Episodes
-
Hvað eru álagsárásir (DDoS), hverjir standa á bakvið slíkar árásir og hvað gengur þeim til?
Nýlega voru gerðar álagsárásir á vefsvæði ISAVIA og KSÍ svo eftir því varð tekið. Við spjölluðum við öryggissérfræðinga Advania, þá Kristján H. Hákonarson og Áka Hermann Barkarson, DDOS árásir og hvernig má bregðast við þeim. -
Í þættinum er rætt við Herjólf Guðbjartsson forstjóra Arctic Trucks um nýlegt netsvikamál þar sem tölvupósti var beitt til að blekkja viðskiptavini fyritækisins. Einnig er rætt við Daða Gunnarsson, sérfræðing í nýstofnaðri netbrotadeild lögreglunnar.
-
Missing episodes?
-
Eins og önnur stærri fyrirtæki á Íslandi gengst Advania undir jafnlaunavottun á árinu 2018. Í þættinum skoðum við hvernig innleiðing og undirbúningur fyrir jafnlaunavottun hefur gengið hjá Advania. Við fengum líka nokkur heilræði sem gagnast gætu öðrum sem eiga eftir að innleiða jafnlaunakerfi á sínum vinnustað.
Í þættinum er einnig fjallað um kerfi sem Advania hefur þróað í samstarfi við fyrirtækjaráðgjöf sem einfaldar fyrirtækjum að undirbúa jafnlaunavottun. Lausnin heitir easyEQUALPAY og lesa má meira um hana hér: https://goo.gl/J1BRPX
Lesa má meira um jafnlaunavottun á vef Advania: https://goo.gl/9AbbR1
Auk þess sem við höfum tekið saman nokkur praktísk atriði um jafnlaunavottun: https://goo.gl/tNGSwU -
Ofurtölvur eða HPC tölvur gefa fyrirheit um talsvert breytta framtíð. Kraftar þeirra eru til dæmis nýttir í tækniþróun, í fjármálageiranum og í byltingakenndum læknisfræðirannsóknum.
-
Þann 25. maí árið 2018 tekur gildi ný persónuverndarlöggjöf Evrópusambandsins sem setur ríkari kröfur á fyrirtæki um meðferð persónuupplýsinga. Hvað þarft þú að vita til að undirbúa fyrirtækið þitt undir löggjöfina?