Episodes
-
Laugardagurinn 29. apríl 2023 átti að vera hinn eðlilegasti fyrir vinkonurnar Ivy, Brittany og Tiffany en fór alls ekki eins og þær héldu. Þær höfðu planað það að gista saman en á sunnudeginum breyttust plön og ákváðu þær að fara að synda. Þær skiluðu sér svo ekki heim og var lögreglan fengin í málið. Við rannsókn komust þau að afdrifum stúlknanna, en þær reyndust ekki vera einu fórnarlömbin.
Þátturinn er í boði Define The Line - skoðaðu úrvalið hér:
www.definethelinesport.com
Komdu í áskrift:
www.pardus.is/mordskurinn
Skoðaðu myndir frá hverju máli fyrir sig:
www.instagram.com/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn
-
Árið 2008 bjó Lindsay Hawker í Japan þar sem hún kenndi ensku og heillaðist af þessum nýja menningarheimi. Einn dag gaf maður sig á tal við hana í lestinni á leiðinni heim en út frá því spjalli samþykkti Lindsay að taka hann í einkakennslu í ensku, enda vildi hann læra tungumálið til þess að geta fetað í fótspor föður síns og farið í nám. Lindsay hins vegar skilaði sér aldrei að lokinni kennslustund og það var ekki fyrr en að lögreglumenn gátu rakið síðustu ferðir hennar sem þeir uppgötvuðu óhugnalega hluti sem leyndust inni á heimili mannsins.
Þátturinn er í boði Define The Line og Hreysti.
Með kóðanum MSKN fáið þið 10% afslátt af öllum fæðubótarefnum inni á www.hreysti.is
Skoðið úrvalið hér á www.definethelinesport.com
Áskriftarleið:
www.pardus.is/mordskurinn
-
Missing episodes?
-
Amie Harwick var 38 ára gömul, átti stórkostlegan starfsferil á sínu sviði í Los Angeles og allt leit út fyrir að hún lifði raunverulegu draumalífi.
Raunveruleikinn var hinsvegar sá að hún lifði við stöðugt áreiti, net-einelti og stöðugar áhyggjur sem hún sjálfsagt deildi ekki með öllum í kringum sig.
Á valentínusardaginn árið 2020 fór hún og skemmti sér með vinkonum sínum, kom heim til að eiga rólegt kvöld en endaði látin fyrir neðan svalirnar á svefnherberginu sínu.
Þátturinn er í boði Hreysti og Define The Line Sport
Kóðinn "MSKN" gefur 10% afslátt af öllum fæðubótavörum inn á www.hreysti.is
Ekki hika við að kíkja inn á www.definethelinesport.com og versla ykkur geggjaðar flíkur á stórgóðu verði!
Viltu hlusta á fleiri þætti? Komdu í áskrift!
www.pardus.is/mordskurinn
www.instagram.com/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn
-
Brandon var að ljúka fyrsta árinu sínu í skóla og mætti í nokkur partý kvöldið 14. maí árið 2008. Hann var á bíl og entist því ekki lengi, en í kringum miðnætti yfirgefur hann síðustu veisluna. Tæpum tveimur tímum síðar hringir hann í foreldra sína og segir þeim frá því að hann hafi endað ofan í skurði og sé fastur, staðsettur í Lynd. Hann talar við foreldra sína í símann á meðan hann bíður en upp renna tvær grímur á þau þegar þau finna hann hvergi. Hann ákveður að fara út úr bílnum til að ganga í áttina að næsta bæjarfélagi og á miðri leið heyra foreldrar hans hann segja OH SHIT og var það í síðasta skipti sem þau hafa heyrt frá honum. Við leit kom í ljós að hann var hvergi nærri Lynd heldur á allt öðrum stað og margar spurningar hafa vaknað í kjölfar hvarfs hans.
Þátturinn er í boði Define the Line - þið getið skoðað úrvalið inni á www.definethelinesport.com
Komið í áskrift:
www.pardus.is/mordskurinn
Samfélagsmiðlar:
www.instagram.com/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn
-
Shaye var ung einstæð móðir, með mörg áhugamál, flest þó áhugamál sem aðrir höfðu lítinn áhuga á.
Hún kynntist þó Frankie, en hann deildi áhugasviði með Shaye á sumum sviðum - þó alls ekki á öllum.
Áhugi Shaye á sakamálum, raðmorðingjum og morðingjum almennt var mjög mikill svo mikill að sumir halda að það hafi hvatt hana til að fremja svæsinn glæp.
Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift!
www.pardus.is/mordskurinn
www.instagram.com/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn
-
Shannan Gilbert hvarf frá Oak Beach en leit að henni leiddi í ljós 11 líkamsleifar sem fundust á strandlengjunni á Long Island. Ljóst var að um raðmorðingja var að ræða og eftir ótal langa rannsóknarvinnu er loksins búið að ákæra fyrir fjögur fórnarlömb.
www.pardus.is/mordskurinn
-
Kaylee Sawyer var 23 ára gömul árið 2016, í sambandi með ástinni í lífi sínum, með drauma um að verða tannlæknir og hefði átt að eiga allt lífið framundan.
