Episoder
-
Í dag fjöllum við um glæpi. Þegar fylgst er með almennri umræðu á Íslandi mætti stundum halda að glæpatíðnin í dag væri hærri en gengur og gerist og stundum heyrast jafnvel raddir sem segja að ástandið hér á landi sé stjórnlaust – af hinum ýmsu ástæðum. En hvað segja tölurnar okkur? Snorri Örn Árnason, verkefnastjóri hjá ríkislögreglustjóra og aðjúnkt í afbrotafræði við Háskóla Íslands kíkir í heimsókn til að segja okkur meira um það.
Sumarstörf eru alls konar, við heyrum í dag nokkrar sögur frá hlustendum af eftirminnilegum sumarstörfum og ræðum við Önnu Katrínu Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra vinnumiðlunarinnar Alfreðs, um stöðu sumarstarfa í dag.
Tónlist úr þættinum:
ARETHA FRANKLIN - Say a Little Prayer For Me.
Kraftwerk - Taschenrechner.
La Havas, Lianne - Unstoppable (bonus track mp3).
King, Carole - Lay down my life (album version). -
Fyrir fjórum árum stóð Loftur Guðmundsson, verkfræðingur, á krossgötum, ákvað að láta reyna á gamlan draum og flutti í húsbíl. Nýlega ákvað hann að minnka við sig og býr nú í þriggja fermetra sendiferðabíl á Sævarhöfða í Reykjavík, þar sem fleira fólk býr í húsbílum og smáhýsum með aðgang að rafmagn og hreinlætisaðstöðu. Við heimsækjum Loft sem líklega er einn nægjusamasti maður landsins og kynnumst hugmyndunum á bakvið lífsstílinn.
Frumkvöðlar hætta ekki að fá hugmyndir á sumrin – þess vegna stendur Klak Icelandic Startups fyrir sumarhraðlinum Startup Supernova – þar sem markmiðið er að ný fyrirtæki lendi hlaupandi og stækki hratt. Atli Björgvinsson og Jenna Björk Guðmundsdóttir frá Klak koma í heimsókn í dag til að segja okkur frá þessum hraðli – og líka aðeins frá sögu Klak, sem fagnaði nýlega 25 ára afmæli.
Stefán Gíslason flytur okkur eitraðan pistil þar sem netverslunarrisinn Temu og rithöfundurinn Agatha Christie koma við sögu.
Tónlist í þættinum:
Katrín Helga Ólafsdóttir - Seinasti dansinn okkar.
Simon and Garfunkel - Cecilia -
Manglende episoder?
-
Tæknin hjálpar okkur við margt í daglegu lífi, en mun gervigreind hjálpa til við að leysa stór vandamál sem steðja að heiminum, eins og matarsóun. Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, ætlar að koma til okkar og fjalla um það hvernig gervigreind og matarsóun tengjast.
Reglulega berast foreldrum leikskólabarna tölvupóstar um að hinn eða þessi sjúkdómur hafi skotið sér niður í skólanum. Einn þessara sjúkdóma er hand-, fóta- og munnsjúkdómur, líka kallaður blöðrumunnbólga með útbrotum. Við ætlum að ræða við Valtý Stefánsson Thors, barnasmitsjúkdómalækni á Landspítalanum, um barnasmitsjúkdóma, hvernig sjúkdómaflóran hefur breyst í áranna rás og hvers vegna sumt eldra fólk kváir þegar barnasjúkdóma dagsins í dag ber á góma.
Edda Olgudóttir, vísindamiðlari þáttarins og fastur miðvikudagsgestur, ætlar svo að spjalla við okkur um nýjar rannsóknir á verkjameðferðum. -
Ýmsar umbúðir sem fyrirtæki hér á landi nota verða ólöglegar ef og þegar ný umbúðareglugerð Evrópusambandsins verður innleidd í íslenskt regluverk í gegnum EES-samninginn. Reglurnar lúta að hönnun, samsetningu og stærð umbúða og koma til með að snerta marga framleiðendur hér. Til dæmis verður bannað að pakka gúrkum og tómötum í plast, litlar smjöröskjur og pokarnir með tómatsósu, sem oft fylgja frönskum á veitingastöðum heyra líka sögunni til og sums staðar eiga einnota umbúðir að víkja alfarið fyrir umbúðum sem hægt er að nota aftur og aftur. Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri matvælaiðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins, hefur verið fyrirtækjum innan handar við að búa sig undir þessar breytingar og hann ætlar að koma til okkar og ræða stöðuna í dag og framtíðina í umbúðamálum.
