エピソード
-
Sunnudagurinn 17. nóvember:
Synir Egils: Pólitík, kosningar, öryggismál
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Rakel Þorbergsdóttir samskiptastjóri og fyrrverandi fréttastjóri, Róbert Marshall fjallamaður og fyrrum blaðamaður og Lára Zulima Ómarsdóttir upplýsingafulltrúi og fyrrum blaðakona og ræða æsispennandi og viðburðaríka viku í upphafi kosningabaráttu. Þeir bræður taka stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi og ræða síðan við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri um öryggismál Evrópu og þar með Íslands í veröld sem tekur hröðum breytingum. -
Laugardagurinn 16. nóvember
Helgi-spjall: Sólveig Anna
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir okkur frá æsku sinni og uppvexti, innra lífi og uppreisn, pólitískum þroska og baráttu. -
エピソードを見逃しましたか?
-
Föstudagur 15. nóvember
Vikuskammtur: Vika 46
Náttúruhamfarir, umhverfishamfarir, framboðshamfarir en líka grín og gleði verður til umræðu í Vikuskammtinum að þessu sinni. Tíðindarík vika að baki og veitir ekki af eldfjallafræðingi til að greina stöðuna! Þau Sigurrós Eggertsdóttir, Helga Sigrún Harðardóttir, Þorvaldur Þórðarson og Páll Valur Gíslason leiða saman hesta sína. Þau ræða fréttir vikunnar og tíðaranda líðandi stundar. Björn Þorláks stýrir umræðunum -
Fimmtudagur 14. nóvember
Kosningar, spilling, list, inngilding og fjölmiðlar
Í beina útsendingu við Rauða borðið í kvöld koma þau Henry Alexander Henryson, siðfræðingur, Snorri Ásmundsson, myndlistarmaður, Sigurður Haraldsson, rafvirkjameistari og Ása Lind Finnbogadóttir, framhaldsskólakennari og plötusnúður til að ræða málefni líðandi stundar í aðdraganda kosninganna. Í málefnaumræðu um mikilvægustu málefni kosninganna ræðum við um spillingu á Íslandi og þau Guðrún Johnsen, hagfræðingur og deildarforseti Viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst, Jón Þórisson, fyrrum aðstoðarmaður Evu Joly, Björn Þorláksson, höfundur og blaðamaður og Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands ræða um stöðu og umfang spillingarinnar á Íslandi og velta fyrir sér spillingarvörnum, tjáningarfrelsi og ótta í ljósi nýliðinna atburða og annarra eldri. Til að ræða annað mikilvægt mál sem sumir telja að sé tískuorð forréttindahópa en er í raun réttindabarátta upp á líf og dauða koma þau Margrét M. Norðdahl, Þórir Gunnarsson, Elín Sigríður María Ólafsdóttir listafólk hjá Listvinnzlunni. Þau ræða um lokaðar dyr sem fatlaðir einstaklingar og listamenn rekast á og um sína eigin sáru reynslu af jaðarsetningu og útilokun frá skólakerfinu og skora á stjórnvöld og samfélagið allt að taka skref og taka þátt í inngildingu, skapandi starfi og samræðu sem opnar dyr. Við heyrum svo í Skapta Hallgrímssyni ritstjóra á Akureyri sen fer yfir helstu màl norðan heiða, brjàlaða veðurspá og afmæli mikilvægs vefmiðils. -
Miðvikudagurinn 13. nóvember
Kosningar, hneyksli, húsnæði og saga úr daglega lífinu
Fjórir listamenn mæta í beina útsendingu í kvöld og svara spurningu um hvort listamenn forðist að opinbera pólitískar skoðanir? Getur það skaðað þá? Og þá hvernig? Þekkjum við dæmi um það? Listamennirnir eru: Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Auður Jónsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson og Hörður Torfason. Rannsóknarblaðamennirnir Helgi Seljan og Aðalsteinn Kjartansson bregða sér í hlutverk viðmælenda í kvöld og fara yfir mál vikunnar; meinta spillingu í sjávarútvegsráðuneytinu og títt umrædda uppljóstrun tengda syni fyrrverandi ráðherra. Jónas Atli Gunnarsson, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Sigurður Stefánsson, Aflvaka og Yngvi Ómar Sighvatsson, Leigjendasamtökunum ræða um helstu áskoranir í umbótum í húsnæðisóefni þjóðarinnar. Hafdís Huld Eyfeld Haakansson eftirlaunakona og móðir fjölfatlaðrar konu, Svanhvítar Eddu Johnsen, segir frá baráttu sinni fyrir að dóttirin fái notið arfs sem hún fékk eftir föður sinn. -
