Episodit
-
Laugardagurinn 15. júní
Helgi-spjall: Þorvaldur Þórðarson
Í Helgi-spjall kemur Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur og segir sína sögu en líka sögu Íslands og jarðarinnar í gegnum eldgos og alls kyns hræringar. -
Föstudagurinn 14. júní
Vikuskammtur: Vika 24
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Bragi Páll Sigurðarson rithöfundur, Elín Agla Briem þjóðmenningarbóndi, Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi og Róbert Marshall fjallamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af pólitískum hrossakaupum, mótmælum og klassískum deilumálum, stríði, leit að vopnahléi og sveiflu til hægri. -
Puuttuva jakso?
-
Fimmtudagurinn 13. júní
Efnahagur, leigjendur, sjókvíar og Frakkland
Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar kemur til okkar og ræðir stöðu efnahagsmála. Drengur Óli Þorsteinsson, verkefnisstjóri hjá HMS, ræðir vanda leigjenda, enda ástandið ekki gott. Magnús Guðmundsson tölvunarfræðingur ræðir um sjókvíaeldi í Seyðisfirði, sem, íbúarnir vilja ekki sjá. Og Einar Már Jónsson sagnfræðiprófessor ræðir um pólitíska stöðu í Frakklandi, sem er viðsjárverð. -
Þriðjudagurinn 11. júní
Drengirnir okkar, banaslys, Samherji og Þýskaland
Ragnar Þór Pétursson kennari ræðir við okkur um stöðu drengja í skólakerfinu. Hvað er að? Eru drengirnir gallaðir eða skólinn? Þórhildur Elín Elínardóttir hjá Samgöngustofu kemur og ræðir hrinu dauðaslysa í umferðinni. Hvað er til ráða? Oddur Eysteinn Friðriksson myndlistarnemi kallaði yfir sig reiði Samherja og safnar nú fé til að gera varið sig fyrir stefnu fyrirtækisins í London. Ragnar Hjálmarsson stjórnmálafræðingur kemur til okkar og ræðir þýska pólitík, sem er í alvarlegri kreppu og átökum. -
Mánudagurinn 10. júní
Þingið, veik ríkisstjórn, meintur orkuskortur og Evrópusambandið
Þingmennirnir Þórarinn Ingi Pétursson formaður atvinnuveganefndar og Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður pírata ræða hvort ríkisstjórnin springur á morgun ásamt Maríu Rut Kristinsdóttur sem situr nú á þingi fyrir Viðreisn. Bjarni Bjarnason fyrrum forstjóri Orkuveitunnar rökstyður álit sitt um að það þurfi lítið að virkja, að orkuskortur sé ekki fyrirsjáanlegur. Við ræðum svo úrslit kosninga til Evrópuþingsins við Íslendinga í ESB: Rósa Björk Brynjólfsdóttir í Frakklandi, Jón Sigurður Eyjólfsson á Spáni, Þorfinnur Ómarsson í Belgíu, Steingrímur Jónsson í Svíþjóð og Áslaug Hersteinsdóttir-Hölttä í Finnlandi. -
Sunnudagurinn 9 . júní:
Synir Egils: Vandi ríkisstjórnar og Vg, vopnasala og óafgreidd mál
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalista, Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar og Þórður Gunnarsson hagfræðingur og ræða stöðu ríkisstjórnar og stjórnmálaflokka, óafgreidd mál á Alþingi, togstreitu í varnarmálum milli forseta og ríkisstjórnar og margt fleiri. Þeir bræður munu síðan taka púlsinn á pólitíkinni. -
Laugardagurinn 8. júní
Helgi-spjall: Einar Már
Einar Már Guðmundsson kemur í helgi-spjall við Rauða borðið og segir okkar frá því hvernig hann varð sá sem hann er; frá ætt sinni og uppruna, fjölskyldu og vinum, kynslóð og baráttu, geðveiki og alkóhólisma og öðru sem mótað hefur líf hans. -
Föstudagur 7. júní
Vikuskammtur: Vika 23
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Lenya Rún Taha Karim varaþingkona, Sara Stef. Hildar feministi, Snorri Sturluson kvikmyndagerðarmaður og Snorri Páll Jónsson lausamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af kjöri forseta, falli Vg, stríði og vetrarveðri og frásögnum af þrælavinnu og vondri stöðu drengja. -
Fimmtudagurinn 6. júní
ESB, öryggisstefna, blaðamenn og Indland
Jón Steindór Valdimarsson formaður Evrópuhreyfingarinnar ræðir kosningar sem hófust í dag til Evrópuþingsins. Guðmundur Gunnarsson ræðir flótta fólks úr blaðamennsku yfir í pólitík og aðra geira. Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi ræðir um öryggisstefnu Íslands, sem lituð er hernaðarhyggju. Guðmundur Gunnarsson ræðir eftirmál talningarklúðursins og stöðu fjölmiðlunar og stjórnmála. Flótta fjölmiðlamanna yfir í önnur störf ber á góma og sitthvað fleira. Og Guðjón Bjarnason arkitekt ræðir kosningarnar í Indlandi og það stóra og fjölmenna land. -
Sverrir Björnsson hönnuður gagnrýnir stóru fjölmiðlana fyrir að hafa verið of hliðhollir Katrínu Jakobsdóttur í kosningunum. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir unga innflytjendur ekki tengjast glæpum umfram aðra. Steinunn Gunnlaugsdóttir myndlistarkona opnar sýningu í Gluggagalleríinu Stétt. Hilmar Þór Hilmarsson ræðir um mun á áherslum nýkjörins forseta og stjórnvalda varðandi Úkraínustríðið. Sigurður Erlingsson landvörður segir frá vetri í júní. Og Níels Thibeaud Girerd kallaður Nilli mælir með leiklistarkennslu í grunnskólum.
