Episoder
-
You've Got Mail er nafnið á þættinum en við vorum aðallega fastar í nostalgíu umræðum. MSN, pennavinir og the iconic Meg Ryan klippingin.
-
Þátturinn sem við vildum öll! Allt það sem þúsaldarhjörtun okkur hefðu getað óskað sér og rúmlega það.
-
Manglende episoder?
-
Buona sera!🇮🇹 Við erum mögulega að slá heimsmet í að ræða Emily in Paris en hér er síðasti þátturinn um hana - í bili. Mikið af tilfinningum og stórar skoðanir einkenna þennan þátt. Hvaða #team ert þú? Við erum með stórar yfirlýsingar um okkar val sem við þurfum örugglega að taka til baka þegar næsta plot twist mætir á svæðið👀
-
Mjög langsóttur titill á þætti dagsins en við erum að taka þessari seríu mjög alvarlega. Vildum fylla upp í tómið hjá ykkur sem eruð líka að bíða spennt eftir Part 2 og tókum smá Hollywood update í leiðinni👀
-
Hey now, hey now! Í þessum þætti erum við sjúklega ýktar og tökum DEEP dive í feril stórstjörnunnar Hilary Duff. Við gátum ekki valið á milli Lizzie McGuire, Cinderella Story, Raise Your Voice, The Perfect Man, Younger, risa tónlistarferilisins hennar og fleira gæðaefnis svo tveggja þátta Hilary Duff madness varð niðurstaðan.
Þegar hér er komið við sögu er komið að hápunkti hennar ferils og lífs okkar, Cinderella Story. Við erum að andast út spenningi og nostalgíu að ræða þetta.
Þessi þáttur er klárlega What Dreams are Made of Part 2! -
Ný sería af Emily in Paris er væntanleg á Netflix og því er mjög mikilvægt að fara yfir málin👀 Tískan, hárið, Kynorkan og Ted Danson að baka - Njótið!
-
Við fórum í bíó í gær á myndina It Ends With Us. Við urðum að ræða hana þó að það hafi alls ekki verið planið þegar við mættum í stúdíóið.
Okkur datt í hug að það væru fleiri þarna úti sem þyrftu að kryfja myndina eftir að hafa séð hana svo við dembdum okkur í málið án nokkurs undirbúnings.
Trigger warning: Í þættinum tölum við um innihald myndarinnar sem er meðal annars heimilisofbeldi. Við viljum benda á dásamlegt og mikilvægt starf Bjarkarhlíðar þar sem hægt er að sækja stuðning. -
Ætluðum að taka eina bleika og bubbly yfirferð á sumrinu sem er að líða🍹🎀 Á einhvern ótrúlegan hátt náði fótbolti, veður og pólitík líka að poppa upp í spjallinu en örvæntið ei við náðum okkur aftur á beinu brautina og ræddum stóru málin eins og kaffi, Glen Powell og popp-kúltúr sumarsins☀️ #BratSummer #BenAffleckSummer
-
Hey now, hey now! Í þessum þætti erum við sjúklega ýktar og tökum DEEP dive í feril stórstjörnunnar Hilary Duff. Við gátum ekki valið á milli Lizzie McGuire, Cinderella Story, Raise Your Voice, The Perfect Man, Younger, risa tónlistarferilisins hennar og fleira gæðaefnis svo tveggja þátta Hilary Duff madness varð niðurstaðan.
Þessi þáttur er klárlega What Dreams are Made of Part 1! -
Í þessum þætti erum við rolling with the homies því elsku Dóra Júlía kom til okkar að ræða meistaraverkið Clueless. Tískan, frasarnir og tónlistin lifa enn góðu lífi í dag - Ugh! As if!
-
Snillingurinn Helgi Ómarsson kom til okkar að spjalla um Miss Congeniality og við fengum sýnishorn af leyndum hæfileikum. Við fórum þó út um víðan völl - Flutningar, hryllingsmyndir, dauðinn, Gollum, Pokemon, turn on, Despó, TikTok og meira að segja smá match making átti sér stað.
-
Þá er loksins komið að Bridget Jones trílógíunni. Þessi þáttur endaði óvart eins og sjálfshjálpar hlaðvarp - enda mikið að ræða þegar kemur að lífi Bridgetar. Kaldir karlmenn, megrunar kúltúr og Jim Carrey.
-
Margar beinagrindur fundust inn í skáp þegar við fórum að skoða fortíð Hugh Grants🤫 Okkar eigin Runaway Bride og ein besta lína allra tíma. Vonum að lesendur Horse&Hound séu ánægðir með þennan þátt🐴
-
Extra dramatískur og djúsí þáttur um myndina The Proposal💍
Ryan Reynolds + Sandra Bullock + Betty White = Comedy gold! -
Gleðilegan Freaky Friday! Chad Michael Murray, Lindsay Lohan OG JAMIE LEE CURTIS? Combo sem getur ekki klikkað. Það var mjög gaman hjá okkur að ræða þessa stórfurðulegu mynd - Hit me baby one more time 😂🎵
-
Hathahate, Vati-con loddarinn, íslensk kærasta Chris Pine og drottningin Julie Andrews!
-
Rómans á tökustað, fráfall Heaths og mögulegur cult leader👀 Heath Ledger & Julia Stiles - You're just too good to be true!🎵
-
Hvernig tengjast Tom Brady, Fred Flintstone, Jessica Simpson og Matthew Perry Coyote Ugly? Svörin má finna í þessum þætti.
-
Afsökum cringe-ið þegar við byrjum að syngja Perfect Day eeeen „Bend & Snap" og áfram með smjörið 💅
-
One Day eru þættirnir sem allir eru að tala um og ástæðan fyrir útgrátnum andlitum á TikTok. Greyið Emma og Dexter 🚲
Svo er það stóra spurningin: Er Leo Woodall búinn að steypa Leo DiCaprio af stóli sem aðal hjartaknúsari Hollywood? ✨ - Vis mere