Episodes

  • Í sjötta og síðasta þætti fyrstu seríu hlaðvarpsins Fósturfjölskyldur ræða þau Guðlaugur og Anna Steinunn um Félag fósturforeldra. Þau sitja bæði í stjórn félagsins og þekkja félagið orðið vel.

    Nýverið fór félagið í stefnumótunarvinnu í takt við ákall meðlimi félagsins og breyttar aðstæður fósturbarna. Þar er framtíðarsýn félagsmanna björt og margt sem vilji er til að breyta og bæta sem styður enn betur við fósturfjölskyldur.

    Jafningjafræðsla og kaffihúsahittingar eru mikilvægir liðir í fræðslu félagsmanna. Árlegur fræðslufundur félagsins hefur verið mjög mikilvægur og er hann yfirleitt að hausti og vel sóttur.

    Gulli og Anna Steinunn hvetja öll sem eru áhugasöm um að taka börn í fóstur að skrá sig í félagið áður en barn er komið inn á heimilið.

    Áhugasöm eru hvött til að kynna sér starf félagsins og senda inn spurningar ef eitthvað er óljóst.

    Hér getur þú fylgst með starfi Félags fósturforeldra og sent inn spurningar:

    https://www.facebook.com/fosturforeldrar

    https://www.fostur.is/

    [email protected]

    Hlaðvarpið er tekið upp og hljóðblandað í stúdíó @Lubbi Peace Keflavík. Ingi Þór Ingibergsson samdi stef hlaðvarpsins.

  • Í þessum fimmta þætti hlaðvarpsins Fósturfjölskyldur ræða þau Guðlaugur, Maja og Hildur um fósturbarnið og kynfjölskylduna.

    Þau ræða fyrstu kynni við fósturbarnið og það hvenær barnið flytur svo inn. Einnig velta þau fyrir sér hvenær og hvernig má tilkynna að nýtt barn sé komið inn á heimilið. Þá velta þau upp spurningunni hvort allir fósturforeldrar passi við öll fósturbörn?

    Félagsráðgjafar spila stórt hlutverk í lífi fósturbarna og oft í lífi fósturfjölskyldunnar. Félagsráðgjafinn er oft mikilvægasti hlekkurinn til að deila sögu barnsins og að veita nýrri fjölskyldu skilning og stuðning sem barnið þarf. Hvernig verður sambandið við þetta fólk og hvernig tengja börnin þau við sitt líf?

    Þau Gulli, Hildur og Maja ræða einnig umgengni við kynforeldra fósturbarna og fara yfir áhrifin sem það getur haft, bæði á barnið og þau sjálf sem aðal umönnunaraðila og sérfræðinga í lífi barnsins. Hvernig líður barninu og hvaða áhrif hefur það á fjölskyldulífið?

    Hvað gerist svo þegar barnið verður 18 ára?


    Hér getur þú fylgst með starfi Félags fósturforeldra og sent inn spurningar:

    https://www.facebook.com/fosturforeldrar

    https://www.fostur.is/

    [email protected]

    Hlaðvarpið er tekið upp og hljóðblandað í stúdíó @Lubbi Peace Keflavík. Ingi Þór Ingibergsson samdi stef hlaðvarpsins.

  • Missing episodes?

    Click here to refresh the feed.

  • Í þætti dagsins spjalla Maja, Gulli og Hildur um áskoranirnar sem fylgja því að taka barn í fóstur.

    Áskoranirnar geta verið margar og í þættinum velta þau fyrir sér nokkrum sem eru oft áberandi. Þau ræða m.a. um fordóma sem fósturfjölskyldur og fósturbörn geta orðið fyrir. Fordóma varðandi það sem börnin hafa gengið í gegnum sem einhvers konar stimpil á þau eða þeirra hegðun. Fordóma gagnvart fjölskyldu samsetningu fósturfjölskyldna og margt fleira.

    Þau ræða hvaða stuðning Félag fósturforeldra hafi til úrræða og hvort að hann sé hreinlega nægur. Þau nefna mikilvægi þess að rannsaka líðan og stöðu fósturfjölskyldna. Einnig fara þau yfir þær stoðir sem getur farið að hrikta í við komu fósturbarna eins og starfsframa, tekjur, hjónabandið eða heilsan jafnvel.