-
Þriðjudagurinn 4. júní
Vg, Wolt, almannatryggingar, UK og Úkraína
Hvað verður um VG eftir brottför Katrínar Jakobsdóttur? Getur flokkurinn risið upp úr 3,3% fylgi? Vg-liðarnir Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson nýdoktor, Sunna Valgerðardóttir starfsmaður þingflokksins og Stefán Pálsson varaborgarfulltrúi ræða um stöðu Vg. Saga Kjartansdóttir og Halldór Oddsson starfsmenn lögfræði- og vinnumarkaðssviðs Alþýðusambandsins segja okkur frá Wolt, sem flest bendir til að svíni á starfsfólki sínu. Við höldum áfram umræðu um breytingar á lögum um almannatryggingar. Nú eru komið að þingmönnum að ræða kosti og galla frumvarpsins. Jóhann Páll Jóhannsson Samfylkingu, Inga Sæland Flokki fólksins og Steinunn Þóra Árnasdóttir Vg. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur og fréttaritari Samstöðvarinnar í London fjallar um kosningar í Bretlandi og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fjallar um Úkraínustríðið og öryggismál Evrópu og Íslands. -
Mánudagurinn 3. júní
Lögregluárás, elítur, þingið og heimilisofbeldi
Við ræðum við fólk sem tók þátt í friðsamri mótmælastöðu við ríkisstjórnarfund en varð fyrir piparúðaárás lögreglunnar. Qussay Odeh, Christa Hlín Lehmann, Daníel Þór Bjarnason, Lukka Sigurðardóttir, Pétur Eggerz og Bergþóra Snæbjörnsdóttir. Við förum síðan í uppgjör á umræðunni fyrir forsetakjör. Nanna Hlín Halldórsdóttir heimspekingur, Björn B. Björnsson kvikmyndagerðarmaður, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálaræðingur ræða deilur um elítur, valdastéttir og kvenhatur. Í ÞINGINU í umsjón Björn Þorláks kryfja þrír þingmenn þingmál komandi daga og áhrif forsetakjörs á stjórnmálin: Vilhjálmur Árnason í Sjálfstæðisflokki, Björn Leví Gunnarsson. Pírötum og Sigmar Guðmundsson í Viðreisn fara yfir málin. Loks ræðum við samspil jafnréttis og kynbundins ofbeldis við Lindu Dröfn Gunnarsdóttur framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins og Ingveldi Ragnarsdóttur ráðgjafi og vaktstýru athvarfsins. -
Sunnudagurinn 2 . júní: Sjómannadagurinn
Synir Egils: Nýr forseti, pólitíkin og sjómenn
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þorvaldur Gylfason, prófessor, Atli Þór Fanndal starfsmaður Pírata, Auður Jónsdóttir rithöfundur og blaðamaður og Helga Vala Helgadóttir lögmaður og ræða forsetakjörið og áhrif þess á samfélagið. Síðan kemur fólk úr kosningastjórn þriggja efstu í forsetakjörinu og ræða baráttuna: Karen Kjartansdóttir stuðningskona Höllu Hrundar Logadóttur, Friðjón R. Friðjónsson stuðningsmaður Katrínar Jakobsdóttur og Vigdís Jóhannsdóttir stuðningskona Höllu Tómasdóttur. Þröstur Leó Gunnarsson leikari og sjómaður flytur ávörp óþekka sjómannsins og þeir bræður spjalla um sjómannadaginn, pólitíkina og forsetann. -
Laugardagurinn 1. júní
Helgi-spjall: Þórir Baldursson
Gestur okkar í Helgi-spjalli er Þórir Baldursson tónlistarmaður úr Keflavík sem hefur víða farið um lendur tónlistarinnar. Hann segir okkur frá uppruna sínum, æsku, ferli, áföllum og uppgötvunum. -
Föstudagurinn 31. maí
Vikuskammtur: Vika 22
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Estrid Þorvaldsdóttir jógakennari, Hermann Stefánsson rithöfundur, Ingvar Þór Björnsson útvarpsmaður og María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp blaðakona og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af jarðhræringum og skjálftum í menningarheimum, kosningabaráttu, stríði, mótmælum og piparúða. -
Fimmtudagurinn 30. maí
Forsetakjör
