Episodes
-
Ólympíuleikarnir í París hefjast 26. júlí, en aðeins einn íþróttamaður hefur náð lágmörkum, en það er sundmaðurinn Anton Sveinn McKee.
Í Ólympíuhóp ÍSÍ eru 13 íþróttamenn, en það eru þau sem eru að stefna á Ólympíuleikana.
Í þessum þætti þá ræddi Silja við Baldvin hlaupara, Thelmu fimleikakonu, Guðlaugu Eddu þríþrautakonu og Guðna Val kringlukastara um hvernig gengur að komast á Ólympíuleikana, hvað er framundan og fleira.
Hvetjum ykkur til að styðja við íþróttafólkið okkar.
Þátturinn er í boði Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood.Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars
@vinnym_99 (Baldvin)
@thelmaadalsteins
@eddahannesd (Guðlaug Edda)
@gudnigudna -
Logi Geirsson er handknattleiksmaður uppalinn í FH, lék með Lemgo í 6 ár, var í silfurliðinu á á Ólympíuleikunum 2008 í Peking og bronz liðinu á EM 2010.
Logi ræðir hvernig hann setti sér markmið og náði þeim, þá ræðir hann hvað hugarfarið skiptir miklu máli hjá íþróttafólki og visualization, hann segir frá því þegar hann tók útihlaupin upp í rúmi. Hvernig á að tækla meiðsli, hvað sjálfstraust er mikilvægt og að þú getur allt sem þú vilt, þú þarft að vita hvert markmiðið er og hefjast handa.
Það eru margar leiðir að árangri og hann hvetur íþróttafólk að fókusa á markmiðin og leggja allt í það.
Ef þú vilt ná árangri og vantar spark í rassinn, þá er þessi þáttur akkurat sparkið sem þú þarft!
Þátturinn er í boði Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood.
Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars
@logigeirs -
Missing episodes?
-
Kári Steinn Karlsson keppti í Maraþoni á Ólympíuleikunum 2012 í London, en það var hans þriðja maraþon frá upphafi. Hann á 17 virk Íslandsmet ennþá í dag, en hefur aldrei orðið Íslandsmeistari í maraþoni. Kári Steinn er aðeins byrjaður að hlaupa aftur og setti meðal annars brautarmet í hlaupi 2023.
Kári fór í háskólann Berkeley í California, en þar var hlaupamenningin öðruvísi. Þá ræðir hann maraþonið á Ólympíuleikunum og undirbúninginn fyrir Ól.
Kári Steinn er aðeins 37 ára í dag, en hlaupa menningin hefur breyst mikið frá því hann var á toppnum og þjálfun er aðeins öðruvísi í dag, ásamt því að hlaupabúnaðurinn hefur tekið miklum breytingum.
Þátturinn er í boði Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood.
Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars
@karikarlsson -
Tinna Jökulsdóttir er sjúkraþjálfari í Sporthúsinu og eigandi Fókus þjálfunar. Tinna kemur úr handboltanum og er meðal annars sjúkraþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta.
Hvað er fókus þjálfun? Þetta eru æfingar sem snúa að meiðslafyrirbyggjandi þáttum ásamt því að auka við færni hvers og eins leikmanns. Lögð er áhersla á liðkun, hreyfiteygjur, líkamsbeytingu, snerpu og samhæfingar þjálfun. Einnig er farið í jafnvægis- og styrktaræfingar þar sem unnið er með stöðugleikakerfið.
Við hvetjum ykkur til að hlusta og læra, kannski fáið þið hugmyndir. Í þættinum má finna ráð fyrir íþróttafólk, þjálfara, foreldra og aðra sem hafa áhuga á íþróttum.
Tinna starfar sem sjúkraþjálfari í Sporthúsinu. Fljótlega opnar heimasíðan http://fokusthjalfun.is/Þátturinn er í boði Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood.
Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars
@fokusthjalfun -
Helgi Valur Pálsson er íþróttasálfræðingur og deilir með okkur leiðum til að fá sem mest út úr íþróttunum (og lífinu). Helgi Valur æfði knattspyrnu á sínum yngri árum en glímdi við meiðsli sem hafði áhrif á hans feril. Helgi Valur ákvað að snúa sér að íþróttasálfræði þar sem hann vildi aðstoðað annað íþróttafólk í sínum meiðslum.
Helgi Valur fer um víðan völl og talar meðal annars um sjálfstraust, meiðsli, kvíða, hugarþjálfun, að setja sér markmið, skynmyndarþjálfun, spennustjórnun, einbeitingu, sjálfstal, fyrirbyggjandi aðgerðir, stress og fleira.
Við hvetjum ykkur til að hlusta og læra, hér má finna ráð fyrir íþróttafólk, þjálfara, foreldra og aðra sem hafa áhuga á íþróttum.
Helgi Valur starfar sem íþróttasálfræðingur hjá Hæfi Endurhæfingarstöð.Þátturinn er í boði Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood.
Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars -
Dwight Phillips er fyrrum Ólympíu- og Heimsmeistari í langstökki.
Dwight sigraði Ólympíuleikana 2024 í Athens, þá hefur hann fimm sinnum orðið Heimsmeistari í langstökki. Þetta er seinni þátturinn af tveimur, en í fyrri þættinum ræddu þau feril hans, öll stórmótin, sigrana og allt sem fylgir því.