Við fjöllum líka aðeins um röddina. Við heimsækjum Lindu Markúsardóttur, talmeina- og raddfræðing, á Grensásdeild Landspítalans – meðal annars til að ræða kynjaða eiginleika raddarinnar, sem eru flóknari en þeir hljóma við fyrstu hlustun.
Spænska borgin Valencia varð illa úti í miklum flóðum í fyrra. Flóð hafa öldum saman valdið usla í borginni og svo fór að um miðja síðustu öld var árfarvegur árinnar Túría, sem oft flæddi yfir bakka sína, fluttur út fyrir borgina - Páll Líndal, umhverfissálfræðingur, segir frá því hvað varð um gamla árfarveginn og hvernig þessi tilfærsla eltist í pistli dagsins.
Tónlist í þættinum:
BOB DYLAN - One More Cup Of Coffee.
JET BLACK JOE - Summer is gone.
Bravo, Nino - Un beso y una flor. -
Hátíðin Reykjavík Fringe Festival fer fram í áttunda sinn þessa vikuna, þar verða margs konar listform og gjörningar ráðandi; uppistand, ljóð, ljósmynda- og leiksýningar - meira að segja burlesque-danssýning þar sem kettir koma við sögu. Við fáum tæknistjóra hátíðarinnar, Juliette Louste, til að ræða við okkur um þessa hátíð sem á rætur sínar að rekja til grasrótarhreyfingar listamanna í Skotlandi fyrir hartnær áttatíu árum síðan.
Um helgina var boðað til tveggja mótmæla í miðborg Reykjavíkur – önnur voru á Austurvelli vegum hóps sem heitir Ísland, þvert á flokka, þar sem stefnu stjórnvalda í útlendingamálum var mótmælt – og hin voru eiginleg gagnmótmæli á Ingólfstorgi, þar sem hópur kom saman til að taka afstöðu gegn mótmælunum á Austurvelli og með jaðarsettum hópum. Samfélagið mætti á þau bæði – ræddi við fólkið sem þar var og fylgdist með því sem fór fram.
Tónlist í þættinum:
AIR - All I Need. -
Oft eru gerðar miklar kröfur um samskiptahæfileika í atvinnuauglýsingum, jafnvel í störfum þar sem þeirra er ekki þörf. Þetta getur haft útilokandi áhrif fyrir einhverfa sem búa oft yfir öðrum styrkleikum sem nýtast vel í starfi. Eru gáfur jafnvel að fara til spillis vegna þess að vinnumarkaðurinn er of einsleitur? Í meistararitgerð með yfirskriftinni: Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga, rannsakar Bjarney L. Bjarnadóttir þessi mál. Við ræðum við hana um rannsóknina hér á eftir.
Og í dag flytjum við líka sérstakan pistil úr smiðju Estherar Jónsdóttur, pistlahöfundar Samfélagsins. Pistill dagsins fjallar um hafið og í honum komum við meðal annars við á eyjunni Maui, í kvikmyndahúsi í Reykjavík á frumsýningu merkilegrar kvikmyndar, í Háskólasetri Vestfjarða og á stöndinni við Hólmavík. -
Aðgengi almennings að Heiðmörk kann að verða takmarkað í framtíðinni. Veitur stefna að því að loka grannsvæði vatnsverndar fyrir almennri bílaumferð. Í dag verður haldið málþing á vegum Skógræktarfélags Reykjavíkur þar sem framtíð Heiðmerkur verður rædd. Auður Kjartansdóttir, framkvæmdarstjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, kemur og ræðir við okkur um framtíð Heiðmerkur.
Síðan fáum við síðasta pakkann af umfjöllunum frá nemendum í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands.
Stefanía Silfá Sigurðardóttir fjallar um tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður á Ísafirði.
Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir fjallar um strákahljómsveitir.
Þórður Ari Sigurðsson fjallar um níkótínpúðanotkun ungmenna.
