Episodes
-
Björgvin Víglundsson, þrautreyndur skákmeistari og byggingaverkfræðingur er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Umræðuefnið er að mestu heimsmeistaraeinvígi Mikhail Botvinnik og David Bronstein árið 1951 og sterkustu heimsmeistarar sögunnar. Björgvin þakkar Útvarpi Sögu og Kristjáni Erni fyrir þeirra framlag til skákhreyfingarinnar með því að halda úti vikulegum útvarpsþætti um skák. Hann ræðir einnig framboð Kristjáns til embættis forseta Skáksambands Íslands. Kristján leggur mjög mikla áherslu á að ný stjórn Sambandsins verði samhent og að hana skipi fulltrúar frá félögum sem hafa verið virk í starfi. Hann telur að með þessum hætti verði teknar ákvarðanir sem verði farsælar fyrir skákhreyfinguna í heild sinni og lyftistöng fyrir skáklífið í landinu. Kristján leggur áherslu á að forseti Skáksambandsins eigi ekki að vera framkvæmdastjóri þess líka. Hann segir að það sé meginregla hjá öðrum íþróttasamböndum að aðgreining sé milli forseta og stjórnar annars vegar og framkvæmdastjóra hins vegar.
-
Kristján Örn ræðir við Helga Árnason, formann Skákdeildar Fjölnis og Tryggva Leif Óskarsson, formann Taflfélags Snæfellsbæjar um stórglæsilegt og fjölmennt minningarmót um Gunnar Gunnarsson og Ottó A. Árnason sem haldið var í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík um síðustu helgi. Báðir voru þessir frumkvöðlar miklir áhugamenn um skák og merkir menn í sögu Ólafsvíkur.
-
Missing episodes?
-
Torfi Leósson og Gauti Páll Jónsson eru gestir þáttarins að þessu sinni. Báðir eru þeir fyrrum formenn Taflfélags Reykjavíkur og núverandi þjálfarar félagsins. Í þættinum fara þeir yfir hvernig skákumhverfið hefur breyst á undanförnum áratugum og hvernig ný tækni og aukin samkeppni hefur haft áhrif á þjálfun og styrkleika skákmanna. Með tilkomu rafrænna kennslutækja og skákforrita hefur orðið bylting í skákþjálfun. Þeir segja að íslenskir skákmenn verði að fylgjast vel með ætli þeir sér að vera samkeppnishæfir á alþjóðavettvangi.
-
Gestir Kristjáns Arnar eru nýkrýndir Norðurlandameistarar í skák. Þetta eru ungu landsliðskonurnar Iðunn Helgadóttir 17 ára og Guðrún Fanney Briem 15 ára sem báðar urðu Norðurlandameistarar í sínum flokkum eftir sigur á Norðurlandamóti stúlkna í skák sem fram fór í Fredericia í Danmörku um þar síðustu helgi. FIDE meistarinn Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands og einn af þjálfurum stúlknanna og fararstjóri í ferðinni er einnig gestur þáttarins.
-
Ingvar Þór Jóhannesson, skákfréttaritari og annar ritstjóra vefmiðilisins Skák.is er gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Þeir félagar ræða nýafstaðið Reykjavíkurskákmót, skipulagningu mótsins, val þátttakenda, gengi íslensku keppendanna og ýmislegt fleira varðandi umgjörð mótsins og annað. Frábær árangur íslensku landsliðsstúlknanna barst í tal en þær Iðunn Helgadóttir og Guðrún Fanney Briem urðu báðar Norðurlandameistarar stúlkna í skák, hvor í sínum aldursflokki, en mótið fór fram í Fredericia í Danmörku um síðustu helgi. Taflfélag Snæfellsbæjar blæs til glæsilegs minningarmóts 17. maí næstkomandi en mótið er minningarmót um Gunnar Gunnarsson og Ottó A. Árnason sem báðir eru merkir menn í sögu Ólafsvíkur. Þeir Ingvar Þór og Kristján Örn komu inn á aðrar skákfréttir í spjalli sínu en hlusta má á þáttinn í spilaranum.
-
Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson, stigahæsti skákmaður landsins er mættur í stúdíóið til Kristjáns Arnar. Þeir félagar fara um víðan völl í spjalli sínu í þessum skemmtilega þætti. Í gærkvöldi, á hinu ofursterka vikulega Titled Tuesday hraðskákmóti á Chess.com, gerði Vignir sér lítið fyrir og lagði sjálfan Magnus Carlsen að velli - með svörtu! Líklegast hefur enginn Íslendingur unnið Carlsen eftir að hann varð fyrst heimsmeistari árið 2013. Vignir minnist Friðriks Ólafssonar, talar um Reykjavíkurskákmótið, nýja skákmótaröð sem hann stendur fyrir og ber nafnið Le Cock mótaröðin eftir samnefndum veitingastað, Grenke Freestyle mótið í Þýskalandi sem lauk sl. mánudag með glæsilegum sigri Carlsen þar sem hann sigraði alla andstæðinga sína , ræðir styrktarmál, segir frá venjulegum degi í lifi stórmeistarans og margt fleira.
