Episoder
-
Ah, blessuð sértu sveitin mín! Út um allt land eru sveitir, bændur og húsdýr af öllum stærðum og gerðum. Sumir bændur sinna dýrum, aðrir rækta grænmeti og enn aðrir tína æðadún. Við heyrum í krökkum sem hafa alist upp við störf á mismunandi sveitabæjum en það eru Þórhalla Guðný, Baldur Karl og Hrefna sem tínir æðadún með mömmu sinni Karen og afa Hilmari. Til að stytta okkur stundir við sveitastörfin hlustum við klassíska ævintýrið um hana Búkollu. Svo er það spurningakeppnin, ekki gleyma henni!
-
Sumarið er tíminn, segja allir jurtasérfræðingar landsins! Þá er matarkistan stútfull og hægt að safna allskonar góðum fjallagrösum, berjum, sveppum til að elda með, búa til te og jafnvel lækningaseyði og smyrsl. En hvernig veit maður hvað má borða og hvað ekki? Við hittum jurtasérfræðingana og vinkonurnar Matthildi og Heklu Sif en þær hafa lært heilmargt af mömmu Heklu, henni Sillu. Jói gluggar í gamla jurtalækningabók og Ingibjörg dregur fram fróðleik um göldróttar plöntur! Þjóðsagan segir af tveimur mönnum sem lentu í ævintýrum þegar þeir voru að safna fjallagrösum. Í spurningakeppninni í lokin kemur svo í ljós hver veit mest um nesti náttúrunnar....ja, eða hlustaði best á þáttinn!
-
Mangler du episoder?
-
Halló...halló......halló? Vá hvað það er mikið bergmál í þessum helli! Við horfumst í augu við innilokunarkennd og myrkfælni, setjum á okkur hjálm og höfuðljós og dýfum okkur ofan í undraveröld hellanna. Hellasérfræðingar þáttarins eru Baldur Karl, Björn Óli og Arnór Darri en þeir hafa skoðað marga skemmtilega hella eins og Maríuhella, Víðgelmi og Surtshelli. Það eru ótalmargar þjóðsögur til sem gerast í hellum en þær sem við heyrum í þættinum eru sögurnar af Krákuhelli og Surtshelli. Hlustið vel því það gæti hjálpað ykkur að sigra spurningakeppnina í lokin!
-
Er fiskur í þessari á? En vatninu? Ert þú aflakló? Þá er þessi þáttur eitthvað fyrir þig! Við förum í veiðiferð, stangveiði, fluguveiði, dorgum og gerum allt til þess að fá maríufiskinn! Systkinin Björg Yrsa, Tryggvi Týr og Bjarni Þór hafa farið í veiðiferðir síðan þau fæddust og eru öllum hnútum kunn. Þau kenna okkur að kasta línu og hvernig á að fá túnfisk. Veiðiþjóðsögurnar fjalla annars vegar um veiðiþjóf sem stal af göldróttum bónda og hins vegar um tvo silunga, annan loðinn en hinn slímugan og sleipan. Veist þú afhverju ýsa er með svarta rönd? Þá gætir þú nælt þér í stig í spurningakeppninni í lokin!
-
Hvað er skemmtilegra en að fara í útilegu á sumrin? EKKERT! Förum aftur í útilegu og leitum uppi skemmtilegustu staðina til að tjalda á. Útilegusérfræðingar þáttarins eru Áslaug Nanna og systkinin Unnur Mist og Tristan Þór. Þjóðsögurnar fjalla um frægan dal þar sem stórar tjaldbúðir eru reistar í ágúst á hverju ári og svo útilegumenn, en það eru ekki bara menn sem fara í útilegur...Hver veit mest um útilegur? Það kemur í ljós í spurningakeppninni í lokin!
-
Í útilegu...nú förum við! Það eru svo mörg flott tjaldstæði á Íslandi að það er varla hægt að velja. Svo er líka hægt að ferðast með alls konar tjöld, fellihýsi, hjólhýsi og tjaldvagna. Möguleikarnir eru endalausir og við hendum okkur af stað. Útilegusérfræðingar þáttarins gefa okkur góð ráð og segja skemmtilegar sögur úr útilegum en það eru Guðrún Katrín, Katrín Karlinna og systurnar Athena Rós og Hera Kristý. Þjóðsögur þáttarins fjalla um strák sem var togaður út úr tjaldinu sínu og göldróttan biskup sem kann að vernda sitt tjald!
-
Nú leggjum við upp í langferð, eða kannski bara stutt hopp upp á næsta fjall! Göngum, göngum, göngum upp í gilið og niður, niður alveg niðurá tún. Hvað þarf maður að taka með sér í gönguferðir? Hvernig er best að undirbúa sig og hverjar eru fallegustu gönguleiðir á Íslandi? Við fáum svör við þessu öllu frá göngusérfræðingum þáttarins en það eru þau Guðrún Katrín, Óliver Rafn og Baldur Karl. Þjóðsögur þáttarins fjalla um gönguferðir ruglbræðranna frá Bakka og prest sem gekk í svefni. Ef þið eruð að fara í gönguferð þá er þessi þáttur skylduhlustun í undirbúninginn! Ekki gleyma spurningakeppninni í lokin...
