Bölümler
-
Það er alltaf þessi eini sem er ósammála... í dag fer Ari með Önnu á ókunnugar slóðir. Stoppað er á subredditinu r/The10thDentist þar sem er ekki alveg í lagi með suma. Vonandi finnst ykkur kaldar pullur góðar.
Tímastimplar;
0:00 yapperville
4:29 áhugaverðar staðreyndir
14:57 tíundi tannlæknirinn byrjar
16:37 Ég elska þegar hnerrinn minn hverfur
22:00 Ég elska að borða kaldar pylsur + stærsta hláturskast frá upphafi áhugavalda
28:47 tónlist er leiðinleg
37:50 að lesa hljóðbók er ekki að lesa
46:26 börn mega hlaupa um almenningsstaði
50:14 Ég fíla að spoil-a kvikmyndum fyrir sjálfum mér
1:04:00 áunnið bragð er ekki til
1:13:38 ég klæði mig án þess að þurrka mér fyrst
1:19:14 ég hef ekki ánægju af því að borða
1:26:12 límmiðar á fartölvum eru fáránlegir og barnalegir -
TW: Weird og ógeðslegt stuff. Anna hendir Ara aftur í djúpu laugina og segir honum frá mörgum áhugaverðum þráðum sem hún stólpast stundum á þegar hún skoðar /askreddit.
-
Eksik bölüm mü var?
-
HÆ HÓ OG JIBBÝ JEI! ÁFRAM ÍSLAND!! WOOHOOOOO! ÍSLAND ER BEST Í HEIMI!! BÆ DANMÖRK ÁFRAM ÍSLAND! RAMMÍSLENSKASTI ÞÁTTUR ÍSLANDS. FARÐU NORÐUR OG NIÐUR OG ÞAÐAN Í VERRI STAÐ DANMÖRK! ÁFRAM ÍSLAND!!
-
Ari er grínAri, trommAri, frábær leikAri, algjör töffAri, góður teiknAri, geggjaður söngvAri og tónlistarskapAri, góður söguskrifAri og lesAri og bæði sterkAri, vitrAri, hressAri, nettAri og klárAri en Anna. Í þætti vikunnar fáum við skýrAri mynd af Ara með handahófskenndAri og flottAri spurningum heldur en eðlilegt væri að spurja. FyndnAri og heitAri þátt er erfitt að finna.
-
Áhugavaldarnir kafa djúpt ofan í heilann á Önnu. Hvort myndir þú? Spurningar um tilveruna, og margt annað áhugavert ™ í þessum fróðlega þætti.
-
Við spurðum, þið svöruðuð. Dónalegir viðskiptavinir, MJÖG furðulegar uppákomur, játningar og svo miklu meira í þessum funheita þætti. Anna les fyrir Ara sögurnar sem þið senduð inn og það má segja að þær eru svakalegar. Spennið beltin og náið ykkur í popp.
Tímastimplar;
0:00 Vitleysisgangur og Yapperville
15:04 Áhugaverðar Staðreyndir
22:10 Umræðuefni Þáttarins
29:40 TW emetophobia /ælufóbía
32:40 ælufóbíusaga búin
auka TW: kynferðisleg áreitni, andleg erfiði, og fleira þess háttar.
-
Hvort myndir þú frekar, og kanntu gen alpha tungumál? er meðal þeirra prófa sem Ari leggur fyrir Önnu í þessum þætti áhugavaldanna. Það eru stóru spurningarnar í dag!
-
Lengstu neglurnar, háværasta ropið, o.fl. Vonandi býður ykkur ekki eins mikið við og honum Ara. Enda fór Anna með ótrúlegustu heimsmet sem hún gat fundið í þessum bráðfyndna þætti hjá áhugavöldunum.
-
Það lendir enginn í svona hjá tannlækninum nema Anna... það verður sko sannarlega pústað úr öllum áttum í þessum þætti! Þú vilt sko alls ekki missa af því.
-
Í þætti vikunnar förum við í nokkra áhugaverða tveggja manna leiki. Afslappað, fyndið og út um allt, bara eins og við!
-
Málshættir, trúarbrögð, pólitík, o.fl. Páskarnir eru tíminn þar sem maður borðar yfir sig af súkkulaði (Og rífst kannski smá við ættingja um stjórnmál og samfélagið). Halda samt allir eins upp á páskana? Og hvað þýða þessir djös...Ég meina, forvitnilegu málshættir eiginlega?
-
Rant - þátturinn mikli! Vonandi er hjartað ykkar fullt af hatri þegar þið smellið á þennan þátt. Það eru samt nokkrir pabba-brandarar til þess að mýkja stemmarann í byrjun.
-
Þessi tók skarpa U-beygju. Það eru mörg umræðuefni sem áhugavaldarnir brenna fyrir. Eftirhermur, hot takes, samfélagsleg vandamál o.fl. Ari reynir líka að koma inn nokkrum "æsispennandi" þjóðsögum en Anna reynir sitt allra besta til að villa hann af leiðum...
-
Það eru nú allir mismikið gáfaðir... Í þessum bráðfyndna þætti með Áhugavöldunum, kíkir Egill í smá heimsókn. Anna færir okkur svo rjúkandi, sjóðheitar Reddit sögur á diskinn. En hver er aðal þöngulhausinn í þessum þætti?
-
Í þessum þætti setur Anna á sig hugsunarhattinn. Ari gerir sitt besta til þess að henda Önnu úr öskunni í eldinn, með því að leggja fyrir ansi strembinn spurningaleik. Kannski fylgir smá rapp og beatbox líka...
-
Settu á þig álhattinn og stilltu geiger-mælinn, því í dag tekur Anna fyrir furðulegar samsæriskenningar. Kannski ertu búin/n að heyra þennan þátt áður?..
-
Í þessum fyrsta þætti okkar áhugavalda fáið þið létta kynningu á okkur og nokkrar áhugaverðar staðreyndir - Ari tekur svo fyrir mjög áhugaverðar sögulegar Reddit sögur - og ein svakaleg æskuminning sem þú vilt ekki missa af því að heyra, úff.