Bölümler
-
Við útskrift úr bakaraiðn fann Ástrós fyrir faglegri þreytu og langaði í nýja reynslu sem myndi styrkja hana sem fagmann. Hún kynnti sér því Erasmus+ fyrir nýsveina og setti stefnuna á Kaupmannahöfn. Málin þróuðust þó þannig að hún endaði á því að fara til Tallin í Eistlandi og sér ekki eftir þeirri ákvörðun.
Helen Gray leiðtogi alþjóðaverkefna hjá Iðunni spjallar hér við Ástrósu um reynsluna af því að fara út til Tallin. -
Eva Karen Þórðardóttir hjá Effect ræðir hér við Guðna Erlendsson mannauðsstjóra Samkaupa.
Mikil saga og menning er fyrir fræðslu hjá Samkaupum. Kaupmannsskólinn var rekinn eins og hefðbundinn skóli með staðbundnum námskeiðum sem nú hafa verið færð mikið til yfir í rafræna fræðslu. Covid hjálpaði til við að ýta undir umbreytinguna þó að vissulega hafi sú vinna verið hafin áður. Guðni segir Samkaup einnig vera í góðum samskiptum við Bifröst hvað varðar námsleiðir fyrir starfsfólk. -
Eksik bölüm mü var?
-
Alþjóðaflugvöllurinn í Keflavík fær til sín margar milljónir gesta ár hvert. Það kallar á að starfsfólk viti nákvæmleg til hvers er ætlast af því og hlotið viðeigandi þjálfun. Gerður Pétursdóttir fræðslustjóri Isavia er hér í skemmtilegu og fræðandi spjalli en hún hefur ásamt öflugu teymi byggt upp Isavia skólann síðan árið 2016.
-
Ásgeir Valur Einarsson leiðtogi sjálfbærnimála hjá Iðunni ræðir hér við Jennifer Schwalbenberg lögfræðing um tilskipun ESB um sjálfbærniupplýsingagjöf og hvernnig hún á eftir að hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki.
Upplýsingagjöf í sjálfbærni felur í sér hvernig við komum á framfæri þeim upplýsingum sem við erum að safna um sjálfbærniþætti og tilgreinir þau markmið og stefnur sem settar eru varðandi m.a. kolefnisspor, loftlagsmál og starfsmannastefnu. -
Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir framkvæmdastjóri Tækniseturs er hér í afar fróðlegu spjalli við Kristjönu Guðbrandsdóttur leiðtoga nýsköpunar hjá Iðunni. Tæknisetur byggir á fjögurra áratuga reynslu á sviði efnistækni, lífvísinda og orkumála. Það er öflugur samstarfsaðili í hagnýtum rannsóknar og þróunarverkefnum og býr yfir sérhæfðum búnaði og aðstöðu sem er gagnast sprotafyrirtækjum á sviði hátækni.
-
Ólafur Guðmundsson sérfræðingur í umferðaröryggismálum er hér í fróðlegu spjalli um umferðaröryggi, innviði og bifreiðar. Þeir Sigurður Svavar Indriðason, leiðtogi bílgreina hjá Iðunni, fara m.a. yfir hvað er vel gert í þeim efnum og hvað má betur fara.
-
Ragnheiður Björgvinsdóttir er hér í léttu og skemmtilegu spjalli við Evu Karen Þórðardóttur um fræðslumál hjá Vatnajökulsþjóðgarði. Vatnajökulsþjóðgarður er stærsti þjóðgarður í vestur Evrópu og nær yfir 15% af Íslandi. Þjóðgarðurinn nær til átta sveitafélaga.
Um 50 starfsmenn starfa við þjóðgarðinn allan ársins hring. Sumarið er svo mjög annasamur tími með 120 starfsmenn, sem dreifast út um allt land. Fræðslan er því ákveðin áskorun. -
Inga Birna Antonsdóttir alþjóðafulltrúi hjá Iðunni er hér í skemmtilegu spjalli um möguleika Erasmus+ styrkjakerfinsins sem er ætlað að auka möguleika á skiptinámi og lærdómi erlendis í gegnum Erasmus+.
-
Hér spjalla þeir Óskar Grétarsson leiðtogi málm- og véltæknigreina hjá Iðunni og Björn Jóhannsson landslagsarkitekt um notkunarmöguleika SketchUp forritsins fyrir iðnaðinn.
Þeir fjalla sérstaklega um námskeið sem Björn heldur hjá Iðunni þar sem farið er í grunninn á forritinu, Sketchup pro og Layout og Twinmotion og sýndarveruleika. Sérstakar vinnubúðir eru einnig í boði þar sem fólk getur unnið að raunverulegum verkefnum. -
Það er að mörgu að hyggja þegar velja á fræðslukerfi fyrirtækja. Eitt er að velja rétta kerfið og hitt er að hanna og setja upp viðeigandi fræðslu sem þjónar þörfum fyrirtækisins.
Sólon Guðmundsson eigandi Avia er hér í skemmtilegu og fræðandi spjalli en fyrirtæki hans sérhæfir sig í hönnun fræðslukerfis sem og framleiðslu á efni inn í kerfið. -
Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar er hér í skemmtilegu og fróðlegu spjalli um rafvæðingu stærri bíla bæði með tilliti til stöðunnar í dag en einnig þá möguleika sem framtíðin býr yfir. Sigurður Svavar Indirðason, leiðtogi bílgreina hjá Iðunni stýrir þættinum.
-
In this episode we learn about the Finnish impression on the Icelandic workplace, vocational educational systems, and the importance of international collaboration. Helen Gray, leader of international projects at Iðan talks to Erno who visited us through Erasmus+
-
Eva Karen Þórðardóttir eigandi Effect hefur þróað verkfæri sem greinir hæfni starfsfólks og skilar persónulegri fræðsluáætlun til fyrirtækis, niður á hvern starfsmann. Þannig fæst betri yfirsýn yfir hæfnigatið sem liggur innan fyrirtækisins.
Starfsfólk sér þá hvar það er statt og hvar það stendur miðað við sitt teymi. Þarna er því verkfæri til að sjá betur hvar hver og einn stendur. Starfsfólk getur sett sér markmið um eigin fræðslu og haldið betur utan um fræðsluna sem það hefur lokið. -
"Mobility Beyond Borders" explores workplace culture, vocational education, and workplace inclusion with insights from Tim Schaumburg, a German public administration intern.
-
Í tilefni mannauðsdagsins 6. október 2023 ræddi Íris Sigtryggsdóttir við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Þær ræddu um þær áskoranir sem Áslaug Arna stóð frammi fyrir við myndun nýs ráðuneytis á gerbreyttum grunni. Áslaug Arna ræddi sérstaklega um hvernig hún stýrir starfsmannamálum í sínu ráðuneyti, leggur áherslu á að byggja upp sterka vinnumenningu og verkefnamiðað starfsumhverfi.
-
Margrét Arnarsdóttir rafvirki og formaður IÐN-UNG segir mikilvægt að hlusta á raddir ungs fólks í iðnaði. Margrét er hér í skemmtilegu og fróðlegu spjalli um IÐN-UNG, hlutverk þess og framtíðarplön.
-
Hér er á ferðinni fjórði þáttur í röð hlaðvarpa sem eru lokaverkefni þeirra Dóru Svavarsdóttur og Þyrnis Hálfdánarsonar matreiðslumeistara og nema við Menntavísindasvið HÍ. Þættina unnu þau í samvinnu við Iðuna og fjalla um matreiðslunám, þá, nú og um alla framtíð.
Fjórði þátturinn fjallar um námið í matvælagreinum í MK - Daha fazla göster