Episodios
-
Að eiga afmæli er svo gaman,
Við spilum allir saman,
og tölum svo um það
og allir hlusta vel!
Við settum saman lista
og fórum smá að flissa
og töluðum svo um
hvað okkur fannst best! -
Að velja sér spil er góð skemmtun enn stundum þarf að vanda til verka. Það má líkja góðu spilavali við gott efnahvarf þar sem stemming myndast og hópurinn þéttist og er tilbúinn að spila meira.
Spilin og manneskjurnar sem valdar eru eru kölluð hvarfspil og hvarfvinir. Þegar samsetningin er góð myndast hópur sem kallast kjarnahópur.
Til að mynda góðan kjarnahóp er einnig gott að hafa bakvið eyrað að stundum er gott að blanda þurrefnum í jöfnuna (Snakk og gos). -
¿Faltan episodios?
-
Aaaaand ACTION! Þú átt að gera...
Það eru ótrúlega mörg borðspil með áhugaverðu þema, sögum og leikmönnum þar sem borðspilarar sogast inn í áhugaverðan heim í stutta stund.
Í þessum þætti förum við yfir hvaða borðspil eru með góðan grunn af þema sem gæti orðið að bíómynd eða áhugaverðum þáttaseríum. -
Spilaárið 2023 gert upp í tölum ogtölfræði með hjálp BGStats. Strákranir fara yfir bestu spilun sem þeir spiluðu í fyrsta skiptið á árinu og ræða hluti sem koma borðspilum ekkert við
-
Hafið þið séð myndina Tango and Cash með Sylvester Stallone og Kurt Russell? Hvað með Bad Boys, Men and Black, Double Team, Sherlock Holmes, Starsky & Hutch?
Það eru jú til margar góðar sögur af tveimur hetjum sem þurfti að sigrast á ómögulegum verkefnum. Í þessum þætti kynnum til leiks nýtt teymi sem fær til sín góða gesti og má líkja best við 3CPO og R2D2 -
PEW PEW PEW! Það er kominn tími til að sprengja upp enn eitt árið í burtu. Tíminn líður... nýtt ár ný mark...spilamarkmið!
Í þessum þætti förum við yfir nokkur skemmtileg spil sem er gott að hafa á hliðarlínunni fyrir áramótapartíið.
Við viljum einnig nýta tækifærið og þakka öllum sem hafa verið að hlusta og vonum að þið siglið með bros á vör inn í 2024!
-
Vitiði hvað við elskum meira enn jólin?.... Það er rétt! SPIL!
Enn það er ekkert betra enn að vera með fjölskyldu og vinum um jólinn... að spila.
Í þessum þætti aðstoðum við hlustendur að velja spil í pakkann fyrir jólin og fáum til okkar góðan aðila í létt spjall -
Hvað er betra enn að lifa í samfélagi þar sem allir vinna saman. Allir hjálpast að. Allir taka tillit til hvors annars og það er aldrei vesen.
Við erum öll mismunandi forrituð í lífinu og þar af leiðandi ekki allar ákvarðanir í fullkomnu synchi... enn er það ekki bara gaman?
Í þessum þætti fjöllum við um samvinnu í lífinu og förum kannski yfir nokkur samvinnuspil -
Hvort viltu þema á spilakvöldinu eða bara nýja tegund af bjór? Pant vera blár parar saman top10 spilin á BoardGameGeek við drykki.
Eins og oft áður með topplista nálgast vinirnir þetta á ólíkan hátt og ótrúlegt en satt, þá eru þeir ekki sammála um allt. -
Kæra Dagbók,
Í dag er ég mjög spenntur, alveg súper dúper ÚBER spenntur! Ég er nefnilega að fara til Þýskaland á spilaráðstefnu. Ég var ekki alveg viss hvort ég ætlaði að fara enn síðan var bara svo SJÚKLEGA gaman síðast að ég ákvað að drífa mig.
Ég er að spá að vera smá flippaður og fá mér Baileys út í kaffibollan minn hérna upp á velli í tilefni dagsins og aldrei að vita nema taki eitt Encore spil við strákana í vélinni á eftir. Djöfull verður þetta skemmtilegt! Bah strákarnir eru að koma, greinilega búnir í ELKO. Ég verð að loka þessari stuttu dagbókafærslu þótt mig langi að skrifa meira... Lofa að skrifa niður eftir hvern dag á Spiel Essen :)
Styrmir Spennti -
Blákon er ótrúlega skemmtileg spilaráðstefna sem haldin er 1-2x á ári í Munaðarnes í Borgarfirði. Enn hvað þarf í svona góða bústaðarferð fyrir 4 miðaldra einstaklinga frá fimmtudegi til sunnudags?
