Episodes

  • Birkir byrjar þáttinn á því að væla yfir bakverkjum, enda kominn vel yfir fertugt. Við tökum Davíð aðeins í drithornið, bara fastir liðir.

    Svo tökum við umræðu þáttarins um skrítna sjúkdóma. Til dæmis hraðöldrunarsjúkdóm, Cotard´s heilkennið þar sem fólk er fullvisst um að það sé látið, þótt það sé það ekki, Kluver-Buxy heilkennið sem orsakar fullt af óþarfa káfi! Treeman syndrome, já, googlið bara myndir af því ef þið þorið! Og auðvitað PSAS sjúkdóminn sem veldur því að þú eyðir heilum dögum í það að vera alveg að fá fullnægingu, en hún kemur ekki af sjálfsdáðum, bara svona dass nett til að pína þig! Þessir sjúkdómar og heilkenni og svo margt miklu fleira í þessum þætti, þátturinn endar svo á því að Birkir leggur nokkrar spurningar fyrir Daða og Davíð.

  • Við byrjum þáttinn á tæknilegum örðugleikum, bara gaman að því. En í þessum þætti ætlum við að þræða hinn flókna og stundum dökka heim fræga fólksins. Við förum yfir það hverjir eru vonda fólkið, ofbeldisseggir og misnotarar, hverjir eru hreinlega bara fávitar, en þátturinn er ekki bara á neikvæðu nótunum, því við könnum líka hvaða fræga fólk er bara doldið næs! Daði dæmir Michael Jackson, Birkir segir okkur frá „The Casting Couch“. Við ræðum þegar Will Smith sýndi sitt rétta andlit. Var Elvis dálítill perri? Þetta er sennilega einn gelgjulegasti þátturinn okkar, en skemmtilegur er hann...hlutlaust mat!

    Þátturinn klárast svo á því að Birkir setur Daða í leikinn „Hvort myndirðu frekar“ og Daði endar á því að rjúka út!

  • Missing episodes?

    Click here to refresh the feed.

  • Í þessum þætti ætlum við að fara rétt ofan í sögu Ólympíuleikanna á okkar sérstaka hráa hátt. Við byrjum á að stikla á því skemmtilega úr þeim síðustu og förum svo yfir hinar furðulegustu „íþróttir“ sem voru eitt sinn inni í þessum leikum. Eins og dúfu skotkeppni, nei, ekki leirdúfu skotkeppni, heldur dúfu skotkeppni! Púðluhundasnyrting sem 128 keppendur tóku þátt í, það voru veittar medalíur fyrir málaralist sem var eiginlega bara að kasta málningu úr fötu og reyna að fá flottustu áferðina. Við komumst að því að klikkuðustu Ólympíuleikarnir fóru fram árið 1900. Og eitt sinn sendu víst Spánverjar fullheilbrigt lið fyrir sína hönd á Ólympíuleika fatlaðra. En við byrjum þáttinn á því að rifja upp nineties unglingamyndir sem Birkir er að binge-a þessa dagana.

  • Í þessum þætti förum við yfir heppnasta fólk í heimi, sem flest hafa naumlega sluppið frá dauðanum á ótrúlegan hátt, og sumir oftar en einu sinni, jafnvel átta sinnum og ættu bara að vera heima hjá sér umvafin í bómul og búbbluplast. Hver var svo klár að þjappa dýnamít með járnkarli? Hver lifði af tvær kjarnorkusprengjur á fjórum dögum? Hvernig er að sogast út úr flugvél og hvað gerirðu þegar þú færð 9 líf en klárar 8 af þeim?

    En við byrjum þáttinn á því að Daði túlkar þemalag þáttarins skelfilega illa. Birkir tuðar yfir leiðinlegu veðri og kinnholusýkingu, mjög erfitt allt saman.

    Svo ræðum við smá landablöndur og vegan áróður og Daði segir mestu alkóhólistasetningu sem hann hefur sagt.

    Daði skellir Birki svo í „Giskaðu á hljóðið“ leik í lokin!

  • Það er mikið um glens og grín í þessum þætti eins og alltaf þegar Herpes bræður mæta, Davíð og Þröstur. Við losnum ekki við þá, þeir bara mæta aftur og aftur! Birkir byrjar þáttinn á því að kasta fram sinni hugmynd að framhaldslífi hvolpasveitarinnar fyrir eldri kynslóðir, eiginlega bara mjög góð hugmynd að bíómynd. Svo klúðrar hann brandara sem hann fékk gefins.

