Episoder
-
Sunnudagurinn 30. mars
Synir Egils: Veiðigjöld, átök, börn og Flokkur fólksins
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og ræða fréttir vikunnar og stöðu stjórnmálanna. Salvör Nordal umboðsmaður barna kemur og ræður stöðu barna, en mörg mál hafa komið upp undanfarið sem benda til þess að þau börn sem eru í vanda séu ekki gripin. Styr hefur staðið um Flokk fólksins undanfarnar vikur. Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður flokksins ræðir pólitíkina, ríkisstjórnina og flokkinn. -
Fimmtudagur 27. mars
Sjávarútvegsspjallið - 45. þáttur
Grétar Mar fær til sín þá Arnar Atlason og Rúnar Björgvinsson að þessu sinni en þeir ræða litlar útgerðir, strandveiðar, útflutning og fleira. -
Mangler du episoder?
-
Laugardagur 29. mars
Helgi-spjall: Gyrðir Elíasson
Gyrðir Elíasson, rithöfundur, skáld, myndlistarmaður og þýðandi ræðir um líf sitt og köllun í skáldskap og listum en líka í einmanaleika og jaðartilvist, um vináttutengslin við textann og náttúruna. -
Föstudagur 28. mars
Vikuskammtur: Vika 13
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri Félag kvenna í atvinnulífinu, Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir bókmenntafræðingur, Þórdís Claessen grafískur hönnuður og Hringur Hafsteinsson sköpunarstjóri Gagarín og ræða fréttir vikunnar sem voru fjölbreytilegar og snertu alla strengi mannssálarinnar, færðu okkur harm, gleði og undrun. -
Fimmtudagur 27. mars
Flóttafólk, börn í vanda, orðræða fjölmiðla, framtíð lýðræðis og bókabúðarhljómsveit
Við hefjum leik á nýrri frétt um að flóttafólk er að lenda á götunni hér á næstu vikum. María Lilja Þrastardóttir ræðir við Þóri Hall Stefánsson umsjónarmann gistiskýlis hjá Rauða krossinum. Í dag hafa verið sagðar fréttir um öryggi og auknar eftirlitsheimildir lögreglu. Oddný Eir Ævarsdóttir ræðir við Þórlaugu Borg Ágústsdóttur vefkyrju og doktorsnema um áhrif tækni-kapítalisma á lýðræðið, varnir Íslands, netöryggismál, áróður og fleira. Hvernig horfir MAST-dómurinn í gær við neytendum? Breytir það einhverju til góðs fyrir íslenskan almenning að Hæstiréttur hafi dæmt að starfsfólk MAST og fréttamenn Rúv höfðu rétt á tjáningu um brotalamir kjúklingabús? Við fáum svör með formanni Neytendasamtakanna, Breka Karlssyni, hann ræðir ásamt Tryggva Aðalbjörnssyni fréttamanni sem skúbbaði Brúneggjamálinu á sínum tíma við Björn Þorláks. Við fjöllum einnig um börn í vanda og orðræðu fjölmiðla. Þórhildur Ólafs barnasálfræðingur, Hermann Austmar pabbi stúlku í Breiðholtinu og Óskar Steinn sem vann á Hamrinum, sem er úrræði fyrir erlend börn, ræða það mál við Maríu Lilju. Það er vel geymt leyndarmál meðal Íslendinga að í húsi við Laugaveg hefur verið spiluð lifandi tónlist fyrir erlenda ferðamenn hvert einasta kvöld í þrjú ár. Þetta upplýsa þau Ragnar Ólafsson og Marína Ósk Þórólfsdóttir tónlistarmenn sem líta við og ræða þetta merka og mjög svo þrautseiga menningarframtak. -
Miðvikudagur 26. mars
BNA, reynsluboltar, óþekkti þingmaðurinn, gerjun, víðerni og diplómati deyr.
Íslenskir fræðimenn eru farnir að hunsa boð um ráðstefnur í Bandaríkjunum í mótmælaskyni við harðlínustefnu yfirvalda í garð minnihlutahópa og skerðingu málfrelsis þar í landi. Björn Þorláksson fær til sín þá Rúnar Helga Vignisson og Guðmund Hálfdánarson, prófessora við Háskóla Íslands til að ræða breytt landslag. Hinir vikulegu reynsluboltar fara yfir mál málanna hjá Sigurjóni M Egils. Að þessu sinni fær hann til sín þau Oddnýju Harðardóttur, Guðrúnu Öldu Harðardóttur, Þorstein Sæmundsson og Ómar Valdimarsson. Halla Hrund Logadóttir er óþekkti þingmaður þessarar viku á Samstöðinni. Björn Þorláks reynir að skyggnast undir yfirborð nýrra þingmanna og ræðir Halla Hrund kvöldið þegar kappræðan í sjónvarpinu gekk ekki sem skyldi í fyrrasumar en líka kraftinn og gleðina. Maður lærir ekkert í logninu, segir Halla Hrund. Fágun, félag áhugafólks um gerjun á fimmtán ára afmæli um þessar mundir. Þau Helga Dís Björgúlfsdóttir - Formaður, Dagur Helgason - Ritari og Sigfús Örn Guðmundsson - Fyrrverandi stjórnarmeðlimur kíkja til Maríu Lilju og líta yfir farinn veg og segja frá frelsisbaráttu sem ku framundan. Þorvaldur víðförli, ljósmyndari og rithöfundur Til oddnýjar um sveitina og háskólamál. Diplómati deyr heitir ný bók, fyrsta skáldsaga okkar fyrrum forsetafrúar Elizu Reid. Eliza lýsir við Rauða borðið skriftunum og ljóstrar í leiðinni upp þætti Guðna Th. Jóhannessonar sem hún segir að hafi verið gagnlegur yfirlesari. -
Miðvikudagur 26. mars
Sósíalísk stjórnarandstaða - 10. þáttur
Gestir þáttarins eru Halldóra Skúladóttir frá Kvennaráð.is, sjúkraliði, markþjálfi, sérfræðingur í fræðslustjórnun og þjálfun starfsfólks og sérfræðingur í breytingaskeiði kvenna, og Oddný Eir Ævarsdóttir, rithöfundur, heimspekingur og blaðamaður á Samstöðinni. Við ræðum um breytingaskeiðið, áhrif þess á heilsu kvenna og bjargráð. -
Þriðjudagur 25. mars
Rektorskjör, sönglist í hættu, sósíalísk hreyfing og trúmál
Við hefjum leik við Rauða borðið á viðtali Gunnars Smára Egilssonar við rektorsefnin tvö, Magnús Karl Magnússon og Silju Báru Ómarsdóttur. Kosning milli þeirra tveggja fer fram á morgun og hinn daginn. Hver eru einkenni rektorsefnanna? Við ætlum líka að standa fyrir umræðu um stofnanir í listheiminum. Söngnám er í hættu vegna peningamála. Þau Gunnar Guðbjörnsson, Hallveig Rúnarsdóttir og Guðrún Jóhanna koma í heimsókn og segja Birni Þorláks sögur af fjárhagslegu basli en líka ræða þau fegurð listarinnar og tækifæri. Pétur Tyrfingsson, sálfræðingur, ræðir í samtali við Oddnýju Eir Ævarsdóttur ágreining í sósíalískri hreyfingu, rofið í stéttabaráttunni og samræðunni. Við ljúkum svo þættinum á spjalli við sóknarprest einnar stærstu sókar landsins. Arna Ýrr Sigurðardóttir, ræðir Elon Musk, mannúð og skort á henni og aukna þöf landsmanna á að ræða trú með opinskáum hætti. -
Rauða borðið 24. mars
Skemmdarverk, fjölmiðlar, barnsmissir, sekt, fólk og kvár
Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri um gjaldþrot Kvikmyndaskólans, en Friðrik var um tíma rektor skólans. Hvað áhrif hafði skólinn á uppbyggingu kvikmyndagerðar og hver verða áhrifin af hruni hans? Friðrik Þór kemur í spjall við Gunnar Smára. Einyrkjafjölmiðlun og blaðamennska á litlum fjölmiðlum verður til umræðu við Rauða borðið í dag. Mál Ástu Lóu Þórsdóttur verður til umræðu. Þau Frosti Logason, Steingerður Steinarsdóttir og Brynjar Birgisson blaðamenn tala við Björn Þorláks.
Laufey Líndal ætlar á næstu vikum að fjalla um barnsmissi frá ýmsum hliðum. Við hefjum umræðuna með frásögn Maríu Pétursdóttur um hennar reynslu og hvernig sú reynsla hefur mótað hana. Lára Magnúsardóttir, sagnfræðingur ræðir um barnamálaráðherramálið í samhengi sakamála sögunnar og hlutverk Ríkisútvarpsins í spjalli við Oddnýju Eir. María og Oddný fara á Eiðistorg og ræða við fólk á förnum vegi um mál málanna. Í tilefni Kváradagsins ræðir María Lilja svo við Reyn Alpha, forseta Trans-Íslands um tímamótin. -
Sunnudagur 23. mars
Synir Egils: Afsögn ráðherra og staðan í pólitíkinni
Fjórir gestir koma í þáttinn Synir Egils að þessu sinni. Þau eru: Birta Björnsdóttir yfirmaður erlendra frétta, Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður
og Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður. Staða Ásthildar Lóu Þórsdóttur munu örugglega rata á góma gestanna. Mörg önnur mál bíða umfjöllunnar og verða því á dagskrá þáttarins. -
Laugardagur 22. mars
Helgi-spjall: Heimir Björn Janusarson
Heimir Björn Janusarson umsjónarmaður í Hólavallakirkjugarði er gestur í Helgi-spjallsins þessa vikuna. Heimir Björn kann margar sögur úr garðinum. Í spjalllinu segir hann Sigurjóni Magnúsi Egilssyni nokkrar ómetanlegar sögur. -
Föstudagur 21. mars
Vikuskammtur: Vika 12
Jódís Skúladóttir, Indriði H. Þorláksson og Sigursteinn Másson eru gestir í Vikuskammti að þessu sinni. Ræddar eru fréttir vikunnar og ekki síst afsögn mennta- og barnamálaráðherra. Þátturinn er í umsjá Björns Þorlákssonar. -
Föstudagur 21. mars
Frelsið er yndislegt #13 - Ungmenni í vanda - hvað er til ráða?
Börn eru í dag neyðarvistuð í fangaklefum í Hafnarfirði. Umboðsmenn, bæði barna og Alþingis, hafa gert alvarlegar athugasemdir við slíkt fyrirkomulag (hvorugar þáðu þó boð Afstöðu um að mæta í þáttinn). Barnamálaráðherra hefur sagt að hætt verði að nota fangaklefa til að vista börn um mánaðamótin. Meðan á tökum þáttarins stóð tilkynnti ráðherra barnamála um afsögn sína.
Gestir þáttarins eru Gudmundur Fylkisson, lögregluþjónn og Davíð Bergmann, unglingaráðgjafi hjá Fjölsmiðjunni.
Stjórnendur þáttarins eru: Íris Ósk Ólafsdóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson.
Hægt að ná sambandi við Afstöðu í síma 556-1900 og netfangið [email protected]. Lögfræðiaðstoð Afstöðu er í síma 666-1211. -
Fimmtudagur 20. mars
Lögregluríkið, brotleg skipafélög, JFK, líðan barna, föstudagspartýbíó og sálumessa
Þátturinn hefst á umræðu sem spyr spurninga um hvort Ísland sé að verða lögregluríki og hvort aðgreining yfirstéttar og almennings sé að aukast. Við ræðum dóm gærdagsins þar sem níu mótmælendur sem beittir voru harðræði fá ekkert fyrir sinn snúð. Sigtryggur Ari Jóhannsson og Sara Stef Hildar mótmælendur ræða við Björn Þorláks. Hver myrti JFK er spurning sem margir vilja meina að aldrei hafi verið svarað. Guðjón Heiðar Valgarðsson og Haukur Ísbjörn, álhattamenn koma til Maríu Lilju og fara yfir CIA skjöl sem voru opinberuð í vikunni um morðið á JFK. Nokkur umræða hefur orðið um verðkannanir undanfarið. Við ræðum við Breka Karlsson formann Neytendasamtakanna um vöruverð, vexti og nýja niðurstöðu nefndar um áfrýjunarmál sem staðfestir sekt Samskipa og Eimskipa í samráðsmáli. Óli Hjörtur Ólafsson rekstrarstjóri hjá Bíó Paradís segir Lafeyju Líndal Ólafsdóttur frá Föstudagspartýsýningum og öðrum sýningum og uppákomum hjá kvikmyndahúsinu á næstunni. Að þessu sinni verður sýnd kvikmyndin Friday sem var vinsæl á tíunda áratug síðustu aldar. Líðan barna er okkur öllum hugleikin. Hulda Tölgyes sálfræðingur ræðir hvað við getum gert til að vinna gegn kvíða. Hulda safnar fé til að gefa út spil sem á að auðvelda börnum að tengjast fólki og umhverfi sínu. Við endum dagskrána á stórvirki sem fer fram í menningarheiminum um helgina þegar flutt verður sálumessa Tryggva M. Baldvinssonar upp úr Heimsljósi Halldórs Laxness í Langholtskirkju. Gríðarlegur fjöldi listamanna kemur að þessum viðburði. Að rauða borðinu koma til að ræða þennan viðburð Tryggvi M Baldvinsson tónskáld, Magnús Ragnarsson kór- og hljómsveitarstjóri og Hallveig Rúnarsdóttir söngkona. -
Fimmtudagur 20. apríl
Sjávarútvegsspjallið - 44. þáttur
Grétar Mar og Ólafur Jónsson fá til sín Jón Kristjánsson fiskifræðing, sem haldið hefur uppi öflugri gagnrýni á vinnubrögð Hafrannsóknarstofnunar og bent á að auka þurfi veiðar til að efla fiskistofna. -
Miðvikudagur 19. mars
Sósíalísk stjórnarandstaða - 9. þáttur
Nemendur og rektorskjör í Háskóla Íslands Gestir þáttarins eru nemendur úr Háskóla Íslands: Úlfur Atlason, BS-nemi í eðlisfræði, Magnea Rut, meistaranemi í heimspeki, Guðni Thorlacius, varaforseti Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS) og BA-nemi í heimspeki. Við ræddum um rektorskjör, hvað okkur finnst vera mikilvægir eiginleikar hjá næsta rektor og hvaða breytingar við myndum vilja sjá. Kosningar standa yfir frá 18.–19. mars en kosningu lauk kl. 17 í dag. -
Miðvikudagur 19. mars
Solaris, fæðuöryggi, reynsluboltar, þingmaður, maurar og kynlífsverkafólk
Við hefjum þáttinn á viðtali Laufeyjar Líndal Ólafsdóttur við Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttir Kemp og lögmanninn Gunnar Inga Jóhannsson, um Solaris málið svokallaða en ríkissaksóknari fól lögreglu að rannsaka fjársöfnun og átaksverkefni til að koma fólki út af Gaza. Bændur og búalið hér á landi sjá fram á breytta tíma. Hugsanleg innganga í ESB gefur tilefni til að ræða ógnir og tækifæri að sögn formanns Bændasamtakanna, Trausta Hjálmarssonar. Hann ræðir við Björn Þorláks um stöðuna og Búnaðarþing sem verður sett á morgun. Vikulegi dagskrárliðurinn Reynsluboltar að þessu sinni eru þau Erna Bjarnardóttir, Magnús R. Einarsson og Sigrún Jónsdóttir sem fara yfir helstu mál líðandi stundar. Eðlilega rata þeir Rump og Pútín í umræðuna og svo eru það helstu innanlandsmálin. Óþekkti þingmaðurinn sem þessa vikuna ræðir við Björn Þorláks á persónulegum nótum er Ingvar Þóroddsson. Hann er einnig yngsti þingmaðurinn nú um stundir. Ingvar lýsir með opinskáum hætti hvernig efasemdir um eigin verðleika urðu honum áskorun. Arnar Pálsson og Andreas Guðmundsson líffræðingar mættu til Maríu Lilju með heilt samfélag maura Að lokum koma þau Ari Logn og Renata Sara Arnardóttir en þau eru talsfólk Rauðu regnhlífarinnar og ræða meðal annars kvikmyndina Anora og stöðu kynlífsverkafólks í samfélaginu í dag -
Miðvikudagur 12. mars
Sósíalísk stjórnarandstaða - 8. þáttur
Gestur þáttarins er hin eina sanna, Sanna Magdalena Mörtudóttir, nýsettur forseti borgarstjórnar, formaður velferðarráðs og oddviti Sósíalistaflokksins. Við förum yfir samstarfsyfirlýsingu Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna. Sögu Sósíalista í Borgarstjórn, árangur og áherslur sósíalista í borginni. Húsnæðismál, íbúaráð, samgöngumál og margt fleira. -
Þriðjudagur 18. mars
Þjóðarmorð, fátækt, klám, orgelleikur og guð
Fólkið í Gazaborg var vakið upp við loftárásir Ísraela og Bandaríkjanna. Félagið Ísland Palestína stóð fyrir mótmælum í morgun og þrýsti á íslenska ráðamenn um að setja á viðskiptabann og slíta stjórnarsamstarfi. María Lilja fær til sín Svein Rúnar Hauksson, formann FÍP og fara þau yfir fréttir dagsins frá Palestínu. Skylt er að vara við myndefni sem spilað verður í innslaginu en María Lilja klippti saman efni frá blaðafólki og almenningi á staðnum. Vaxtaumhverfi námslána er út úr kú og hafa breytingar sem orðið hafa á kerfinu sumpart aukið efnahagslega stéttaskiptingu. Þetta segir Lísa Margrét Gunnarsdóttir forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta en Björn Þorláksson ræðir við hana um slembilukku, tengda pólitískri hugmyndafræði hverju sinni sem veldur því að sumar kynslóðir fá hagstæð námslán en aðrar alls ekki. Við ræðum um ást og klám við Láru Martin, kvikmyndagerðarkonu og kvikmyndafræðing sem ræðir um erkitýpu vændiskonunnar í menningu okkar og gagnrýni kynlífsverkafólks á myndina Anora. Við endum Rauða borðið á umræðu um nýstárlega notkun guðshúsa. Björn Þorláksson ræðir við Kristján Hrannar Pálsson, organista. Stundum er sagt að kirkjurnar, hús í eigu almennings, standi of mikið auðar og að hugsanlega mætti auka nýtingu þessara bygginga sem sum okkar kalla guðshús.Við kynnum okkur nýjung í viðburðastarfi, svokallað orgelbíó sem Kristján Hrannar Pálsson organisti fræðir okkur um og fleira. -
Mánudagur 17. mars
Fullveldi, fjölmiðlar, öryggismál, raddir almennings, Reykjanes og skák
Við hefjum leik á viðtali Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur við Harald Ólafsson hjá Heimssýn. Haraldur telur að valkyrkjustjórnin sé að reyna að koma landsmönnum inn í ESB undir fölsku flaggi varnarmála. Einnig verður umræða um fjölmiðla í umsjá Björns Þorláks þar sem blaðamennirnir Páll Ásgeir Ásgeirsson, Sigurjón Egilsson og Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson ræða málin. Gunnar Smári Egilsson ræðir við Helen Ólafsdóttur ráðgjafa um alþjóða öryggismál. Maríu Lilja spyr almenning álits á fréttnæmum fyrirbærum. Við bíðum flest eftir eldgosi á Sundhnúkagígaröð. En hvað teiknast upp ef kvika fer að leita upp á öðrum slóðum en þeim sem hafa verið virkastar á Reykjanesinu? Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur ræðir nokkrar sviðsmyndir. Og við ljúkum Rauða borðinu með umfjöllun um skáklistina, stórmót sem haldið var fyrir norðan um helgina. Hermann Aðalsteinsson formaður Goðans í Þingeyjarsýslu og Björn Þorfinnsson sem vann mótið ræða ævintýri skáklistarinnar. - Se mer