- 3 pakka af eggjum
- 3 pakka af beikon
- 3 pakka af Vilko Pönnukökum + gott sýrop
- 8 Kjúklingabringur
- 10 pylsur og pylsubrauð með meðlæti
- Salat
- Mjólk
- Nokkur kíló af snakki og nammi
- Bjór, whiskey, gin, baileys (algjör möst), bland og smá rauðvín
- sous vide græjur
- 10-12 hamborgara með brauði og meðlæti
- Eitthvað gott kjöt, kartöflur og sósur eftir smekk.
- Djús, jógurt, nasl (létt millimál)
- 36 Powerade (Helst bláa)
og síðast en ekki síst.....
- 52 borðspil ! -
In is episode ví will be speaking ensku. Við went to Midgard, which was haldið in Laugardalur. We vere invited to host our podkast á Sunnudegi and record live.
It went realí realí vel! -
Er gott að spila bara risastór spil, meðalstór spil eða er líka gott að spila lítil spil? Er það hvernig spilið er notað eða hvernig fílingurinn er í spilinu sjálfu eða þeim tilgangi sem spilið þjónar?
-
Eru Duel spil "Nánast fullkomlega og algjörlega tilgangslaus fyrirbæri" Eins og einn góður borðspilari orðaði það.
Við getum öll verið sammála um það að Hollywood á það til að blóðmjólka góðar hugmyndir því jú... góð saga býr til pening.... og ef það eru komnir aðdáaendur að þessari sögu, afhverju ekki búa til meira efni sem býr til meiri pening?
Enn þegar góð borðspil eru gerð... eru duel spil bara tilgangslaus viðbót til að plata okkur borðspilafíklana að eyða aðeins meira til að næla okkur í tveggja manna eintak? -
Stokkasmiður kom fyrst til sögunar í Mesopotamíu 4000 árum fyrir Krist. Stokkasmiður var iðnaður þar sem menn byrjuðu með ákveðin spil á hendi og þeir sem voru virkilega góður í þessum leik enduðu í konungsgildi sem var 10 manna hópur af bestu spilurum landsins.
Talið er að stokkasmiðir hafi verið hryggjarstykkið í siðmenningu Súmera alla tíð þangað til að einn daginn hurfu allir stokkasmiðir og enginn veit enn í dag hvað um þá varð.
Við getum þakkað þessum gömlum frumkvöðlum að hafa lagt upp grunn að öllum þeim frábæru stokkasmiðum sem eru til í dag. Þessi þáttur er tileinkaður stokkasmiðum. -
Ég gefst upp... ég gaf þessu séns og ég er búinn að gefast upp.
Ég byrjaði að horfa á Lost og gafst upp á season 2...
Ég gaf Adam Sandler tækifæri og fór á Jack & Jill í bíó, gafst upp og labbaði út í hlé...
Svo spilaði ég spil sem allir voru búnir að segja að væri frábært enn ég fílaði það ekki öll 3 skiptin þannig ég gafst upp...
Í þessum þætti förum við yfir spil þar sem við gáfumst upp...
P.S.
Hvar er Valdi? Við leituðum út um allt en gáfumst upp... -
I shall be telling this with a sigh
Somewhere ages and ages hence:
Two roads diverged in a wood, and I—
I took the one less traveled by,
And that has made all the difference.
Þetta er bútur úr vísu eftir Robert Frost sem heitir the Road Not Taken og er tileinkaður honum Styrmir sem var eini meðlimur Pant Vera Blár sem skellti sér á UK Games Expo í ár og er að sjálfsögðu næla sér í allskonar flottar viðbætur og ný spil. Í þessum þætti deilir hann sinni upplifun af þessum skemmtilega viðburði. -
Pant vera Blár er að sjálfsögðu miðlari #1 fyrir okkur Íslendinga og styttist í að við verðum áhrifavaldar heimsins, þegar við forum að gefa út spil og gefa þáttinn okkar einnig út á ensku, spænsku og frönsku. Enn þangað til er auðvitað er til annað gott efni sem við leitum í...
Hvernig borðspilaramiðlara skoðum við ? Að hverju leitum við og hvert leitum við til að skoða fréttir, sækja upplýsingar, kennslu o.fl þegar það kemur að borðspilum. -
Won´t someone please think of the children?!
Jú við hugsum sko um börnin - enda eiga meðlimir Pant Vera Blár helling af börnum eða samtals 11 börn! Sumir eiga reyndar fleiri börn en aðrir enn meðaltalið er samt 2.75 pr. meðlim. Þar af leiðandi erum við nú alveg duglegir að spila með krökkunum þegar tækifæri gefst.
Í þessum þætti förum við yfir nokkur skemmtileg krakkaspil. - Mostrar más