í huga þegar kemur að því að bæta líkamsvirðinguna til að mynda í tengslum við vinnufatnað, fræðslu og stóla.
Hvetjum ykkur öll til að hlusta og alveg sérstaklega ykkur sem komið að því að skipuleggja eða stjórna vinnustöðum. -
Í þessum fyrsta þætti í annarri seríu af Bodkastinu segir Elva Sólrúnu frá Tik Tok fíkninni sinni. Þær ræða um ýmis hræðileg trend á Tik Tok og áhrif þeirra á líkamsímynd og líðan.
-
Þá er komið að 20. þættinum!
Í þessum þætta fara þær Sólrún og Elva yfir ýmislegt. Þær ræða um skyndikúraþættina á Rúv, megrunarátök í janúar, lof og last vikunnar og áfall, kvíða og hárlos -
Nítjandi Bodkast þátturinn og fyrsti þáttur ársins!
Í þessum fyrsta þætti ársins munu Bodkast konurnar Elva og Sólrún fjalla um megrun og þeirra eigin reynslu af alls kyns þyngdartaps aðgerðum, alla þá kúra sem þær hafa prófið frá Danska kúrnum yfir í fituskitu lyfjakúrinn.
Einnig segja þær frá niðurstöðum rannsókna á langtímaárangri þyngdartaps og fara í rannsókn á þyngdartapi keppenda í Biggest Loser þáttunum. -
Í 18. þætti Bodkastsins ræða þær Sólrún Ósk og Elva Björk um brjóst og áhrif þeirra á líkamsmynd og sjálfsmynd. Elva segir frá eigin reynslu af stórum brjóstum og lýtaaðgerð sem hún fór í fyrir um 20 árum síðan.
-
Líkamsímynd - Námskeið
Þetta er óhefðbundinn Bodkast þáttur.
Hér verður farið í annað skrefið á líkamsmyndarnámskeiðinu sem einnig má finna á Youtube. Hér verður farið í það sem mótar líkamsmyndina.
Námskeiðið er í þremur skrefum og gott að taka pásu eftir hvert skref og skrá niður pælingar og spurningar
1. skrefið - Kortleggja líkamsmyndina
2. skrefið - Hvað mótar líkamsmyndina
3. skrefið - Leiðir til að efla jákvæða líkamsmynd -
Líkamsímynd - Námskeið
Þetta er óhefðbundinn Bodkast þáttur.
Hér verður farið í þriðja og síðasta skrefið á líkamsmyndarnámskeiðinu sem einnig má finna á Youtube. Hér eru leiðir til að efla jákvæða líkamsímynd skoðaðar
Námskeiðið er í þremur skrefum og gott að taka pásu eftir hvert skref og skrá niður pælingar og spurningar
1. skrefið - Kortleggja líkamsmyndina
2. skrefið - Hvað mótar líkamsmyndina
3. skrefið - Leiðir til að efla jákvæða líkamsmynd -
Líkamsímynd - Námskeið
Þetta er óhefðbundinn Bodkast þáttur.
Hér verður farið í fyrsta skrefið á líkamsmyndarnámskeiðinu sem einnig má finna á Youtube. Fyrst er líkamsmyndin þín kortlögð þar sem þú svarar nokkrum spurningum.
Námskeiðið er í þremur skrefum og gott að taka pásu eftir hvert skref og skrá niður pælingar og spurningar
1. skrefið - Kortleggja líkamsmyndina
2. skrefið - Hvað mótar líkamsmyndina
3. skrefið - Leiðir til að efla jákvæða líkamsmynd -
Í 17. þætti Bodkastsins spjalla þær Sólrún Ósk og Elva Björk við Ásdísi Ingu sem hefur kynnt sér hugmyndir um intuative eating (að borða í núvitund) og að öðlast heilbrigt samband við mat.
Ásdís Inga er einkaþjálfari og félagsráðgjafanemi. Hún kynntist hugmyndum um intuative eating þegar hún var sjálf búin að eiga í óheilbrigðu sambandi við mat í langan tíma og búin að þróa með sér lotugræðgi (bulimia). Hún heldur úti Instagram reikningnum Healthisnotasize þar sem hún fjallar um alls konar líkamsvirðingartengd mál.
Í þættinum er einnig fjallað um megrunarvítahringinn, megrunarmenninguna, desember mataræðið og áramótaheit. -
Í þessum sextánda þætti af Bodkastinu fara þær Sólrún Ósk og Elva Björk út um víðan völl í líkamsvirðingar pælingum dagsins. Þær velta fyrir sér djörfu Nova auglýsingunni með allri nektinni, mataræðinu í desember, Britney Spears og Bridget Jones, sjálfsmynd og sjálfsskemu og að versla sér föt á netinu.
-
Í þessum fimmtánda þætti af Bodkastinu fáum við til okkar góðan gest, Hlín Rafnsdóttur. Hlín hefur gengið í gegnum erfið veikindi og hefur starfað fyrir Kraft, sem er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein. Við spjöllum um áhrif líkamlegra veikinda á líkamsímyndina, þær breytingar sem verða á líkamanum, útlitslegar sem og aðrar breytingar. Einnig förum við í nokkur ráð til að efla líkamsímyndina og sjálfssamkennd.
-
Í þessum fjórtánda þætti af Bodkastinu fjalla Elva Björk og Sólrún Ósk um Covid, ástandið í samfélaginu og áhrif þess á líkamsmynd og líðan. Þær spjalla um Covid kílóin frægu, fjarvinnu, kyrrsetuna og andlitsmyndir á Zoomfundum.
-
Í þessum þrettánda þætti af Bodkastinu fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um fræga fólkið og áhrif þeirra á líkamsmynd og líðan.
Þær velta fyrir sér áhrifum útlitstengdra frétta á sjálfsmynd og líkamsmynd og þess að dýrka og elska fræga einstaklinga. -
Í þessum babl þætti af Bodkastinu fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamsvirðingar-lífið undanfarna daga, útlitstal og niðurrif, fatakaup, megrunarauglýsingar, sykurlausan september, nammidaga, Kelly Clarkson og Serenu Williams saumaklúbbinn, Ostastrákinn hann Gotta, post-fæðingarkrullurnar og fleira og fleira.
-
Í þessum ellefta þætti af Bodkastinu fjalla þær Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamstengdarraskanir sem eru nokkuð algengar en ekki vel þekktar, hárplokkunaráráttu eða (trichotillomania) og húðkroppunaráráttu (skin picking disorder), líkamsskynjunarröskun (body dysmorphic disorder) og önnur líkamstengd vandamál.
-
Í þessum tíunda Bodkast þætti fjalla þær Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamsmynd eftir meðgöngu. Þær segja frá rannsókn sem þær framkvæmdu og fengu 500 svör og reynslusögur frá nýbökuðum mæðrum. Þær fjalla um 6 mánaða dýfuna í líkamsmynd, of litlu gallabuxurnar, þakklæti til líkamans og margt fleira.
-
Í þessum níunda Bodkast þætti fjalla þær Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamsmynd eftir meðgöngu og áhrif líkamsmyndarinnar á kynlíf. Kynfræðingurinn og snillingurinn Indíana Rós mætir aftur í þáttinn og spjallar um kynlíf og pælingar um kynlíf eftir meðgöngu.
- Se mer