Episodes
-
Laugardagurinn 15. júní
Helgi-spjall: Þorvaldur Þórðarson
Í Helgi-spjall kemur Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur og segir sína sögu en líka sögu Íslands og jarðarinnar í gegnum eldgos og alls kyns hræringar. -
Föstudagur 14. júní
Heimsmyndir - Heiða Eiríks
Heiða Eiríksdóttir (Heiða í Unun) kom í þáttinn að ræða fyrirbærafræði. Um hvað er þessi dulúðlega grein heimspekinnar? Heiða er í doktorsnámi í heimspeki og er hafsjór af fróðleik um þetta áhugaverða svið greinarinnar. -
Missing episodes?
-
Föstudagurinn 14. júní
Vikuskammtur: Vika 24
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Bragi Páll Sigurðarson rithöfundur, Elín Agla Briem þjóðmenningarbóndi, Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi og Róbert Marshall fjallamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af pólitískum hrossakaupum, mótmælum og klassískum deilumálum, stríði, leit að vopnahléi og sveiflu til hægri. -
Grimmi og Snar, 13. júní
Hefur sá sem spyr valdið? 🧐
Í Grimma og Snar dagsins spyr Estrid Þorvaldsdóttir Ingibjörgu Magnadóttur mjög mikilvægra en erfiðra spurninga 🤯🥵😳 -
Fimmtudagurinn 13. júní
Efnahagur, leigjendur, sjókvíar og Frakkland
Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar kemur til okkar og ræðir stöðu efnahagsmála. Drengur Óli Þorsteinsson, verkefnisstjóri hjá HMS, ræðir vanda leigjenda, enda ástandið ekki gott. Magnús Guðmundsson tölvunarfræðingur ræðir um sjókvíaeldi í Seyðisfirði, sem, íbúarnir vilja ekki sjá. Og Einar Már Jónsson sagnfræðiprófessor ræðir um pólitíska stöðu í Frakklandi, sem er viðsjárverð. -
Miðvikudagur 12. júní
Heima er bezt - Jóhann Jakobsson
Jóhann Jakobsson æfði fótbolta bæði með George Best og Sir Bobby Charlton. Eins undir stjórn Hemma Gunn. Sögur af fótbolta og sögur frá Akureyri. -
Þriðjudagurinn 11. júní
Drengirnir okkar, banaslys, Samherji og Þýskaland
Ragnar Þór Pétursson kennari ræðir við okkur um stöðu drengja í skólakerfinu. Hvað er að? Eru drengirnir gallaðir eða skólinn? Þórhildur Elín Elínardóttir hjá Samgöngustofu kemur og ræðir hrinu dauðaslysa í umferðinni. Hvað er til ráða? Oddur Eysteinn Friðriksson myndlistarnemi kallaði yfir sig reiði Samherja og safnar nú fé til að gera varið sig fyrir stefnu fyrirtækisins í London. Ragnar Hjálmarsson stjórnmálafræðingur kemur til okkar og ræðir þýska pólitík, sem er í alvarlegri kreppu og átökum. -
Í þessum tíunda þætti í Frelsið er yndislegt, er rætt umfjöllunarefnið, hvað tekur við eftir afplánun? Virkni, atvinna, stuðningur og búseta. Hver er ávinningurinn að taka vel á móti fyrrum dómþolum úr afplánun og samfélagsins að samþykkja það fólk aftur í samfélag manna. Ný Norsk rannsókn gefur okkur einnig vísbendingar um það.
Gestir þáttarins eru Þráinn Farestveit, framkvæmdastjóri Verndar, Dóra Guðlaug Árnadóttir, félagsráðgjafi og teymisstjóri virkni og atvinnu hjá Reykjavíkurborg og Ingvi Kristinn Skjaldarson, flokksleiðtogi hjá Hjálpræðishernum og sálgætir. Stjórnendur þáttarins eru: Ásdís Birna Bjarkadóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson.
