Episoder
-
Umsjón: Karitas Harpa Davíðsdóttir. Hin svokallaða Eurovision Búbbla er oft nefnd á nafn í sambandi við Söngvakeppnina hérna heima sem og erlendis, en hvað er þessi Búbbla? Hver er í þessari búbblu? Hvað þýðir þetta allt og hvernig verður maður partur af búbblunni? Í þennan þátt þótti mér viðeigandi að fá einstaklinga, ekki bara úr búbblunni heldur fólk í stjórn búbblunnar hér heima. Flosi og Laufey eru í stjórn Fáses, hvað er fáses gætirðu spurt þig og hvað gerir maður þar? Þau segja okkur frá því og meiru ásamt þeim fékk ég Andrés Jakob Guðjónsson, Admin á Facebook hópnum "Júróvisjón 2019"
-
Umsjón: Karitas Harpa Davíðsdóttir. Viðmælandi minn í dag er yngsti keppandi keppninnar í ár, hún heitir Tara Sóley Mobee og hefur verið að gefa út eigin tónlist frá því seinni part 2017. Taru mætir afslöppuð en hress í spjall til mín og segir frá sinni reynslu hingað til, hverju megi búast við á sviðinu á laugardaginn, hverju megi búast við henni í framhaldinu og hvaða ár í Söngvakeppninni var hennar allra allra uppáhalds.
-
Manglende episoder?
-
Umsjón: Karitas Harpa Davíðsdóttir. Heiðrún Anna er viðmælandi dagsins, ekki hægt að segja að hún sé ný í bransanum þó hún hafi verið í honum erlendis síðustu 23 árin. Hún er mörgum Íslendingum vel kunnug en er komin núna, þetta mörgum árum síðar með sitt fyrsta lag á íslensku sem hún flytur í Háskólabíó næstkomandi laugardag. Heiðrún segir okkur hvað hún hefur verið að bralla og hvernig hún fékk Spice Girls til að syngja lagið sitt!
-
Umsjón: Karitas Harpa Davíðsdóttir. Í þætti dagsins segir Friðrik Ómar okkur í einlægu viðtali frá sögu lagsins "Hvað ef ég get ekki elskað", því sem hann hefur verið að bralla síðustu árin síðan hann tók þátt 2008 með Eurobandinu fyrir hönd Íslands og hvað er framundan hjá söngvaranum.
-
Umsjón: Karitas Harpa Davíðsdóttir. Keppandi dagsins og viðmælandi vikunnar er Ívar Daníels sem kemur nú fram í Söngvakeppninni í fyrsta sinn næstkomandi laugardag, með honum er lagahöfundurinn Stefán Þór Steindórsson en hann er ekki grænjaxl á þessu sviði. Hann kemur inn á reynslu sína í Söngvakeppninni og hvernig hann er stemmdur fyrir því að eiga þó í fyrsta sinn eigið lag í keppninni.
-
Umsjón: Karitas Harpa Davíðsdóttir. Viðmælandi dagsins í dag er hin glaðlega færeyska snót Kristina Bærendsen sem hefur verið búsett á Íslandi í tæplega tvö ár og tekur nú þátt í annað skiptið í Söngvakeppninni, hún segir okkur aðeins frá lífinu í Færeyjum, fjölskyldu sinni og hvað er framundan hjá sér á sinn glaðlega hátt.
-
Umsjón: Karitas Harpa Davíðsdóttir. Fimmti þáttur okkar inniheldur spjall við hornfirsku mærina Þórdísi Imsland eða IMSLAND eins og hún gengur undir í keppninni. Hún er ekki ný í söngvakeppnisbransanum þó svo hún hafi ekki tekið þátt í þessari keppni áður, heyrið allt með því að smella á "spila".
-
Umsjón: Karitas Harpa Davíðsdóttir. Í dag er komið að því að ræða við reynslubolta í Euro heiminum, hún hefur ekki farið bara einu sinni út heldur fjórum sinnum og sinnt hinum ýmsu hlutverkum þar. Hera Björk segir okkur frá fyrri reynslum og hvernig hún undirbýr sig fyrir þá næstu.
-
Umsjón: Karitas Harpa Davíðsdóttir. Það er komið að þriðja þættinum en við fáum í þáttinn fyrsta keppandann í ár, það er enginn annar en Daniel Oliver. Hann hefur áður komið við sögu Undankeppni Söngvakeppninnar og segir hann okkur frá reynslu sinni þá og nú ásamt glettilegu spjalli um lífið og tilveruna. Eitt lag enn
-
Umsjón: Karitas Harpa Davíðsdóttir Fyrsti þáttur Eitt lag enn í fullri lengd inniheldur ýmsar upplýsingar um Söngvakeppnina hérlendis sem og Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva. Við fáum í spjall þau Sigríði Beinteinsdóttur og Grétar Örvarsson sem voru meðal okkar fyrstu keppenda, þau fór fyrst 1990 en segja frá því hvernig þau komu ekki einungis við sögu keppnarinnar þá. Eins verður Rúnar Freyr Gíslason til spjalls en hann er í framkvæmdarteymi Söngvakeppnarinnar hérna heima. Hann segir okkur frá breytingum í keppninni hérna heima sem vekja vonandi lukku hlustenda og áhorfenda.
-
Nú fer Söngvakeppnisferlið að fara í gang. Karitas Harpa Davíðsdóttir kemur til með að skyggnast inn í líf keppenda, stjórnenda og Euro sérfræðinga á meðan á ferlinu stendur. Við fræðumst um keppnina sjálfa, hvað er að virka og hvað ekki. Hvað er Fáses? Er einhver töfra uppskrift af vinnings lagi Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva? Við ætlum að reyna að finna út úr því í komandi hlaðvarpsþáttum á meðan að þjóðin ákveður hvaða lag Ísland sendir út í maí 2019.