Episodios
-
Þvílíkur þáttur til að byrja nýtt ár!
Gleðisprengjann og dásemdin hún Eva Ruza kom í sjúklega skemmtilegt og peppandi spjall, og svo mætti stjörnuspekingurinn Jara Gian Tara og skoðaði komandi ár með okkurHún las einnig í stjörnukortin okkar allra algjör veisla!
Þátturinn er í boði
Panda
Digido
Wrinkles Schminkles
Smitten -
Jólakósýþáttur þar sem við fengum mjög skemmtilegan gest, Birgittu Stefánsdóttur, sem á stóran þátt í gerð þáttarins - sannkölluð Boss Bitch! Við kynntumst henni betur, skiptumst á jólagjöfum og fórum yfir jólahefðir. Gleðilega hátíð kæru hlustendur!
Þátturinn er í boði
Panda
Digido
Wrinkles Schminkles
Smitten -
¿Faltan episodios?
-
Vel kósý þáttur þar sem var aðeins hitað upp fyrir jólaþáttinn, farið yfir jólahefðir og stress tengt jólum. Svo kom sérlega skemmtileg tilkynning um hver leynist í bumbunni hennar Írisar!
Þátturinn er í boði
Panda
Digido
Wrinkles Schminkles -
X Eva Dögg Rúnars pt 2
Njótið þess þegar við förum dýpra í allt, seinni hlutinn er ómissandi!Þátturinn er í boði
Panda
Systur og Makar
Digido
Wrinkles Schminkles -
Í þessum fyrri þætti með Evu Dögg fáum við að kynnast þessari mögnuðu konu sem hefur afrekað margt og mikið og er svo dásamlega tengd sínu innsæi. Eva Dögg er annar eigandi Rvk Ritual og á sér mjög litríkan feril enda hefur hún verið dugleg að prófa ólíka hluti. Við förum yfir ferilinn, fjölskylduna, ástarmálin og andlegu hliðina.
Þátturinn er í boði
Panda
Systur og Makar
Digido
Wrinkles Schminkles -
Vel galsaður þáttur í þetta skiptið! Ræddum um liðna viku, snail girl era trendið en tilkynning dagsins stóð klárlega uppúr.. þið viljið ekki missa af þessum þætti.
Þátturinn er í boði
Panda
Systur og Makar
Digido -
Við erum mættar aftur! Takk fyrir þolinmæðina!
Fórum í stóru málin, erfiðu málin, skemmtilegu umræðurnar og allt þar á milli. Við dýrkum ykkur og takk fyrir að hlusta!
Þátturinn er í boði
Panda
Systur og Makar
Digido -
Heilögu G-in tvö!
Rjúkandi ferskur þáttur og tvær í góðum galsa. Smá truflun á setti en ekkert sem við tíkurnar tæklum ekki. Ræddum liðna viku, ADHD-ið hennar Birnu, ákvörðun Írisar að leggja áfengi á hilluna og margt fleira. Svo fórum við að sjálfsögðu yfir Boss Bitches vikunnar og kíktum aðeins í Boxið!
Þátturinn er í boði
Panda
Systur og Makar
Digido -
Sigríður Rakel er algjör negla! Hún er markaðsstjóri Öskju og fyrrum vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni. Í þættinum förum við yfir hennar Boss Bitch vegferð og kynnumst þessari QUEEN aðeins betur!
Þátturinn er í boði
Panda
Systur og Makar
Digido -
Litli galsinn í dag! Spicy umræður í boxinu og pælingar um rétta maka?
Þátturinn er í boði
Panda
Systur og Makar
Digido -
Notalegt spjall við Guðríði Gunnlaugsdóttur, einn af eigandum Barnaloppunar og Extra loppunnar þar sem við fórum yfir það hvernig Loppuævintýrið hófst hérna á Íslandi. En Gurrý og maðurinn hennar Andri fóru á fullt í að láta þann draum rætast með tvö börn á kantinum. Þessi er kósy, njótið vel kæru hlustendur.
Þátturinn er í boði
Panda
Systur og Makar
Digido -
Skemmtilegur og léttur þáttur. Í þætti dagsins kynnum við inn nýjan lið sem þið viljið ekki missa af! Förum yfir liðna viku, TikTok trend og margt fleira skemmtilegt.
Þátturinn er í boði
Panda
Systur og Makar
Digido -
Skemmtilegur og djúsí þáttur þar sem farið var yfir víðan völl. Við töluðum um áskoranir síðastliðnu daga og það sem stóð upp úr. Íris deildi ráðum til að koma meira jafnvægi á hormóna- og taugakerfið. Svo fór Birna yfir endó-ferðalagið sitt og við fundum gullmola dagsins. Svo fullt, fullt, fleira! Þáttur sem þú vilt ekki missa af elsku hlustandi.
Þátturinn er í boði
Panda
Systur og Makar
Digido -
Hér kemur framhald af spjallinu við kjarnakonuna Kötlu. Það var mikið hlegið og haft gaman en við lærðum líka alveg heilan helling!
-
Komiði ykkur vel fyrir, þetta er einn djúsí þáttur! Katla Hreiðarsdóttir, hönnuður Volcano Design og eigandi Systur&Makar, kom til okkar í dásamlegt spjall og fór yfir söguna sína, einkalífið og ferilinn sinn. Það fylgir henni mögnuð orka og hún er manneskja sem býr til sín eigin tækifæri og gengur í hlutina. Njótið vel og búið ykkur undir að fyllast af miklum innblæstri!
-
Við vorum í kósý gírnum í dag, fórum yfir víðan völl með arineld í bakinu. Það voru krassandi sögur í Boxinu sem við þurftum að tækla. Komiði með okkur í kósý og njótið vel elsku bestu!
-
Við byrjuðum BRATT þegar Birna ákvað að skoða alvarlega þann möguleika á að selja tásumyndir og startar samtali við mögulegan kaupenda. Við fórum svo yfir það hvernig við byrjuðum með mökum okkar, og af hverju er Birna að bíða eftir bónorði? Gift konan.
Við skoðum gullmola um góð sambönd og Íris deilir því hvað maki hennar þarf að díla við varðandi hana. Takk fyrir að hlusta!
Hægt að horfa á þáttinn hér: https://youtu.be/b-ZfmhY7hPU -
Supermix! Stjörnuspeki, Tene, draugagangur, meðvirkni, heitur tattoo gaur og fantasíuopinberun Birnu! Takk fyrir að hlusta bestu!
-
"Ég ber ekki ábyrgð á þeirri útgáfu af mér sem býr í hausnum á þér"
Haldiði í hestana ykkar, þessi þáttur er algjör negla! Við fengum Silju Björk Björnsdóttur til okkar en hún er einn fremsti fyrirlesari í geðheilbrigðismálum landsins ásamt því að vera rithöfundur og mikill femínisti. Hún deildi með okkur sinni sögu og sigrum, virkilega öflug og falleg manneskja sem við lærðum helling af. Mælum með fyrir alla að hlusta. Sannkölluð boss bitch. Njótið vel kæru hlustendur! -
Við fórum aðeins á dýptina í þetta sinn. Íris deildi sinni áfallasögu og við fórum yfir bókina Atomic Habits og skoðuðum hvernig venjur geta breytt lífi okkar til hins betra.
- Mostrar más