Episodes
-
Við hefjum upphitun fyrir Deadpool & Wolverine (Deadpool 3) sem kemur í sumar. Byrjum á því þegar að Hugh Jackman kvaddi karakterinn í fyrsta skipti í þessari geggjuðu mynd.
Við ætlum svo að halda áfram að hita upp næstu vikur með X-Men, X-men 2, X-men First Class og X-Men Days of Future Past.
-
Robert Downey Sherlock og Benedict CumberHolmes verða ræddir í þessum þætti. Við ræðum myndina vs þættina og hvaða útgáfu af Sherlock við fýlum betur
Næsta vika er Logan -
Missing episodes?
-
Er þetta besta myndin eftir Christopher Nolan? Jafn vel betri en Inception eða Interstellar? Kannski, kannski ekki... Kemur í ljós.
-
Frá manninum sem færði ykkur Dune 2 og Blade Runner 2 kemur Prisoners með Huge Jacked Man í leit að dóttir sinni sem hefur verið rænd. Það er spenna, það er hasar, það er sorg. Njótið
Næsta mynd er Memento eftir Christopher Nolan
-
Ekki segja það þrisvar, svo mikið er víst. Þessi klassíska gamanmynd eftir Tim Burton er svo brjálæðislega mikil skemmtun að hún getur ekki annað en dreift henni til allra sem sitja við skjáinn
En talandi um skemmtun þá erum við að horfa á Prisoners í næstu viku, það er skemmtun fyrir masokista.
-
Nú snúast hlutverkin við, mynd sem Sigurjón hefur aldrei séð en Tryggvi hefur horft á nokkrum sinnum. How the turntables have turned!
Í næstu viku tökum við BEETLEJUICE
-
Coen bræða klassíkin Fargo er tekin fyrir í þessari viku, yah! Ferðumst til smábæjarins í Minnesota þar sem öll plön virðast fara til fjandans sama hver tekur þátt í þeim
Í næstu snúum við hlutverkunum við þar sem Sigurjón hefur aldrei séð Heat en Tryggvi hefur séð hana 2var.
-
Fyrsta myndin hans Tarantino er tekin fyrir í þessari viku en í næstu viku tökum við Fargo
-
“I'm sorry, but I don't want to be an emperor. That's not my business. I don't want to rule or conquer anyone"
Þessi fleygu orð heyrðust í kvikmynd Charlie Chaplin, The Great Dictator, árið 1940. Í þessari viku er aðeins öðruvísi þáttur þar sem við fjöllum vissulega um myndina en tímanum er þó frekar eytt í að fara létt yfir líf Chaplins. Velkomin í söguhorn Sigurjón, vonandi njótið þið.
-
A ! ALWAYS ! B ! BE ! C ! CLOSING!
Það hafa eflaust allir heyrt þessa setningu frá Alec Baldwin en í þessari viku horfðum við á myndina sjálfa og hvernig tímarnir hafa breyst
-
Sigurjón valdi mynd og sjáðu til hann var nú búinn að gleyma því að hún er ekkert voðalega góð en hey þátturinn er það!
-
Við heimsækjum Jason Segel og Paul Rudd aftur þessa vikuna í myndinni I Love you, Man. Paul Rudd leikur vinalausan mann sem þarf að finna sér svaramann fyrir brúðkaupið sitt og hilarity ensues.
Í næstu vikum tökum við A Team frá 2010
-
Vegna veikinda endurútgefum við einn af uppáhalds þáttunum okkar sem passar fullkomlega inn í þennan feel good febrúar okkar. Við snúum hinsvegar aftur í næstu viku með I Love You, Man
-
Þessi breakup mynd frá 2008 með Jason Segel, Kristen Bell, Russel Brand og Mila Kunis sló í gegn á sínum tíma og skaut Segel á toppinn. Hvað myndirðu gera ef þú ert fastur á Hawaii með fyrrverandi kærustunni og nýja manninum hennar?
Í næstu viku tökum við bromance myndina I Love You, Man
-
Þessi þáttur er so fetch! Við tökum töluvert rómantískari febrúar mánuð og horfum á nokkrar rómantískar gamanmyndir
Í næstu viku tökum við Forgetting Sarah Marshall
-
Við ljúkum þessum geðveika mánuð með ferðalagi í einangrun með Willem Dafoe og Robert Pattinson er þeir leika tvo vitaverði sem hægt og rólega missa vitið.
Það er þó eintóm gleði í næstu viku þegar við tökum fyrir Mean Girls frá 2004
-
Hvað geta tveir hvítir forrétindapésar sagt um kvikmynd sem fjallar um kúgun á frönskum jaðarhópum? Ekkert voðalega snjallt eða gagnlegt en við allavega reynum.
Í næstu viku tökum við The Lighthouse
-
"My film is not a movie. My film is not about Vietnam. It is Vietnam" sagði Francis Ford Coppola þegar hann var að kynna myndina 1979. Við strákarnir förum yfir trufluðu söguna á bakvið myndina og ræðum hvort að þessi kynning hans hafi verið rétt lýsing á myndinni.
-
Byrjum árið á japönsku klassíkinni sem hefur veitt innblástur fyrir Hunger Games, Squid Game, Call of Duty, Fortnite og margt margt margt meira.
-
Já það er komið að "besta" þættinum, þessi þar sem við förum yfir allar myndirnar sem við horfðum á þessu ári og gefum ímynduð verðlaun fyrir besta þetta og besta hitt. 2 og hálfur tími sem hægt væri að nota í heimspeki kennslu í háskólanum gott fólk.
Það er vín, það er góða skapið og það eru verðlaun.
- Show more