Episoder

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid

    Mér fannst ég vera gera landsmönnum greiða að fá Evu Matta til mín í haustspjall, ég gerði allavega sjálfum mér greiða því að fá að sitja á móti henni og blaðra og hlusta er mesta ánægja í heimi. Við ræðum stöðuna í samfélaginu okkar, endurhæfingu og millennial kynslóðina í nútíma samfélagi .. og jú svo margt meira.

    Ef þið eruð ekki að followa skvís á Instagram, þá er það must: @evamattadottir

    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid

    Ég var svo spenntur að fá til mín Sunnevu Halldórsdóttur, meistaranemi í líf- og læknavísindum, en hún heldur uppi með Instagram reikning og Tiktok reikning undir nafninu Efnasúpan. Ég er mikill aðdáandi, en það sem Sunneva gerir sem á það til að vanta á fræðsluvettvöngum af þessu tagi, er að hún er með ótrúlega kærleiksríka nálgun sem fær mann ekki til að vilja fela sig undir teppi vegna mistaka, heldur frekar hvatning til að skoða hvaða breytingum hægt er að skoða í eigin lífi. Sannleikurinn er vissulega sá að við erum alltaf að læra meira og meira inná skaðleg efni útum allt, og við förum yfir hinar ýmsu leiðir til að skoða hvernig við hægt og rólega getum breytt örlítið til í okkar lífi til að lifa skaðaminna lífi hvað varðar skaðleg efni í nærumhverfi.

    @efnasupan á bæði Instagram & Tiktok

    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Manglende episoder?

    Klik her for at forny feed.

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid

    Birna G. Ásbjörnsdóttir er galaxía af þekkingu og visku um allt sem við kemur þarmaflórunni, einn af hinum heilunum í líkamanum okkar, sem við vitum eiginlega ekki mikið um og hversu mikilvæg þarmaflóran er þegar við kemur okkar andlegu og líkamlegu heilsu. Birna er doktor í heilbrigðisvísindum frá Háskóla Íslands og er með M.Sc. gráðu í næringarlæknisfræði frá Surrey háskóla. Auk þess hefur hún lokið námi í gagnreyndum heilbrigðisvísindum frá Oxfordháskóla og gestarannsakandi við Harvard-háskólasjúkrahúsið og það það mér mikill heiður að fá hana til mín í spjall. Í þessum þætti situr hún við öllum spurningunum mínum, sem hefðu auðveldlega getað verið fleiri. Birna er einnig einn stofandi Jörth sem er hágæðabætiefni úr náttúrulegum hráefnum sem græða okkur innan frá.

    Hægt er að sjá meira um Jörth og Birnu á www.jorth.is

    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid

    Svava Brooks hefur tileinkað lífi sínu að hjálpa öðrum að vinna úr trauma og áföllum, en hún á sér sorglega og átakanlega sögu af ofbeldi frá unga aldri. Svava deilir með okkur sögu sinni sem er þyngri en tárum taki og eins og við komum örlítið inná, hljómar eins og átakanleg bíómynd. Hún hefur stundað sjálfsvinnuna og unnið hörðum höndum að afla sér allri þeirri þekkingu sem hún miðlar til skjólstæðinga sinna. Hún kynnir okkur svo fyrir TRE aðferðinni, sem breytti öllu fyrir henni í leið að bata úr öllum þeim áföllum sem hún lenti í.

    Hægt er að sjá frekari upplýsingar á www.svavabrooks.com

    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid

    Anna Tara Andrésdóttir er sálfræðingur, doktorsnemi og hefur helgað lífi sínu öllu því sem við kemur adhd og hjálpar fólki að skilja þessa flóknu röskun betur. Anna er búsett á Spáni og var það mér mikil ánægja að ná henni í spjall áður en hún var flogin á brott, en hún er hafsjór, galaxía af visku um adhd og ekki bara fræðir hún okkur um þessa röskun, heldur svarar öllum þeim spurningum sem poppuðu upp með svo mikilli snilld. Anna er stórkostleg í sínu fagi og hægt er að skoða meira og finna þjónustu hennar á www.annatara.is

    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is
    Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid

    Við fengum einstaklega falleg skilaboð eftir síðasta þátt okkar saman og var okkar mesta ánægja að taka upp annan þátt. Ef það er eitthvað sem við leggjum okkur fram í, í okkar sambandi þá eru það heilbrigð samskipti okkar á milli og er ferlið vissulega lærdómsríkt. Við förum á það ásamt því að við snertum smá á pólitík, hlaupaáhugamennskunni og okkar fyrsta utanvegarhlaup ásamt fleiru.

