Episodes
-
Með á nótunum 30. apríl
Britney Spears er komin í vandræði og stefnir í gjald og andlegt þrot. Spáð í spilin með forsetakosningarnar. Kanye West er að byrja í klámbransanum og eltihrellirinn úr Baby Reindeer þáttunum er allt annað en sátt. Bíó meðmæli og afmælisbörn vikunnar. -
Þriðjudagurinn 30. apríl
Kristrún og Samfylkingin, dánaraðstoð, strandeldi og Fúsi
Við byrjum á viðtali við Kristrúnu Frostadóttur formann Samfylkingarinnar um einmitt þettta, Kristrúnu og Samfylkinguna. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélagsins kemur síðan að Rauða borðinu og ræðir um dánaraðstoð, sem hún er alfarið á móti. Alfreð Sturla Böðvarsson ljósamaður tók sig til og skrifaði gegn strandeldi vegna þess að honum ofbauð. Hvað fær svokallaðan venjulegan mann til að láta í sér heyra? Þeir frændur Agnar Jón Egilsson og Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson, kallaður Fúsi, hafa sett um heimildarleikrit um Fúsa. Við ræðum við þá um verkið, erindi þess og forsögu. -
Missing episodes?
-
Í dag ætlum við að ræða um kvennaverkföll, feminisma og stéttarbaráttu með Sonju Þorbergsdóttir, formanni BSRB, Söru Stef Hildardóttur, verkefnastjóra hjá Landsbókasafni Íslands, Sönnu Magdalenu Mörtudóttir, borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins og Valgerði Þ. Pálmadóttir, nýdoktor í hugmyndasögu.
Við byrjum á því að horfa á stutt brot frá kvennaverkfallinu 1975 og ræðum um árangur baráttunnar, um stöðuna í dag, um hugmyndasögu femínisma og um leiðina fram á við í baráttunni fyrir jöfnuði, réttlæti og mannsæmandi lífi fyrir öll! -
Frelsið er yndislegt - #7 Karlar og fangelsi
Menn sem setið hafa í fangelsi ræða fangavistina. Í þessum þætti koma saman nokkrir menn sem allir hafa setið í fangelsi, og ræða fangavistina frá upphafi til enda. Upphaf afplánunar, þrepaskipting afplánunar, svört menning í fangelsum, meðferðarstarf, nýtt öryggisfangelsi, áhyggjur af ungu fólki á fangelsum, hvaða vímugjafar eru mest notaðir og hvað tekur við eftir afplánun. Viðmælendur þáttarins eru: Ingólfur Snær, Ásgeir Þór og Andri Ástráðs. Stjórnendur þáttarins eru: Guðmundur Ingi Þóroddsson og Ásdís Birna Magnúsdóttir -
Reykjavíkurfréttir, 30. apríl
Húsnæði, hótel, leikskólar og einhverfa.
Sanna Magdalena Mörtudóttir og Halldóra Hafsteinsdóttir fjalla um það helsta sem hefur átt sér stað í borgarmálum upp á síðkastið. Við fjöllum um fyrirhugaða 16 hæða hóteluppbyggingu sem á að reisa á Skúlagötu, umræður um byggingarfélag Reykjavíkurborgar, laun á leikskólum og fræðslumyndband velferðarsviðs um einhverfu. -
Mánudagurinn 29. apríl
Strandeldi, auðlindir, Breiðholt og árshátíð Samstöðvarinnar
Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar kemur til okkar og ræðir lagareldi og önnur auðlinda- og umhverfismál. Síðan kemur kemur Óskar Dýrmundur Ólafsson framkvæmdastjóri hverfismiðstöðvar Reykjavíkurborgar í Breiðholti og ræðir um stöðuna í hverfinu, áskoranir og aðgerðir. Síðan breytist Rauða borðið í eldhúspartí á árshátíð Samstöðvarinnar sem er í kvöld, við heyrum í fólkinu sem býr til þætti stöðvarinnar og ræðum fjölmiðla, samfélag og hlutverk Samstöðvarinnar. -
Sjávarútvegsspjallið, 29. apríl
Brottkast, framhjálöndun og vigtarsvindl
Grétar Mar Jónsson ræðir við þá Sigurð Ólafsson og Þórólf Júlían Dagsson um brottkast, framhjálöndun og vigtarsvindl. -
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Hulda Þórisdóttir prófessor í stjórnmálafræði, Oddný Harðardóttir þingkona Samfylkingarinnar og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og ræða fréttir vikunnar. Þeir bræður taka síðan stöðuna og fá svo Eðvarð Hilmarsson kennara í heimsókn til að ræða um hvort Breiðholt brenni.
