Episodios
-
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur, Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur og Drífa Snædal talskona Stígamóta og ræða forsetakosningar og fleiri fréttir. Þeir bræður taka svo stöðuna á pólitíkinni og fá síðan heita stuðningsmenn fjögurra frambjóðenda: Helga Lára Haarde sálfræðingur er stuðningskona Höllu Hrundar, Margrét Kristmannsdóttir forstjóri Pfaff er stuðningskona Höllu Tómasar, Evert Víglundsson einkaþjálfari er stuðningsmaður Baldurs og Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM er stuðningskona Katrínar.
Vettvangur dagsins:
Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur
Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur
Drífa Snædal talskona Stígamóta
Bræður spjalla
Forsetakosningar
Helga Lára Haarde sálfræðingur og stuðningskona Höllu Hrundar
Margrét Kristmannsdóttir forstjóri Pfaff og stuðningskona Höllu Tómasar
Evert Víglundsson einkaþjálfari og stuðningsmaður Baldurs
Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM og stuðningskona Katrínar -
Laugardagurinn 25. maí
Helgi-spjall: Inga Sæland
Inga Sæland formaður Flokks fólksins kemur að Rauða borðinu og segir frá ætt sinni og uppruna, æsku og mótunarárum á Ólafsfirði, harðri lífsbaráttu og áföllum, en ræðir líka smá pólitík í lokin. -
¿Faltan episodios?
-
Föstudagurinn 24. maí
Vikuskammtur: Vika 21
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona og Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengill og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af baráttunni um Bessastaði, stríðum og átökum. -
Í mystery boxinu 🌫️ hjá Grimma og Snar les talnaspekingurinn 🎰Estrid Þorvaldsdóttir í tölur forsetaframbjóðandanaog gefur þeim ráð. Sérstakur þáttur fyrir frambjóðendur og aðra forvitna 🎲
-
Fimmtudagurinn 23. maí
Forsetakjör, smáríki, húsaleigulög og sinfónía
Við ræðum forsetakjör við Rauða borðið. Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður, Sigtryggur Ari Jóhannsson ljósmyndari og Helga Arnardóttir fjölmiðlakona ræða ýmsar hliðar baráttunnar. Síðan kemur Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi og ræðir um stöðu smáríkis í viðsjárverðum heimi. Steinunn Þóra Árnadóttir formaður velferðarnefndar ræðir frumvarp um húsaleigulög, sem leigjendur segja lítil hænuskref í átt að réttlæti. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur vakið athygli og verið til umræðu í erlendum fréttamiðlum síðustu vikur. Lára Sóley Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri kemur og segir okkur hvers vegna. -
Miðvikudagur, 22. maí
Heima er bezt - Helgi Máni Sigurðsson
Helgi Máni Sigurðsson er gestur Heima er bezt að þessu sinni. Mest er talað um trébáta síðustu aldar og eins nokkuð um fornbáta. Helgi Máni hefur frá mörgu að segja. -
Miðvikudagurinn 22. maí:
Fátækt, forsetakjör, fiskar og auðlindir