-
Geir Hilmar Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og sendiherra Íslands í Bandaríkjunum er gestur Kristjáns Arnar. Geir segir frá hvenær hann fékk fyrst áhuga á skák og skákmótum sem hann hefur tekið þátt í. Hann telur upp góða skákmenn sem sátu á Alþingi með honum og talar um Friðrik Ólafsson og aðra sterka skákmeistara sem hann hefur mætt á skákborðinu. Barnabörn Geirs, Inga Jóna 12 ára og Hafþór 9 ára, æfa bæði skák og hafa farið á skákmót til útlanda með leikskólanum Laufásborg undir styrkri handleiðslu Omar Salama skákkennara. Sjá Skákbörn Laufásborgar. Geir hefur ekki aðeins gaman af að tefla og mæta á skákæfingar hjá KR heldur syngur hann með tveimur kórum; Karlakór Kópavogs og Harmoníukórnum. Þeir Kristján Örn og Geir fara um víðan völl í þættinum, tala m.a. um Reykjavíkurskákmótið, stjórnmálaástandið í Bandaríkjunum og margt fleira.
-
Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR er gestur þáttarins. Oddgeir er með doktorsgráðu í hagfræði og starfar sem framkvæmdastjóri Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Í þættinum minnast þeir Kristján Örn Friðriks Ólafssonar, fyrsta, sterkasta og þekktasta stórmeistara Íslendinga í skák, sem andaðist föstudaginn 4. apríl síðastliðinn eftir skammvin veikindi. Oddgeir segir frá barnastarfinu hjá skákdeild KR, segir frá góðum árangri barna og unglinga á Íslandsmóti barna- og grunnskóla og á Reykjavíkurmótinu í skólaskák en fjölmörg barnaskákmót hafa verið haldin að undanförnu. Oddgeir talar um Reykjavíkurskákmótið sem nú stendur yfir og margt fleira en hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að neðan.
-
Björn Þorfinnsson, ritstjóri DV og alþjóðlegur meistari í skák, er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Björn segir frá ferðum sínum á skákmót í Túnis í Afríku og norður í land á 20 ára afmælismót Goðans þar sem hann stóð uppi sem sigurvegari. Björn stefnir á að bæta sig í skák á gamalsaldri eins og hann orðar það en hann hefur hækkað um tæplega 40 elo-skákstig á nokkrum mánuðum. Kristján Örn fór inn á Facebooksíðu Björns og spyr hvort hann kannist við setninguna: "Rosalega verður maður kærulaus í þessum hita". Björn hlær og rifjar upp skemmtilegar sögur af sjálfum sér og fölskyldu sinni þegar þau ferðuðust til Ítalíu í fyrra. Björn segir: "þrjóturinn hún systir mín hefur nú deilt sinni reynslu af fjölskyldufríi stjórfjölskyldunnar [...]. Í myndböndum hennar mátti sjá fjölskylduna að mestu leyti í sínu rétta ljósi enda erum við allt annað en eðlilegur hópur. Rúmlega helmingurinn sennilega með einhverjar greiningar og hinn helmingurinn í afneitun," segir Björn og skellihlær. Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum.
-
Kristján Örn ræðir við Björn Þorfinnsson, alþjóðlegan meistara í skák og ritstjóra DV.
-
Kristján Örn tekur á móti FIDE meistaranum Halldóri Grétari Einarssyni, formanni meistaraflokksráðs Breiðabliks. Þeir ræða tölfræði eða árangur þeirra keppenda sem stóðu sig hvað best á nýafstöðnu Íslandsmóti skákfélaga. Einnig velta þeir vöngum yfir þeirri kyrrstöðu sem ríkir hjá mörgum af bestu afreksmönnum okkar Íslendinga í skák en þessir skákmenn eru þá ýmist óvirkir eða tefla lítið. Þeir Halldór og Kristján lýsa yfir áhyggjum sínum vegna þróunar mála og kalla eftir stefnumótunarvinnu hjá íslenskri skákhreyfingu.
-
Gunnar Freyr Rúnarsson, formaður Víkingaklúbbsins og FIDE meistarinn Róbert Lagerman, aðalritari Vinaskákfélagsins og alþjóðlegur skákdómari heimsækja Kristján Örn í stúdíóið á Útvarpi Sögu. Þeir fara út um víðan völl og ræða meðal annars um fyrirkomulag Íslandsmóts skákfélaga, Víkingaskák, bréfskák, landsliðsmál Grænlands, Reykjavíkurskákmótið, skák úti á landsbyggðinni, Æsi skákfélagið og vel heppnað 20 ára afmælismót Goðans sem fram fór í Skjólbrekku í Mývatnssveit um síðustu helgi.
-
Kristján Örn tekur á móti Vestfirðingunum Guðmundi Gíslasyni, FIDE meistara og verkstjóra hjá hraðfrystihúsinu Gunnvör í Hnífsdal og Magnúsi Pálma Örnólfssyni, skákmeistara og hagfræðingi MBA.
