Episoder
-
Farið yfir síðustu helgi. Fyrsta upptakan í nýja stúdíóinu, Sunhouse-inu.
-
Anna Sif og Emilíana Erla komu til okkar í heimsókn að ræða um líf unga fólksins í Vestmannaeyjum.
Hringdum út um allar trissur.
Hákon Diskó, Dag og Sunnu Einars, Silla, Elís, Andra Erlings , Ernu Davíðs, Guðbjörgu Erlu, Rebekku, Óla Haralds, Sunnu Daða, Ásdísi Höllu, Guðbjörgu Sól, Stebba Photo, Guðný Rún og Huginn.
Frábær þáttur þar sem einblínt er á okkar besta fólk.
-
Manglende episoder?
-
Vilmar var búinn að lofa að hringja í alla fimmtíu og fjóra frambjóðendur í sveitastjórnarkosningunum sem eru eftir slétta viku. (Ágúst skallaði vegg við þetta loforð).
Við fórum af stað með krefjandi markmið og gerðu okkar allra besta. Við náðum samtali við hátt í 80% frambjóðenda.
Fínn þáttur fyrir þau ykkar sem eruð í aðgerð um borð í togara eða í vinnu sem er lengi að líða.
-
Mikið hringt og mikið gaman. Farið yfir öll helstu málin og tekin staðan á fólki.
Hringt í mikið af fólki. Héðinn Karl, Sonju, Jóní, Halla Páls, Erlend, Jessý, Kjartan Vídó, Anton Björns.
-
Farið yfir Hljómey. Einnig hvað er að gerast í Puffin Run.
Landeyjahöfn og Herjólf.
Heyrt í stjórnmálafólkinu sem er í eldlínunni.
Biðjumst afsökunar að hafa ekki náð í fólk á Eyjalistanum. En tökum tvöfalt næst.
(Kom í ljós að þau voru með félagsfund).
Mikið af símtölum, Biggi Nielsen, Hannes Haralds, Þórunn Páls, Maggi Braga, Aníta Jó, Jóhann Ingi og Stjáni á Emmunni.
-
Farið yfir allt milli himins og jarðar. Eyjagöng, Herjólf, Landeyjarhöfn, Hljómey og margt fleira.
Hringt út um allar trissur. Svo sem í Benna Gull sem er yfir borun á tilraunaholunum. Einnig Halla Páls sem er yfir verkefninu.
Heyrt í Pétri Eyjólfs vélstjóra á Herjólfi. Þar sem hann fer yfir stóra mótormálið og stöðuna á Landeyjahöfn.
Enduðum síðan á því að fá skúbb frá Gumma í Hljómey um komandi helgi.
-
Farið yfir það helsta sem er að gerast. Eitthvað yfir bæjarmálin og rýnt í hvað flokkarnir eru að gera fyrir komandi átök.
-
Farið yfir nýkominn lista Miðflokksins. Hringt í alla oddvita og rukkað um bæjarstjóraefni.
Þau sem svöruðu í símann voru, Dísa, Eyþór, Daddi Diskó og Jón Þór.
-
Farið yfir nýja Eyjalistann og okkar upplifun af prófkjörskvöldi Sjálfstæðisflokksins.
Ætluðum að hringja miklu meira en tæknileg vandamál ollu því að það var ekki hægt.
Hringjum tvöfalt meira í næsta þætti.
-
Fengum Eyþór Harðarsson og Trausta Hjaltason í sitthvort viðtalið því þeir sækjast báðir eftir oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.
Léttir ljúfir og kátir.
00:00 - Kynning
02:01 - Eyþór Harðarson
39:01 - Trausti Hjaltason
-
Farið yfir stóru málin. Símtal á Theódóru í kjörnefnd D, Eyþór Harðar og Trausta Hjalta um lokadaga prófkjörs D.
Einnig bjallað í bæjarstjórann Írisi og spurt út í fréttir dagsins.
-
Við félagarnir skelltum okkur á prófkjörsfund Sjálfstæðismanna. Fórum yfir hvern og einasta frambjóðanda og gáfum einkunn.
Hringdum síðan í alla og spjölluðum.
Metþáttur, fjórtán manneskjur sem svöruðu í símann.
-
Hringt í fullt af fólki. Teknar stöður og farið yfir pælingar um prófkjör. Nánast allir sem svöruðu í þessum þætti.
Ótrúlegt flæði og topp þáttur.
-
Pólitíski gagnrýnandinn Stefán Einar Stefánsson skólar okkur til með greiningu á eyjunni og landinu.
Hvernig virka prófkjör og er bæjarstjórinn nokkuð gömul.
Öllu svarað í þessum þætti.
-
Almennt spjall. Tekinn púlsinn á flokkunum en mesta púðrið fór í komandi prófkjör D.
Kúrekar og uppstillinganefnd E stóðu upp úr.
-
Rætt við Njál Ragnarsson sem var að skila af sér átta árum í bæjarstjórn. Hann er að hætta eftir þetta kjörtímabil og segir frá því hvernig hlutirnir ganga fyrir sig.
-
Rýnt í kjaftasögur sem eru að ganga um bæinn.
Heyrt í Ellert framkvæmdastjóra ÍBV með brekkusöng, H-listann og þorrablótið.
Kjartan Vídó mætir á línuna, Jóhann Ingi svarar fyrir uppröðunarslúðrið hjá M og svo reyndum við að hringja í Írisi en fengum skilaboð að hún væri á fundi.
Nóg að gera við að reka eyjuna, erum með skilning á því.
-
Í þessum þætti tökum við upp tólið og hringjum í fólk sem tengist flokkunum.
Fyrst hringjum við í Guðna Hjörleifsson frá Miðflokknum. Síðan er það Eyjalistinn, Erlingur Guðbjörnsson og Arna Huld Sigurðardóttir.
Bjarni Ólafur Guðmundsson frá Sjálfstæðisflokknum og svo náðum við í Pál Magnsússon, Fyrir Heimaey.
-
Flokkar í Vestmannaeyjum eru að púsla saman listum. Sumir með uppröðun og aðrir prófkjör.
Ræddar kaffikjaftasögur og hvaða fólk er búið að gefa sig þessu óeigingjarna starfi.