Við ræðum við tvö forsetaframbjóðendur um mál sem þeir hafa lagt áherslu á. Halla Tómasdóttir segir okkur hvers vegna samfélagið er á villigötum og frá þeirri vakningu sem hún telur nauðsynlega. Halla Hrund Logadóttir segir okkur frá sinni sýn á auðlindir þjóðarinnar og hvers vegna við þurfum að móta stefnu um nýtingu þeirra. Í byrjun þáttar kemur Guðmunda Greta Guðmundsdóttir öryrki að Rauða borðinu, en hún hefur lýst kjörum öryrkja í pistlaskrifum. Útgerðarmenn og sjómenn segja að fiskurinn sé að horast upp. Við fáum Jón Kristjánsson til að segja okkur hvað það merkir. Og Benedikt Sigurðarson kemur við og ræðir auðlindanýtingu, til sjávar og sveita en ekki síst í ferðaþjónustu. -
Sjávarútvegsspjallið 22. maí
Almennt um Sjávarútvegsmál
Gestir þáttarins eru Georg Eiður Arnarsson, Sveinbjörn Jónsson og Eyjólfur Ármannsson. Þáttastjórnandi er Grétar Mar Jónsson. -
Þriðjudagur 21. maí
Með á nótunum - 99
Velheppnaðir Rottweiler tónleikar voru um helgina og fórum yfir það. Möguleg nýjung fyrir djammið var fundin upp í leiðinni. Cannes kvikmyndahátíðinn er í fullum gangi og Demi Moore er að slá þar í gegn. Óvænt heilsuhorn þáttarins var mætt aftur farið yfir þau mál. Björk Guðmundsdóttir veldur usla með Dj setti en við höldum með okkar konu. Aðeins lítið brot af því sem farið var yfir að ógleymdum afmælisbörnum. -
Þriðjudagurinn 21. maí
Forsetakosningar og stúdentauppreisn
Forsetakosningarnar setja sitt mark á þátt kvöldsins. Fyrst koma þau Sigmundur Ernir Rúnarsson skáld og blaðamaður, Ásgeir Friðgeirsson PR-maður, Guðmundur Andri Thorsson rit- og pistlahöfundur og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir prófessor og fyrrum blaðakona og ræða kosningabaráttuna frá ýmsum sjónarhólum. Jón Gnarr forsetaframbjóðandi svarar til um hvað hann á við þegar hann segist vilja beita sér gegn leiðindum. Við sláum á þráðinn til Ísabellu Lenu Borgarsdóttur í Nijmegen í Hollandi þar stúdentar hafa reist tjaldbúðir á háskólalóðinni til stuðnings Palestínu. Og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi svarar til um hvað hún á við þegar hún segir að forseti verði að standa gegn þeim sem eiga og ráða. -
Þeir Sigurbjörn Daði Dagbjartsson blaðamaður, Aðalgeir Jóhannsson netagerðanmaður og Magnús Gunnarsson trillukarl eruí hópi örfárra íbúa sem sem enn gista í Grindavík og hafa engin áform uppi um að gefast upp. Þeir eru mjög ósáttir við margt og ræða hispuslaust tilfinningar sínar pg skort sem þeir upplifa á mannlegu viðmóti í samtali við Björn Þorláks.
-
Laugardagurinn 18. maí
Helgi-spjall: Harpa Njáls
Harpa Njáls félagsfræðingur er gestur Helgi-spjalls, segir okkur frá baráttu sinni fyrir að samfélagið og stjórnmálin horfist í augu við fátæktina en líka frá uppvexti sínum á Suðureyri við Súganda, áföllum sem riðu yfir, basli og erfiðri lífsbaráttu, þátttöku sinni verkalýðsbaráttu og annarri baráttu fyrir betra lífi lágstéttanna. -
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Guðrún Þórsdóttir stjórnarkona í Geðhjálp, Svavar Halldórsson stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur, Vera Wonder Sölvadóttir kvikmyndagerðarkona og Magnús Scheving höfundur, leikari og framleiðandi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af baráttunni um Bessastaði, tröllum og tilfinningalegum gusum, grimmd gagnvart flóttakonum, bókabrennum og stríðum.
