Episódios
-
Þegar maður vaknar við það að hafa stungið mann með hníf og sært hann lífshættulega verður maður fyrst hræddur.
-
Tveim tímum eftir fyrsta bjórinnn eftir 3 ára edrúmennsku var ég kominn á klósettið á Naza með alla vasa fulla af fíkniefnum. Ég ætlaði samt bara fá mér einn bjór.
-
Estão a faltar episódios?
-
Símtal við 8 ára dóttur þegar hann var inni á Vogi snarbreytti öllum vangaveltum hans um meðferðina. 36 ára karlmaður segir okkur sögu sína gegnum 3 meðferðir.
-
Læknirinn sem tók á móti honum á gjörgæslu eftir sjálfsvígstilraun varð svo sponsorinn hans.
-
Mamma kunni ekki faðirvorið og því þurfti ég að finna minn guð sjálf.
-
Ung kona segir okkur sögu sína sem er lituð af kynferðisáreiti sem elti hana úr neyslu inn í AA samtökin og hvernig það hefur verið að glíma edrú við dómskerfið og sjálfan gerandann.
-
Eina leiðin sem hann sá var að svipta sig lífi og eftir að hafa gert alvarlega tilraun til þess fór hann að leitast eftir þeirri aðstoð sem hann þurfti.
-
Hann er búinn að vera fjölmörg ár edrú og hefur uppgvötvað að það er ekki nóg að hætta að drekka. Hann var ekki í góðum bata þegar hann mætti í vikudvöl á Staðarfell eftir 2 ára edrúmennsku.
-
Eftir 11 ár í neyslu þar sem nánast allt var prófað og 13 innlagnir á hinar ýmsu stofnanir er þessi 42 ára kona komin með 18 ár edrú. Hún fer í gegnum þetta allt með okkur en það hefur líka gengið á ýmsu síðustu ár.
-
Alanon þáttur sem margir hafa verið að bíða eftir og biðja um.
-
33 ára gömul kona sem er búin að vera edrú í tæp 7 ár segir okkur sögu sína. Algerlega trúlaus kom hún í samtökin og það tók tíma fyrir hana að tengjast sínum ætði mætti.
-
Við þekkjum það vel þegar okkur finnst við ekki eiga við vandamál að stríða því við drekkum bara léttvín eða drekkum bara rauðvín á kvöldin. Hún kom til okkar og sagði sína mögnuðu sögu á einlægan hátt um kynferðismisnotkun í æsku, ofbeldissambönd og sína rauðvínsneyslu.
-
Eftir sína fyrstu og einu meðferð tók hann AA samtökin föstum tökum og segir okkur sögu sína sem er nánast skylduhlustun.
-
Líf hans hefur snúist um neyslu eða meðferðir. Eftir ótal innlagnir á meðferðastofnanir segir 56 ára karlmaður okkur söguna hvernig hann náði bata.
-
Hún reyndi að flýja alkóhólismann sinn með að flytja til hunna ýmsu boorga um allan heim en áttaði sig svo loks á að við flýjum ekki frá sjúkdómnum.
Einlæg og hrikalega falleg saga ungrar konu sem barðist við sjúkdóminn í mörg ár áður en hún fann leiðina sína að batanum.
-
Eftir fjöldan allan af meðferðum náði hann loks árangri eftir 6 mánaða dvöl á Krísuvík og hefur náð að búa sér til farsælt líf i dag. Það hefur þó gengið á ýmsu og meðal annars lést barnsmóðir hans úr sjúkdómnum.
-
Hún var komin í dagneyslu á fíkniefnum og öllu sem hún komst yfir aðeins 12 ára gömul. Eftir margítrekaðar innlagnir inn á Vog opnuðust augu hennar þegar hún týndi kornungu barni sínu en klukkutíma pössun varð að nokkrum dögum. Mögnuð frásögn konu sem hefur nú verið edrú í mörg ár og á frábært líf í dag.
-
Af æðruleysi segir hann okkur söguna af því hvernig hann fann sinn botn þegar hann ætlaði að setja barn sitt í hættu þegar hann var þjakaður af alkóhólisma. Í dag vinnur hann við að hjálpa öðrum sem vilja komast á leiðina til bata.
-
Þegar bæði fjölskyldan og meðferðastofnanir voru búin að loka öllum dyrum á hann tók Krýsuvík við honum. Þar náði hann loksins að snúa við lífinu og fékk lífsvonina aftur. Það hefur þó tekið mikið á.
Þrjú ár edrú og hann segir sögu sína þessa vikuna.
-
Hann byrjaði varla að smakka áfengi fyrr en rétt um 19 ára en 10 árum síðar reynir hann sjálfsvíg og rankar við sér á gjörgæslu. Á afar einlægan hátt segir þessi 31 árs gamli karlmaður sína sögu.
- Mostrar mais