Episodes
-
Síðasti þáttur Miðjunnar og jaðarsins beinir sjónum sínum að augnabliki tónlistar. Þáttarstjórnandi rannsakar upplifun tónlistarmanna, tengingar þeirra við eigin hljóðfæri og skilaboðin sem streyma þeirra á milli við flutning tónlistar. Viðmælendur: Tumi Árnason, tónlistarmaður, Magnús Trygvason Eliassen, tónlistarmaður og Þorleifur Gaukur Davíðsson, tónlistarmaður.
-
Saga Hip hopp tónlistar afhjúpar tvöfalda skörun miðja og jaðra. Jaðarsamfélag staðsett á jaðri New York borgar blæs til tjáningarbyltingar sem verður ein vinsælasta tónlistarstefna heims. En út frá nýlegum verkum stefnunnar má samt lesa heljarinnar samtal vinsældamiðjunnar við erfiða réttinda- og tilvistarbaráttu svarts fólks í Bandaríkjunum. Viðmælendur: Benedikt Freyr Jónsson, plötusnúður og Anna Marsibil Clausen, dagskrárgerðarmaður.
-
Missing episodes?
-
Vímuefnið Lsd verður skoðað í gegnum hugtök miðju og jaðars með þá tónlist sem gjarnan er tengd við vímugjafann fyrir hugskotssjónum. Á meðan önnur vímuefni hafa aðallega áhrif á hraða taugaboða þá verkar lsd á taugakerfið á mjög sérstakan hátt. Í þættinum reynir þáttarstjórnandi að skyggnast inn í heila neytenda lyfsins og inn í upplifun þeirra.Viðmælendur: Hallur Reynisson, taugalíffræðingur og ónefndur neytandi Lsd.
-
Þátturinn beitir hugtökum miðju og jaðars til að skoða bæði stjórnmálanúning Afróbít tónlistar og nígerísku herforingjastjórnarinnar ásamt því að skoða tónlistarstefnuna sjálfa út frá vinsældum og sjaldgæfum jaðarupptökum.Viðmælendur: Samúel Jón Samúelsson, tónlistarmaður og Ólafur Páll Gunnarsson, dagskrárgerðarmaður.
-
Í þessum þætti eru hugtök miðju og jaðars notuð til að greina skemmtanalíf Íslendinga fyrr á öldum. Reynt er að gera grein fyrir því hvernig vikivakaböll fóru fram, hvernig dansar voru dansaðir og hvers konar kvæði flutt. Vanþóknun kirkjunnar á þessu „svalli“ er einnig skoðuð. Viðmælendur: Ingibjörg Eyþórsdóttir tónlistarfræðingur og doktorsnemi við Háskóla Íslands, Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur (úr safni). Og hópur ungskálda: Fríða Ísberg, Anna Hafþórsdóttir, Brynjólfur Þorsteinsson, Brynja Hjálmsdóttir og Þorvaldur Sigurbjörn Helgason.
-
Í þessum fyrsta þætti Miðjunnar og jaðarsins eru tengsl tískumiðja og jaðarkúls í samtímanum rannsökuð. Farið er í heimsókn til sérfræðinga sem skilgreina kúlið og á framhaldi af því er síðan sett fram lítil kenning um þetta einkennilega hugtak. Viðmælendur eru Atli Bollason, menningarrýnir, Fríða Ísberg, rithöfundur, og Örvar Smárason, tónlistarmaður.