Þriðjudagur 12. nóvember
Sakamál, fíkn, spilling, bækur og pólitík
Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður, Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir uppistandari, Halla B. Þorkelsson hjá Heyrnarhjálp og Teitur Atlason kryfja samtímann í beinni útsendingu með Birni Þorláks. Sigrún Sigurðardóttir doktor í hjúkrunarfræði og prófessor við HA, Daðey Albertsdóttir sálfræðingur á Geðheilsumiðstöð barna, Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ og Sigtryggur Ari Jóhannsson ljósmyndari og óvirkur alkóhólisti koma og ræða að aldrei hafa fleiri látist úr lyfjaeitrunum en nú er kemur að ungu fólki. Hvað er til ráða? Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur kemur og segir nokkur orð um Jón Gunnarsson og spillingarmál sem nú skekur stjórnsýsluna. Sigþrúður Gunnars, framkvæmdastjóri Forlagsins, kemur og ræðir árekstra bóksölu og kosninganna. Og í lokin kemur Soffía Sigurðardóttir og segir Gunnari Smára Egilssyni frá Geirfinnsmálinu í tilefni af nýrri bók bróður hennar, Sigurðar Björgvins. Var rannsóknin þvæla byggð á sandi? -
Mánudagurinn 11. nóvember
Pólitíkin, fátækt, þöggun og vinstrið
Við byrjum á umræðu um stöðuna í pólitíkinni. Drífa Snædal talskona Stígamóta, Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Páll Baldvin Baldvinsson rithöfundur og Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins greina stöðuna. Verður fátækt kosningamál? Ætti fátæk að vera kosningamál? Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, Vilborg Oddsdóttir félagráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og Laufey Líndal Ólafsdóttir formaður Pepp samtaka fólks í fátækt ræða stöðuna. Jóhann Hauksson blaðamaður ræðir mál Jóns Gunnarssonar, sem sakar Heimildina um alvarleg óheilindi, er til umræðu. Í lokin kemur Steingrímur J. Sigfússon og ræðir um stöðu Vg og vinstrisins. -
Sunnudagurinn 10. nóvember:
Synir Egils: Kosningar, umpólun í stjórnmálum og framtíð vinstrisins
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan blaðamaður, Alma Mjöll Ólafsdóttir starfsmaður þingflokks Vg og Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun og ræða fréttir vikunnar og sviptingar í pólitíkinni, hér heiman og vestan hafs. Þeir bræður taka líka stöðuna á pólitíkinni og ræða síðan við vinstra fólk um stöðuna á vinstrinu í okkar heimshluta. Bragi Páll Sigurðarson rithöfundur, Viðar Þorsteinsson fræðslu og félagsmálastjóri, Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur, Kjartan Valgarðsson framkvæmdastjóri Geðverndarfélags Íslands og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur velta fyrir sér framtíð vinstrisins í stjórnmálunum. -
Laugardagurinn 9. nóvember
Helgi-spjall: Rán Reynisdóttir
Unnur Rán Reynisdóttir hársnyrtimeistari og fjögurra barna móðir er komin í framboð. Hún segir okkur frá lífsbaráttu sinni sem varð önnur og harðari en hún bjóst við, ástinni sem svíkur, grimmri fátækt og mikilvægi þess að berjast með samherjum fyrir réttlæti. -
Föstudagur 8. nóvember
Vikuskammtu: Vika 45
Við fáum góða gesti til að renna yfir tíðindi vikunnar með okkur. Þetta eru þau Helga Þórey Jónsdóttir, menningarfræðingur, Óli Dóri, tónlistarstjóri og fjölmiðlamaður, Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrum þingmaður og nú kennari við Háskóla Íslands og Katla Ásgeirsdóttir, plötusnúður. -
Fimmtudagur 7. nóv.
