Episodios
-
Við ræðum við félagsmenn Sósíalistaflokksins í NA kjördæmi sem hafa lagt fram lagabreytingartillögu um svæðisfélög fyrir komandi aðalfund flokksins 24. maí.
Karl Héðinn Kristjánsson ræðir við þá Ara Orrason, Guðberg Egill Eyjólfsson og Jón Þór Sigurðsson um lagabreytingartillögu þeirra og sósíalista á Akureyri.
-
Lagabreytingartillaga ROÐA um Samvisku / Trúnaðarráð er kynnt í þættinum af Karli Héðni Kristjánssyni, Sigurrós Eggertsdóttur og Sigurði Erlends Guðbjargarsyni.
Það er skýrt ákall um breytingar á Samvisku og við teljum að tillaga okkar sé skref í rétta átt.
Næsta fimmtudag munum við kynna lagabreytingartillögu okkar. Opin umræða og gagnrýnar spurningar eru velkomnar.
Verið hjartanlega velkomin á kynningarfund ROÐA um lagabreytingartillögu okkar um Trúnaðarráð / Samvisku!
Fimmtudaginn 22. maí kl. 17.
Aðalfundurinn er síðan laugardaginn 24. maí kl. 11 í Bolholti 6, Reykjavík.
Lesið allar lagabreytingartillögur sem lagðar hafa verið fyrir aðalfund flokksins á vef flokksins:
https://sosialistaflokkurinn.is/.../tillogur-um.../
-
¿Faltan episodios?
-
Davíð Aron Routley, Halldór Ólafsson og Sigurrós Eggertsdóttir tala við Anitu Da Silvu Bjarnadóttur og Karl Héðinn Kristjánsson um nútímann, um sósíalisma og stórtíðindi undanfarinna vikna.
Er fólk hræddara við félagshyggju en áframhaldandi kapítalisma? Munu tollar Trump reisa við Bandaríkin? Er enginn valkostur nema áframhaldandi kapítalismi? -
Á degi jarðarinnar, 22. apríl, fer fram formlegur stofnfundur baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar.
Hópurinn mun beita sér fyrir lífvænlegu og sjálfbæru umhverfi og félagslegu réttlæti!
Arnar Páll Gunnlaugsson, Sigurrós Eggertsdóttir og Stefán Örn Ingvarsson Olsen ræða við Karl Héðinn Kristjánsson um stofnun baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar. -
Félagsmenn Ungra Sósíalista þáðu boð á alþjóðlegan baráttufund gegn heimsvaldastefnunni og arðráni síðastliðna helgi.
Fundurinn var kallaður til af sósíalíska Verkamannaflokknum í Frakklandi (Workers' Party (PT)) vegna stigmagnandi átaka og heimsvaldastefnu í heiminum.
Kapítalismi og heimsvaldastefnan haldast í hendur og stigmögnun átaka í heiminum má rekja til óseðjandi hagnaðar- og valdakröfu kapítalista.
Arnar Már Þóruson, Karl Héðinn Kristjánsson, Markús Candi, Marzuk Ingi, Sigurður Erlends Guðbjargarson & Sigurrós Eggertsdóttir sóttu ráðstefnuna og komu á Samstöðina til að segja frá henni. -
Mikið hefur gengið á í umræðunni undanfarna daga. Karl Héðinn skýrir mál sitt og talar við félaga sína í ungliðadeild Sósíalistaflokksins um átökin og framtíð flokksins.
-
Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur, Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður & Magnús Skúlason arkitekt koma og ræða við Karl Héðinn Kristjánsson og Trausta Breiðfjörð Magnússon um arkitektúr, umhverfissálfræði og átakið "Byggjum betur!".
Undirskriftarlisti hér: https://island.is/undirskriftalistar/810d7272-e312-46f4-9d80-0aa32ffe3570 -
Virðing fyrir fólki og lífi.
Fjallað um tímana og fólk á flótta með Aski Hrafni Hannessyni og Kristbjörgu Örnu Elínudóttur Þorvaldsdóttur.
Þátturinn er í umsjón Karls Héðins Kristjánssonar og Anitu Da Silvu Bjarnadóttur. -
Viðar Halldórsson í frábæru samtali um samfélagið og nýju bókina hans „Sjáum samfélagið“.
Rætt var um mikilvægi félagslegra tengsla, um varhugaverða þróun samfélagsins að undanförnu. Mögulegar orsakir aukins kvíða, einmanaleika, kulnunar og jafnvel siðrofs.
Rannsóknir hafa sýnt fram á það að það sem veitir fólki mestu lífshamingjuna eru ekki veraldlegir hlutir eða velsnægtir heldur frekar þau félagslegu tengsl sem við myndum yfir ævina, við okkar nánustu, nærsamfélagið og samfélagið í heild sinni.
Það er mikilvægt að staldra annað slagið við og spyrja okkur hvert samfélagið er að þróast. Fiskar í vatni geta átt erfitt með að átta sig á því að þeir séu í vatni. Og hvert vatnið gæti verið að taka þá.
Þetta og fleira á Samstöðinni klukkan 20:00 í kvöld! -
Í Rauðum raunveruleika kvöldsins fjöllum við um aðgerðir Eflingar gegn gervistéttarfélaginu Virðingu, um fasista og nýnasista á Twitter, um Elon Musk, stéttabaráttu, falsfréttir, áróður og um eðli fasismans.
Trausti Breiðfjörð Magnússon og Ægir Máni Bjarnason tala við Karl Héðinn Kristjánsson í Rauðum raunveruleika kl. 20:00. -
Karl Héðinn og Anita Da Silva ræða við Tjörva Schiöth um atburðina í Sýrlandi, hvítþvott Vesturlanda á þjóðarmorði, hryðjuverkum og heimsvaldastefnu.