    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is
    Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid

    Það er fátt sem mér finnst skemmtilegra en að spjalla við vin minn Áka sem er oft þekktur sem Áki hjá Maikai. Hann er ekki bara skemmtilegur heldur ekkert eðlilega klár, og er oft með hugmyndir og skoðanir sem koma skemmtilega á óvart. Við sátumst niður og ræddum meðal annars kosningarnar í Ameríku og hvað gæti legið að baki í þeim málum, stríðsrekstur, kynjamál, næringu og svo margt meira. Vonandi njótiði vel -

    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is
    Nings - www.nings.is

    Ég veit fátt betra en að setjast niður á móti stjörnuspekingnum per excellance, vinkonu minni og viskubrunninum Jöru Giantöru en hún er án efa með stærstu tilfinningagreind sem ég hef upplifað og að hlusta á hana er eins að vera krakki að hlusta á einhverja stórspennandi sögu. Svo sem fullorðinn læri ég alltaf eitthvað nýtt og hún opnar alltaf fyrir eitthvað fallegt í höfðinu á manni. Í þetta skipti settumst við niður í mega kósí, ræddum ferð hennar til Japans, fyrri líf, stjörnuspeki og hvað er í gangi í rosalega mörgum retrograde-um ásamt svo mörgu öðru.

    www.giantara.com fyrir nýja námsskeiðið hennar sem við ræðum einnig í þættinum.

    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is

    Kristjana Steingrímsdóttir, betur þekkt sem Jana Steingríms og þekkt á samfélagsmiðlum undir @janast er heilsuþjálfari, jóga kennari og kokkur en næring er hennar besta fag og er maturinn hennar töfrum líkast, bæði fyrir augun, ilm og bragð. Jana er ein af stofnendum Happ sem við munum eflaust mörg eftir og er Happ enn í blússandi í Lúxemborg. Við förum um víðan öll, en það sem ég tók mest úr þessu spjalli var þekking hennar og ástríða um að borða regnbogann og nýta mat sem næringu og grunn að góðri heilsu og gera það skemmtilega! Ég mæli svo innilega með að hlusta á þessa stórkostlegu konu og fylgja henni á samfélagsmiðlum og njóta þar líka!

    Þið finnið Jönu á Instagram undir @janast

    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is

    Steinunn Þórðar eða Namasteina kom í Helgaspjallið fyrir örfáum árum, og vakti þá mikla athygli fyrir einlæga og öfluga frásögn um ofbeldissamband sem hún var þá í. Það var yndislegt að hittast aftur í þessum þætti bæði búin að vinna í eftirköstum og komin á fallegan stað í sjálfum okkur. Við ræðum þau mál en svo mál málanna, HLAUP! Ég er að gíra mig upp í að verða hlaupari eins og hún og hún tekur okkur í algjöran, alvöru og einlægan masterclass. Hlaupum saman!

    Hægt er að fylgjast með Steinunni á Instagram: @namasteina

    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is

    Það er gott að eiga kláran, tilfinningagreindan, nautskemmtilegan og indælan unnusta sem ég hef mikið dálæti að spjalla við alla tíma sólarhringsins, en núna, bakvið míkrófóninn okkar í Helgaspjallinu. Við tökum stöðuna, það sem hefur gengið á, gengur á og það sem koma skal.

