Episodit
-
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Diljá Ýr Zomers eru tvær af þeim 23 sem valdar voru í EM-hóp Íslands. Þær eru á leið til Sviss um helgina og mótið hefst í næstu viku.
Þær eru jafnaldrar og léku upp alla yngri flokkana saman með FH. Báðar stigu þær sín fyrstu skref í meistaraflokki með Fimleikafélaginu áður en þær fóru mismunandi leið.
Núna eru þær saman í landsliðinu sem er á leið á stórmót; Karólína er að fara á sitt annað mót og Diljá sitt fyrsta.
Þær settust niður með fréttamanni Fótbolta.net í Serbíu í dag og ræddu um ýmislegt; Yngri flokkana í FH, Evrópumótið og framtíðina meðal annars. Auðvitað ræddu þær líka um mynd sem þær settu á samfélagsmiðla á dögunum sem sýnir hvað þær eru komnar langt. -
Á níunda áratug síðustu aldar voru erlendir leikmenn enn fáir í íslenskum fótbolta. Með átökunum á Balkanskaganum fylgdi þó mikil breyting, þegar fjölmargir leikmenn og þjálfarar frá fyrrum Júgóslavíu leituðu hingað og hófu að leggja sitt af mörkum. Þeir færðu með sér djúpa þekkingu, fagmennsku og ástríðu sem hafði djúpstæð áhrif á íslenskan fótbolta. Margir þeirra áttu glæsilegan feril hér á landi og enn í dag má sjá áhrif þeirra bæði inni á vellinum og í þjálfun. Við rifjuðum upp þessa mikilvægu sögu og ræddum um nokkra af þeim einstöku leikmönnum og þjálfurum sem hafa markað spor sín á íslenskri knattspyrnusögu.
-
Puuttuva jakso?
-
Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 9. umferð í 2. og 3. deild karla, 7. umferð í 4. deild og 6. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 12:00, 3. deild, 40:20, 4. deild, 1:05:35, 5.deild, 1:23:50, Utandeild, 1:34:25.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.
-
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Sölvi Haraldsson.
-
Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Haraldur Örn í Innkastinu eftir 12. umferð Bestu deildarinnar.
KR fékk skell gegn Val og stuðningsmenn KR létu óánægju sína í ljós, það voru læti í Kópavogi, Afturelding skoraði og vann á útivelli, Stjarnan á flugi, ekkert virðist geta bjargað ÍA og Gylfi átti góðan leik fyrir norðan. -
Það eru níu dagar í fyrsta leik Íslands á Evrópumótinu í Sviss.
Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur Harðarson og Óskar Smári Haraldsson hita vel upp fyrir Evrópumótið í þætti dagsins af Uppbótartímanum.
Hvernig eru andstæðingar Íslands og hverjar eiga vonir okkar og væntingar að vera?
Einnig er aðeins talað um Bestu deildina fyrir langa EM-pásu sem er framundan. -
Ásmundur Guðni Haraldsson er maður margra hatta. Hann er aðstoðarskólameistari í Brekkubæjarskóla á Akranesi, aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu og landsliðsþjálfari Reitaboltalandsliðsins.Við Ási settumst niður og spjölluðum um væntanlegt Evrópumót, hvers vegna honum finnst svo gefandi að starfa með kvennalandsliðinu, liði sem hann hefur unnið með í yfir 100 landsleikjum og fórum yfir ferilinn frá því Guðjón Þórðar og Luka Luka Kostic gáfu honum sénsinn í KR.Ási sagði mér hvernig hann starfaði sem yfirþjálfari yngri flokka Gróttu og Stjörnunnar og við ræddum að sjálfsögðu það afrek sem hann náði er hann fór með Gróttu úr neðstu deild í þá næst efstu. Auðvitað fórum við svo yfir tímann hjá FH!Síðast, en alls ekki síst, fórum við djúpt ofan í reitaboltafræðin. Hvað gerist til dæmis ef þú klobbar tvo leikmenn í einni snertingu? Það er e.t.v. kominn tími til að gefa út nýtt myndband frá reitaboltasambandinu.Njótið
-
Óskar Smári Haraldsson og Kristinn Hjartarsson mættu í settið!
