Episodes
-
Sunnudagurinn 9 . júní:
Synir Egils: Vandi ríkisstjórnar og Vg, vopnasala og óafgreidd mál
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalista, Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar og Þórður Gunnarsson hagfræðingur og ræða stöðu ríkisstjórnar og stjórnmálaflokka, óafgreidd mál á Alþingi, togstreitu í varnarmálum milli forseta og ríkisstjórnar og margt fleiri. Þeir bræður munu síðan taka púlsinn á pólitíkinni. -
Sunnudagurinn 2 . júní: Sjómannadagurinn
Synir Egils: Nýr forseti, pólitíkin og sjómenn
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þorvaldur Gylfason, prófessor, Atli Þór Fanndal starfsmaður Pírata, Auður Jónsdóttir rithöfundur og blaðamaður og Helga Vala Helgadóttir lögmaður og ræða forsetakjörið og áhrif þess á samfélagið. Síðan kemur fólk úr kosningastjórn þriggja efstu í forsetakjörinu og ræða baráttuna: Karen Kjartansdóttir stuðningskona Höllu Hrundar Logadóttur, Friðjón R. Friðjónsson stuðningsmaður Katrínar Jakobsdóttur og Vigdís Jóhannsdóttir stuðningskona Höllu Tómasdóttur. Þröstur Leó Gunnarsson leikari og sjómaður flytur ávörp óþekka sjómannsins og þeir bræður spjalla um sjómannadaginn, pólitíkina og forsetann. -
Missing episodes?
-
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur, Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur og Drífa Snædal talskona Stígamóta og ræða forsetakosningar og fleiri fréttir. Þeir bræður taka svo stöðuna á pólitíkinni og fá síðan heita stuðningsmenn fjögurra frambjóðenda: Helga Lára Haarde sálfræðingur er stuðningskona Höllu Hrundar, Margrét Kristmannsdóttir forstjóri Pfaff er stuðningskona Höllu Tómasar, Evert Víglundsson einkaþjálfari er stuðningsmaður Baldurs og Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM er stuðningskona Katrínar.
Vettvangur dagsins:
Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur
Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur
Drífa Snædal talskona Stígamóta
Bræður spjalla
Forsetakosningar
Helga Lára Haarde sálfræðingur og stuðningskona Höllu Hrundar
Margrét Kristmannsdóttir forstjóri Pfaff og stuðningskona Höllu Tómasar
Evert Víglundsson einkaþjálfari og stuðningsmaður Baldurs
Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM og stuðningskona Katrínar -
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessu sinni koma þau Helga Jónsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi, Sunna Sæmundardóttir fréttakona og Viðar Eggertsson leikstjóri og ræða vexti, forseta, söngvakeppni, pólitík og samfélagsmál. Þeir bræður munu taka stöðuna á pólitíkinni og fá síðan Ragnhildi Helgadóttur rektor í spjall um valdsvið forsetans og hversu mikið megi teygja það og toga.
-
Sunnudagurinn 5 . maí
Synir Egils: Forseti, mútur, spilling og almannatryggingar
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan rannsóknarritstjóri á Heimildinni, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og ræða fréttir vikunnar, stöðu stjórnmála og samfélags. Síðan taka þeir bræður stöðuna á pólitíkinni. Alma Ýr Ingólfsson formaður ÖBÍ, Svava Arnardóttir formaður Geðhjálpar og Unnur Helga Óttarsdóttir formaður Þroskahjálpar koma síðan að borðinu og fjalla um frumvarp til breytinga á almannatryggingum -
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Hulda Þórisdóttir prófessor í stjórnmálafræði, Oddný Harðardóttir þingkona Samfylkingarinnar og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og ræða fréttir vikunnar. Þeir bræður taka síðan stöðuna og fá svo Eðvarð Hilmarsson kennara í heimsókn til að ræða um hvort Breiðholt brenni.
-
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þórður Gunnarsson hagfræðingur, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingkona, Helga Vala Helgadóttir lögmaður og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og ráða í stöðu nýrrar ríkisstjórnar, stefnu hennar og lífslíkur, persónur og leikendur. Í seinni hluta þáttarins verður endursýnt samtal við þau þrjú sem eru í biskupskjöri, en þau eru: Elínborg Sturludóttir, Guðmundur Karl Brynjarsson og Guðrún Karls Helgudóttir.