Hægt að ná sambandi við Afstöðu, allan sólarhringinn í síma 556-1900 og Lögfræðiaðstoð Afstöðu í síma 666-1211. -
Mánudagurinn 10. júní
Þingið, veik ríkisstjórn, meintur orkuskortur og Evrópusambandið
Þingmennirnir Þórarinn Ingi Pétursson formaður atvinnuveganefndar og Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður pírata ræða hvort ríkisstjórnin springur á morgun ásamt Maríu Rut Kristinsdóttur sem situr nú á þingi fyrir Viðreisn. Bjarni Bjarnason fyrrum forstjóri Orkuveitunnar rökstyður álit sitt um að það þurfi lítið að virkja, að orkuskortur sé ekki fyrirsjáanlegur. Við ræðum svo úrslit kosninga til Evrópuþingsins við Íslendinga í ESB: Rósa Björk Brynjólfsdóttir í Frakklandi, Jón Sigurður Eyjólfsson á Spáni, Þorfinnur Ómarsson í Belgíu, Steingrímur Jónsson í Svíþjóð og Áslaug Hersteinsdóttir-Hölttä í Finnlandi. -
Sunnudagurinn 9 . júní:
Synir Egils: Vandi ríkisstjórnar og Vg, vopnasala og óafgreidd mál
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalista, Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar og Þórður Gunnarsson hagfræðingur og ræða stöðu ríkisstjórnar og stjórnmálaflokka, óafgreidd mál á Alþingi, togstreitu í varnarmálum milli forseta og ríkisstjórnar og margt fleiri. Þeir bræður munu síðan taka púlsinn á pólitíkinni. -
Laugardagurinn 8. júní
Helgi-spjall: Einar Már
Einar Már Guðmundsson kemur í helgi-spjall við Rauða borðið og segir okkar frá því hvernig hann varð sá sem hann er; frá ætt sinni og uppruna, fjölskyldu og vinum, kynslóð og baráttu, geðveiki og alkóhólisma og öðru sem mótað hefur líf hans. -
Föstudagur 7. júní
Vikuskammtur: Vika 23
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Lenya Rún Taha Karim varaþingkona, Sara Stef. Hildar feministi, Snorri Sturluson kvikmyndagerðarmaður og Snorri Páll Jónsson lausamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af kjöri forseta, falli Vg, stríði og vetrarveðri og frásögnum af þrælavinnu og vondri stöðu drengja. -
Fimmtudagur 6. júní
Grimmi og Snar - Reiði, oh what a feeling 😊
Þórunn Eymundardóttir sálfræðingur og töffari leiðir okkur um mannlega og dýrslega veröld innra lífs og skoðar sérstaklega reiðina með stækkunargleri og flísatöng 😡🤬😱 -
Fimmtudagurinn 6. júní
ESB, öryggisstefna, blaðamenn og Indland
Jón Steindór Valdimarsson formaður Evrópuhreyfingarinnar ræðir kosningar sem hófust í dag til Evrópuþingsins. Guðmundur Gunnarsson ræðir flótta fólks úr blaðamennsku yfir í pólitík og aðra geira. Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi ræðir um öryggisstefnu Íslands, sem lituð er hernaðarhyggju. Guðmundur Gunnarsson ræðir eftirmál talningarklúðursins og stöðu fjölmiðlunar og stjórnmála. Flótta fjölmiðlamanna yfir í önnur störf ber á góma og sitthvað fleira. Og Guðjón Bjarnason arkitekt ræðir kosningarnar í Indlandi og það stóra og fjölmenna land. -
Fimmtudagur 6. júní
Sjávarútvegsspjallið - Strandveiði og hafrannsóknir
Gestir þáttarins að þessu sinni eru þeir Kjartan Sverrisson, formaður Félags strandveiðimanna og Magnús Jónsson, veðurfræðingur. Þáttastjórnandi er Grétar Mar Jónsson. -
Jóhannes Hraunfjörð Karlsson er hagfræðingur og sagnfræðingur. Við tókum ítarlegt spjall, ásamt Ólafi Jónssyni og Kára Jónssyni, um ástandið í hagkerfinu í dag, um vaxtamun og okur og um gjaldeyrismál. Hvert er stefna yfirvalda búin að taka okkur og hvað þarf að gera til að koma okkur úr þessum agalega farvegi sem við virðumst lent í?
Þetta og fleira í Rauðum raunveruleika kvöldsins kl. 17:00 -
Sverrir Björnsson hönnuður gagnrýnir stóru fjölmiðlana fyrir að hafa verið of hliðhollir Katrínu Jakobsdóttur í kosningunum. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir unga innflytjendur ekki tengjast glæpum umfram aðra. Steinunn Gunnlaugsdóttir myndlistarkona opnar sýningu í Gluggagalleríinu Stétt. Hilmar Þór Hilmarsson ræðir um mun á áherslum nýkjörins forseta og stjórnvalda varðandi Úkraínustríðið. Sigurður Erlingsson landvörður segir frá vetri í júní. Og Níels Thibeaud Girerd kallaður Nilli mælir með leiklistarkennslu í grunnskólum.
-
Þriðjudagurinn 4. júní
Vg, Wolt, almannatryggingar, UK og Úkraína
Hvað verður um VG eftir brottför Katrínar Jakobsdóttur? Getur flokkurinn risið upp úr 3,3% fylgi? Vg-liðarnir Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson nýdoktor, Sunna Valgerðardóttir starfsmaður þingflokksins og Stefán Pálsson varaborgarfulltrúi ræða um stöðu Vg. Saga Kjartansdóttir og Halldór Oddsson starfsmenn lögfræði- og vinnumarkaðssviðs Alþýðusambandsins segja okkur frá Wolt, sem flest bendir til að svíni á starfsfólki sínu. Við höldum áfram umræðu um breytingar á lögum um almannatryggingar. Nú eru komið að þingmönnum að ræða kosti og galla frumvarpsins. Jóhann Páll Jóhannsson Samfylkingu, Inga Sæland Flokki fólksins og Steinunn Þóra Árnasdóttir Vg. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur og fréttaritari Samstöðvarinnar í London fjallar um kosningar í Bretlandi og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fjallar um Úkraínustríðið og öryggismál Evrópu og Íslands. -
Gestir þáttarins eru Sanna Magdalenda Mörtudóttir, Magga Stína, Ægir Máni Bjarnason og Stefán Örn Snæbjörnsson. Þátturinn er í umsjón Anitu Da Silva Bjarnadóttur og Karl Héðins Kristjánssonar
- Show more