    En svo förum við í umræðu þáttarins, um Disney samsteypuna.

    Lét Walt Disney í alvöru frysta sig eftir dauðann? Voru Disney teiknimyndir fortíðarinnar með áróður tengdu stríði? Er Disney að miða á rangan markhóp í dag með Marvel og Star Wars? Er Disney of mikið á “woke” vagninum? Var Tinkerbell að dreifa álfaryki eða englaryki og var Mjallhvít íslensk? Svo kemur Þröstur með reynslusögu úr heimsókn í Disney World, sem er peningamaskína fyrir Disney en peningasvarthol fyrir fjölskyldur.

    Þetta og margt fleira kemur í dagsljósið í þessum bráðskemmtilega þætti. Herpes bræður fara svo í spurningakeppni í lok þáttar þar sem ýmsar óþægilegar spurningar líta dagsins ljós, af hverju var Davíð hent út af facebook og instagram? Það er stóra spurningin í lífinu!

  • Í þessum þætti gefst ykkur tækifæri á að kynnast aðeins skuggalegri fortíð þáttastjórnenda.

    Fyrst tökum við létt spjall um þessa blessuðu endalausu Ólympíuleika á léttum nótum og Birkir talar um að hann ætli að taka jákvætt ár þrátt fyrir íslenska sumarið sé að drepa hann tilfinningalega.

    Við ætlum að rifja upp gömul strákapör í hópnum Krass sem var hið íslenska Jackass, byrjuðum meira að segja á undan Jackass (Já, við erum gamlir). Við tölum um atriði sem við gerðum eins og þegar það kviknaði í Birki, þegar við vorum fengnir til þess að hita upp fyrir Jackass 2, þegar við tókum live show á Akureyri, þegar við vöktum athygli meðlima Jackass hópsins á myspace í fortíðinni og þegar við komum fram í þáttunum Top 20 Most Dumbass Daredevils en Top 20 Most serían var vinsæl í sjónvarpi hér á landi meðal annars, og þegar við komum á MTV. Og við tölum um enn fleiri lífshættuleg atriði sem við tókum upp, einnig tölum við um bölvunina sem hvíldi á hópnum sem lagði niður hvert fyrirtæki eftir annað. Popptívi, XFM, NFS fréttastöðina, minnsirkus og fleira.

    Við tökum svo símahrekki í lokin á nokkra vel valda vini og kunningja.

    Við munum svo auðvitað setja inn krassandi myndbönd tengd þættinum á Instagram og TikTok.

  • Birkir byrjar á því að tala um sitt sjötta skilningarvit sem tengist klósettferðum Daða. Frekar einkennilegt...

    En í þessum þætti förum við yfir skrítna hluti sem hafa fundist á jörðinni. Hlutir eins og hinn dularfulli London hamar, Baghdad battery sem er 2.000 ára gömul rafhlaða, fjársjóður sem fannst undan ströndum Ísraels, nokkrir 2 metra háir Lego kallar sem hafa fundist á ströndum við Ameríku og Evrópu. Dularfull dúkka úr Titanic sem fannst á undan skipinu sjálfu. Sjalið hans Jesú, falsað eða ekki falsað? Birkir fræðir okkur svo um smíði pýramídanna og Daði fjallar um þorpið sem fannst á hafsbotni...Atlantis?

    Birkir fer svo í leik í lokin í boði Daða.

  • Við fengum hlaðvarpsmógúlinn Frosta Logason til okkar í skemmtilegt spjall þar sem við förum til dæmis yfir Mínus ferilinn og rokk ævintýrin, hvernig það var að túra með Papa Roach og hita upp fyrir bönd eins og Incubus, Muse, Velvet Revolver, Metallica og fleiri. Við ræðum einnig um woke kúltúrinn á Íslandi, Big Pharma, Trumpismann, sjóævintýri Frosta, hlaðvarpsheiminn og margt fleira. Skemmtilegt spjall þar sem við förum yfir víðan völl!

  • Hellum okkur í tilgangslausa fróðleikinn!

    Hversu þung eru ský! Vatn er ekki blautt! HA! Heilinn á þér er stanslaust að borða sjálfan sig, hver var hauslausi Mike sem lifði vel og lengi...hauslaus. Hvað eru margir með þriðju geirvörtuna, af hverju frýs heitt vatn hraðar en kalt vatn og af hverju klæjar okkur í húðina!!! Þú færð svör við helstu mysteríum lífsins í þessum þætti, svo hendir Daði í leik fyrir Birki og við komumst að því hvort hann sé skarpari en skólakrakki og auðvitað endar þetta á Dagbók Daða þar sem blautir draumar koma við sögu...