Við förum yfir skoðanakannanir dagsins og kappræður með góðum gestum. Fyrst koma Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Þröstur Ólafsson hagfræðingur, Guðrún Jónsdóttir fyrrum talskona Stígamóta og Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor og síðan Hjálmar Gíslason framkvæmdastjóri, Sara Óskarsson listakona, Margrét Tryggvadóttir rithöfundur og Karl Héðinn Kristjánsson formaður Roða, félags ungra sósíalista. -
Þriðjudagurinn 28. maí
Upptaka af fundi frambjóðenda í Kolaportinu
Forsetaframbjóðendurnir Ásdís Rán Gunnarsdóttir, Ástþór Magnússon, Helga Þórisdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Viktor Þórisson, sem kalla sig Meistaradeildina, halda sameiginlegan framboðsfund og kvöldvöku í Kolaportinu. Samstöðin sendir beint út frá fundinum á venjulegum útsendingartíma Rauða borðsins. Fundarstjóri er Margrét Örnólfsdóttir. -
Miðvikudagurinn 29. maí:
Forsetakjör, Nató og kolefnalosun
Við byrjum á umræðu um forsetakosningar og elítuna: Hallgrímur Helgason rithöfundur og málari, Oddný Eir Ævarsdóttir heimspekingur og rithöfundur, Magnús Scheving höfundur, leikstjóri og framleiðandi og Ester Bíbí Ásgeirsdóttir tónlistarkona ræða átökin í kringum kosningarnar, sem herðast og herðast. Við ræðum öryggisstefnu íslands í háskalegum heimi við Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóra félagssviðs Eflingar, Tjörvi Schiöth doktorsnema og Andrés Ingi Jónsson þingmann Pírata. Og í lokin kemur Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands og fjallar um afleiðingar þess að ekkert plan sé í gangi hjá íslenskum stjórnvöldum hvað varðar losun gróðurhúsalofttegunda. -
Mánudagurinn 27. maí
Kosningar, snjóflóð, friður, fátækt og kynjaþing
Baldur Héðinsson stærðfræðingur segir okkur frá kosningaspá sinni og Þorkell Helgason stærðfræðingur og Þorvaldur Gylfason hagfræðingur segja okkur frá írsku aðferðinni í kosningum, sem meðal annars kemur í veg fyrir að óvinsæll frambjóðandi nái kjöri með takmarkað fylgi. Fjallið það öskrar er heimildarmynd um snjóflóðið á Súðavík. Hafsteinn Númason eftirlaunamaður, Daníel Bjarnason leikstjóri og Aron Guðmundsson meðframleiðandi og höfundur samnefndra útvarpsþátta koma að Rauða borðinu og ræða myndina og hina hryllilegu atburði. Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi ræðir við okkur um frið og stríðsógn og Ásta Lóa Þórsdóttir þingkona um fátækt. Í lokin koma þær Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB, og Tatjana Latinovic formaður Kvenréttindafélagsins og segja okkar frá kynjaþingi og spá í stöðuna á kvenfrelsisbaráttunni. -
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur, Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur og Drífa Snædal talskona Stígamóta og ræða forsetakosningar og fleiri fréttir. Þeir bræður taka svo stöðuna á pólitíkinni og fá síðan heita stuðningsmenn fjögurra frambjóðenda: Helga Lára Haarde sálfræðingur er stuðningskona Höllu Hrundar, Margrét Kristmannsdóttir forstjóri Pfaff er stuðningskona Höllu Tómasar, Evert Víglundsson einkaþjálfari er stuðningsmaður Baldurs og Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM er stuðningskona Katrínar.
Vettvangur dagsins:
Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur
Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur
Drífa Snædal talskona Stígamóta
Bræður spjalla
Forsetakosningar
Helga Lára Haarde sálfræðingur og stuðningskona Höllu Hrundar
Margrét Kristmannsdóttir forstjóri Pfaff og stuðningskona Höllu Tómasar
Evert Víglundsson einkaþjálfari og stuðningsmaður Baldurs
Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM og stuðningskona Katrínar - Näytä enemmän