Episodes
-
Með yfirtöku Samkaupa á Heimkaupum, sem reka m.a. Prís og 10-11 verslanir, er mikil gerjun að eiga sér stað á matvörumarkaðnum. Þetta virðist vera leið Prís inn á markaðinn og má gera ráð fyrir fjölda Prís-verslana á næsta ári. Þetta er mat þeirra Jóns G. Haukssonar og Sigurðar M. Jónssonar í nýjum og eldfjörugum þætti Hluthafaspjallsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Efni þáttarins inniheldur samtöl um barnaníð, barnagirnd og nauðganir. Indíana Rós er sjálfstætt starfandi kynfræðingur og veitir faglega og skemmtilega fræðslu fyrir ýmiskonar hópa. Hún kom til okkar í spjall til að ræða um kynlíf, að sjálfsögðu, kynfræðslu í skólum og margt fleira.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Episodes manquant?
-
Langstökkvarinn Daníel Ingi Egilsson er gestur Blekaða að þessu sinni. Þeir Dagur og Óli ræða við hann um langstökkið, fordóma gagnvart húðflúrum í andliti, aðferðir sem sumir íþróttamenn nota til að ná lengra og margt fleira.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Í þætti dagsins sjáum við ótrúlega gott og afhjúpandi dæmi um hvernig meginstraumsfjölmiðlar afskræma sannleikann og móta frásagnir til að þjóna ríkjandi rétttrúnaði hverju sinni. Hugmyndin um fjórða valdið sem aðhald að stjórnvöldum er þannig löngu úr sér gengið. Við ræðum líka um aðkomu hins frjálsa markaðar að úrræðum sem við viljum að hið opinbera þjónusti, mannfjöldaþróun á Íslandi og margt margt fleira.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Opinberir starfsmenn, sem fá laun sín greidd frá skattgreiðendum, njóta ríkulegra forréttinda sem stjórnmálamenn þurfa að hafa þor til að afnema. Íslenskt réttarfar sínir heimilisofbeldi alltof mikla linkind og Reykjavíkurborg er með gjörsamlega allt niður um sig í skipulagsmálum. Þá sýna meginstraumsfjölmiðlar uppreisninni í Sýrlandi grunsamlega mikla samúð sem gefur til kynna að eitthvað sé rotið í Danaveldi. Allt þetta og miklu meira til í Harmageddon þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Verði af samruna JBT og Marels eftir rúma viku verður félagið það verðmætasta í Kauphöll Íslands með markaðsverðmæti í kringum 770 milljarða króna. Þetta kemur fram í mjög líflegum umræðum þeirra Jóns G. Haukssonar og Sigurðar M. Jónssonar í Hluthafaspjallinu.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Björgvin Franz Gíslason er leikari og er sonur Eddu Björgvinsdóttur og Gísla Rúnars Jónssonar. Hann er um þessar mundir að leika í Ellý en hefur komið víða við í leiklistinni. Í þætti dagsins segir hann okkur frá edrúmennskunni, föðurmissinum og fleira.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Dagur og Óli fara sem fyrr vítt og breytt yfir sviðið, allt frá jólaundirbúningi, afgreiðslu á veitingastöðum yfir í ferðir Dags til Amsterdam.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Jafnréttið í Svíþjóð er komið í heilan hring og nú vilja ungar stúlkur helst fá að vera heimavinnandi húsmæður. Öfgavinstrið túlkar þetta auðvitað sem hræðilegt bakslag en við veltum fyrir okkur hvort þetta sé virkilega svo neikvætt. Við ræðum líka fall Sýrlands og skoðum hvað muni hugsanlega taka við en leiðtogi uppreisnarinnar þar er vægast sagt áhugaverður karakter sem vert er að fylgjast með. Allt þetta og miklu meira til í Harmageddon þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Ragnar Jónsson, blóðferlasérfræðingur í tæknideild lögreglunnar, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann fer hér yfir feril sinn í lögreglunni sem spannar 33 ár og ræðir um verkefni tæknideildarinnar sem eru ansi fjölbreytt. Ragnar ræðir líka um andlega líðan lögreglumanna og háa tíðni sjálfsvíga í stéttinni sem lítið er rætt um í samfélaginu.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Teddi Smith er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann er öndunar- og svettleiðbeinandi, Íslandsmeistari í ísbaði og hefur magnaða sögu að segja. Líf hans hefur sannarlega ekki alltaf verið dans á rósum en Teddi glímdi við fíknisjúkdóminn í langan tíma og var inn og út úr meðferðum frá unga aldri. Undir lokin má segja að hann hafi verið orðinn einn af góðkunningjum lögreglunnar enda reglulegur gestur í fangageymslum þeirra. Það breyttist þó allt í hans síðustu afplánun þegar hann hóf að stunda hugleiðslu, öndun og svett undir leiðsögn góðra manna sem hafa í áraraðir verið að fara sem sjálfboðaliðar með andlegan stuðning inn í fangelsin. Bataakademían bjargaði lífi Tedda og nú er hann sjálfur farinn að leiðbeina og aðstoða stráka sem misst hafa fókus sinn í lífinu. Teddi stofnaði líka félagið Dharmabreath og kennir námskeið í heildrænni öndun við símenntun Háskólans á Akureyri.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Við veltum fyrir okkur hvort það geti verið að ríkisstjórnarmyndum Valkyrjanna svokölluðu eigi eftir draga dilk á eftir sér þar sem ólíklegt þykir að skattahækkanakröfur Fólks flokksins eigi eftir að geta flogið í gegn hjá Þorgerði í Viðreisn. Einnig ræðum við um hvalveiðileyfin, listamannalaun og aðför Samtakanna 78 gegn málfrelsinu.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Ekki er svigrúm fyrir loforð Ingu Sælands í yfirstandi viðræðrum um stjórnarmyndun, að mati Jóns G. og Sigurðar Más í Hluthafaspjallinu. Fram kemur að stofnandi Viðreisnar, Benedikt Jóhannsson, skrifar athyglisverða grein á Facebook, nánast undir fyrirsögninni Peningunum er kastað.