    Þau ræða pressuna sem fylgir því að fá aðdáun fyrir það að taka barn í fóstur; að þau séu dugleg, góðhjörtuð o.s.frv. Hafa þau þá leyfi til að gera mistök, vera úrillir foreldrar eða hvað? Og hvað fá þau eiginlega greitt fyrir að taka barn í fóstur?

    Hér getur þú fylgst með starfi Félags fósturforeldra og sent inn spurningar:

    https://www.facebook.com/fosturforeldrar

    https://www.fostur.is/

    [email protected]

    Hlaðvarpið er tekið upp og hljóðblandað í stúdíó @Lubbi Peace Keflavík. Ingi Þór Ingibergsson samdi stef hlaðvarpsins.



  • Guðlaugur, Hildur Björk og Maja ræða móttöku fósturbarna en staðreyndin er sú að ekkert fósturbarn kemur án einhvers konars áfalls í fóstur.

    Hvernig fæðist fósturbarn á heimili? Hvernig er aðlögunin? Það eru ótal mörg horn að líta í þegar barn er tekið í fóstur og margt sem erfitt er að tímasetja eða skipuleggja fyrirfram. Í þættinum ræða þau t.d. þá staðreynd að ekki er fæðingarorlof fyrir fósturforeldra en hvernig er þá aðlögunarferlið?

    Einnig ræða þau hvað barnið kemur með á nýja heimilið og hvað þarf að útvega. Hvernig er með skóla, leikskóla og heilsugæslu? Hvað þarf að útvega barni og hvað með ef það eru önnur börn á heimilinu fyrir komu fósturbarnsins?

    Samtal þáttarins varpar ljósi á aðstæður fósturbarna og fósturforeldra; málefni sem eiga það til að vera falin í okkar samfélagi.


    Hér getur þú fylgst með starfi Félags fósturforeldra og sent inn spurningar:

    https://www.facebook.com/fosturforeldrar
    https://www.fostur.is/
    [email protected]

    Hlaðvarpið er tekið upp og hljóðblandað í stúdíó @Lubbi Peace Keflavík. Ingi Þór Ingibergsson samdi stef hlaðvarpsins.

  • Hildur Björk, Guðlaugur og Anna Steinunn sitja í stjórn Félags Fósturforeldra. Í þessum þætti ræða þau hvernig er hægt að gerast fósturforeldri.

    Þau segja frá sínum sögum og deila ferlinu með hlustendum. Hvernig er að fá félagsráðgjafa heim til að meta heimilið þitt? Þarf meðmælabréf frá vinum og vandamönnum fyrir foreldrahlutverkið? Hvað er pride námskeið? Eða lífsbók?

    Einlægt og fræðandi samtal sem svarar mörgum mikilvægum spurningum um það að gerast fósturforeldri.

    Hér getur þú fylgst með starfi Félags fósturforeldra og sent inn spurningar:

    https://www.facebook.com/fosturforeldrar

    https://www.fostur.is/

    [email protected]

    Hlaðvarpið er tekið upp og hljóðblandað í stúdíó @Lubbi Peace Keflavík.
    Ingi Þór Ingibergsson samdi stef hlaðvarpsins.

  • Í þessum fyrsta þætti hlaðvarpsins Fósturfjölskyldur ræða þau Guðlaugur Kristmundsson og Hildur Björk Hörpudóttir spurninguna Hvað er fóstur?

    Þau sitja bæði í stjórn Félags fósturforeldra og eru fósturforeldrar. Spurningar um fóstur sem vakna í kjölfarið eru mýmargar og þau ræða nokkrar, t.d.:
    Hvað er fósturbarn? Hvað er fósturforeldri? Hvers vegna fer barn í fóstur? Hver er munurinn á skammtíma fóstri, langtíma fóstri og styrktu fóstri?

    Fylgist með og gerist áskrifendur að hlaðvarpinu, nýr þáttur kemur í hverri viku næstu fimm vikurnar.

    Hér getur þú fylgst með starfi Félags fósturforeldra og sent inn spurningar:

    https://www.facebook.com/fosturforeldrar
    https://www.fostur.is/
    [email protected]