- Förum yfir allar neðri deildirnar
- Úrslit síðustu umferðar
- Spurningar frá fans
- Fótbolti.net bikarinn tippleikur! -
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 21. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
Lárus Orri Sigurðsson er tekinn við ÍA en Jón Þór Hauksson, sem var látinn taka pokann sinn eftir síðustu umferð, er á línunni í þættinum.
Fjallað er um Mjólkurbikarinn, Bestu deildina, Lengjudeildina og ýmislegt fleira. -
Grænu ljónin frá Kamerún breyttu knattspyrnuheiminum varanlega á HM á Ítalíu árið 1990. Roger Milla og félagar mættu, sáu og sigruðu en saga liðsins er um margt ótrúleg. Paul Biya, sem hefur verið við völd í Kamerún síðan 1982, fyrirskipaði að Roger Milla skyldi taka þátt í mótinu og þar með var það mál útrættMilla hafði þá þegar lagt skóna á hilluna, en ákvörðun forsetans reyndist snilldarleg. Við fórum yfir þessa mögnuðu sögu og rýndum í hvernig framganga ljónanna breytti fótboltaheiminum – bæði í Afríku og fyrir ungan miðjumann Parma á Ítalíu!Njótið!
-
Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann á Íslandi, í dag.
EM hópurinn var valinn síðasta föstudag og ljóst er hvaða 23 leikmenn verða fulltrúar Íslands á EM í Sviss. Hvaða leikmenn eru svekktastir með valið?
Þá hefur Besta deildin ekki verið eins skemmtileg í mörg ár. Þrjú lið eru jöfn á toppnum og risi er í veseni.
Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fóru yfir sviðið en einnig var aðeins snert á Lengjudeildinni og 2. deild í þættinum. -
Innkastið eftir elleftu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Sæbjörn Steinke.
Jón Þór Hauksson var látinn fara eftir tap ÍA gegn Aftureldingu, Karl Friðleifur átti að fá rautt spjald í sigri Víkings gegn KR, Blikar stukku yfir einnota grill og aðrar hindranir í Eyjum, Vestri vann KA, Vuk heldur áfram á flugi og Valsmenn bregðast enn og aftur þegar þeir fá tækifærið. -
Úlfur Ágúst er einn af helstu sóknarmönnum FH auk þess að vera einn af fjölmörgum fyrirliðum Duke háskólans í norður Karólínu í Bandaríkjunum.Við ræddum saman um líf fótboltamannsins í Bandaríkjunum, möguleikann á að spila í MLS, Coach K og marg fleira. Eðaldrengur.Njótið vel!
-
Hvað er eiginlega málið með að allir geta unnið alla og eru deildirnar að styrkjast?
- Förum yfir allar neðri deildirnar
- Nýjustu úrslit og umferðir
- Hvað er að frétta í Utandeildinni?
- Spurningar frá fans -
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Anton Freyr Jónsson.
-
Besta deildin fer aftur af stað. Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977
Gunnlaugur Jónsson, einn besti vinur þáttarins, kemur í heimsókn og skoðar komandi umferð í Bestu og ræðir meðal um hlaðvarpsþættina Návígi þar sem hann fylgir eftir sjónvarpsþáttunum A&B.
Þá kemur landsliðið og HM félagsliða einnig til umræðu og Baldvin Borgarsson skoðar gang mála í Lengjudeildinni. -
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
-
Fótbolta Nördinn snýr aftur með þessum sérstaka þætti þar sem sigurvegarinn í fyrstu seríu, Ragnar Bragi Sveinsson, tekst á við þáttastjórnandann, undirritaðann Harald Örn Haraldsson. Þá var fenginn að gesta þáttastjórnanda en það er hann Daníel Óli Ólafsson frá geysivinsæla hlaðvarpinu Trivíaleikarnir.
-
Eric Cantona er einn af fyrstu erlendu leikmönnunum sem setti svip sinn á enska boltann. Eric ólst upp í helli, brenndi allar brýr að baki sér í Frakklandi en er einn af mikilvægustu leikmönnunum sem spilaði fyrir Sir Alex hjá Man Utd. Cantona er raðsigurvegari, söngvari, leikari og alger snillingur.Allt við King Cantona er áhugavert ! Góða skemmtun
-
Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi.Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 7. umferð í 2. og 3. deild karla, 5. umferð í 4. deild og 4. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 3:25, 3. deild, 38:50, 4. deild, 1:13:40, 5.deild, 1:38:50Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.
- Näytä enemmän