  • Dáðasti sonur Íslands (að eigin sögn) snýr aftur heim eftir tveggja vikna skelfingarútlegð!

    Birkir ferðaprinsessa snýr tilbaka frá Tenerife og er ansi svipaður Ross úr Friends þegar hann fór í misheppnaða brúnkuspreyið. Birkir segir okkur aðeins frá klikkuðu villunni sem hann gisti í og færði sig svo á 5 stjörnu hótel með nektarnýlendu á þakinu sem hann sver að hann heimsótti ekki, villa er auðvitað ekki nóg fyrir garðbæinginn okkar. Hann sleikti sárin með því að leigja snekkju, bara ósköp venjuleg utanlandsferð.

    Svo vildi Birkir fá update af því sem gerðist í heiminum á meðan hann lá í sólarmóki. Hann fær að vita að síðasta eldgos er búið. Hann furðar sig á því hvað þetta EM er sem allir tala um. Við ræðum um snöggfrægð Hailey „Hawk Tuah“ Welch og einnig Bobbi Althoff. Svo hlægjum við að Biden og Trump og förum yfir viðburði, hluti og staði sem eru yngri en þeir báðir. Birkir hendir svo Daða í „Ertu skarpari en skólakrakki“ leik og Dagbók Birkis lítur dagsins ljóss í fyrsta og kannski síðasta skipti, svo auðvitað rekur Dagbók Daða lestina í lokin.

  • Þáttur dagsins er eiginlega búbblur, bjór og Jager!

    Við byrjum á ranti um hunda út af einhverju, það bara byrjaði einhvernveginn, Daði talar um hundaárás sem hann lenti í og Birkir segir okkur frá því þegar hann rétt slapp frá mannætuvillihundum á Krít.

    En svo er það málefni þáttarins, the 80´s eða áttundi áratugurinn!

    Hvor er svalari, Gen X eða Millennials? Hver man ekki eftir VHS, floppy diskum, prime time Michael Jackson, Alf, Rubik´s Cube, Garbage Pail Kids, boomboxum, Walkman, breikdans, ógeðslegu 80´s fötunum og He-man og mörgu mörgu fleiru, eflaust margir sem muna ekkert eftir þessu, en við gerum það og fjöllum um þetta og margt fleira sem var hér og þar á áttunda áratugnum, sem var helvíti magnaður áratugur!

  • Í þessum þætti förum við yfir skrítnar íþróttagreinar eins og Chess boxing, Camel jumping, Man Vs Horse maraþon, Cheeserolling, Wife carrying, Fireball football og Beer mile, en allt eru þetta viðurkenndar greinar í sínu landi, eða eins viðurkenndar og hægt er, þetta er brot af því sem við förum yfir, við ræðum einnig stórafreksíþróttaferlana okkar, hefði Birkir endað í landsliðinu í körfubolta? Gat Daði eitthvað í einhverju? Birkir tekur svo rant um ræktina, gallaðan BMI skala og Ozempic, og hvor okkar hefur aldrei séð Harry Potter?? Svo endar þetta á því að Birkir fer í einstaklega ruglandi leik og Dagbók Daða lætur sig ekki vanta...

  • Við sitjum uppi með Davíð og Þröst, þeir hreinlega neita að yfirgefa stúdíóið, þeir taka þátt í umræðuefni þessa þáttar sem er blaður og þvaður um hinar og þessar kvikmyndir, og allt þetta í lýsingu manna sem eru allir komnir vel í glas. Hver er hin fullkomna mynd? Hvaða myndir þolum við ekki? Hvaða myndir eru okkar Guilty Pleasure, og af hverju getur Birkir ekki sagt Guilty Pleasure og Saving Private Ryan?

  • Í þessum þætti förum við yfir The 2000´s eða The Noughties eins og það kallast víst. Ja hvað gerðist? Sem dæmi af því sem við förum yfir er það að iPodinn mætti, myspace, netflix, hrunið, rosalegir sjónvarpsþættir fóru af stað, svakalegar bíómyndir, Halli í Botnleðju hefði getað verið trommarinn í Coldplay og við sluppum með skrekkinn þar sem að Y2K varð ekki að raunveruleika, en hvað í raun var það? Svo förum við í spurningakeppni þar sem við gáum hvort meðstjórnandi þáttarins eða makar okkar þekki okkur betur, Birkir fann upp lausn við fatastærðarvandamáli heimsins, mjög djúp pæling, og auðvitað er Dagbók Daða í þættinum...Daða til mikillar gleði...