„Fjárlög næsta árs eru með 70 milljarða króna halla. Útgjöld hafa verið aukin og ríkið hefur þannig stuðlað að spennu og hærri verðbólgu en ella. Það er ekki svigrúm til þess að kasta meiri peningum núna,“ eru lokaorð Benedikts á Facebook og er hann augljóslega að senda skýr skilaboð til Valkyrjanna að sýna ábyrga fjármálastjórn hins opinbera í stað þess að stíga á bensínið í útgjöldum.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Meðal þess sem Dagur og Óli ræða í þættinum er ný húðflúrstofa Dags, fatnaður í jarðarförum og jólakvikmyndir.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Sóley Kristjánsdóttir er 46 ára kona sem varð mamma fyrir 3 árum, fékk breytingaskeiðið á heilann og heldur úti hlaðvarpi um það. Hún er líka alveg svakalega skemmtileg og hefur átt viðburðaríka ævi hingað til. Hún er gestur Fullorðins að þessu sinni og segir okkur allt af létta.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Nýafstaðar kosningar sýna ákall þjóðarinnar eftir því að stjórnmálamenn hendi sér í verkefnin og stefni í eina átt. Eitt ríkisstjórnarform er best til þess fallið en fyrir formönnum flokkanna virðist það ætla verða síðasti kosturinn. Við fjöllum um kosningarnar frá mörgum hliðum og skoðum líka svaðilför blaðamanns Heimildarinnar á kosninganótt þegar hún hætti sér inn í gin hægri öfga og kvenhaturs á kosningavöku Miðflokksins og ætti auðvitað að fá einhver glæsileg verðlaun fyrir það.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Í þessum fyrsta þætti Hluthafaspjallsins á Brotkast.is fara þeir félagar Jón G Hauksson og Sigurður Már Jónsson hispurslaust yfir málin og það sem efst er á baugi í efnahagslífinu og skráðum fyrirtækjum í Kauphöllinni. Þeir ræða um gullvinnslu á Grænlandi og auðvitað mál málanna; kosningarnar á laugardag. Þá ræða þeir einnig verðbólguna, vextina, nýgerða samninga lækna og hjúkrunarfræðinga og viðræðurnar við kennara. Einnig er farið yfir kauparétti starfsmanna í fyrirtækjum og hvort slíkir samningar þjóni eigendum fyrirtækjanna; hluthöfunum. Rætt er um Alvotech, Marel, Haga í Færeyjum og afkomu stóru viðskiptabankanna þriggja á fyrstu níu mánuðum ársins – ásamt auðvitað því sem er að gerast í Bandaríkjunum sem og hugsanlegt viðskiptastríð við Evrópusambandið.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter.Fylgdu okkur á Facebook: https://www.facebook.com/brotkast.is
Fylgdu okkur á YouTube: https://www.youtube.com/@brotkast_
Fylgdu okkur á Instagram: https://www.instagram.com/brotkast.is/
Fylgdu okkur á Twitter: https://twitter.com/brotkasttv
Brotkast á vefnum: https://brotkast.is
-
Eldur Smári Kristinsson, oddviti Lýðræðisflokksins í Norð-Vestur kjördæmi, hefur heldur betur fengið að finna fyrir því frá góða fólkinu í þessari viku. Fyrst var logið upp á hann af þáttastjórnanda forystuspjallsins á RÚV og nú hafa Samtökin 78 kært hana fyrir hatursorðræðu. Við fórum yfir málið og allt annað tengt kosningabaráttunni daginn fyrir Alþingiskosningar.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Í þessum fyrsta þætti Hluthafaspjallsins á Brotkast.is fara þeir félagar Jón G Hauksson og Sigurður Már Jónsson hispurslaust yfir málin og það sem efst er á baugi í efnahagslífinu og skráðum fyrirtækjum í Kauphöllinni. Þeir ræða um gullvinnslu á Grænlandi og auðvitað mál málanna; kosningarnar á laugardag. Þá ræða þeir einnig verðbólguna, vextina, nýgerða samninga lækna og hjúkrunarfræðinga og viðræðurnar við kennara. Einnig er farið yfir kauparétti starfsmanna í fyrirtækjum og hvort slíkir samningar þjóni eigendum fyrirtækjanna; hluthöfunum. Rætt er um Alvotech, Marel, Haga í Færeyjum og afkomu stóru viðskiptabankanna þriggja á fyrstu níu mánuðum ársins – ásamt auðvitað því sem er að gerast í Bandaríkjunum sem og hugsanlegt viðskiptastríð við Evrópusambandið.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
- Montre plus