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is

    Gummi Emil er einkaþjálfari og viskubrunnur, hann hefur vakið mikla athygli útfrá kuldaiðkun og ' Víkingar vakna ' og miðlar með okkur hvaðan þessi iðkun kemur og hvað liggur að baki. Við förum einnig tilbaka og kynnumst Gumma og hvernig hann fór frá því að vera feiminn í skóla í að verða orkusprengjan sem hann er í dag. Við förum einnig yfir mátt hugans og hversu mikilvægt það er að hugsa sem minnst og gera sem mest.

    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is

    María Rut, okkar allra besta, pólitíkusarsjení á mannamáli og varaþingmaður settist á þingmannastól nýlega og sprengdi samfélagsmiðla þegar hún tók mál fyrir sem varða barnafjölskyldur hér á landi. Við fórum yfir þau mál, eins og svo mörg önnur. María deilir með okkur hvað gekk og gengur á á Alþingi þessa dagana, og förum yfir vonarneista framtíðarinnar í þessum málum. Því staðreyndin er sú, að fólk hefur aldrei fylgst eins mikið með og haft eins sterkar skoðanir, jú og tekið þátt. Sem er nákvæmlega það sem við þurfum hér á landi. Svo ef þið viljið recap á því sem gengið hefur á, á algjöru mannamáli. Þessi þáttur er handa ykkur.

    Hægt er að fylgjast með Maríu á samfélagsmiðlum undir @mariarut - algjört must follow ef þið spyrjið mig.

    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is

    Erna Kristín betur þekkt sem Ernuland, er komin aftur til Íslands eftir danskt ævintýri og ég er svo þakklátur að ég hafi náð að grípa hana nánast ferska úr fluginu til mín í Helgaspjallið. Við höfum átt það inni eftir mikið af samtölum í gegnum samfélagsmiðla, sem kannski hlustendur gætu upplifað, þar sem við vorum bæði frekar hátt uppi að loksins ná að sitja undir fjórum augum og tengjast og kynnast. En Erna er eins og svo margir vita, algjörlega stórkostleg og þvílík ánægja að fá að hlusta á hana og einhvernvegin meðtaka það sem þú segir, sem kemur frá svo mögnuðum stað. Við ræðum svo ótrúlega margt, en hún deilir fallegri frásögn um næmni og fóstureyðingu sem hún tók ákvörðun um á krefjandi tímum. Lærdóm í gegnum krefjandi tíma og réttlætiskenndina, sem getur verið þyngri en margir gera sér grein fyrir og hvernig hún hefur einnig áhrif á líf okkar sem höfum atvinnu af því að vinna á samfélagsmiðlum á sturluðum tímum.

    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is

    Það er var og er mér mikill heiður að fá Höllu Tómas í Helgaspjallið, og þá sérstaklega eftir þáttinn. Þegar tilkynnt var að kosinn yrði nýr forseti Íslands þá hafði ég hreinlega ekki kynnt mér Höllu, né hennar bakrunn eða vinnu, svo forsetaframbjóðendur urðu bara fleiri og fleiri og alltíeinu var maður dottinn í eitthvað raunveruleika sjónvarp sem var spennandi að sjá hvernig spilaðist út. Í hvert skipti sem ég hef séð kappræður og almennt þegar Halla Tómas opnar á sér munninn, þá hefur henni alltaf tekist að fanga mig. Þá áttaði ég mig á því að Halla er vissulega afl, sem er mikilvægt að við horfum ekki framhjá. Við ræðum svo ótrúlega margt, hjónabandið, bakrunninn, gildi og allt sem tengist mögulegri framtíð hennar sem forseti Íslands.

    Njótið vel!

    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is

    Hin ástsæla, hæfileikaríka og ein af mínum allra bestu vinkonum Ingileif Friðriksdóttir kom LOKSINS í Helgaspjallið, og við ræðum svolítið um það í þættinum. Ingileif er mikil fjöllistakona sem fylgir engum reglum um hvernig á að vinna í þessu lífi, hún gerir nákvæmlega þangað sem ástríðan tekur hana og gerir það allt með miklum sóma. Nýjasta verk hugarheim Ingileifar er skáldsagan Ljósbrot, ný bók sem komin er í verslanir. Ingileif segir okkur frá því hvernig þessi bók varð til og hvernig hún fann sjálfstraustið til að dýfa sér í það verkefni. Ingileif er eins insperandi og þær gerast og það er mér mikill heiður að vera vinur hennar og enn meiri heiður að fá hana í Helgaspjallið.