-
Í þessum þætti köfum við dýpra í náttúrufjársjóðskistu Vesturlands og Vestfjarða. Þar er hægt að klifra í klettum, leika sér á löngum ströndum, fara í náttúrulaugar, skoða fossa og fylgjast með dýralífi. Heimamennirnir og sérfræðingarnir Saga frá Ísafirði, Marinó frá Borgarnesi og Sigurbjörg Heiða frá Akranesi segja okkur frá þessum fallegu náttúruperlum og hvaða staðir eru ómissandi fyrir krakka og fjölskyldur á ferð um Vesturland! Þjóðsögur þáttarins fjalla um stórhættulegan foss í Borgarfirði og dularfullt ljós á Hornströndum. Hlustið vel á þáttinn ef þið viljið vinna spurningakeppnina í lokin!
-
Í þessum þætti köfum við dýpra í náttúrufjársjóðskistu Norðurlands. Við ferðumst um fjöll, firnindi, fossa, gil og tröllaslóðir og fáum ábendingar um fallega staði til að skoða frá þeim Elísabetu frá Húsavík, Rakel Sonju frá Varmahlíð og Maríon Eddu, Ilmi, Kristínu Leu og Margréti Ósk frá Mývatnssveit. Þjóðsaga þáttarins fjallar um dularfullan klett sem er eins og bátur í laginu. Hvers vegna ætli það sé? Spurningakeppnin er á sínum stað í lok þáttar og það er eins gott að hlusta vel á þáttinn því þannig gætuð þið nælt ykkur í aukastig og jafnvel sigrað!
-
Í þessum þætti köfum við dýpra í náttúrufjársjóðskistu Austurlands. Hvar finnast helstu gimsteinar og náttúruperlur landshlutans og hvernig kemst maður þangað? Heimamennirnir Hallgrímur Vopni frá Egilsstöðum og Iðunn Elísa frá Reyðarfirði segja frá sínum uppáhaldsstöðum. Þjóðsögur þáttarins fjalla um álfadrottingu Íslands sem á að búa á Borgarfirði eystra og völvuna sem vakir yfir Reyðarfirði og Eskifirði. Spennið beltin því að lok þáttar er æsispennandi spurningakeppni þar sem barist verður um titilinn "náttúruperlusérfræðingur Austurlands!"
-
Í þessum þætti köfum við dýpra í náttúrufjársjóðskistu Suðurlands. Þar eru heitir hverir, fossar, eldfjöll, stór vötn og djúp gljúfur. Við fáum ábendingar um fallegustu staðina frá heimamönnum en það eru Emil frá Flúðum, Bryndís Ólína frá Reykjanesbæ, Sæmundur Hólm og Guðrún Anna frá Þorlákshöfn, Steingrímur Ari frá Hvolsvelli og Benedikt Júlíus frá uppsveitum Árnessýslu. Þjóðsögur þáttarins fjalla um fjársjóðskistu undir Skógafossi og dularfullan marbendilshlátur. Ef þið hlustið vel gætuð þið unnið spurningakeppnina í lokin!
-
Í þessum þætti siglum við út í eyjar í kringum Ísland, sem er auðvitað líka eyja! Eyjarnar eru ótal margar og það býr ekki fólk í öllum þeirra en við fræðumst um heimskautsbauginn í Grímsey, bíllausa Hrísey og kúmenrækt í Viðey. Hvað heita ferjurnar sem fara út í eyjar landsins? Sérfræðingar þáttarins eru Hallgerður Hafþórsdóttir, Lana Sóley Magnúsardóttir og Anna Eyvör Arnórsdóttir frá Flatey og Guðmar Gísli Þrastarson frá Hrísey. Hlustið vel á þáttinn ef þið viljið vinna spurningakeppnina í lokin!
-
Í þessum þætti förum við upp á hálendið, en þar búa ekki margir krakkar. Það eru hins vegar margir sem ferðast þar, sérstaklega á sumrin því þá er hægt að keyra torfæra vegina sem eru flestir ófærir yfir vetrartímann. Hálendið er ekki bara frægt fyrir torfæra vegi, óveður og falleg fjöll heldur líka yfirnáttúrulegar verur og útilegumenn. Hvað eru útilegumenn, menn í útilegu? Sérfræðingar þáttarins eru systurnar Ásthildur og Ragnheiður en þær hafa ferðast mikið um hálendið, gist í skálum og farið í sólbað í mosabing lengst inni í hálendisbuskanum. Hlustið vel á þáttinn ef þið viljið vinna spurningakeppnina í lokin!
