Episodes
-
HM hringborðið á föstudegi. Jóhann Páll Ástvaldsson íþróttafréttamaður á Rúv og Óskar Smári Haraldsson þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar voru gestir að þessu sinni.
Þeir fóru yfir úrslit síðustu leikja og spáðu í spilin fyrir leikina þrjá sem eftir eru í 32-liða úrslitum. Þá fóru þeir jafnframt yfir sína uppáhalds HM leikmenn. -
Bræðurnir Birkir Már og Aron Elí Sævarssynir voru gestir HM hringborðsins að þessu sinni. Þeir fóru yfir liðna leiki í 32-liða úrslitum og spáðu í spilin fyrir komandi leiki.
Þá fór Birkir jafnframt yfir sigur Íslands á Englandi og heimsmeistaramótið í Rússlandi 2018. -
Missing episodes?
-
Það er landsleikjahlé í Bestu deild kvenna en við gefum út aukaþátt af Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann, þessa vikuna.
Nik Chamberlain, þjálfari Kristianstad í Svíþjóð, er í heimsókn á Íslandi og hann mætti í þáttinn til að fara yfir tíma sinn hjá Kristianstad til þessa.
Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll Garðarsson og Nik fóru einnig yfir tölfræði úr Bestu deildinni, leikstíla og aðrar pælingar. Þá var farið yfir slúður í lok þáttarins en það styttist í að leikmannaglugginn á Íslandi opni.
Þátturinn er í boði Vinnupalla, Atlantsolíu og Coke. -
Innkastið eftir tólftu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn.
Hermann Hreiðarsson var látinn taka pokann sinn eftir sigur Vals gegn Þór, Akureyri er í frjálsu falli, Keflavík vann KR og umferðinni lauk með leik ÍA og Fram á Akranesi.
Þá er fjallað um sigur Breiðabliks gegn Víkingi í undanúrslitum bikarsins og einnig er Lengjudeildarhorn. -
Harkið fór yfir stærstu atvikin í 10 umferð 2. og 3.deildar karla og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum auk þess var farið yfir verstu velli í 2. og 3. deild.
-Uppgjör 3.deildar - 07:50
-Uppgjör 2.deildar - 37:50
-Spá og leikmaður umferðarinnar - 01:08 :00
Harkið er í samstarfi með Serrano og AB Sportvörum.
Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. -
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
Víkingar voru ekki sáttir þrátt fyrir 4-1 sigur í Kópavogi, úrvalslið umferða 1-11 í Bestu deildinni er opinberað... og líka vonbrigðaliðið!
Gestur þáttarins er Óskar Borgþórsson sem hefur verið gjörsamlega frábær með Víkingum.
Þá er sigur Íslands gegn Englandi 2016 rifjaður upp og farið yfir gang mála á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir. -
Níunda umferð Bestu deildar kvenna kláraðist í gær með tveimur áhugaverðum leikjum.
Farið var yfir alla leiki umferðarinnar í Uppbótartímanum í kvöld.
Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Arnari Páli Garðarssyni og Snæbjörtu Pálsdóttur og þau fóru yfir leikina ásamt öllum helstu sögulínum. -
HM hringborðið á miðvikudegi. Kári Snorrason, Elvar Geir og Sæbjörn Steinke fóru yfir úrslit og atburði síðustu daga á heimsmeistaramótinu.
-
Harkið fór yfir stærstu atvikin í níundu umferð 2. og 3.deildar karla og val á leikmönnum umferðar í báðum deildum.
-Uppgjör 3.deildar - 06:00
-Uppgjör 2.deildar - 40:00
-Spá - 01:24
Harkið er í boði Serrano
Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson -
Innkastið eftir 11. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Runólfur Trausti íþróttafréttamaður og markvarðaþjálfari.