Það var því miður ekki svo, en eftir stórskemmtilegt kvöld á djamminu með vinkonum sínum kom kærastinn hennar að sækja hana.
Kaylee endaði á að rífast við kærasta sinn þetta kvöld, og labba í burtu með þeim tilgangi að kæla sig aðeins niður. Það átti þó eftir að vera það síðasta sem hún gerði, hún sást aldrei aftur á lífi.
Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift!
ÁSKRIFT
www.pardus.is/mordskurinn
www.instagram.com/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn
-
Lauren fór með vinum sínum í helgarferð á wakeboard festival en helgin fór ekki eins og áætlað var því þegar vinir hennar vöknuðu um morguninn þá var hún hvergi sjáanleg. Þau gerðu ráð fyrir því að hún hefði bara farið að hitta einhvern vin en komust fljótt að því hvað hafði komið fyrir hana.
Áskrift kostar 990kr.- á mánuði:
- 4-5 þættir á mánuði
- Aðgangur að öllum áskriftarþáttum frá upphafi (100+ þættir)
Skráðu þig hér:
www.pardus.is/mordskurinn
-
Miya Marcano hafði ákveðið að búa á aðeins fínni háskólagörðum, í fínna og að hún taldi öruggara umhverfi á meðan námi hennar stóð. Hún ætlaði sér að verða sjúkraliði enda með íþróttadellu og mikla ástríðu fyrir að hjálpa fólki.
Miya fékk þó aldrei tækifæri til að klára námið sitt, og hún var ekki eins örugg eins og hún hélt, ekki einu sinni inn á sínu eigin heimili.
En það var einmitt þaðan sem hún hvarf einn september eftirmiðdag og átti aldrei aftur eftir að sjást á lífi.
Langar þig í fleiri þætti? Komdu í áskrift þar sem 120+ þættir bíða þín!
ÁSKRIFT
www.pardus.is/mordskurinn
www.instagram.com/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn
-
Ellie Nesler var ein sú besta móðir sem fyrirfinnst í Jamestown og þegar hún komst að því sem sonur hennar hefði gengið í gegnum þá tók hún málin í sínar hendur.
Þátturinn er í boði PLAY! en það er 20% afsláttur út 26. janúar í tilefni af bóndadeginum.
www.pardus.is/mordskurinn
www.instagram.com/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn
-
Kim var móðir, eiginkona, starfandi hjúkrunarfræðingur og vel liðin kona í sínu samfélagi.
Það var alveg þar til að kom í ljós að hún var ofbeldisfull móðir og eiginkona og orðsporið hvarf hratt.
Fólk hefur trúlegast haldið að hún kæmist ekki mikið lægra í lífinu þar til að skyndilega var hún handtekin fyrir að eitra fyrir sjúklingum, ekki bara einum heldur mörgum.
Þátturinn er í boði Play
Bókið sumarferðina sem allra fyrst inn á www.flyplay.is
ÁSKRIFT
www.pardus.is/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn
www.instagram.com/mordskurinn
-
Tracey var 13 ára gömul þegar hún hvarf sporlaust eftir að hafa gengið heim frá vinkonu sinni eitt kvöld. Það liðu ekki margir dagar þar til lík hennar fannst í um 15km fjarlægðar frá heimilinu hennar, og ljóst að einhver hafi rænt henni og drepið hana. Lögreglan var engu nær og biðluðu til almennings um upplýsingar. Það var svo maður sem hringdi inn tveimur árum síðar með upplýsingar um málið, en til að sanna deili á sér þá gaf hann upp vísbendingar sem enginn ætti að vita nema sá sem hafði drepið hana. Hann gaf einnig upp tölurnar 126040 og sagði lögreglu að muna þessar tölur og hingað til hafa komið ótal kenningar um það hvað þessar tölur gætu þýtt.
Þátturinn er í boði PLAY en við minnum á að í dag er síðasti dagurinn til að nýta sér flugfar á 35% afslætti inni á www.flyplay.is
Komdu í áskrift:
www.pardus.is/mordskurinn
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum:
@mordskurinn
-
Shakeylia Anderson var 17 ára gömul harðdugleg stelpa, með drauma um að verða starfandi hjúkurnarfræðingur í Bandaríska hernum.
Hún var með munnin fyrir neðan nefið, hrein og bein og hefði án efa komist langt í lífinu hefði Bo nokkur ekki komið í veg fyrir það.