-
Í þessum þætti ferðumst við um höfuðborgarsvæðið en þar sameinast sveitafélögin Mosfellsbær, Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær og Hafnarfjörður í eitt stórt svæði þar sem meirihluti þjóðarinnar býr. Þjóðsaga þáttarins gerist í Reykjavíkurtjörn en þar er sagt að gamlar kerlingar hafi rifist svo mikið að þær breyttu öllum fallega silungnum í tjörninni í......(ööhh..við segjum ekki svarið hér. Hlustið bara á söguna!). Sérfræðingar þáttarins koma víða af höfuðborgarsvæðinu en það eru þau Ómar Smári úr Grafarvogi, Anna Elísabet frá Seltjarnarnesi, Gunnar Karl frá Álftanesi og Valgerður Kristín frá Hafnarfirði. Hlustið vel á þáttinn ef þið viljið vinna spurningakeppnina í lokin!
-
Í þessum þætti ferðumst við um Vesturland, frá Dölunum og alveg niður í Hvalfjörð. Sérfræðingur þáttarins, Jón Dagur, kemur frá Stykkishólmi en það er einmitt þar sem hægt er að taka ferju og sigla um Breiðafjörðinn til að reyna að telja allar eyjarnar þar. Hvað ætli þær séu margar? Þjóðsaga þáttarins gerist í Hvalfirði, en það er sko ástæða fyrir því að Hvalfjörður heitir það. Rauðhöfði, álagahvalurinn sem við kynntumst í þættinum um Reykjanesskagann, háði nefnilega sitt dauðastríð í Hvalfirði og sagan fjallar um það. Hlustið vel á þáttinn ef þið viljið vinna spurningakeppnina í lokin, og jafnvel plata mömmu og pabba til að stoppa á næstu bensínstöð og kaupa ís í verðlaun!
-
Í þessum þætti ferðumst við um Vestfjarðarkjálkann, jafnvel þó við vitum ekki alveg afhverju hann er kallaður kjálkinn. Sérfræðingar þáttarins koma frá ýmsum stöðum á Vestfjörðum en það eru Kormákur Elí frá Hólmavík, Urður frá Ísafirði og þau Lara Alexandra og Guðmundur Sævar frá Patreksfirði. Þjóðsaga þáttarins fjallar um fyrstu landnámskonuna í Bolungarvík, hana Þuríði sundafylli, og rifrildi sem hún átti við bróður sinn en það fór alveg gjörsamlega úr böndunum. Ef þið leggið vel við hlustir allan þáttinn þá er klárt mál að þið vinnið spurningakeppnina í lokin!
-
Í þessum þætti ferðumst við um Norðvesturland, frá miðjum Tröllaskaga og að Hrútafirði. Sérfræðingar þáttarins koma frá sitthvoru bæjarfélaginu á Norðvesturlandi, en það eru þau Anton frá Skagaströnd og Valdís Freyja frá Hvammstanga. Þau segja okkur frá alls kyns skemmtilegum og áhugaverðum stöðum til að heimsækja á ferð um svæðið. Þjóðsaga þáttarins fjallar um svarta og loðna krumlu sem á að skjótast út úr berginu í Drangey í Skagafirði og skera á reipin hjá þeim sem þar voga sér að klifra. Við ráðleggjum ykkur að passa ykkur á krumlunni og hlusta líka vel eftir áhugaverðum staðreyndum í þættinum því það gæti komið sér vel í spurningakeppninni í lokin!
-
Í þessum þætti ferðumst við um Norðausturland, frá Langanesi og alveg að Siglufirði, þar sem miðnætursólin sest ekki! Sérfræðingur þáttarins kemur frá höfuðstað Norðurlands, en það er Albert Gísli frá Akureyri, en við lærum líka heilmargt um önnur bæjarfélög á svæðinu og jafnvel um heimkynni trölla og jólasveina. Þjóðsaga þáttarins fjallar um Grettir sterka og hvernig honum tókst að sigrast á tröllunum í Goðafossi. Veistu hvers vegna Goðafoss heitir Goðafoss? Hlustaðu vel á þáttinn og þú gætir fengið forskot í spurningakeppninni í lokin!
-
Í þessum þætti ferðumst við um Austurland, frá Höfn í Hornafirði og að nesinu sem er svolítið eins og önd í laginu, Langanesi. Við heyrum í Austfirðingunum og sérfræðingum þáttarins, Maríu frá frá Djúpavogi og Ellý frá Eskifirði. Þær fara alveg yfir Austurlandið eins og það leggur sig og gefa okkur góð ferðaráð. Þjóðsaga þáttarins fjallar um ormagang á Austurlandi, því það eru víst risavaxnir ormar sem liggja á gulli bæði í Lagarfljóti og rétt við Papey. Ef þið hlustið vel gætuð þið fengið forskot í spurningakeppninni í lokin!
-
Í þessum þætti ferðumst við um Suðausturland, frá Reynisfjöru að Höfn í Hornafirði! Frænkurnar, suðausturlandssérfræðingarnir og heimamennirnir í Hornafirði þær Elín Ósk og Ída Mekkín segja okkur frá lífinu þar og gefa okkur fullt af hugmyndum um hvað hægt er að gera á svæðinu. Þjóðsaga þáttarins fjallar um eldsumbrot og jökulhlaup, Móðuharðindin og hvers vegna Katla, eldstöðin ógurlega, fékk það nafn! Ef þið hlustið vel gætuð þið fengið gott forskot í spurningakeppninni í lokin!
- Se mer