-
Sunnudagurinn 7 . apríl
Synir Egils: Afsögn, framboð og stjórnarkreppa
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Benedikt Erlingsson leikstjóri, Ragnheiður Ríkarðsdóttir fyrrum þingkona og bæjarstjóri og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona og ræða afsögn forsætisráðherra, myndun nýrrar ríkisstjórnar í kjölfar hennar og mögulegar þingkosningar ofan í forsetakosningar. Þá munu þeir bræður taka stöðuna á pólitíkinni. Og í lokin verður flutt spjall við Ólaf Þ. Harðarson prófessor og Þórð Snæ Júlíusson ritstjóra frá föstudeginum um ákvörðun Katrínar, stöðu ríkisstjórnar og Vg. -
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum á pálmasunnudegi og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Andri Snær Magnason rithöfundur og skáld, Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands og Snorri Másson ritstjóri og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af átökum og ásökunum, framboði og eftirspurn, stríð og litlum friði. Þeir bræður munu taka stöðuna á pólitíkinni og fá síðan Hilmar Þór Hilmarsson prófessor til að fara yfir stríð í heiminum og áhrif þeirra á öryggismál og heimspólitíkina.
Vettvangur dagsins:
Andri Snær Magnason rithöfundur og skáld
Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands
Snorri Másson ritstjóri
Bræður spjalla
Umfjöllun: Stríð og alþjóðamál
Hilmar Þór Hilmarsson -
Sunnudagurinn 17 . mars
Synir Egils: Eldgos, velferðarríki, útlendingaandúð og kjarasamningar
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Margrét Marteinsdóttir blaðamaður, Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálastjóri Eflingar og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af hræringum ofan jarðar og neðan, lífsbaráttu almennings, stjórnmálaflokka og ríkisstjórnar, vaxandi útlendingaandúðar og vangaveltum um forsetaframboð. Þeir bræður munu taka stöðuna á pólitíkinni. Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar koma síðan og ræða stöðu verkalýðshreyfingarinnar eftir kjarasamninga aðildarfélaga Alþýðusambandsins. -
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona, Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur og Kristinn Hrafnsson blaðamaður og fara yfir fréttirnar og stöðu mála. Þeir bræður taka síðan púlsinn á pólitíkinni en fá síðan þá Kristján Þór Sigurðsson, sem skrifaði doktorsritgerð um Islamska samfélagið á Íslandi, og Hauk Þór Þorvarðarson, sem skrifaði meistararitgerð um Islamófóbíu, til að ræða um Islamófóbíu og áhrif hennar á íslenskt samfélag, einstaklingana og stefnu stjórnvalda.
-
Sunnudagurinn 3. mars
Synir Egils: Innflytjendur, orka, efnahagur, Vg og Sjálfstæðisflokkurinn
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Nichole Leigh Mosty, leikskólastjóri í Vík í Mýrdal, Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, og ræða innflytjendamál, orkumál, efnahagsmál og önnur mál sem hafa verið ofarlega í umræðunni í vikunni. Bræðurnir fá að því búnu til sín Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og spyrja hana um þær breytingar sem hún stendur fyrir og hefur staðið fyrir, stöðuna á flokknum hennar og ríkisstjórninni. Fyrir hvað stendur Áslaug Arna í pólitíkinni? Að lokum spjalla þeir bræður um stöðu mála og samfélagsins og draga saman umræður dagsins. -
Synir Egils 25. febrúar
Kjaramál, pólitík og innflytjendur
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis og Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur og ræða fréttir vikunnar og stöðuna í pólitíkinni. Þeir bræður taka svo stöðuna á pólitíkinni en fá svo að Rauða borðinu innflytjendur til að ræða innflytjendamál. Jasmina Vajzović Crnac sérfræðingur í málefnum flóttafólks og innflytjenda, Qussay Odeh aðgerðarsinni í málefnum Palestínumanna og Wiktoria Joanna Ginter túlkur og aktívisti í málum innflytjenda ræða breyttan tón í umræðu um innflytjendastefnu. -
Sunnudagurinn 18. febrúar
Synir Egils: Pólitískar vendingar og Gaza
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Viktor Pétur Finnsson, formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna, Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og ráða í stöðuna. Þeir bræður munu líka greina ástandið á þinginu og á eftir vindum við okkur í Háskólabíó og hlýðum á stórfund til stuðningi Palestínu. -
Sunnudagurinn 11. febrúar
Synir Egils: Náttúrhamfarir, hælisleitendur og staða ríkissjóðs