Dwight ræðir hvað einkennir góðan þjálfara, hvernig hann þjálfar afreksfólkið og unga íþróttafólkið, þau ræða hraðaþjálfun, framfarir í frjálsum íþróttum og fleira.Við hvetjum ykkur til að hlusta, við erum viss að þið lærið eitthvað af þessum meistara.
Þátturinn er í boði Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood.
Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars
@dwightdagreat -
Dwight Phillips er fyrrum Ólympíu- og Heimsmeistari í langstökki.
Dwight sigraði Ólympíuleikana 2024 í Athens, þá hefur hann fimm sinnum orðið Heimsmeistari í langstökki. Við fórum yfir ferilinn hans, ræddum stórmótin, hvað gekk vel og hvað gekk illa, hann segir frá mistökunum sem hann gerði og fer yfir það hvernig það er að keppa á stærstu sviðunum. Þá ræðir hann einnig hvernig hann hafði trú á sjálfum sér og að að þurfi að vera traust milli íþróttamanns og þjálfara. Silja og Dwight æfðu saman í Bandaríkjunum undir leiðsögn Paul Doyle.Þessi þáttur er fyrri af tveimur, í seinni þættinum sem kemur á fimmtudaginn 28. mars þá mætir Coach Dwight Phillips og við ræðum þjálfara, þjálfun, æfingar, þjálfun yngri íþróttamanna og afreksþjálfun, hraða þjálfun og hvað hann er að gera meira.
Við hvetjum ykkur til að hlusta, við erum viss að þið lærið eitthvað af þessum meistara.
Þátturinn er í boði Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood.
Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars
@dwightdagreat -
Sólveig Þórarinsdóttir er sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfun Íslands. Sólveig æfði knattspyrnu á sínum yngri árum en meiðsli settu strik í hennar feril og nú brennur hún fyrir því að fyrirbyggja meiðsli ungs íþróttafólks.
Sólveig talar um rannsóknir á konum og körlum í knattspyrnum (p.s. prósentan er sjokkerandi), en konur eru ekki litlir karlar. Hún talar um FITTOPLAY.ORG þar sem hægt er að finna fyrirbyggjandi æfingar fyrir allar íþróttagreinar, við hvetjum ykkur til að kíkja á þessa heimasíðu.
Þá eru blæðingar íþróttakvenna rædd, krossbanda slit, hún útskýrir vaxtalínuna, Osgood-Schlatterhnémeiðsli og fleira.
Við hvetjum ykkur til að hlusta, við erum viss að þið lærið eitthvað af þessu. Þessi þáttur hentar pottþétt íþróttafólki, þjálfurum, foreldrum og öðrum sem hafa áhuga á íþróttum.Þátturinn er í boði Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood.
Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars
@sjukratjalfun -
Arnar "Lil Curly" er þekktur á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem hann hefur yfir milljón fylgjenda. Í dag starfar hann sem “vítamín sölumaður” eins og hann orðar það, ásamt því að sinna fleiri verkefnum.
Arnar ræðir um áhrifavalda heiminn og segir að núna sé besti tíminn til að vera áhrifavaldur á TikTok. Hann ræðir “tips and tricks” á samfélagsmiðlunum og hvað eykur líkurnar á samstarfi með fyrirtækjum.
Þá segir Arnar okkur einnig frá Happy Hydrate.
Við vonum að þið njótið þáttarins og við hvetjum ykkur til að prófa ykkur áfram á miðlunum og ekki gleyma að tagga Klefann.
Þátturinn er í boði Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood.
Þá fær Happy hydrate sérstakt “shoutout” frá Klefanum.
Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars
@lilcurlyhaha -
Elísa Viðarsdóttir hefur leikið knattspyrnu frá unga aldri og á yfir 50 landsleiki meðal annars á stórmótum. Elísa starfar sem næringarfræðingur hjá Heil Heilsumiðstöð.
Elísa ræðir um næringu íþróttafólks, hvernig er hægt að skipuleggja sig og skapa sér betri rútínur þegar kemur að næringu í kringum æfingar og keppnir. Elísa fer yfir það hvað íþróttafólk getur gert betur þegar kemur að næringu. Elísa gefur okkur hugmyndir að máltíðum og nesti, hvað er hægt að grípa í ásamt því að hvetja ungt íþróttafólk að læra grunnatriði í eldhúsinu (með aðstoð foreldra).
Þátturinn er í boði Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og Good Good.Endilega hafið samband við okkur á instagram
@klefinn.is
@elisavidars
@siljaulfars -
Ragnheiður Ragnars hefur farið tvisvar sinnum á Ólympíuleikana, árin 2004 og 2008. Eftir að hafa upplifað Ólympíudrauminn og eignast barn þá sneri hún sér að næsta draum, að gerast leikkona. Uppáhalds þættirnir hennar voru the Vikings og hún setti stefnuna þangað, nokkrum árum síðar var hún Gunnhild í the Vikings frá 2018-2020.
Ragga segir okkur frá verkefnunum sem hún er að vinna í, hvað hún tekur frá íþróttunum yfir í leiklistina. Hún segir okkur hvernig bardagaatriðin fara fram, hvað gerist bak við tjöldin í nektar- og kynlífssenum ásamt fleiru sem gerist á settinu. Þá talar Ragga um hluti eins og einbeitingu, stórmótin, sjálfstraust og sjálfsaga, hugarfar, markmiðasetningu og fleira.
Endilega fylgið okkur á instagram @klefinn.is
Ragga ragnars @raggaragnars
Silja Úlfars @siljaulfars
Þátturinn er í boði Heilsuhillunnar.