Heilbrigðiskerfi, fjársvelti, fötlun, harka, list
Það er tekið á mörgum ólíkum grundvallarmálum við Rauða borðið í dag og gestir úr öllum áttum. Í beina útsendingu mætir fólk sem hefur þekkingu og reynslu af uppbyggingu og niðurbroti heilbrigðiskerfisins, en það eru þau Jósep Blöndal, læknir, Sigurður Ingibergur Björnsson, stjórnarformaður Eyris Venture Management og fyrrum framkvæmdastjóri Klíníkurinnar, María Pétursdóttir listakona og frambjóðandi og Tinna Laufey Ásgeirsdóttir heilsuhagfræðingur, prófessor við Háskóla Íslands. Því næst tökum við fyrir fjársveltar samfélagsstofanir í samræðu við Hilmar Malmquist forstjóra Náttúruminjastofnunar Íslands, Andrés Skúlason formann Fornminjanefndar, Svanhildi Bogadóttur fyrrum Borgarskjalavörð og Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóra Tjarnarbíós. Þá er komið að spurningu dagsins þar sem almenningur á strætum borgarinnar svarar spurningunni: Skiptir viðhorf stjórnmálaflokka til menningarmála þig máli? Í Radíó Gaza er rætt um hörkuna sem færst hefur í hælisleitendamál undanfarin misseri, þær Arndís Anna fráfarandi þingmaður Pírata og lögfræðingur, Margrét Baldursdóttir, túlkur og Áslaug Ýr Hjartardóttir, ritlistarnemi sem er með samhæfða sjón og heyrnarskerðingu koma og ræða meðal annars um mál fimm manna fjölskyldu frá Írak en hluti þeirra er haldinn sömu fötlun og Áslaug Ýr. Að lokum segir Lára Zulima Ómarsdóttir okkur frá gleymdri myndlistarkonu, Höllu Haraldsdóttur. -
Fimmtudagur 7. nóvember
Sjávarútvegsspjallið - 29. þáttur
Viðmælendur Grétars að þessu sinni eru þeir Ólafur Jónsson, Rúnar Björgvinsson og Arnar B. Atlason -
Miðvikudagur 6. nóvember
Trump, efnahagur, stjórnarskrá, neytendur, rödd almennings, verkfallsvakt.
Við Rauða borðið í kvöld verður tekið á grundvallarmálunum og nýjustu fréttum. Sigurjón Magnús Egilsson tekur á móti góðum gestum í beina útsendingu til að ræða meðal annars um úrslit kosninganna í Bandaríkjunum; Eva Bergþóra Þorbergsdóttir, samskiptastjóri Reykjavíkurborgar, Gunnnar Hólmsteinn Ársælsson, kennari, Hallfríður Þórarinsdóttir, mannfræðingur, Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í sagnfræði í Háskóla Íslands. Efnahagsstjórnin hér hefur gengið frekar illa, ríkissjóður er rekinn með halla ár eftir ár. Hvers vegna er það og hvað er unnt að gera til að snúa þessu við? Við fáum fjóra góða hagfræðinga til að greina stöðuna. Þeir eru: Þórólfur Matthíasson, prófessor emeritus, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur hjá BSRB, Ólafur Garðar Halldórsson, hagfræðingur hjá SA og Róbert Farestveit, hagfræðingur hjá ASÍ. Hjörtur Hjartarson og Katrín Oddsdóttir Stjórnarskrárfélaginu setja nýja stjórnarskrá á dagskrá og útskýra hvers vegna það er kosningamál sem liggur til grundvallar öllum helstu kröfum okkur og draumum um betra líf og réttlátara. Benjamín Julian fer yfir neytendafréttir og fólk á förnum vegi svarar spurningum um stjórnarskrá sem kosningamál og hvað þurfi til að gera til að bjarga ríkissjóði úr halla. Á Verkfallsvakt Rauða borðsins ræðir Haukur Hilmarsson, smíðakennari í Reykjanesbæ um kennara sem blóraböggla en hann skrifaði samninganefndunum skeyti í formi dagbókar kennara sem varpar ljósi á umfang starfsins sem er vanmetið. -
Þriðjudaginn 5. nóvember
Kosningar, forsetakjör í USA, samgöngumál, Færeyjar, rokkstjörnur og gamalt sakamál.
