Episodes
-
Gestur þáttarins er Hildur Hörn sem starfar hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna. Við ætlum að spjalla um allt sem tengist lífeyrismálum ig það komum við mannauðsfólk sterk inn. Hildur fer yfir lífeyrismál og við ræðum hvernig lífeyrir getur stutt við okkur í allskonar aðstæðum.
Styrktaraðilar eru Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup, Alfreð, Giggó og Dagar.
-
Gestur þáttarins heitir Davíð og tók nýlega við sem framkvæmdastjóri Moodup. Davíð er ótrúlega skemmtilegur og hefur mikinn áhuga á andlegri og líkamlegri heilsu ásamt því að brenna fyrir Moodup. Við förum yfir sögu fyrirtækisins sem er svo sannarlega áhugaverð.
Styrktaraðilar eru Akademias, Hoobla, YAY, Moodup, Alfreð, Giggó og Dagar.
-
Missing episodes?
-
Jæja gott fólk. Gestur þáttarins er Sigga hjá YAY. Hún starfar sem markaðsstjóri hjá YAY og hefur verið hjá fyrirtækinu frá upphafi. Sagan þeirra er ótrúlega áhugaverð og þau halda bara áfram að stækka. Sigga ætlar að segja okkur frá því hvernig þetta ferðalag hófst og hvaða vörur þau bjóða uppá.
Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf – Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup, Alfreð, GIGGÓ og nýjasti meðlimur í auglýsingaflóru podcastsins er Dagar!
-
Unnur hjá Lucinity situr til móts við mig á þessum fallega degi. Við nöfnurnar ætlum að tala um skemmtilega starfsþróun Unnar yfir í mannauðsmálin, hvernig það er að vinna hjá nýsköpunarfyrirtæki og auðvitað almennan áhuga okkar á þessum elskulega málaflokki.
Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf– Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup, Alfreð og GIGGÓ.
-
Gestur þáttarins heitir Jakobína og starfar sem mannauðsstjóri Hrafnistu. Við settumst niður og ræddum stefnumótunarvinnu,fræðslumál, styttingu vinnuvikunnar og allskonar skemmtilegt sem er í gangi hjá þeim. Í raun má segja að undanfarin ár hafi Hrafnista farið í gegnum mikið umbreytingarferli og það kemur skýrt fram miðað við það sem hún segir okkur.Þau vinna meðal annars með það að þau eru þjónustufyrirtæki og það sem kjarnar starfseminnar þeirra er í raun þetta:
“Við vinnum á heimili fólks en þau búa ekki á vinnustaðnum okkar!”
Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum –Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup og Alfreð.
-
Í spjallið til mín að þessu sinni kom Adriana Pétursdóttir. Ég þarf varla að kynna hana til leiks en hún starfar sem leiðtogi starfsmannaþjónustu RIO TINTO og í byrjun árs tók hún við semformaður Mannauðs, okkar allra besta mannauðsfélags. Við vorum svo sem sammála um það að við hefðum getað spjallað í marga klukkutíma en hér á eftir förum við yfir allt þetta helsta – Mannauðsdaginn sjálfan, hvað hún brennur helst fyrirí tengslum við mannauðsmál og svo auðvitað þróunin framundan. Svo er nú smá rúsína í pylsuendanum, þetta er sem sagt þáttur nr. 44 og í fyrsta skipti lentum við í smá tæknilegum örðugleikum. Ekkert alvarlegt sem betur fer en þaðer sem sagt smá fiff þarna í lokin sem ég vona að þið getið fyrirgefið :)
Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum –Akademias, YAY, Moodup og Alfreð.
-
Gestur þáttarins heitir Aðalheiður Hreinsdóttir, kölluð Heiða, ogstarfar sem framkvæmdastjóri LearnCove. Og hvað er nú LearnCove eiginlega?
Jú það er auðvitað fræðslukerfi sem Heiða ætlar að segja okkur frá í þessulauflétta spjalli. Við ræddum um hvað kerfið býður upp á, hverjir eru kostir þess, hversu notendavænt það er og af hverju þetta kerfi er betra en önnur. Til þess að fá að vita allt um það er bara um að gera að koma sér vel fyrir og leggja við hlustir.
Styrktaraðilar þáttarins eru alveg geggjaðir –Akademias, YAY, Moodup og 50skills.
-
Góðan daginn kæru hlustendur. Gestur þáttarins heitir SverrirHjálmarsson og starfar sem ráðgjafi hjá Akademias. Við Sverrir eigum þaðsameiginlegt að hafa mikinn áhuga á fræðslumálum og þess vegna er það aðalumræðuefni þáttarins. Sverrir segir okkur frá starfi sínu hjá Akademias ogþeirri þróun sem á sér stað hjá þeim. Þar má meðal annars nefna fjölbreyttarnámsleiðir, rafræna fræðslusafnið, sprettina og fleira skemmtilegt. Við ræddumlíka aðeins starfsþróun og svo gervigreind í tengslum við fræðslumál.Stórskemmtilegt spjall þó ég segi sjálf frá!
-
Í spjallið til mín að þessu sinni kom Inga Þórisdóttir sem starfar sem stjórnendaþjálfi hjá Via Optima. Hún segir okkur frá öllum þeim verkefnum sem hún sinnir í starfi sínu en áhuginn liggur aðallega í stjórnendaþjálfun, starfsmannasamtölum ásamt streitu, kulnun og öllu sem það tengist. Inga segir okkur einnig frá sinni einlægu upplifun af því að vera sagt upp störfum og hvernig maður þarf sjálfur að bera ábyrgð á sinni vegferð og skapa þannig tækifæri.
Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf – Akademias, YAY, Moodup og 50skills.
-
Í þessum þætti spjöllum við Guðfinna saman en hún starfar sem mannauðsstjóri Þjónustu- og nýsköpunarsviðs hjá Reykjavíkurborg. Ótrúlegt en satt þá ræddum við eiginlega bara um vinnustaðamenningu og endurgjöf. Ekki að það sé eitthvað óáhugavert heldur náðum við svo góðri dýpt í þessari umræðu. Guðfinna talar svo sannarlega frá hjartanu og leyfir okkur að heyra hvernig hennar reynsla hefur nýst hjá Reykjavíkurborg við að byggja upp nýtt svið. Styrktaraðilar þáttarins er Akademias, Moodup, YAY og 50skills.
-
Hann heitir Davíð og er stofnandi Swapp Agency. Saga þessa fyrirtækis er mjög spennandi. Allt frá því að hugmyndin fæðist einhversstaðar í Asíu og að vera með nokkrar skrifstofur á Norðurlöndunum. Davíð ætlar að kynna fyrirtækið fyrir okkur og í þokkabót fáum við að heyra mjög svo skemmtilegar pælingar varðandi fjarvinnu…og við erum ekki að tala sérstaklega um heimavinnu sem við kynntumst öll í Covid. Ónei, þetta er miklu skemmtilegra concept. Kannski nær því að fara til Bali í mánuð og vinna þar?
Frábærir styrktaraðilar eins og alltaf. Akademias, YAY, Moodup og 50skills.
-
Ragnhildur er annar eigandi og stofnandi Auðnast. Hún er mjög mikið menntuð og ég ætla bara að leyfa henni að segja ykkur frá því. Við fórum auðvitað yfir það hvað Auðnast stendur fyrir og hver þeirra sýn er. Félagslega umhverfið í heild sinni er þeirra nálgun og þar hefur safnast mikil reynsla og þekking seinustu ár. Þátturinn er í boði Akademias, YAY, Moodup og Alfreð.
-
Helga Halldórsdóttir er gestur þáttarins en hún starfar sem forstöðumaður mannauðssviðs hjá Arion banka. Við fórum yfir víðan völl í þættinum. Helga segir okkur frá sinni vegferð í mannauðsmálum, hvernig Arion banki hefur notað breytingastjórnun til þess að ná árangri, mánaðarlegar mælingar, mannauðsstefnuna þeirra, húsnæðismál og margt fleira. Þátturinn er í boði Akademias, YAY, 50skills og Moodup.
Rúsínan í pylsuendanum - Fulltrúar fyrirtækja sem hafa samband við YAY og prófa að gleðja hópinn sinn í júní 2022 fá veglega inneign upp í fyrstu kaup. Það eina sem þú þarft að gera til að fá tilboðið er að nefna að þú sért hlustandi Á mannauðsmáli og voila, díllinn er kominn í hús. Frekari upplýsingar á YAY.is.
-
Í þessum þætti ætlum við að tala við Röggu hjá PROevents & PROcoaching. Í þættinum förum við yfir hvaða þjónustu hún er að bjóða upp á sem er meðal annars teymisþjálfun, einstaklingsþjálfun og stjórnendaþjálfun. Eins og þið heyrið þá hefur hún mikla ástríðu fyrir þjálfun en Ragga er einn reynslumesti markþjálfi á landinu og hefur starfað bæði hérlendis og erlendis í mörg ár. Við komumst ekki hjá því að ræða Covid og hvernig hún snéri vörn í sókn þegar allt fór á hliðina. Svona til þess að toppa þetta þá ræddum við einnig um jákvæða sálfræði og hvernig orkustjórnun og flæði nýtist okkur sem best bæði í vinnu og einkalífi.
Frábærir styrktaraðilar - Akademias, Moodup og Alfreð.
-
Í þessum þætti kemur Hildur Sigurðardóttir í spjall til mín. Hildur starfar sem mannauðsstjóri á RÚV en hún var aðeins búin að starfa á RÚV í nokkra mánuði þegar Covid skall á svo það var þónokkur áskorun að byrja í nýrri vinnu á þeim tíma. Við ræðum stuttlega starfsumhverfi fjölmiðlafólks sem hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og vindum okkur svo í fróðlegt spjall um jafnréttismál þar sem hefur verið lögð áhersla á að skoða kynjahlutfall viðmælenda RÚV og þeirra sem starfa við fréttir og dagskrárgerð. Við komumst svo ekki hjá því að ræða aðeins um fjarvinnuna góðu.
Frábærir styrktaraðilar eins og alltaf - Akademias, 50skills og Moodup.
-
Gestur þáttarins er Elísabet Helgadóttir en hún er framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Icelandair. Félagið hefur vægast sagt þurft að takast á við ýmsar áskoranir seinustu tvö ár eins og mörg önnur fyrirtæki. Í þættinum spjöllum við Elísabet um þær áskoranir sem félagið hefur þurft að takast á við ásamt því að vera í kjaraviðræðum, huga að fjarvinnu og endurskipulagningu félagsins. Það er eiginlega hálf ótrúlegt að félagið hafi náð að halda velli í gegnum þessa veirutíma en Elísabet segir að það hafi reynst langbest að nýta hugarfar Pollýönnu á þessum tímum og að virkja upplýsingaflæði til starfsmanna þegar mesta óvissan stóð yfir. Allt um þetta og meira til í þessum frábæra þætti.
Þátturinn er í boði Akademias, Alfreð, Moodup og Origo.
-
Thor Olafsson er stofnandi Strategic Leadership og hefur unnið sem stjórnendaráðgjafi í meira en 20 ár. Hann er sestur hjá mér og það eina sem við ætlum að ræða eru stjórnendur og aftur stjórnendur. En hvað er það við stjórnendur sem er svona merkilegt? Jú, það er nefnilega frekar margt. Við ræðum um stjórnendaþjálfun, hlutverk stjórnenda, fyrirtækjamenningu, samvinnu stjórenda og starfsfólks og síðast en alls ekki síst er það egó stjórnenda. Hvað er egó stjórnenda? Thor segir okkur allt um það.
Þátturinn er í boði frábærra fyrirtækja - Akademias, Moodup, 50skills og Origo.
-
Gestur þáttarins er enginn önnur en Harpa Magnúsdóttir, stofnandi Hoobla. Drifkrafturinn í Hörpu er ótrúlegur, hún stóð á tímamótum í byrjun árs 2021 eftir 15 ára starf hjá ORF líftækni. Hún fann að það voru tækifæri í gig-umhverfinu og nokkrum mánuðum seinna var hún búin að stofna Hoobla. Harpa segir okkur frá þessu öllu saman ásamt skemmtilegu samstarfi við Siggu Kling.
Styrktarðilar þáttarins eru Akademias, Moodup, Origo og Alfreð.
-
Við Kristín hittumst í Akademias stúdíóinu og töluðum um hið frábæra jafnlaunakerfi. Origo býður nú upp á þjónustu sem heitir Justly Pay og tengist jafnlaunakerfinu í heild. Justly Pay er í þremur þrepum sem Kristín fer vel yfir og svo ræðum við hvernig er hægt að vinna með það. Jafnlaunakerfið er ekkert annað en gæðakerfi og þess vegna er þessi snilld frá Origo eflaust að fara að spara fjöldan allan af vinnustundum.
Þátturinn er í boði Akademias, 50skills og Moodup.
-
Í Akademias stúdíóinu situr ungur maður að nafni Björn sem stofnaði nýverið fyrirtækið Moodup en það sérhæfir sig í að mæla starfsánægju hjá fyrirtækjum. Björn er sprenglærður og hefur komið víða við á íslenskum vinnumarkaði, meðal annars unnið sem aðalhagfræðingur Viðskiptaráðs. Hann stofnaði Moodup í þeim tilgangi að efla starfsánægju starfsfólks með einföldum og þægilegum hætti. Ótrúlega skilvirk lausn sem þið fáið að heyra allt um.
Þátturinn er í boði Akademias, Mótun og Alfreð.
- Show more