Hvað er að gerast í Sýrlandi og hvað gætu þessir atburðir þýtt fyrir framtíð Palestínu og Íran? Mun Ísrael taka stóran hluta Sýrlands og komast upp með það?
Af hverju er CNN og aðrir stórir bandarískir fjölmiðlar að hvítþvo fyrrverandi foringja ISIS og Al-Kaída? -
Rætt um niðurstöður kosninganna, stöðu Sósíalistaflokksins og framtíð baráttunnar fyrir réttlæti og mannúð á Íslandi og í heiminum.
Anita Da Silva Bjarnadóttir, Karl Héðinn Kristjánsson,
Eyjólfur B. Eyvindarson, betur þekktur sem Sesar A og
Trausti Breiðfjörð Magnússon munu taka stöðuna. -
Karl Héðinn og Anita Da Silva tala við tvo félaga sína í Sósíalistaflokknum, þær Guðrúnu Ósk Þórudóttur og Maríu Pétursdóttur.
Við ræddum um stöðu fangelsanna, öryrkja og almennrar velferðar og um alvarlega stöðu og þróun í þessum málaflokkum.
Kíkið á stefnu Sósíalistaflokksins í velferðarmálum og ríkisfjármálum á Sosialistaflokkurinn.is -
Ragnar Sverrirson hefur lengi verið viðloðin alþjóðlegu Húmanistahreyfingunni og er nýkominn frá Keníu.
Á miðvikudaginn verður viðburður í Klambratúni þar sem verður gert mannlegt friðarmerki. Sanna Magdalena verður fundastjóri og ræðufólk frá fjölmörgum samtökum taka til máls. Magga Stína mun synga.
Mæting klukkan 20! Hvetjum alla til að mæta og standa fyrir friði.
En eins og sagt var er Ragnar nýkomin frá Keníu þar sem hann var að starfa með félögum í Húmanistahreyfingunni.
Heimsgangan fyrir friði og tilveru án ofbeldis mun eiga sér stað um allan heim en hún byrjar fyrst núna á miðvikudaginn!
Við ræðum við Ragnar um Húmanistahreyfinguna og Heimsgönguna.
Við sýnum tónlist frá húmanistanum og tónlistarkonunni Black Queen í lokin. Hún er 18 barna móðir. -
Alfred de Zayas er prófessor í alþjóðalögum við Háskólann í Genf og hefur áratugareynslu af starfi innan Sameinuðu Þjóðanna. Hann hefur starfað sem óháður sérfræðingur mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna í alþjóðamálum og skrifað fjölmargar bækur um alþjóðakerfið.
Alfred hefur margt til málanna að leggja og er harður gagnrýnandi á tvískinnung Vesturlanda þegar kemur að mannréttindum og alþjóðalögum.
Alfred hefur skrifað bækur á borð við "The Human Rights Industry" (2023), "Building a Just Order" (2021) og "Countering Mainstream Narratives: Fake News, Fake Law, Fake Freedom" (2022).
Við ræddum við Alfred í kjölfar fundar í Safnarhúsinu við Hverfisgötu. Fundurinn var liður í fundarröð Ögmundar Jónassonar: Til róttækrar skoðunar. -
Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasamband Íslands (KÍ) hafa boðað til mótmæla á morgun (10. september) á Austurvelli kl. 16:00.
Í tilkynningu á vef ASÍ segir: „Vinnandi stéttir munu þar mótmæla skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart hárri verðbólgu og vöxtum.
Nú er nóg komið!“
Samstöðutjald Vorstjörnunnar mun rísa upp á vellinum og hvetjum við alla til þess að mæta á Austurvöll á morgun til að lýsa óánægju sinni með stjórnvöld sem virðast hugsa um lítið annað en hagsmuni borgarastéttarinnar, hinna ofurríku.
Til þess að ræða um mótmælin og stjórnmálin fáum við til okkar þau Maríu Lilju Ingveldar- Þrastadóttur Kemp og Sæþór Benjamín Randalsson.
Við munum ræða um mikilvægi og mögulegt hlutverk mótmæla, um stéttabaráttu og pólitíkina henni tengdri. -
Pétur Eggerz Pétursson hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum í tengslum við baráttuna fyrir frjálsri Palestínu, um ofbeldi lögreglunnar gagnvart mótmælendum í Skuggasundi og víðar.
Anita Da Silva og Karl Héðinn tala við Pétur um mótmælin, stjórnmálin og nauðsyn þess að sporna við lögregluofbeldi og spillingu í Rauðum raunveruleika í kvöld klukkan 19:00 -
Antia Da Silva og Karl Héðinn fá til sín góða gesti í spjall um heimsmálin og efnahagsmál.
Ingólfur Gíslason er kennari sem hefur verið mjög virkur í hreyfingunni fyrir frjálsri Palestínu.
Sæþór Benjamín Randallsson situr í stjórn Eflingar og er ötull baráttumaður fyrir félagslegu réttlæti. -
Þórarinn Eyfjörð er formaður Sameykis, stéttarfélags opinberra starfsmanna í almannaþjónustu.
Við ræðum við Þórarinn um orlofsgreiðslur, um muninn á Jóni og Séra Jóni, um menntun, félagsstarf, lýðræði, velferð og þá vegferð sem Ísland er á. Hvað kynni að vera fram undan í stéttabaráttu almennings og af hverju er Ísland ekki enn þá komið með nýja stjórnarskrá?
Þetta og fleira í Rauðum raunveruleika í kvöld. - Mostrar más