Víkingar sýndu mátt sinn og megin þegar þeir tóku Framara í kennslustund, KR vann markaleik gegn ÍA, Eyjamenn eru komnir á mjög gott ról, fimmtán ára markaskorari þegar Breiðablik vann KA, jafntefli í Krikanum og á Hlíðarenda. -
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 20. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
Farið er yfir komandi umferð í Bestu deildinni og Þorkell Gunnar ræðir um Fram og stemninguna í Dal draumanna.
Freyr Alexandersson nýr þjálfari Rosenborgar er á línunni beint frá Þrándheimi.
Þá er rætt um heimsmeistaramótið í fótbolta. -
Valgeir Valgeirsson, leikmaður Breiðabliks, og Magnús Haukur Harðarson voru gestir í HM hringborðinu þennan föstudaginn.
Stóru þjóðirnar mættu til leiks og gerði Messi frábæra þrennu gegn Alsír, sömu sögu má ekki segja um Ronaldo og félaga hans í Portúgal sem gerðu 1-1 jafntefli við Kongó. -
- Hægt er að horfa á þáttinn í mynd á Youtube
Sævar Þór Sveinsson, umsjónarmaður Utan vallar, fór yfir ársreikninga liða úr Bestu- og Lengjudeildinni ásamt Kára Snorrasyni.
Farið var yfir helstu tölur, sýnd gröf og rýnt í stöðu liðanna út frá ársreikningunum. -
Harkið fór yfir stærstu atvik í áttundu umferð 2. og 3. deildar karla og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum.
Guðbjörn Smári var vant við látinn hjá tannlækni því var kallað í Freysa.
- Uppgjör 2.deildar: 8:00
- Uppgjör 3.deildar: 51:00
- Spá: 01:24
Harkið er í boði Serrano.
Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. -
10. umferð Bestu deildar karla gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir og Valur Gunnars eru í hljóðveri og fótboltalýsandinn Kristinn Kjærnested, fyrrum formaður KR, er gestur.
Víkingur vann toppslaginn gegn KR, Stjarnan gerði markajafntefli gegn Breiðabliki í fyrsta leik Jóns Þórs og ÍA vann Val. FH vann sinn fyrsta sigur í Keflavík, ÍBV fór illa með Þór og Fram vann KA í markaleik. -
Kári Snorrason, Elvar Geir Magnússon og Sölvi Haraldsson í HM hringborðinu á þriðjudegi.
Það var af nægu að taka í öðrum þætti hringborðsins þetta árið. Farið var yfir alla leiki, helstu atburði og sögulínur. -
Farið var yfir áttundu umferð Bestu deildar kvenna í Uppbótartímanum í kvöld.
Stjarnan gerði sér lítið fyrir og skellti Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks á Kópavogsvelli. Við stöndum og klöppum fyrir Stjörnunni sem er á góðu róli í Bestu deild kvenna.
FH er komið á toppinn og Grindavík/Njarðvík vann mjög sanngjarnan sigur. Þá voru tvö 0-0 jafntefli.
Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört fóru yfir þetta allt saman í Uppbótartímanum.
Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke. -
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 13. júní.
Elvar Geir og Tómas Þór hafa umsjón með þættinum. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður á RÚV er gestur þáttarins.
Þjálfaraskiptin í Garðabæ eru rædd. Aðalmálin í þættinum eru 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins og auðvitað heimsmeistarakeppnin sem er farin í gang.
Þá er næsta umferð í Bestu deildinni skoðuð og Lengjudeildin. -
Harkið fór yfir stærstu atvikin í sjöundu umferð 2. og 3. deildar karla og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum.
- Uppgjör 3 deildar - 6:30
- Uppgjör 2 deildar - 39:00
- Spá - 01:09
Harkið er í boði Serrano.
Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. -
HM hringborðið hefur hafið göngu sína þetta árið og hefur leik á sérstökum upphitunarþætti þar sem farið var yfir helstu lið og spáð í spilin.
Sérstakir gestir eru Anton Logi Lúðvíksson, leikmaður Breiðabliks, og Ari Sigurpálsson, leikmaður Elfsborg. - Show more