Og að lokum kíkir Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall og segir okkur frá áhrifum Alzheimers á aðra vefi líkamans. -
Íslensk ættleiðing er eina ættleiðingarfélagið á Íslandi sem hefur löggildingu frá Dómsmálaráðuneytinu til þess að annast milligöngu um ættleiðingar erlendis frá. Við ætlum að ræða við formann félagsins, Ástu Sól Kristjánsdóttur, um ættleiðingar til Íslands og helstu störf félagsins en margir ættleiddir leita til þess í leit að uppruna sínum.
Og við höldum áfram að flytja umfjallanir nemenda í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands. Við byrjuðum í gær og fáum þrjú innslög í þætti dagsins:
Ísabella Sól Ingvarsdóttir fjallar um hlaup og hvort 100 kílómetrar séu nýja maraþonið.
Kári Snorrason ræðir við Sigga Storm um íslenska sumarið.
Malín Eyfjörð fjallar um fyrirbærið kreppupopp og hvað popptónlist getur sagt okkur um efnahagsástandið. -
Í þessari viku flytjum við hér í Samfélaginu ellefu umfjallanir úr smiðjum nemenda í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands. Í dag flytjum við fimm umfjallanir:
Alma Sól Pétursdóttir fjallar um óhefðbundin, óformleg og krefjandi skátamerki.
Ásrún Aldís Hreinsdóttir fjallar um brúnkukremsnotkun íslenskra ungmenna og brúnkukremsfíkn.
Baldvin Þór Hannesson fjallar um nýja kynslóð íslenskra rappara og listahópinn FlySouth.
Birta María Hallsteinsdóttir fjallar um tónlist og gervigreind.
Halldór Ingi Óskarsson fjallar um incel-menningu.
Við kíkjum líka í heimsókn í Þjóðskalasafn Íslands og veltum okkur upp úr einkaskjalasöfnum með Þórunni Marel Þorsteinsdóttur, verkefnastjóra hjá Þjóðskjalasafni Íslands. -
Á dögunum var nýjasta heimildarmynd Davids Attenborough – Hafið – frumsýnd á Íslandi og viðbrögðin hafa verið sterk og jákvæð. Að því tilefni ætla framleiðendur myndarinnar og hópur íslenskra félagssamtaka, í samvinnu við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Háskólann í Reykjavík, að halda fund um hafvernd á Íslandi á mánudaginn. Hér rétt á eftir fáum við til okkar Katrínu Oddsdóttur og Andrés Inga Jónsson, tvo af skipuleggjendum fundarins, til að segja okkur meira.
Hlustendur í höfuðborginni hafa líklega tekið eftir því að sumarblóm eru byrjuð að birtast hér og þar í borgarlandinu. Þessi sumarblóm – sem og allmörg tré, runnar og annar gróður – eru langflest ræktuð í Ræktunarstöð Reykjavíkurborgar í Fossvogi. Við heimsóttum ræktunarstöðina í vikunni og fengum að heyra hvernig gengur á þessum miklu annatímum hjá stöðinni við byrjun sumars.
Og í lok þáttar setjumst við niður með félögum í Bjórmenningafélagi Íslands. -
Við fjölluðum um nýyrðasmíð gervigreindar í síðustu viku og Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, heldur áfram þeirri umfjöllun í dag. Hún ræðir við Huldu Ólafsdóttur og Svanhvíti Lilju Ingólfsdóttur, sérfræðinga í máltækni hjá Miðeind, um nýyrðasmíð gervigreindar og færni hennar í íslensku.
Seinna í þættinum fáum við til okkar stofnendur mótmælahreyfingarinnar F.L.Í.S. – eða Fokk Laxeldi í Sjókvíum – sem standa fyrir mótmælum á Austurvelli á morgun. Stofnendurnir eru þrjár stúlkur í tíunda bekk í Laugalækjaskóla. Við setjumst niður með tveimur þeirra, sem og fulltrúa Ungra umhverfissinna til að ræða um loftslagsaktívisma hjá ungu fólki.