    Ljósbrot fæst í öllum helstu bókabúðum landsins og algjört must að kaupa sér eintak!

    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is

    Næsti frambjóðandi í stólinn þekkjum við öll, Jón Gnarr. Hann hefur eflaust átt þátt í að gera dagana og kvöldin okkar skemmtilegri á skjánum, en vissulega líka þegar hann sat í stól borgarstjóra Reykjavíkur. Í þessum þætti fáum við einstaklega einlæga hlið af Jóni þar sem við kynnumst honum örlítið dýpra og var mín upplifun að ég sat með manni sem þekkir tilfinningarnar sínar, hefur vingast við þær og er óhræddur að tjá þær, sem ég tel sérstaklega góður eiginleiki einstaklings sem er að bjóða sig fram í embætti forseta Íslands.
    Jón Gnarr hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér sem opinber persóna, en að upplifa og hlusta á þessa hlið á honum sem hann leyfir okkur að kynnast í þættinum gaf mér nýja aðdáun og virðingu fyrir honum.

    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Studíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is

    Steinunn Ólína er sá forsetaframbjóðandi sem ég hef verið forvitnastur um og var ég ekki vonsvikinn í þessum þætti, þvert á móti meira segja. Jafningi, sjálfsþekking og öryggi eru eiginlega orðin sem ég tók með mér eftir þetta spjall okkar Steinunnar. Við fórum um víðan völl í þessum þætti og verð að segja, að framboð hennar þykir mér sérstaklega spennandi. Slagorðið hennar í framboði sínu er "Með hjartanu" og tel ég það eiga mjög vel við. Ég mæli með að hlusta og fá að kynnast þessari mögnuðu konu enn betur!

    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Studíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is

    Forsetakosningar 2024, eftir gríðarlega krefjandi ár, blússandi spillingu í landinu, þá þótti mér mikilvægt að setjast niður með forsetaframbjóðendum 2024 og kynnast þeim betur. Núna er tíminn að fá inn öflugan forseta sem stendur með fólkinu í landinu.
    Það var mikil ánægja að fá Höllu Hrund í Helgaspjallið og það sem ég tók hvað mest úr þeirri upplifun að sitja með henni, var hversu ljúf og góð nærveran hennar var, ásamt því auðvitað að hlusta á hana um hugsjónir og áætlanir hennar sem hún hyggst að taka með sér verði hún kosin forseti Íslands. Við förum yfir bakrunn hennar og störf, skyggnumst inní hugarheiminn hennar og kynnumst henni ennþá betur.

    Njótið vel!

    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Studíó-i Podcaststöðvarinnar

  • Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is

    Í samfélaginu okkar höfum við aldrei verið eins vakandi og meðvituð um ofbeldi. Þórunn Eymundardóttir sálfræðingur hjá Heimilisfriði sem er meðferðarúrræði fyrir einstaklinga sem beita eða hafa beitt ofbeldi í nánum samböndum. Í vaxandi og áframhaldandi umræðu fannst mér mikilvægt að heyra frá meðferðaraðilum sem vinna beint með gerendum, og finna fyrir áframhaldandi von um að ofbeldi í samfélaginu, og heiminum ef útí það er farið, fer minnkandi og við hjálpumst að, að reyna koma í veg fyrir það að fólk finni þörfina til að beita öðru fólki ofbeldi af öllu tagi. Ég er þakklátur Þórunni að hafa komið og fengið að bæði kynnast henni og vinnunni hennar, en líka hennar hugsjónum og sjónarmiðum.

    Ef þú telur að þú eða annar aðili gæti þurft á meðferð Heimilisfriðar að halda er hægt að fara inná www.heimilisfridur.is og panta tíma.

    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar