Episodes
-
Þriðjudagur, 14. maí
Með á nótunum - 98
Það var farið yfir Eurovision sem er nýafstaðin og má segja að hún hafi ekki vakið mikla lukku. Þáttastjórnendur tóku kosningarprófið. Mataræði og heilsa kom mikið við sögu og Mannanafnanefnd. Óvæntur alheimshittari varð til þökk sé Sylvester Stallone og Steve Buscemi fékk óvænt kjaftshögg og kvikmynda og þátta meðmælin eru á sínum stað. Þetta er aðeins lítið brot af því sem farið var yfir í þættinum. -
Þriðjudagurinn 14. maí
Forseti fólks eða elítu, andmannúð, kennarar í vígahug, sjókvíar og fjölpóla heimur
Eru forsetakosningarnar átök milli elítunnar og fólksins? Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi svarar því. Íslensk stjórnvöld fluttu úr landi fórnarlömb mansals, sem þau höfðu hent á götuna fyrir tæpu ári. Drífa Snædal talskona Stígamóta reynir að ráða í hver sé ástæðan. Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins ræðir stöðu kennara. Fara þeir í verkföll í haust? Jón Örn Pálsson sjávarútvegsfræðingur telur að við eigum að byggja upp sjókvíaeldi en alls ekki eins og gert hefur verið. Og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor óttast kjarnorkustríð ef bandaríkin og Vesturveldin halda óbreyttri stefnu. -
Missing episodes?
-
Frelsið er yndislegt, þriðjudaginn 14. maí
Fjármálaóreiða og skuldafen fanga
Í þættinum er sjónum beint að skuldavanda þeirra sem koma í fangelsi og mikilvægi þess að tekið sé til í fjármálum dómþola áður en þeir snúa aftur út í samfélagið. Reynsla í nágrannalöndum okkar hefur enda sýnt að ef ekki sé tekið á fjármálaóreiðu einstaklinga sé líklegra að þeir snúi á ný í fangelsi. Ástæður þess og hugsanlegar lausnir eru til umræðu í þætinum.
Gestir þáttarins eru Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, Sigurður Ingi Jónasson, garðyrkjumaður og fyrrverandi fangi og Bjarki Magnússon, lögfræðingur sem fer fyrir Lögfræðiaðstoð Afstöðu.
Stjórnendur þáttarins eru: Ásdís Birna Bjarkadóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson.
Hægt að ná sambandi við Afstöðu, allan sólarhringinn í síma 556-1900 og Lögfræðiaðstoð Afstöðu í síma 666-1211. -
Reykjavíkurfréttir, þriðjudagur 14. maí
Andrými
Við fáum innsýn inn í starfsemi Andrýmis sem er róttækt félagsrými sem hefur fyrst og fremst það hlutverk að útvega aðstöðu fyrir grasrótarhópa og einstaklinga til að hittast og skipuleggja baráttu sína fyrir auknu jafnrétti og frelsi. Með sjálfstæðri starfsemi sinni og skipulagningu vill Andrými greiða leið fyrir frekari baráttu í anda valdeflingar, frelsis, jafnréttis og gagnkvæmrar hjálpar. Jakob Beat Altmann, Elías Snær Einarsson og Ragnheiður Freyja Kristínardóttir segja okkur frá Andrými. -
Mánudagurinn 13. maí
Kaupmáttur, vextir, þingið, fjölmiðlar og Nató
Hagráð verkalýðsins kemur að Rauða borðinu: Róbert Farestveit hagfræðingur Alþýðusambandsins, Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur BHM og Stefán Ólafsson sérfræðingur Eflingar taka stöðuna á vaxta stefnu Seðlabankans og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og velta fyrir sér hvort forsendur kjarasamninga muni halda. Þórunn Sveinbjarnardóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir settust saman á þing fyrir 25 árum, árið 1999. Björn Þorláks fær þær í heimsókn í Þingið og líka tvo blaðamenn sem nýverið réðu sig í þjónustu þingflokka; Atla Þór Fanndal starfsmann Pírata og Sunnu Valgerðardóttir starfsmann Vg. Í lokin kemur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og ræðir varnar- og öryggisstefnu stjórnvalda út frá yfirlýsingum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra. -
Sjávarútvegsspjallið, mánudaginn 13. maí
Hafrannsóknir á Íslandi
Gestir þáttarins að þessu sinni eru Arnar Atlason, Árni Sveinsson og Ólafur Jónsson (Óli ufsi) sem munu ræða hafrannsóknir á Íslandi og íslenska kvótakerfið. Þáttarstjórandi er Grétar Mar Jónsson. -
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessu sinni koma þau Helga Jónsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi, Sunna Sæmundardóttir fréttakona og Viðar Eggertsson leikstjóri og ræða vexti, forseta, söngvakeppni, pólitík og samfélagsmál. Þeir bræður munu taka stöðuna á pólitíkinni og fá síðan Ragnhildi Helgadóttur rektor í spjall um valdsvið forsetans og hversu mikið megi teygja það og toga.
-
Gestur þáttarins er Grétar Halldór Gunnarsson prestur í Kópavogskirkju. Hann kom í þáttinn til að ræða við Kristin um eðli trúar, sem hægt er að skoða bæði trúarlega, sálfræðilega og heimspekilega. Er kristnin með góða nálgun við þetta óræða eitthvað sem við köllum guð? Eru trúarbrögðin viðbrögð við meðvitund um takmarkanir tungumáls og skilnings? Þetta varð flókið og skemmtilegt spjall ólíkra huga.
-
Laugardagurinn 11. maí
Helgi-spjall: Fida
Fida Abu Libdeh er frumkvöðull, palestínskur Íslendingur, sem ólst upp í Jerúsalem en kom hingað ung kona. Hún segir okkur frá ætt sinni og uppruna, æsku og mótun, reynslu hennar sem innflytjandi á Íslandi og hvernig henni tókst að yfirvinna margvíslega erfiðleika. -
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Anna Kristín Blöndal Jóhannesdóttir hjúkrunarfræðingur, Lóa Björk Björnsdóttir útvarpskona, Margrét Hugrún Gústavsdóttir Björnsson verkefnastjóri við HÍ og Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjóri og ræða fréttir vikunnar sem voru markaðar af baráttunni um Bessastaði, af þjóðarmorði á Gaza, háum vöxtum og deilum um frammistöðu fjölmiðla og stjórnmálafólks.
-
Miðvikudagur 8. maí
Heima er bezt - Helgi Pétursson
Helgi Pétursson tónlistarmaður og formaður Landssambands eldri borgara er gestur í Heima er bezt að þessu sinni. Barátta fyrir hagsmunum eldra fólks á hug hans allan. Auk þess að ræða um þá baráttu verður einnig talað um árin hans í Ríó tríóinu og sorgleg endalok þeirrar sveitar. -
Miðvikudagurinn 8. maí:
Vextir, kynlaust mál og samfélagsmál við eldhúsborðið
Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins er agndofa yfir að Seðlabankinn lækkar ekki vexti. Hann hvetur til fjöldamótmæla við Seðlabankann. Við fáum Völu Hafstað, umtalaðasta greinahöfund dagsins, til okkar en hún hafnar kynhlutleysi íslenskunnar. Í lokin fáum við hjónin Helgu Völu Helgadóttur og Grím Atlason og dóttur þeirra, Ástu Júlíu Grímsdóttur körfuboltakonu, til að segja okkur frá hvernig rætt er um samfélagsmál við eldhúsborðið á þeirra heimili, til dæmis hvernig þar er nú rætt um forsetakosningar. -
Í Rauðum raunveruleika í kvöld tölum við við nýdoktor í heimspeki, hann Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson. Doktorsverkefnið hans snérist um frásagnir fórnarlamba af ofbeldi. Um tengsl frásagna og samkenndar og hvaða takmörkunum við erum háð þegar við reynum að koma orðum að reynslu okkar þvert á lífheima.