-
FIDE meistararnir Sigurbjörn J. Björnsson frá skákdeild Fjölnis og Halldór Grétar Einarsson frá skákdeild Breiðabliks ræða um Íslandsmót skákfélaga sem lauk um síðustu helgi. Sigurbjörn minnist Boris Spassky, fyrrverandi heimsmeistari í skák og eins af fremstu skákmönnum sögunnar, sem lést á fimmtudaginn í síðustu viku áttatíu og átta ára að aldri. Árið 1969 náði Spassky hápunkti ferils síns þegar hann varð heimsmeistari í skák eftir sigur á Tigran Petrosjan. Þremur árum síðar eða árið 1972 háði hann eitt frægasta einvígi skáksögunnar við bandaríska skákmeistarann Bobby Fischer í Laugardalshöllinni sem kallað hefur verið „einvígi aldarinnar“. Einvígið vakti heimsathygli og var táknrænt fyrir spennuna milli austurs og vesturs á tímum kalda stríðsins.
-
Í þessum eitthundraðasta frumflutta þætti Við skákborðið tekur Kristján Örn á móti þeim Gauta Páli Jónssyni, ritstjóra tímaritsins Skákar og Birni Ívari Karlssyni, skólastjóra Skákskóla Íslands. Umræðuefnið er tímaritið Skák sem kemur út lok vikunnar eða við upphaf síðari hluta Íslandsmóts skákfélaga, Íslandsmótið, Skákskólann, Norðurlandamót ungmenna í Borgarnesi og margt fleira skemmtilegt.
-
Kristján Örn fær til sín Karl Gauta Hjaltason, alþingismann og formann Taflfélags Vestmannaeyja. Þeir ræddu sterka stöðu skákíþróttarinnar á Íslandi, þingsályktunartillögu Karls Gauta frá því árið 2020 um skákkennslu í grunnskólum, öflugt skákstarf í Vestmannaeyjum, Íslandsmót skákfélaga en félagið stefnir á að landa sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli 2026 á 100 ára afmælisári félagsins. Þá talaði Karl Gauti um Björn Kalman lögfræðing, sem tefldi með félaginu um árabil, og sagði að ýmsir teldu að Björn væri fyrirmynd aðalpersónunnar í hinni heimskunnu skáldsögu Manntafl eftir Stefan Zweig. Margt annað áhugavert bar á góma eins og að Karl Gauti ber svarta beltið í karate en þáttinn í heild sinni má hlusta í spilaranum.
-
Gestur skákþáttarins í dag er Magnús Pálmi Örnólfsson, skákmeistari og hagfræðingur MBA. Þeir Kristján Örn og Magnús Pálmi fóru um víðan völl í spjalli sínu eins og svo oft áður. Af erlendum vettvangi ræddu þeir Titled Tuesday netskákmótin, Tata Steel ofurmótið sem haldið er árlega í Wijk aan Zee í Hollandi, Free Style Chess Grand Slam Tour 2025 mótaröðina en fyrsta slembiskákmótið í mótaröðinni stendur nú yfir í Weissenhaus í Þýskalandi. Af innlendum vettvangi töluðu þeir um nýja skákbók, Sikileyjarvörn, eftir Jón Viktor Gunnarsson alþjóðlegan skákmeistara en þetta er önnur skákbókin sem hann lætur frá sér, nýlokið Skákþing Reykjavíkur og Hraðskákmót Reykjavíkur, Símamótið og Febrúarmótaröðina sem er samstarfsverkefni Taflfélags Reykjavíkur og Taflfélags Garðabæjar. Þess á milli sagði Magnús Pálmi skemmtilegar sögur og brandara eins og honum er einum lagið.
-
Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks er gestur Kristjáns Arnar í þættinum í dag. Halldór ræðir afreksstefnu skákdeildar Breiðabliks og segir að ýmsum markmiðum deildarinnar hafi þegar verið náð. Máli sínu til stuðnings bendir hann meðal annars á árangur Blika í Skákþingi Reykjavíkur sem nú stendur yfir en 7. umferð þingsins verður tefld í kvöld. Þeir félagarnir ræða Title Tuesday netskákmótin á skákvefþjóninum Chess.com en nokkrir Íslendingar tefla þar reglulega eða á hverjum þriðjudegi eins og nafnið ber með sér. Þeir einir hafa þátttökurétt sem hafa fengið úthlutaðri nafnbót hjá FIDE, allt frá stórmeistaratitli (GM) og niður í kandídatatitil (CM). Þeir Halldór og Kristján tala um fjölsótta afmælisveislu Friðriks Ólafssonar sem haldin var í Hörðunni sl. sunnudag en þá fagnaði fyrsti og sterkasti stórmeistari Íslendinga fyrr og síðar 90 ára stórafmæli sínu. Fleira kemur til tals í þættinum eins og ágreiningur FIDE og nýs sambands eða félagsskapar sem heitir Free Style Chess, pólitísk afskipti eða umdeilt bann skáksambanda Norðurlandaþjóðanna á þátttöku skákmanna frá Rússlandi á mótum á Norðurlöndum vegna stríðsins í Úkraínu og margt fleira.
- Show more