En í dag er dagur líffræðilegrar fjölbreytni og Stefán Gíslason, pistlahöfundur Samfélagsins, fjallar um það í pistli sínum í dag, sem við fáum að heyra undir lok þáttar. -
Stór hópur fólks kom saman við utanríkisráðuneytið í dag og krafðist aðgerða í ljósi ólýsanlegra hörmunga á Gaza. Það er í sjálfu sér ekki nýtt – þessi mótmælahreyfing hefur verið öflug í rúmt eitt og hálft ár, en óhætt er að segja að ákveðinn vendipunktur hafi orðið þegar Sameinuðu þjóðirnar sögðu í gær að allt að 14 þúsund börn myndu svelta á Gaza ef neyðaraðstoð er ekki hleypt inn á svæðið. Þrýstingurinn á aðgerðir er að aukast og við fjöllum um það í dag – sem og mótmælin sem haldin voru í morgun.
Hlaup eru vinsæl íþrótt og sumarið er tíminn þar sem fleiri og fleiri hlauparar fara á stjá. En hvernig á maður að byrja? Ósk Gunnarsdóttir hlaupari byrjaði að hlaupa fyrir þremur árum síðan og gat þá ekki hlaupið einn kílómeter án þess að stoppa. Á dögunum tók hún þátt í Bakgarðshlaupinu og hljóp þar rúma 240 kílómetra. Hún segir hlaupin hafa bjargað geðheilsu sinni og ætlar að gefa þeim sem vilja byrja að hlaupa nokkur góð hlauparáð.
Að lokum kemur Edda Olgudóttir í heimsókn til okkar til að segja okkur frá því nýjasta úr heimi vísindanna.
Tónlist í þættinum:
FONTAINES D.C. - Skinty Fia.
BRUCE SPRINGSTEEN - Born to run.
Góss - Vor við flóann. -
Gott að eldast er aðgerðaráætlun stjórnvalda um að auka samstarf varðandi málefni eldra fólks. En er gott að eldast á Íslandi og hvað er hægt að gera til þess að lifa betra lífi á efri árum? Við fáum til okkar Þórunni Huldu Sveinbjörnsdóttur, fyrrverandi formann Landssambands félags eldri borgara, til þess að ræða þessi mál og fleiri.
Og svo fáum við til okkar Sigurð Jóhannesson, hagfræðing og forstöðumann Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, til að ræða um loftslagssamkomulög og hvaða máli þau skipta, sérstaklega í ljósi þess að sumir vilja ekki vera með.
Að lokum fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. -
Síðustu mánuði höfum við í Samfélaginu fjallað talsvert um mót lögfræði og gervigreindar og þá helst heyrt hvað lögfræðingar segja um gervigreind og gervigreindarlöggjöf. Í dag nálgumst við þessi viðfangsefni úr aðeins annarri átt – og kynnum okkur gervigreindartól fyrir lögfræðinga. Jónsbók er nýtt tól sem gæti haft talsverð áhrif á störf lögfræðinga og nám lögfræðinema. Við fáum til okkar Thelmu Christel Kristjánsdóttur frá gervigreindarfyrirtækinu Jónsbók til að segja okkur meira.
Í Fossvogskirkjugarði er að finna einn stærsta skóg borgarinnar en þar er líka sagan á hverju strái. Bryndís Björgvinsdóttir þjóðfræðingur byrjaði að vinna þar fyrir um ári síðan við garðrækt en fór fljótlega að komast að ýmsum sögum um þau sem þar hvíla. Við röltum um garðinn með Bryndísi.
Og í lok þáttar kíkir Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, í heimsókn og segir okkur frá áhugaverðu og gríðarlega hnitmiðuðu viðtali úr safni RÚV.
Tónlist út þættinum:
Mitchell, Joni - This Flight Tonight.
Bjarni Björnsson - Bílavísur.
Bryan, Zach, Bon Iver - Boys Of Faith (Explicit). -
Það hefur verið sólríkt á landinu síðustu daga og það virðist ætla að vera það áfram og af því tilefni ætlum við að ræða við tvo læknisfræðilega eðlisfræðinga hjá Geislavörnum ríkisins til að velta fyrir okkur útfjólubláum geislum og hvenær þurfi að huga að sólarvörn. Edda Lína Gunnarsdóttir og Eyjólfur Guðmundsson setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að spjalla um þetta.