Þátturinn er í boði:
Fly Play
Skellið ykkur erlendis í sólina, púðrið í Ölpunum eða verslunarferð í Bandaríkjunum!
www.flyplay.is
ÁSKRIFT
www.pardus.is/mordskurinn
www.instagram.com/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn
-
Anne Karubin hafði ekki átt það auðvelt, en hún var einstæð þriggja barna móðir sem hafði nýverið misst vinnuna enda snérist líf hennar að mestu um að reyna að takast á við daglegt þunglyndi með drykkju. Dætur hennar voru fengnar til þess að sjá um yngsta bróður sinn og lífið var bara mjög erfitt heimafyrir. Þær systur fóru eitt kvöld út að borða með vinum sínum og þegar þær komu heim þá fundu þær móður sína látna í baðkarinu heima en krufning leiddi í ljós að móðir þeirra hafði drukknað af slysaförum. Var það samt raunverulega það sem gerðist?
www.pardus.is/mordskurinn
-
Tanya var þriggja barna móðir, mesti stuðpinninn og dugnaðarforkur.
Hún var 45 ára gömul þegar tilkynning barst til lögreglu um að hún hafi gengið út heiman frá sér og ekki sést síðan.
Sama dag hafði maður í göngu með hundinn sinn, gengið fram á íþróttatösku og gert þar skelfilega uppgötvun.
Fljótlega kom í ljós tenging á milli hvarfsins og töskunnar, en aldrei hefði nokkrum getað grunað hver tengdist málinu líka
ÁSKRIFT
www.pardus.is/mordskurinn
www.instagram.com/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn
-
Henry McCabe hafði verið úti að skemmta sér með vinum sínum þar til að kvöldinu lauk og einn þeirra ætlaði að skutla honum heim. Í bílnum var Henry að rífast við einhvern í símann og að lokum bað hann vin sinn um að skutla sér að bensínstöð þar sem hann ætlaði að labba heim. Þegar þangað var komið hringdi hann skrítið símtal og hvarf svo sporlaust.
www.pardus.is/mordskurinn
-
Tracy Gilpin var 15 ára gömul, sjálfstæð og uppátækjasöm ung kona sem hlakkaði til að verða fullorðin og eignast stóra fjölskyldu. Hún fékk því miður aldrei tækifæri til að láta draum sinn rætast.
Tracy hafði átt það til að skila sér ekki heim á kvöldin og ekki vöknuðu upp neinar stórkostlegar áhyggjur þegar hún skilaði sér ekki eitt kvöldið 1986 en það skipti átti þó eftir að vera öðruvísi en öll hin.
ÁSKRIFT
www.pardus.is/mordskurinn
www.instagram.com/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn
-
Kenzie Houk átti von á sínu þriðja barni með manni sínum, Chris Brown. Hún var langt komin og gátu þau ekki beðið eftir að verða sex manna fjölskylda en Kenzie hafði komið sér út úr ofbeldissambandi og var í fyrsta sinn hamingjusöm. Hún fékk hinsvegar aldrei að hitta ófædda son sinn því dag einn mættu garðyrkjumenn heim til hennar og fundu fjögurra ára dóttur hennar standandi fyrir utan. Þeir urðu áhyggjufullir og hringdu því í neyðarlínuna og í kjölfarið mættu lögreglumenn á heimilið. Þeir fundu Kenzie látna í rúminu sínu en ekki tók það langan tíma fyrir þá að komast að því hver árásarmaðurinn var, eða hvað?
www.pardus.is/mordskurinn
www.instagram.com/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn
-
Elsku Samantha átti allt lífið framundan, laganámið sem hún hafði verið svo hörð á að hefja og klára og nýta til góðs í framtíðinni, lífið með dásamlega kærasta sínum og alls sem hún hafði hlakkað svo til að upplifa.
Samantha fór út eitt kvöld í mars, ákvað að taka sér smá pásu frá bókunum til að skemmta sér aðeins með vinkonunum. Kvöldið átti að vera í styttra lagi enda átti Samantha að mæta til vinnu morguninn eftir og hafði hún ákveðið öryggisins vegna að taka Uber heim, það átti eftir að verða það síðasta sem hún gerði.
ÁSKRIFT
www.pardus.is/mordskurinn
-
Natasha Ryan var 14 ára gömul þegar hún hvarf sporlaust frá heimili sínu árið 1998. Ótal leitir voru gerðar og ætlaði fjölskylda hennar ekki að gefast upp, enda þráðu þau ekkert heitar en að fá dóttur sína aftur heim. Það var svo nokkrum árum síðar sem raðmorðingi játaði morðið á sig og á meðan hann beið réttarhalda fékk lögreglan ábendingu, ábendingu sem átti eftir að gera fleiri spurningar heldur en svör um hvað raunverulega varð um Natasha Ryan.
Yfir 100 þættir aðgengilegir inni á www.pardus.is/mordskurinn en áskrift kostar aðeins 990kr.- á mánuði!
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum:
www.facebook.com/mordskurinn
www.instagram.com/mordskurinn
- Show more