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Ingvar Smári Birgisson lögmaður, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Jóhann Páll Jóhansson þingmaður og ræða fréttir vikunnar en líka stöðuna í stjórnmálunum. Þeir bræður taka stöðuna á þingi og fá svo Hrafnkel Ásólf Proppé skipulagsfræðing, Þorvald Þórðarson eldfjallafræðing og Pál Einarsson jarðfræðing til að ræða áhrif náttúrvár á skipulagsmál. -
Sunnudagurinn 4. febrúar
Synir Egils: Hrun ríkisstjórnar, átök, rasismi og Íslamófóbía
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Eyjólfur Ármannsson þingmaður Flokks fólksins, Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar og Margrét Tryggvadóttir rithöfundur og ræða fréttir vikunnar en ekki síst stöðuna í stjórnmálunum, hrun í trausti til ríkisstjórnar og flokkanna sem mynda hana. Þeir bræður taka stöðuna á þingi. Mahdya Malik háskólanemi, Zahra Mesbah starfskona í samræmdri móttöku flóttafólk hjá Reykjavíkurborg og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi koma síðan og ræða reynslu sína og þekkingu á fordómum í íslensku samfélagi, rasisma og Íslamófóbíu. -
Sunnudagurinn 28. janúar
Synir Egils: Þjóðarmorð, stjórnarkreppa og kjarabarátta
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Bjarni Karlsson guðfræðingur, Drífa Snædal talskona Stígamóta og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingkona og ræða stórar fréttir, mikil tíðindi og eldfimt ástand hér heima og innanlands. Þeir bræður munu meta stöðuna í pólitíkinni og svo sláum við á þráðinn til Helenar Ólafsdóttur öryggisráðgjafa og berum undir hana ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að frysta framlög til Hjálparstofnunar Sameinuðu þjóðanna á Gaza. Í lokin fáum við Þórdís Ingadóttir lagaprófessor og segir okkur frá Alþjóðadómstólnum og túlkar úrskurð hans um þjóðarmorð Ísraelsstjórnar á Gaza. -
Sunnudagurinn 21. janúar
Synir Egils: Hamfarir, stjórnarkreppa og samfélag
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir starfsmaður Alþýðusambandsins og Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og ræða fordæmalausa stöðu. Ríkisstjórn með innanmein frammi fyrir risastórum verkefnum; hamförum, flóttafólki, kjarasamningum, húsnæðiskreppu, verðbólgu og efnahagslegri óvissu. Þeir bræður munu taka stöðuna á pólitíkinni en á eftir munu þeir fá til sín gesti til að ræða stöðuna í Grindavík út frá öðrum sjónarhornum en jarðfræðilegum og verkfræðilegum. Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur og íbúi í Grindavík, Sigrún Ólafsdóttir prófessor í félagsfræði og Þórólfur Matthíasson prófessor í hagfræði ræða Grindavík, samfélag í upplausn, stöðu fjölskyldna og getu og vilja ríkisvaldsins til að finna réttar lausnir og fylgja þeim eftir. -
Sunnudagurinn 14. janúar
Eldgos, átök, ráðherrakapall og orkuskipti
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Katrín Oddsdóttir lögmaður, Sigríður Dögg Auðunsdóttir blaðamaður og formaður Blaðamannafélagsins og Þórður Gunnarsson hagfræðingur og ræða átök innan ríkisstjórnar, innan Blaðamannafélagsins, hvalveiðar, orkuskipti og önnur átakamál. Við byrjum þáttinn hins vegar á rapporti frá Þorvaldi Þórðarsyni eldfjallafræðingi og heyrum svo í tveimur Grindvíkingum: Hilmar Freyr Gunnarsson og Páll Valur Björnsson koma til okkar. Í lokin kemur Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri og fer yfir orku- og auðlindamál og ekki síst stöðuna á Reykjanesi. -
Sunnudagurinn 7. janúar
Synir Egils: Forsetinn, samfélagið, stríðsglæpir og vanda Sjálfstðisflokksins
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Erla Hlynsdóttir blaðakona á Heimildinni, Finnbjörn A. Hermannsson forseti Alþýðusambandsins og Róbert Marshall blaðamaður og útivistarfrömuður og ræða komandi forsetakjör, kjaraviðræður og ástandið í samfélaginu. Þeir bræður munu meta stöðu þingflokkanna en síðan heyrum við í Helen Ólafsdóttur öryggisráðgjafa sem heldur því fram að íslensk stjórnvöld ættu að styðja kæru stjórnar Suður Afríku um stríðsglæpi Ísrael. Í lokin tökum við stöðuna á Sjálfstæðisflokknum, sem aldrei hefur mælst veikari. Vilhjálmur Árnason ritari og þingmaður flokksins, Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður og Stefán Einar Stefánsson blaðamaður velta fyrir sér styrkleika, veikleika, tækifærum og ógnum Sjálfstæðisflokksins. - Show more