Episoder
-
Popptónlist 9. áratugarins var af mörgum talin yfirborðskennd, einnota og vélræn. Það var því sannkölluð „himnasending“ að fá Nýdönsk fram á sjónarsviðið undir lok eitísins. Tónlistin var vönduð, listræn og leitandi. Grípandi án þess að vera eitthvað blöðrupopp. Fullorðna fólkið var mætt í partíið.
-
Ein merkasta jaðarþungarokkssveit allra tíma, Faith No More, er á borði Bestu plötunnar þessa vikuna. Sitt sýnist hverjum um uppsöfnuð afrek hennar og voru umræðurnar fróðlegar svo ekki sé meira sagt!
-
Manglende episoder?
-
Doppóttu míkrótónal-gosarnir í Angine de Poitrine voru óþekkt stærð í upphafi árs. Rúmum mánuði síðar voru þeir á allra vörum — og hæpið stendur enn yfir. En er eitthvað í þessu?Taktu þátt í umræðunni á Besta platan - Umræðuhópur.Styddu við Bestu plötuna, komdu í áskrift á Patreon og fáðu tvöfalt fleiri þætti.
-
Í þessum þætti heiðrum við minningu hins eina sanna Björgvins Halldórssonar sem varð bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði þann 9. apríl síðastliðinn. Blessuð sé minning þessa risa íslenskrar dægurtónlistar.
-
Nick Drake lést langt fyrir aldur fram, hafandi ekki hugmynd um þau áhrif sem stuttur tónlistarferill hans myndi hafa á fjölmargar kynslóðir á eftir honum. Þriðja og síðasta platan hans, Pink Moon frá 1972, er sú besta.Athugið að í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins á 1717.is.
-
Killing Joke er ein ógurlegasta síðpönksveit sögunnar, algerlega einstök mætti segja, og áhrifarík fyrir allan peninginn. Að velja hina poppuðu „Night Time“ sem bestu plötuna mun strjúka einhverjum öfugt en gefum BP-liðum færi á að útskýra sitt mál (doktornum aðallega). -
Það er hægt að hjakka endalaust í einhverjum plötum, en að þessu sinni ákváðu þáttastjórnendur að rifja upp bestu tónleika sem þeir hafa sótt. Þrír topp-5 listar og ekkert rugl. Gleðilega páska!
-
Lenny Kravitz er ekki bara tónlistarmaður, hann er einslags fyrirbæri, menningarlegt skurðgoð, rokkið holdið klætt og bætið endilega við lýsingum eftir smekk. Hann toppaði hljóðversplötulega séð á annarri plötu sinni, Mama Said, en það má sosum deila um það val og það er nákvæmlega það sem við erum að fara að gera.
-
Platan No Jacket Required frá 1985 átti stóran þátt í því að gera Phil Collins að einni allra holdugustu poppskepnu 10. áratugarins. Hún er jafnframt sú besta frá Phil.
-
Í þættinum um Wham!/George Michael bærðust vangaveltur um það hvort að eina sólóplata hins helmings dúettsins, Andrew Ridgeley (Son of Albert, 1990), væri mögulega það besta sem hafi komið frá Wham! meðlimi í sólóefnum. Ákveðið var, þá og þar, að gera rannsókn á málinu og hún skilaði sér í þessum þætti. Varúð: Farið inn á eigin ábyrgð.
-
Atlanta-sveitin Mastodon þvertekur fyrir það að vera kölluð þungarokkssveit, en er þrátt fyrir það eftirlæti margra er kenna sig við metalinn. Við förum í saumana á þessu ferlíki í þætti vikunnar.
-
Trúir því einhver að einungis Bítlarnir skáka Spice Girls hvað ýmsan árangur í vinældalistaklifri varðar? Eftir miðjan tíunda áratuginn kom þessi stúlknasveit inn í poppheima sem stormsveipur og næstu ár voru undirlögð af æði sem aldrei hafði áður sést - nema kannski í tilfelli Bítlaæðisins. Hér verður farið yfir þessa hluti alla auk þess sem doktorinn stillir frumburði Kryddpíanna fram sem þeirra besta árangri á breiðskífusviðinu.
-
Rafdúettinn Pet Shop Boys hefur selt meira en 100 milljón plötur á heimsvísu, en þeirra gjöfulasta tímabil var níundi áratugurinn. Þar var hins vegar ekki fyrr en árið 1990 sem þeir sendu frá sér sína bestu plötu, hina angurværu Behaviour.
-
Aerosmith er ein algerasta rokksveit sem heimurinn hefur séð. Sukkið, melódíurnar, riffin, fötin, frægðarflug, niðurbrot og upprisa, þetta er allt þarna. Doktorinn telur bandið hafa toppað á þriðju plötu sinni, Toys in the Attic (1975), en félagar hans tóku þeirri niðurstöðu ekki þegjandi.
-
Í beinu framhaldi af síðustu Frímínútum, þá leyfðum við hlustendum að velja bestu plötuna af öllum þeim sem við höfum fjallað um í gegnum tíðina. Í þessum þætti gerum við þetta upp.
-
Frá því að fyrsti þátturinn fór í loftið haustið 2019 hafa um 220 plötur hlotið titilinn „Besta platan“. En hver af þessum plötum er raunverulega best?
-
George Michael var eitt mesta poppstirni heims, satt og sannað og það með löggildum pappírum. Í þættinum gerum við úttekt á mögnuðum ferli þessa mikla meistara og kippum poppbrjálæðinu Wham! einnig um borð þegar við metum hámarksárangur meistarans á plötugerðarsviðinu.
-
Artí og ögrandi? Kjánalegt grall? Undur með einn smell? Undir hvaða hatt er best að setja Devo? -
Robbie Williams er vægast sagt skrautlegur náungi. En er eitthvað varið í þessa músík?
-
Gáfumannaþungarokk Tool náði hæstu hæðum tiltölulega fljótt eða á annarri plötunni, Ænima (1996). Um það má hins vegar deila og var slíkt gert í tólf tíma þætti, gerðum til að endurspegla lengd laga Tool og tímann sem sveitin tekur í það að gera plötur. Djók.
- Vis mere