Эпизоды
-
FH-ingar eru komnir í 1-0 í einvíginu gegn ÍBV eftir sigur í Kaplakrika áðan. Valsmenn unnu 8 marka sigur í Evrópudeildinni í kvöld á heimavelli og færast nær því að vera fyrsta íslenska liðið til að vinna evrópukeppni. Undanúrslit í Olís kvenna fara af stað á þriðjudaginn og Einar Jónsson þjálfari Fram kíkti í heimsókn til okkar.
-
Mosfellingar eru mættir í undanúrslitin. Fjögur bestu lið landsins munu því berjast um þann stóra. Gestur þáttarins var Sebastian Alexandersson sem fer yfir tíma sinn hjá HK í lokþáttar og skrautlegar samningaviðræður við stjórn HK á tímabilinu.
-
Пропущенные эпизоды?
-
Fórum yfir leiki í 2.umferðar í 8 liða úrslitum úrslitakeppninar í Olísdeildinni. Þrjú lið kvöddu okkur og við fáum FH - ÍBV enn eitt árið. Við vorum bænheyrðir og fengum oddaleik í 8 liða úrslitum. Kíktum á Grill66 umspilið og 6 liða úrslit í kvennaboltanum. Strákarnir okkar gerðu það gott í Þýskalandi um helgina.
-
Úrslitakeppnin er farin af stað! Farið var yfir leikina í 8-liða úrslitunum og spáð í spilin í framhaldinu. Úrslitakeppnin kvenna megin er að fara af stað einnig.
-
Olís-deildin að baki og nú hefst úrslitakeppnin. Úrvalslið Olís-deildarinnar opinberað, bestu leikmenn hvers liðs valdir og spáð í spilið fyrir 8-liða úrslitin.
-
Farið yfir 21.umferðina í Olís-deild karla með Bjarna Fritz þjálfara ÍR sem er mættur á nýjan leik í Olís-deildina.
-
20.umferðin í Olís-deild karla gerð upp og spáð í spilin fyrir lokaumferðirnar.
- Þarf að gera þjálfarabreytingar í Krikanum?
- Loksins fengu efnilegustu leikmenn HK sénsinn
- Vængbrotnir Mosfellingar fóru illa með norðanmenn
- Lloyd Christmas getur ekki einu sinni bjargað Selfyssingum
- Fram U + Rúnar Kára óheppnir í sumarbústaðnum
- Grótta nýttu sér ekki mikið álag Valsmanna -
Farið var yfir stóru málin í Handkastinu að þessu sinni. Hitað var upp fyrir 20.umferðina í Olís-deild karla og úrslitin skoðuð í Olís-deild kvenna sem lauk um helgina. Grill66-deildin lýkur á fimmtudaginn og þá kemur það í ljós hvaða lið endar í 2.sæti og fer beint upp í Olís-deildina.
Seinni helmingurinn er síðan fyrir lengra komna þar sem djúp umræða myndaðist um Venslafélögin og U-liðin. Einnig var rætt um það hvort tími væri kominn á að fækka leikmönnum aftur á skýrslu í 14 leikmenn úr 16 leikmönnum. -
Farið var yfir leiki í 19.umferð Olísdeildar Karla. Grill 66 hornið. Lokaumferð Olísdeildar kvenna framundan.
-
Þátturinn um allt og ekkert. Landsliðsumræða - Olís-deild karla - Olís-deild kvenna og miklu meira til. Hvert fer Bjarni Ófeigur? Hvert fer Skarphéðinn Ívar? Hvert fer Ólafur Ægir?
Skolphreinsun Ásgeirs fékk frí í vikunni og ætlar að nýta sér styttingu vinnuvikunnar. Á sama tíma var að koma út nýr BodyFuel drykkur - sem Sérfræðingurinn segir vera þann besta hingað til. -
Fengum Þórð Má Sigfússon skipulagsfræðing (Höllin er úrelt) til okkar að segja okkur allt frá nýju Þjóðarhöllinni. Landsleikir um helgina gegn Grikkjum sem eftir allt saman verða sýndir í Handboltapassanum. Hringdu svo í nýjasta liðsmann Þórs AK, Odd Grétarsson og ræddum við hann um vistarskiptin í sumar.