-
Fimmtudagurinn 16. maí
Breiðholt, dauðinn, karlmennska og fótbolti
Helgi Gíslason, skólastjóri Fellaskóla, kemur að Rauða borðinu og segir okkur frá skólanum og hverfinu þar sem er hæst hlutfall innflytjenda og fólks sem ekki talar íslensku heima. Salvör Nordal umboðsmaður barna er heimspekingur sem fjallað hefur um heilbrigðiskerfið. Hún ræðir við okkur um um dánaraðstoð. Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar er leikrit um karlmennsku og fótbolta. Leikararnir Sveinn Ólafur Gunnarsson, Ólafur Ásgeirsson og Albert Halldórsson og söngvarinn Valdimar Guðmundsson taka þátt í þeirri sýningu og koma til okkar til að ræða hana, karlmennsku og fótbolta. -
Miðvikudagurinn 15. maí
Heima er bezt - Bjarki Bjarnason
Mosfellingurinn Bjarki Bjarnason, rithöfundur og sagnamaður, er gestur Sigurjóns í þættinum Heima er bezt. Þeir ræða stríðsminjar, sögur af Halldóri Laxness og margt fleira. Tveir sagnamenn að segja sögur. -
Miðvikudagurinn 15. maí:
Forseti, hommar, húsaleiga og Breiðholt
Við byrjum á umræðu um forsetakosningarnar. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Björn Þorláksson og Sigurjón Magnús Egilsson, gamalreyndir blaðamenn koma að Rauða borðinu og fjalla um kosningabaráttuna. Bjarni Snæbjörnsson leikari setti upp leikrit um eigin för sín út úr skápnum, Góðan daginn Faggi. Nú hefur hann skrifað bókina Mennsku um sama efni. hann segir okkur sína sögu. Í þinginu er frumvarp um breytingar á húsaleigulögum. Bjarni Þór Sigurðsson formaður húsnæðisnefndar VR og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna greina frumvarpið út frá hagsmunum leigienda og almennings, en frumvarpið er mest sniðið að hagsmunum leigusala. Kennararnir Maria Sastre og Marta Wieczorek búa í Breiðholti og eru þar menningarsendiherrar. Þær segja okkur frá hverfinu sínu og þeim breytingum sem það gengur í gegnum. -
Þriðjudagur, 14. maí
Með á nótunum - 98
Það var farið yfir Eurovision sem er nýafstaðin og má segja að hún hafi ekki vakið mikla lukku. Þáttastjórnendur tóku kosningarprófið. Mataræði og heilsa kom mikið við sögu og Mannanafnanefnd. Óvæntur alheimshittari varð til þökk sé Sylvester Stallone og Steve Buscemi fékk óvænt kjaftshögg og kvikmynda og þátta meðmælin eru á sínum stað. Þetta er aðeins lítið brot af því sem farið var yfir í þættinum. -
Þriðjudagurinn 14. maí
Forseti fólks eða elítu, andmannúð, kennarar í vígahug, sjókvíar og fjölpóla heimur
Eru forsetakosningarnar átök milli elítunnar og fólksins? Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi svarar því. Íslensk stjórnvöld fluttu úr landi fórnarlömb mansals, sem þau höfðu hent á götuna fyrir tæpu ári. Drífa Snædal talskona Stígamóta reynir að ráða í hver sé ástæðan. Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins ræðir stöðu kennara. Fara þeir í verkföll í haust? Jón Örn Pálsson sjávarútvegsfræðingur telur að við eigum að byggja upp sjókvíaeldi en alls ekki eins og gert hefur verið. Og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor óttast kjarnorkustríð ef bandaríkin og Vesturveldin halda óbreyttri stefnu. -
Frelsið er yndislegt, þriðjudaginn 14. maí
Fjármálaóreiða og skuldafen fanga
Í þættinum er sjónum beint að skuldavanda þeirra sem koma í fangelsi og mikilvægi þess að tekið sé til í fjármálum dómþola áður en þeir snúa aftur út í samfélagið. Reynsla í nágrannalöndum okkar hefur enda sýnt að ef ekki sé tekið á fjármálaóreiðu einstaklinga sé líklegra að þeir snúi á ný í fangelsi. Ástæður þess og hugsanlegar lausnir eru til umræðu í þætinum.
Gestir þáttarins eru Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, Sigurður Ingi Jónasson, garðyrkjumaður og fyrrverandi fangi og Bjarki Magnússon, lögfræðingur sem fer fyrir Lögfræðiaðstoð Afstöðu.
Stjórnendur þáttarins eru: Ásdís Birna Bjarkadóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson.
Hægt að ná sambandi við Afstöðu, allan sólarhringinn í síma 556-1900 og Lögfræðiaðstoð Afstöðu í síma 666-1211. - Mostrar más