Við ræddum við Gústav um hryllinginn á Gaza, um siðrof, samkennd, firringu og Marxisma. Um misskiptinguna í heiminum, kapítalisma, arðrán og um hugmyndafræði. Rætt um stóru málin og spurningarnar á Samstöðinni klukkan 19:00. -
Gerðum forsetakappræðunum góð skil og fórum yfir hvernig Ásdís Rán er að fjármagna sína baráttu. Laufey Lín var á Met Gala mögulega fyrst Íslendinga. Dóttir söngkonunnar úr Mamas & the Papas stígur fram og leiðréttir dánarorsök móður sinnar. Whoopie Goldberg er að gefa út ævisögu sína og Starfsmenn kvikmyndahátíðarinnar Cannes eru á leiðinni í verkfall. Þátta og kvikmyndameðmæli að ógleymdum afmælisbörnum.
-
Þriðjudagurinn 7. maí
Ráðherra, ópera, góðverk, kynslóðir og forseti
Guðmundur Ingi Guðbrandsson formaður Vg og félagsmálaráðherra kemur að Rauða borðinu og ræðir um breytingar á almannatryggingum og eilítið um pólitík. Þórunn Gréta Sigurðardóttir tónskáld, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir leikstjóri og Herdís Anna Jónasdóttir sópran ræða við okkur um Óperuna hundrað þúsund og Jóhanna Engilráð Hrafnsdóttir, Salvör Árnadóttir og Vésteinn Gunnarsson nemendur í Hagaskóla um samfélagslega ábyrgð. Einar Lövdahl Gunnlaugsson skrifaði bókina Gegnumtrekkur sem Hallgrímur Helgason las. Þeir koma til okkar og ræða bókina, kynslóðir, karlmennsku og margt annað. Í lokin segir Viktor Traustason okkur frá forsetaframboði sínu. -
Mánudagurinn 6. maí
Átök í þinginu, auðlindir, Gaza og maður í framboði
Björn Þorláks fær fjóra þingmenn og einn varaþingmann til að ræða málin í Þinginu, þar sem einn þingmaður ásakar annan um að vera eitrið sem hafi átt að uppræta. Þingmennirnir Jódís Skúladóttir frá Vg, Andrés Ingi Jónsson frá Pírötum, Dagbjört Hákonardóttir úr Samfylkingunni og Ingibjörg Isaksen frá Framsókn og Brynjar Níelsson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins takast á. Þorvaldur Gylfason prófessor gagnrýnir frumvarp um lagareldi af ákefð og ekki síður tilraunir Katrínar Jakobsdóttur til að breyta stjórnarskránni. Fida Abu Libdeh orkuumhverfistæknifræðingur og frumkvöðull er íslenskur Palestínumaður og ræðir við okkur um ástandið á Gaza og afstöðu íslenskra stjórnvalda. Í lokin fáum við forsetaframbjóðanda að Rauða borðinu. Eiríkur Ingi Jóhannsson rafvirki segir okkur hvers vegna hann vill verða forseti. -
Að þessu sinni ræðir Grétar Mar við þær Gerði Maríu og Kristínu Arnberg um reynslu þeirra af því að vera konur sjómanna.
-
Sunnudagurinn 5 . maí
Synir Egils: Forseti, mútur, spilling og almannatryggingar
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan rannsóknarritstjóri á Heimildinni, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og ræða fréttir vikunnar, stöðu stjórnmála og samfélags. Síðan taka þeir bræður stöðuna á pólitíkinni. Alma Ýr Ingólfsson formaður ÖBÍ, Svava Arnardóttir formaður Geðhjálpar og Unnur Helga Óttarsdóttir formaður Þroskahjálpar koma síðan að borðinu og fjalla um frumvarp til breytinga á almannatryggingum -
Laugardagurinn 4. maí
Helgi-spjall: Friðrik Þór
Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri og sagnamaður kemur í Helgi-spjall og segir frá foreldrum sínum, hverfinu og kynslóðinni sem hann spratt af. -
Föstudagur, 3. mai
Vikuskammtur - Vika 18
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri, Freyr Eyjólfsson tónlistarmaður, Ellen Kristjánsdóttir söngkona og Jón Ferdínand Estherarson blaðamaður og ræða fréttir vikunnar sem voru litaðar af mikilli umfjöllun um forsetakosningar og lítilli um Júróvision, af deilum um hver ætti að eiga firðina, af landrisi á Reykjanesi og pólitísku sigi Vg. - Show more