-
Farið fyrir úrslitaleiki Final 4 helgarinnar í Höllinni.
-
Undanúrslitin í Final4 voru gerð upp í þættinum. Valur og ÍBV mætast karlamegin í úrslitum og Valur og Stjarnan mætast kvennamegin. Ponzan fór síðan með okkur í Evrópurúnt.
-
18.umferðin var gerð upp í þessum þætti.
- HK-ingar mættu á Selfoss með skóflurnar og grófu upp Selfyssinga
- Andri Berg er að elda eitthvað svakalegt í Safamýrinni
- EuroLalli var með hausinn á Söngvakeppninni
- Leikbann Ágústar Inga reyndist Gróttumönnum dýrt
- Ungu strákarnir hjá KA fengu hjálp frá þeim eldri til að ná prófinu
- Martröð HK í hornafærunum heldur áfram
- Aron Pálmarsson mætti með flugeldasýningu þökk sé FitnessSport
- Hvaða lið fara í bikarúrslit?
- Kvennalandsliðið lenti á vegg í Svíþjóð
- Jonas Maier hefur múrað fyrir í Grill66-deildinni
- Fer Seðilinn upp með Fjölni? -
Ragnar Hermannsson kíkti til okkar og fór yfir leiki í Olísdeild karla og þá leiki sem framundan eru. Fórum yfir landsleik Íslands og Svíþjóðar í undankeppni EM2024. Æfingaleikir við Grikki framundan en væri kannski betra að spila bara gegn Pressuliði Olísdeildarinnar?
-
17.umferð Olís-deildar karla var gerð upp af Sérfræðingnum, Gaupa og Benna Grétars.
- Valsmenn unnu torsóttan sigur í Garðabænum
- Lítil sem engin framþróun á liði KA á milli ára
- Óli Gúst þarf CBD olíu og það strax
- Hvað gengur mönnum til í Haukum?
- Gróttan gat fagnað í sólarhring
- Leikþáttur Basta gekk enganveginn upp gegn FH
- Afturelding náði fram hefndum í Eyjum
- Hvort vilja Fram eða Haukar mæta ÍBV eða Aftureldingu í 8-liða?
- Bryggjan Brugghús leikmaður 17.umferðar
- Skita 17.umferðar í boði Skolphreinsun Ásgeirs
- Gaupi myndi frekar skúra Hólmsheiðina en að fara í 2. bundesliguna -
16.umferðin var gerð upp í þætti kvöldsins auk þess sem fyrsti leikur 17.umferðar var gerður upp. Farið var yfir Evrópuboltann og hringt til Þýskalands þar sem afmælismonsinn, Arnór Snær Óskarsson leikmaður Gummersbach var á línunni.
-
Olís-deildar umræða, Evrópubikarinn, Strákarnir okkar í mennskunni og hitað upp fyrir næstu leiki.
Hugur okkar er á Selfossi þessa dagana þar sem mikið svartnætti ríkir. Ekki er staðan betri fyrir norðan hjá gulklæddum KA-mönnum. Eyjamenn skelltu sér á Irish-man Pub eftir kærkominn sigur um helgina og Víkingarnir lifa í voninni um að halda sér uppi. -
16.umferðin í Olís-deild karla hófst í kvöld með leik Stjörnunnar og Aftureldingar. Valsarar voru síðasta liðið til að tryggja sér í Final4 í Höllinni. Hvar endar Alli Eyjólfs og Selfyssingar virðast vera í þjálfaraleit fyrir næsta tímabil. Teitur Örn Einarsson var í símaviðtali frá Þýskalandi.
- Показать больше