Við hefjum leik með hópumræðu þar sem spurt verður hvað við ættum helst að vera að ræða fyrir Alþingiskosningarnar 30. nóvember næstkomandi. Frosti Logason, Hjálmar Gíslason, Dóra Björt Guðjónsdóttir og Kristín Erna Arnardóttir ræða málin. Nú þá verða samgöngumál sem kosningamál rædd frá ýmsum hliðum. Stefán Jón Hafstein, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Ólafur Arnarson blaðamaður og Hjalti Jóhannesson landfræðingur á Akureyri spjalla við Björn Þorláks. María Lilja Þrastardóttir Kemp ræðir við almenning um forsetakjörið í Bandaríkjunum. Hún spyr einnig hvað rokkstjörnur kjósi. Hljómsveitin Spacestation kemur beint úr hljóðprufu að Rauða borðinu en bandið tekur eins dags forskot á Airwaves vertíðina sem hefst á morgun með grasrótartónleikum í Hörpu í kvöld. Oddný Eir Ævarsdóttir flytur okkur fréttir frá Færeyjum í gegnum viðmælandann Carl Jóhan Jensen. Skorað verður á frambjóðendur að taka afstöðu til aukins samstarfs Íslendinga og Færeyinga. Við ljúkum svo þætti kvöldsins með umræðu um nýja bók. Magnús Ólafsson fyrrverandi bóndi á Sveinsstöðum segir okkur frá riti sem fjallar um síðustu aftökuna á Íslandi og varpar ljósi á réttvísi og ranglæti. -
Mánudagurinn 4. nóvember
Pólitíkin, flóttafólk, geðheilbrigði, kjósendur, verkfall, landflótti og Gaza
Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra, Pétur Tyrfingsson sálfræðingur, Helga Arnardóttir fjölmiðlakona og Páll Ásgeir Ásgeirsson fjallamaður ræða stöðuna í pólitíkinni í aðdraganda kosninga. Hvernig verður fólki við þegar manneskjur sem dvalið hafa hér misserum saman eru allt í einu fangelsaðar með hótun um brottvísun. Ragnar Magnússon framhaldsskólakennari segir frá. Við tökum fyrir geðheilbrigðismál, verða þau kosningamál? Elín Ebba Ásmundsdóttir iðjuþjálfi í Hlutverkasetri, Guðbjörg Sveinsdóttir geðhjúkrunarfræðingur, Svava Arnardóttir formaður Geðhjálpar og Sigurþóra Bergsdóttir frá Berginu headspace ræða stöðuna. Við förum í Kringluna og ræðum við kjósendur og tvær unglingsstúlkur sem eru í kennaraverkfalli: Lena Louzir og Þórdís Sigtryggsdóttir. Jack Hrafnkell Danielsson er fluttur til Noregs. Hann er í heimsókn hér á landi en honum líst hvorki á pólitíkina né umferðina. Í lokin verður Radíó Gaza. María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp ræðir við mótmælendur: Pétur Eggertz, Sigtrygg Ara Jóhannsson, Guðbjörgu Ásu Jóns-Huldudóttur og Möggu Stínu. -
Sunnudagurinn 3. nóvember:
Synir Egils: Kosningar, kappræður, kjaradeilur
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Halla Gunnarsdóttir varaformaður VR, Sema Erla Serdaroglu aðjúnkt og Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt og ræða pólitík og samfélag í aðdraganda kosninga. Þeir bræður taka púlsinn á Alþingi og ræða síðan um verkföll í kosningabaráttu. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélagsins greinir stöðuna í kjaraviðræðum. -
Laugardagurinn 2. nóvember
Helgi-spjall: Magnús Scheving
Magnús Scheving segir frá harðræði í æsku, hvernig hann lifði af og hvernig þau viðbrögð mótaðu líf hans, frá lífsviðhorfum sínum og leit að því að sætta þá Magga sem búa innra með honum. -
Föstudagur 1. nóvember
Vikuskammtur: Vika 44
Að Rauða borðinu í beina útsendingu í Vikuskammtinn koma til að ræða frjálslega út frá fréttum vikunnar þau Ása Lind Finnbogadóttir, framhaldsskólakennari og plötusnúður, Valur Gunnarsson, rithöfundur, Sigrún Sandra Ólafsdóttir, endurvinnsluáhugamanneskja, Arnar Páll Gunnlaugsson, bifvélavirki og frambjóðandi og Þór Martinsson, sagnfræðingur. Umsjón með umræðunni hefur Oddný Eir. -
Fimmtudagur 31. október
Grimmi og Snar #28 - Hverju vill Haraldur Þorleifsson spyrja Manga Tarot stokkinn að🔮
Haraldur Þorleifsson hitti Grimma og Snar sem hvatti hann til að hætta á Twitter og Chat gpd túlkaði niðurstöður spádómsins 🦥🦭🐆 -
Fimmtudagurinn 31. október
Kosningar, samkeppni, verkfall, Bandaríkin og klassíkin
Spennan í íslenskum stjórnmálum vex. Héðinn Unnsteinsson stefnumótunarfræðingur, Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður og þingmaður, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar taka stöðuna. Við ræðum samkeppnismál í aðdraganda kosninga: Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna, Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins og Gísli Tryggvason lögmaður og fyrrum talsmaður neytenda ræða hvað stjórnvöld þurfa að gera til efla samkeppni og styrkja hag neytenda. Guðjón Hreinn Hauksson formaður Félags framhaldsskólakennara, Haraldur F. Gíslason formaður Félags leikskólakennara, Sigrún Grendal Jóhannesdóttir formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins koma á verkfallsvakt kennara. Jón Ólafsson prófessor og Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi ræða forsetakosningarnar í Bandaríkjunum og Magnús Lyngdal Magnússon sagnfræðingur segir okkur frá bók sinni um Klassíska tónlist. - もっと表示する