  • Davíð og Þröstur heimsækja okkur í þessum þætti til að tala um húmor! Þú vilt ekki missa af þessum þar sem við förum í geggjaða pabbabrandarakeppni! Vissir þú að það var hláturfaraldur árið 1962? Hann var töluvert skemmtilegri en Covid. Þarf maður virkilega að hafa svo miklar áhyggjur af Cancellation Nation? Við rifjum upp vandræðalegar sögur af okkur úr fortíðinni sem tengjast prumpi, lituðum hökutoppum, tveimur gömlum konum í Kringlunni sem spyrja Birki hvort hann sé í G-streng og á hversu marga bíla hefur Davíð bakkað á sem voru í eigu Daða? Þættinum er svo lokað á tveimur sprengjum þar sem Daði hefnir sín fyrir árekstrana!

  • Blæti! Hvað er blæti, hvernig blæti eru til? Dr. Birkir og Dr. Daði leggjast hér yfir hin ýmsu blæti mannkynsins. Sumt skrítið, annað eitthvað annað, hér er enginn að dæma, við erum bara að velta steinum og hafa gaman. Stórar spurningar sem við svörum er t.d. hvað er soft vore, hvað er hard vore, hvað er gasmasking blæti, við förum yfir þetta allt saman og miklu fleira. Við hringjum einnig í góðvin þáttarins hann Davíð og skoðum blætin hans. Svo fer Birkir í skemmtilegan leik!

  • Hér ræðum við um hið yfirnáttúrulega, það hljómaði bara eitthvað svo miklu betur að skíra þáttinn „Supernatural“ frekar en „Yfirnáttúrulegt“. Þabbaraþannig! En í þessum þætti fáum við góða gesti, þá Davíð og Þröst sem voru með okkur í trúmálsþættinum sem fékk rosalegar góðar viðtökur og eiginlega bara sló í gegn! Núna tökum við fyrir t.d. drauga, vampírur, varúlfa, uppvakninga (zombies), Bigfoot sem virðist vera til út um allan heim, hafmeyjur og margt fleira. Förum aðeins yfir það af hverju það er svona erfitt að segja lirfa og að sjálfsögðu barst Birki bréf úr dagbók Daða...enn eitt skiptið!

  • Sennilega einn misheppnaðasti örþáttur sem hefur verið tekinn upp. Það er séns að við höfum verið aðeins í glasi og galsa, við förum í nokkra leiki eins og hvort myndirðu frekar, viljiði ekki vita hvaða vin Birkir myndi vilja að Daði myndi drepa ef hann þyrfti þess (mjög steikt dæmi)...og getur Daði hætt að drekka? Birkir stingur upp á samheitaleik til að athuga hversu tengdir við erum, svo er auðvitað ný dagbók Daða, enda getur hann ekki hætt að senda Birki email um dagleg ævintýri sín...

  • Við leysum stóru málin í þessum þætti! Birkir segir okkur frá vankunnáttu sinni á email, hversu erfitt það er að finna forritið í tölvunni, er stríð á milli IOS og Android, veistu hvenær fyrsti rafmagnsbíllinn kom, hver varð óheppin/n varðandi deepfake, og hvað er deepfake? Daði er handviss um það að A.I. verða endalok mannkynsins, við förum yfir sturlaðar staðreyndir um tækniframþróun og lentum við á tunglinu eða? Hér leysum við stóru spurningarnar, eða svona þangað til að það líður á þáttinn, þá erum við farnir að tala með rassgatinu, en dagbók Daða heldur sínum stað...enn eitt skiptið!

  • Friðrik Thorlacius eða Frigore eins og margir þekkja hann skaust á sjónarsviðið aðeins 18 ára gamall árið 2004 með hljómsveitinni sinni Igore, með stórsmellinn Kókómalt sem allir ættu að þekkja. Síðan þá hefur hann komið víða við á tónlistarferlinum með Plugg´d, KSF og Manic State sem dæmi, hann er einnig mjög virkur DJ í ýmsum verkefnum hér og þar um bæinn og landið, kemur meðal annars sterkur inn í brúðkaupsveislurnar. Einnig ræðum við útvarpsferilinn, nýja pabbahlutverkið og margt margt fleira, hann deilir því meðal annars með okkur hver er hans forseti og við hendum honum auðvitað í nokkrar misgáfulegar spurningar!