Episoder
-
Sólrún Diego mætti til okkar í spjall í vikunni. Hana þarf vart að kynna en hún er einn vinsælasti áhrifavaldur landsins.Sólrún spjallaði við okkur á persónulegu nótunum um lífið og tilveruna, barneignaferlið, móðurhlutverkið, stór verkefni sem þau fjölskyldan hafa þurft að tækla saman og hamstrahjólið sem við virðumst því miður flest lenda í. Við fengum einnig að skyggnast á bakvið tjöldin varðandi starfið á samfélagsmiðlum.
-
Ástrós Rut er viðmælandi vikunnar, 4 barna móðir, unnusta, píparanemi, baráttukona og svo margt fleira.
Við ræddum allt milli himins og jarðar, menntaskólaárin, þegar hún kynntist æskuástinni, skyndileg veikindi Bjarka, baráttuna þeirra og fallega lífið sem þau sköpuðu sér. Við ræddum einnig hvernig er að vera aðstandandi, barneignaferlið þeirra og sorgina.
Ástrós tók þá ákvörðun að leyfa sér að vera hamingjusöm, að finna ástina aftur og skapa sér framtíðina og fjölskylduna sem hún þráði. Ástin blómstraði hjá Ástrósu og Davíð, sem nú eru trúlofuð. Þau eiga 4 börn og hafa byggt upp drauma heimilið á Selfossi, þar sem þau eru að skapa sér fallegt líf.
‘’Hamingjan er lífið sem þú skapar þér’’- Ástrós Rut
Þátturinn er í samstarfi við:
Netto.is & Änglamark
Eldabuskan.is / afsláttarkóði: undirmannadar
Venja.is / afsláttarkóði: undirmannadar
*gildir af fyrsta pakka í áskrift
Shareiceland.is / afsláttarkóði: undirmannadar
Whitenoise.is / afsláttarkóði: undirmannadar
Apakettir.is / afsláttarkóði: undirmannadar
-
Manglende episoder?
-
Viðmælandi vikunnar er Aníta Rós, móðir og þrjóskupúki. Aníta og Smári eiga saman tvær stúlkur, þær Valgerði Móu og Heiðdísi Emblu en Heiðdís Embla fæddist andvana á 35viku meðgöngu.
Þá eiga þau von á þriðju stúlkunni í mars á næsta ári. Í þættinum ræðum við meðgöngur, fæðingar og þá ólýsanlegu sorg að missa Heiðdísi Emblu.
Aníta segir okkur á aðdáunarverðan hátt frá öllu og við vonum innilega að einlæg frásögn hennar aðstoði aðra sem ganga eða hafa gengið í gegnum barnsmissi.
Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Venja.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Shareiceland.is
Whitenoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is
Apakettir.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
-
Tinna Jökuls mætti til okkar í skemmtilegt og einlægt spjall. Hún er 5 barna móðir, sjúkraþjálfari, fyrrum handboltakona og með allskonar skemmtilega bolta á lofti, bókstaflega! Tinna gaf okkur frábær heilræði, innsýn í fjölskyldulíf sjö manna fjölskyldu og svo margt fleira
Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Venja.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Shareiceland.is
Whitenoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is
Matchstick Monkey á Íslandi / Afsláttarkóði: undirmannadar
-
Flest ykkar ættu að þekkja viðmælanda vikunnar! Ein fyndnasta kona landsins, Júlíana Sara kom til okkar í spjall. Hún er tveggja barna móðir, unnusta, leikari, handritshöfundur og leikstjóri með meiru. Við erum fljótari að segja ykkur hvað við ræddum ekki í þættinum, en hann er stútfullur af skemmtilegu spjalli og miklum hlátri!
Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Venja.is
Shareiceland.isWhitenoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.isMatchstick Monkey á Íslandi
-
Nú þarf að rífa fram glósubókina og henda sér í djúpu laugina! Viðmælandi vikunnar er Aníta Rut, tveggja barna móðir og viðskiptastjóri. Við fórum um víðan völl og ræddum m.a. barneignir, hvernig er að tvinna saman fjölskyldu- og atvinnu, fyrstu skrefin í fjármálageiranum og ævintýrið hjá Fortuna Invest. Hún gaf okkur góð ráð og hvetur allar konur eindregið til að kynna sér fjárfestingar og byrja að fjárfesta!
Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / Afsláttarkóði: undirmannadarVenja.is / Afsláttarkóði af fyrsta pakka í áskrift: undirmannadarWnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadarShareiceland.is / Afsláttarkóði: undirmannadarHellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
-
Viðmælandi vikunnar er Íris Lilja, þriggja barna móðir.
Íris Lilja og Bjarki hafa verið saman síðan í menntaskóla og eiga saman þau Hermann Inga, sem er alveg að verða 5 ára, Emblu Rún, sem er 1,5 árs og Hólmar Orra sem er 3 mánaða.
Við ræðum saman hvernig þau Bjarki kynntust, barneignir og meðgöngur barnanna og þá einkum hana Emblu Rún en það kemur í ljós við fæðingu hennar að hún er með Downs-heilkennið.
Við fórum m.a. líka inná allar tilfinningarnar, Downs félagið sem hefur verið þeim mikill stuðningur, skimun á meðgöngu, viðhorf almennings og Íris gaf falleg heilræði.
Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / Afsláttarkóði: undirmannadarVenja.is / Afsláttarkóði af fyrsta pakka í áskrift: undirmannadarWnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadarShareiceland.is / Afsláttarkóði: undirmannadarHellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
-
Við héldum að við værum undrimannaðar en Steinunn Helga trompar okkur heldur betur! Hún er kröftug einstæð móðir, með fimm börn á aldrinum eins árs til átta ára. Yngstu eru tvíbura stelpur sem komu í heiminn á 27 viku. *TW vegna umræðu um fósturmissi og vökudeild* Steinunn fór m.a. með okkur í gegnum meðgönguna með tvíburana, tímann á vökudeild og baráttu hennar með SAMLEIK. Btw við drógum úr gjafaleiknum <3
Þátturinn er í samstarfi við:Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / Afsláttarkóði: undirmannadarVenja.is / Afsláttarkóði af fyrsta pakka í áskrift: undirmannadarWnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadarShareiceland.is / Afsláttarkóði: undirmannadarHellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
-
Viðmælandi vikunnar er Andri Steinn, tveggja barna faðir. Andri er uppalinn í Kópavogi og býr þar ásamt eiginkonu sinni, Sonju og dætrum þeirra. Andri starfar sem bæjarfulltrúi í Bæjarstjórn Kópavogs og tók m.a. þátt í að móta Kópavogsmódelið í leikskólamálum bæjarins. Við ræddum m.a. leikskólamálin, fæðingarorlofið og ýmis hita mál, ásamt því að svipast inn í fjölskyldulíf þeirra.
Minnum á gjafaleikinn á instagram, drögum í næstu viku <3
Þátturinn er í samstarfi við:
Netto.is & Änglamark
Eldabuskan.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Venja.is / Afsláttarkóði af fyrsta pakka í áskrift: undirmannadar
Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Shareiceland.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
-
Viðmælandi vikunnar er Alexandra Ósk, tveggja barna móðir og kírópraktor. Alexandra og maðurinn hennar, Kristófer, fluttu til Englands með stelpurnar sínar árið 2016 þegar Alexandra hóf nám í Kírópraktík. Hún segir okkur frá barneignaferlinu, hvernig var að flytja erlendis og vera með lítil börn í námi ásamt því að ræða lífið í dag.
Minnum á gjafaleikinn á instagram <3
Þátturinn er í samstarfi við:
Netto.is & Änglamark
Eldabuskan.is
Venja.is
Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Shareiceland.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
-
EINS ÁRS! Takk fyrir samfylgdina og sturlaðar móttökur!
Það leynist glaðningur í þættinum & er þátturinn stútfullur af glensi og gaman <3
LETSGOO
Þátturinn er í samstarfi við:
Netto.is & Änglamark
Eldabuskan.is
Venja.is
Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Shareiceland.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
-
Thelma Guðmundsen er viðmælandi vikunnar. Thelma og maðurinn hennar Logi eiga saman tvo drengi, Jökul og Tind. Hún ræðir við okkur um fæðingar strákanna, lífið með strákunum sínum þremur, erfiða æsku og hvernig æskan hennar hefur mótað bæði hana og viðhorf hennar gagnvart uppeldi strákanna sinna en það er aðdáunarvert að hlusta á hana og hennar viðhorf.
