Episodes
-
Jónbjörn kom í Háskaleik og hitaði upp fyrir giggið sitt á Kaffibarnum seinna sama kvöld.
-
Áskell renndi yfir glænýja tónlist ásamt því að spila upptöku af Kerr Wilson setti frá Breakfast viðburðinum
-
Episodes manquant?
-
Í nýjasta þætti Háskaleiks spilaði Áskell glænýja tónlist fyrri klukkutímann og svo fékk You Got To Believe mixið hennar Yamaho að óma þann seinni. Þéttur þáttur af góðri tónlist.
-
Áskell sneri aftur eftir mánaðarfjarveru með stútfullan þátt af glænýrri tónlist
-
Lokaþáttur Lagaffe Tales takeover var ekki af verri endanum. Jónbjörn tók í spilarana í fyrri klukkutímanum með blöndu af breakbeats og elektrói! Fruit, íslenskur producer/dj búsettur í Kaupmannahöfn, sendi yfir hressandi mix fyrir seinni klukkutímann, njótið!
-
Lagaffe Tales fengu til sín engan annan en Intr0beatz í stúdíóið þessa vikuna! Jónbjörn og Viktor Birgiss spiluðu alskonar hressa tóna fyrri klukkutímann áður en Intr0beatz steig á stokk, njótið!
-
Lagaffe Tales takeover heldur áfram, Jónbjörn og Viktor Birgiss tóku b2b DJ sett fyrsta klukkutímann með slatta af fersku húsi. Góðkunningi Lagaffe til margra ára, Moff & Tarkin, tók yfir seinni klukkutímann með funheiti gestamix beint frá Vín, njótið!
-
Lagaffe Tales takeover heldur áfram, í þetta skiptið eru Jónbjörn og Felix Leifur með BROT special. Tveggja tíma spjall þar sem þeir fara yfir ýmislegt tengdu Lagaffe Tales og nýju vinyl seríu þeirra: BROT
-
Lagaffe Tales tóku yfir Háskaleik í september meðan Áskell var í fæðingarorlofi. Jónbjörn og Viktor Birgiss hafa rekið útgáfufyrirtækið Lagaffe Tales við góðan orðstír síðustu ár og verið áberandi um allan heim.
-
Jónbjörn hefur verið áberandi nafn í íslensku senunni síðustu ár enda ekki við eina fjölina felldur. Hann hefur verið búsettur í Berlín og getið sér góðs orðstírs fyrir plötusnúðakænsku sína þar. Jónbjörn rekur útgáfuna Lagaffe Tales með Viktori Birgiss auk þess að hafa gefið út sínar eigin tónsmíðar hjá D.KO, Neo Violence, FALK og Pompon records. Mikill heiður að fá Jónbjörn aftur heim til Íslands og Háskaleikur þakkar honum kærlega fyrir komuna í þáttinn.
-
Áskell spilaði glænýja tónlist í Háskaleik
-
Áskell spilaði nýja sumarlega tóna í Háskaleik
-
Sonur Sæll hefur verið áberandi bak við spilarana í höfuðborginni síðustu ár. Hann mætti í þráðbeina útsendingu og spilaði allskonar geggjaða gullmola
-
Fusion Groove kom í heimsókn til Áskels í Háskaleik og spilaði feska tóna.
-
DJ Caspa & Intr0beatz tóku yfir Háskaleik í fjarveru Áskels föstudagskvöldið 14. júní. Ferskir tónar og hjal, banters og góð tónlist
-
Áskell spilaði ferska tóna í Háskaleik í fínu sumarstuði
-
Carla Rose var gestur Háskaleiks síðasta föstudagskvöld maímánaðar. Hún kemur fram á Secret Solstice hátíðinni í sumar og hitaði upp með smá spjalli og góðum tónum
-
Jack The House Crew mætti með stútfulla tösku af oldschool jackin house plötum beint frá Japan og tók þrumu sett í Háskaleik.
-
Áskell spilaði glænýja tónlist og ferska tóna í beinni útsendingu í Háskaleik á Útvarpi 101 föstudaginn 17. maí.
-
Hinn fjallmyndalegi plötusnúður og gleðigjafi Símon fknhndsm kom í stúdíóið til Áskels og tók þrusu sett með glænýrri tónlist. Símon hefur verið áberandi á bak við spilarana á hinum ýmsu skemmtistöðum ásamt því að vera útvarpsmaðurinn á bak við Funkþáttinn og Partý Zone!
https://soundcloud.com/simonfknhndsm
- Montre plus