En síðan ætlum við að huga að mat og mataræði. Í liðinni viku stóð Matís fyrir málþingi um neytendur framtíðarinnar – þar sem meðal annars var fjallað um upplýsingaóreiðu í tengslum við matvæli. Þóra Valsdóttir og Kolbrún Sveinsdóttir, matvælafræðingar og verkefnastjórar hjá Matís, ætla að kíkja í heimsókn á eftir og ræða aðeins við okkur. -
Afstaða, félag fanga, fagnar 20 ára afmæli í ár. Félagið berst fyrir réttindum fanga og við ætlum að ræða formann félagsins, Guðmund Inga Þóroddsson, um fangelsismál almennt.
Refilskór, óðlega, tónfæri. Spjallmenni á borð við ChatGPT búa stundum til ný orð þar sem þau vantar og nota oft orð eins og þessi, sem enginn kannast við. Er gervigreindin þannig eins og barn á máltökuskeiði? Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, kemur til okkar í dag og ræðir við okkur og Önnu Sigríði Þráinsdóttur, málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins, um nýyrðasmíði gervigreindarinnar.
Og að lokum fáum við tvö viðtöl sem Samfélagið tók á Ísafirði í síðustu viku - um hagræn áhrif ofanflóða, og áhrif loftslagsbreytinga á ofanflóðaáhættu.
Tónlist úr þættinum:
Weyes Blood - Andromeda (Radio Edit) (bonus track mp3).
Ólafur Kram - Blúndustelpan. -
Fjölmargir sækja sér árlega meðferð vegna áfengis og vímuefnavanda hjá SÁÁ - samtökum áhugafólks um áfengis og vímuefnavanda. En það hefur margt breyst á undanförnum árum í nálgun á því hvernig er unnið með vímuefnavanda. Við ræðum við Önnu Hildi Guðmundsdóttur, formann samtakanna, um starf þeirra.
Í dag fjöllum við líka um vestfirska menningu - á dögunum hittum við Skúla Gautason, menningarfulltrúa Vestfjarða, á Hólmavík, sem fræddi okkur um þróunarstyrk Vestfjarða - og við ræddum líka við fólkið á bakvið Menningarmiðstöðina Norðurfjöru á Hólmavík, sem fékk einmitt styrk úr sjóðnum.
Og að lokum kíkir Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, í heimsókn og segir okkur hitt og þetta um sýklalyf í ferskvatni. -
Í dag heimsækir Samfélagið Netagerðina á Ísafirði, skapandi rými fyrir arkítekta, klæðskera, blómaskreitingar- og leirlistarfólk og annað sjálfstætt starfandi listafólk á Vestfjörðum. Við skoðum rýmið í fylgd með Heiðrúnu Björk netagerðastjóra og kíkjum í litla verslun sem listafólkið heldur úti.
Og síðan fáum við til okkar tvo sérfræðinga í matvendni barna - þær Berglindi Lilju Guðlaugsdóttur dorktorsnema og Önnu Sigríði Ólafsdóttur prófessor við menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Að lokum fáum við pistil frá Esther Jónsdóttur, sem elti uppi sjaldgæfan svepp í Grímsnesi ásamt sveppasérfræðingi. -
Um helgina hélt Kvenréttindafélag Íslands kynjaþing í sjöunda skipti. Í ár var þingið haldið í Fjölbrautaskólanum við Ármúla og ýmislegt var rætt – meðal annars hin svokallaða anti-gender-hreyfing, vesturnorræn jafnréttisbarátta og þungunarrofslöggjöf í Færeyjum. Samfélagið kíkti við á þinginu á laugardag til að ræða við þau sem þarna voru saman komin, og við heyrum af því í þættinum í dag.
Og samkvæmt venju annan hvern mánudag heimsækjum við Þjóðskjalasafn Íslands, þar sem Njörður Sigursson aðstoðarþjóðskjalavörður tekur á móti okkur og segir okkur frá vægast sagt athyglisverðum þýskum ræðismanni á Íslandi árið 1939. -
Samfélagið heilsar frá Flateyri. Í dag kynnum við okkur starfsemi Lýðskólans á Flateyri, ræðum við fólkið sem í honum starfar og fræðumst um nám og nemendur við Önundarfjörð.
Við heimsækjum líka Náttúrustofu Vestfjarða í Bolungavík og heyrum ýmislegt um náttúrurannsóknir á Vestfjörðum.
Tónlist úr þættinum:
Simon and Garfunkel - Keep the customer satisfied.
Larkin Poe - Kick the blues.
K.ÓLA - Keyrum úr borginni. - Vis mere