Þátturinn er í samstarfi við:
Netto.is & Änglamark
Eldabuskan.is
Venja.is
Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Shareiceland.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
-
Undirmönnuð móðir búsett í New York er viðmælandi vikunnar. Lovísa og Gunnar maðurinn hennar fluttu á vit ævintýranna til Bandaríkjanna árið 2021.
Þau eiga þrjú börn undir 5 ára og segir Lovísa okkur frá skrautlegum flutningum, lífinu erlendis með þrjú lítil börn, ásamt mjög krefjandi og ólíkum fæðingum, en yngsta dóttir þeirra fæddist í Bandaríkjunum.
Þátturinn er í samstarfi við:
Netto.is & Änglamark
Venja.is
Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Shareiceland.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Mimami.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
-
Við fengum til okkar Alexsöndru Bernharð, tveggja barna móður. Við fórum yfir víðan völl og ræddum við meðal annars barneignir, erfið vinaslit og sjálfsvinnuna í kjölfarið.
Alexsandra er einstaklega einlæg og hlý, og aðdáunavert heyra söguna hennar og fjölskyldunnar.
Þátturinn er í samstarfi við:
Netto.is & Änglamark
Venja.is
Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Shareiceland.is
-
Andrea Röfn kom til okkar í spjall um lífið og tilveruna hjá sér og fjölskyldunni, en þau búa erlendis þar sem að Arnór maðurinn hennar er atvinnumaður í fótbolta. Þau eiga saman tvö börn og hafa þau flakkað saman a milli landa eltandi bolta.
Andrea er með einstaklega jákvætt og fallegt hugarfar og gaman að heyra frá þeirra ævintýrum.
Þátturinn er í samstarfi við:
Netto.is & Änglamark
Venja.is
Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Shareiceland.is
-
Þáttur vikunnar er með Bryndísi Ottesen, tvíburamömmu og hlaðvarpsstjórnanda með meiru!
Bryndís eignaðist tvíbura árið 2017 sem hrundi því af stað að hún fór í ADHD greiningu þrítug. Virkilega skemmtilegt spjall um tvíburalífið, móðurhlutverkið með ADHD o.fl.
Mælum með hlaðvarpinu hennar, Brestur sem fjallar um konur og ADHD.
Þátturinn er í samstarfi við:
Netto.is & Änglamark
Venja.is
Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Shareiceland.is
-
Fæðingarorlof á Íslandi er stærðfræðidæmi sem virðist alls ekki ganga upp!
Við fengum til okkar þær Sylviu Briem og Hönnu Björk til að ræða fæðingarorlof á Íslandi, stöðu foreldra og réttindi barna.
Ásamt því að ranta um stöðu fjölburadoreldra í fæðingarorlofi, en því orlofi hefur ekki verið breytt síðan 2003.
Þátturinn er í samstarfi við:
Netto.is & Änglamark
Venja.is
Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Shareiceland.is
-
Þáttur vikunnar er með Guðrúnu Eik, þriggja barna móður og fyrrum bónda!Við fórum í gegnum allan tilfinningaskalann og ræddum m.a. sveitalífið, tvíburalífið, fósturmissi og kulnun maka.
Þátturinn er í samstarfi við:
Netto.is & Änglamark
Maikai.is
Mfitness.is
Venja.is
Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Shareiceland.is
-
Þáttur vikunnar er með magnaðri tvíburamömmu, Steineyju Snorradóttur! Sem er tvíburi og á pabba sem er tvíburi. Hvað eru margir tvíburar í því?
Steiney sagði okkur frá krefjandi meðgöngu og fæðingu en tvíburi B fæddist með samvaxin höfuðbein og þurfti að gangast undir stóra aðgerð aðeins 3ja mánaða.
Magnað að heyra frásögn hennar þar sem hún og maðurinn hennar hafa farið í gegnum allt með jákvæðum hug og seiglu.
Þátturinn er í samstarfi við:
Netto.is & Änglamark
Maikai.is
Mfitness.is
Venja.is
Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Shareiceland.is
-
Aldís Arnardóttir kom til okkar í spjall um lífið með 4 gaura undir 6 ára.Aldís er einstaklega jákvæð og hefur tileinkað sér aðdáunarvert hugarfar í gegnum lífið og barneignarferlið.
Þátturinn er í samstarfi við:
Netto.is & Änglamark
Maikai.is
Venja.is
Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar
Shareiceland.is
- Vis mere