-
Laugardagurinn 27. apríl
Helgi-spjall: Brynjar Karl
Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari kemur í Helgi-spjall og leyfir okkur að kynnast sér og sínum skoðunum, átökum og stríðum. Hvers vegna er hann alltaf í stríði? Hann segir okkur frá fjölmenningunni í Efra Breiðholti í dag og barnaveröld þess Breiðholts sem ól hann upp, segir hvað borgaryfirvöld eru getulaus til að mæta henni og frá goðsögunni um Aþenu, körfuboltafélagi. -
Heimsmyndir, 26. apríl
Sveinn Guðmundsson
Gestur þáttarins er Sveinn Guðmundsson, mannfræðingur við HÍ. Þeir Kristinn reyndu að rýna í heimspeki vinsæls vísindaskáldskapar: Dune, Star Trek og Star Wars. Þessir heimar eru um margt ólíkir. En hugsanlega tengjast þeir engu að síðar þegar betur er að gáð. Sveinn var afar viðræðugóður og skemmtilegur viðmælandi. -
Heima er bezt, 24. apríl
Jakob Frímann Magnússon
Jakob Frímann Magnússon er gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Heima er bezt, sem er á dagskrá klukkan tíu í kvöld. Þeir ræða stjórnmálin og tónlistin kemur einnig við sögu. Stórtónleikar eru fram undan og ýmislegt fleira er í farvatninu. Jakob Frímann hefur frá mörgu að segja og margt fólk ber á góma. -
Miðvikudagurinn 24. apríl
Þingið, stjórnmálin, forsetinn og bíó
Björn Þorláks fær nokkra þingmenn til að fara yfir þingveturinn og það sem er fram undan: Sigmar Guðmundsson. Guðmundur Ingi Kristjánsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir mæta að Rauða borðinu. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur kemur síðan og ræðir um stjórnmálaástandið. Og í lokin mætir Grímar Jónsson kvikmyndaframleiðandi og ræðir um bíó. -
Okkur langar að endurskapa kjaftaklúbba við Rauða borðið á næstunni, hópa þar sem fólk hittist á kaffihúsum, kaffistofum, heitum pottum, í saumaklúbbum og víðar og byrjum á Olís í Grindavík þar sem fólk, mest karlar, hittust á morgnanna fyrir jarðhræringarnar. Sigurbjörn Dagbjartsson blaðamaður, Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélagsins, Einar Hannes Harðarson sjómaður og formaður Sjómannafélagsins og Páll Valur Björnsson kennari koma og ræða málefni Grindavíkur hispurslaust og af krafti. Hlökk Theodórsdóttir skipulagsfræðingur gerði rannsókn á skipulagsvandi sveitarfélaganna og spurði meðal annars um spillingu. Niðurstöðurnar eru sláandi. Hlökk segir okkur frá þeim. Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur ræði síðan manndrápsmál og hnífaburð og í lokin kemur Valgerður Þ. Pálmadóttir nýdoktor í hugmyndasögu og spjallar við okkur um kvennaverkföll fyrr og nú.
-
Reykjavíkurfréttir, 23. apríl
Metnaðarleysi í Mjódd
Sanna Magdalena Mörtudóttur ræðir við Söru Stef Hildar um þjónustuleysið sem birtist á skiptistöðinni í Mjódd. Um er að ræða stærstu skiptistöðina í almenningssamgangnakerfi borgarinnar. Mikill þörf er á úrbótum til þess að gera svæðið aðlaðandi og laga að þörfum strætónotenda. -
Þorvaldur Gylfason er hagfræðingur, prófessor emeritus og samfélagsrýnir.
Við ætlum að ræða við Þorvald um hagkerfið, stjórnsýsluna á Íslandi og um spillingu. Af hverju virðist ekki vera tekið á spillingarmálum á Íslandi? Er hagkerfið að virka fyrir almenning í landinu? Hver eru áhrif ólígarka á íslenskt samfélag og samfélög almennt og hvað er til ráða, hvernig varðveitum við lýðræðið gagnvart ágengni ólíkarkismans?
Þetta og fleira spennandi í kvöld í beinni útsendingu á Samstöðinni kl. 18. -
Mánudagurinn 22. apríl
Aum stjórnsýsla, sjókvíaeldi, öryrkjar og Vg
Mikil umræða hefur orðið um eldmessu Katrínar Oddsdóttur lögmanns um sjókvíaeldi í þættinum Synir Egils á Samstöðinni í gær. Björg Eva Erlendsdóttir hjá Landvernd og Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur greina stöðuna. Er ástandið jafn hrikalegt og Katrín segir? Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ bregst við fjármálaáætlun, þar sem segir að öryrkjar verði látnir borga fyrir kjarapakka stjórnvalda vegna samninga á almennum markaði. Í lokin kemur Pétur Hrafn Árnason sagnfræðingur og höfundur ævisögu Vg, Hreyfingin rauð og græn, og segir okkur frá sögu þessa flokks sem nú er sannarlega í vanda. -
Sjávarútvegsspjallið, 22. apríl
Umræður um Sjávarútvegsmál og Strandveiðar - NÝR ÞÁTTUR
Gestir þáttarins eru Guðlaugur Jónasson og Atli Hermansson.Þáttarstjórandi er Grétar Mar Jónsson. -
Guttormur Þorsteinsson er formaður Samtaka Hernaðarandstæðinga og Lea María Lemarquis er meðlimur MFÍK, Menningar og Friðarsamtaka Kvenna.
Við komum beint af samstöðufundi fyrir Palestínu, laugardaginn 20. apríl, þar sem Lea og Guttormur voru með ræðu.
Við ræddum um utanríkisstefnu Íslands, alþjóðalög, heimsvaldastefnu, mannréttindi og nauðsyn þess að beita sér fyrir friði.
Á Samstöðinni kl. 20 í kvöld -
Sunnudagurinn 21 . apríl
Synir Egils: Flokkar, forseti, stjórnmál og hryllingurinn á Gaza
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Árelía Eydís Guðmundsdóttir borgarfulltrúi Framsóknar, Katrín Oddsdóttir lögmaður og Vilhjálmur Þorsteinsson forritari og ræða helstu fréttir og stöðu samfélags og stjórnmála. Þá munu bræðurnir taka stöðunni á pólitíkinni og síðan kemur Sveinn Rúnar Hauksson læknir og baráttumaður fyrir frelsi Palestínu í tilefni af því að í vikunni verður hálft ár frá innrás Ísraelshers á Gaza sem þróast hefur í þjóðarmorð. - Show more