Episodes
-
Sunnudagurinn 6. apríl
Synir Egils: Ríkisfjármál, veiðigjöld, tollar, pólitík og öryggismál
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi og Hallgrímur Helgason rithöfundur og ræða fréttir vikunnar og stöðuna í pólitíkinni, hér heima og erlendis. Björn Þorláksson fær Kristrúnu Frostadóttur í heimsókn og ræðir við hana um öryggismál og annað sem ríkisstjórnin vill endurmeta og breyta. Þeir bræður taka svo stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi. -
Atriðaorðalisti: Hipp hopp varpið 1.þáttur
Þjóðviljinn
Rokk í Reykjavík
Grace Jones
Bob Marley
Prince, Purple rain
Poppkorn (tónlistarþáttur)
Skonrokk (tónlistarþáttur)
Eric B & Rakim, “Microphone fiend”
Mc Lyte, platan: Lyte as a rock
Eric B & Rakim, “Follow the leader”
Wham, hljómsveit
Duran duran, hljómsveit
Mc Lyte, “Cappucino” - platan: Eyes on this
EPMD, “So what cha sayin”
Duran Duran, “Wild boys”
Sugar hill gang, “Rappers delight”
Spray can art & Subway art, bækur um graffiti
Sesar A, “List ein”
Do the right thing (Breyttu rétt), Spike Lee kvikmynd 1989
Public Enemy, “Fight the power”
Do the right thing (soundtrack), tónlist úr myndinni “Breyttu rétt”
LL cool J, platan: Walking with a panther
Dj Jazzy Jeff & the Fresh Prince, platan: He’s the dj, I’m the rapper
Dj Cash Money, transformer scratch
Ultramagnetic Mc’s, Kool Keith
Dj Kool Herc, afmælisveisla Cindy systur hans
HMT Empire Windrush
Dub tónlist
Reggae tónlist
Rastafari
Soul II Soul, hljómsveit
Trip hop, tónlistarstefna
Acid house, tónlistarstefna
Acid jazz, tónlistarstefna
Ninja tune, plötuútgáfa
Jah Shaka Sound System (London)
Aba Shanti-I Sound System (London)
Ragga twins, hljómsveit
Jungle, tónlistarstefna
James Brown, “Funky drummer”
Drum n’ bass, tónlistarstefna
Sound system, tónlistarsena
Blandspóla (mix tape)
Jazz ballett, danstegund
Curtis Mayfield, tónlistarmaður
Break beat, taktbrots tónlist
Jøden (Jótinn), danskur rappari
Óvinir ríkisins, bók eftir Guðna Th. Jóhannesson
Pinochet, einræðisherra í Chile
Viktor Jara
Violeta Parra
Break machine
Public Enemy, platan: It takes a nation of millions to hold us back
Public Enemy “Don't believe the hype”
House, tónlistarstefna
Mk Asanti (Skáld og fræðimaður USA)
Grandmaster Flash
Dj Melle Mel
Crack epidemic
Sandinstas, Nicaragua Contras, Honduras C.I.A.
Ronald Reagan
Grandmaster Flash and the furious five, “the message”; “the message II”
Ice T
Úlfur Kolka
Source magazine
Ice Cube
Africa Bambaataa Zulu nation
Afro centric
Disco (tónlistarstefna)
Chic “Good times”
Native tongues
A tribe called quest, plöturnar: People instinctive travels…; Low end theory
De la Soul
Jungle brothers
Black Sheep
Queen Latifah
Monie Love
Q-Tip, the Abstract
A tribe called quest “Buggin’ out”
De la soul, plöturnar: 3 feet high and rising; De la soul is dead
Blaz Roca Sesar A, platan: Stormurinn á eftir logninu
-
Episodes manquant?
-
Laugardagur 5. apríl
Helgi-spjall: Ólöf Arnalds
Ólöf Arnalds, söngvaskáld, kemur í helgi-spjall og segir frá ástinni á tónlistinni og á öllu hinu, ræðir um sönginn, sorgina, gleðina og samruna skynsviðanna. -
Föstudagur 4. apríl
Vikuskammtur: Vika 14
Ingibjörg Reynisdóttir, leikkona og jógi - Maren Freyja Haraldsdóttir, félagsfræðingur - Björgvin Gunnarsson blaðamaður á Mannlífi og Egill Viðarsson, rafbókaframleiðandi og tónlistarmaður koma í vikuskammt til Maríu Lilju í dag. -
Fimmtudagur 27. mars
Sjávarútvegsspjallið - 45. þáttur
Grétar Mar fær til sín þá Arnar Atlason og Rúnar Björgvinsson að þessu sinni en þeir ræða litlar útgerðir, strandveiðar, útflutning og fleira. -
Rauða borðið 3. apríl
Flóttafólk, bridge, fréttagagnrýni, dómsdagsmálmur og loftslagsmál
Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Fida Abu Libdeh varaþingmaður Framsóknarflokksins, Þorbjörg Þorvaldsdóttir bæjarfulltrúi Garðarbæjarlistans og verkefnisstjóri S78 og Saga Kjartansdóttir sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum ASÍ fóru yfir málefni flóttafólks og kerfislegar hindranir með Maríu Lilju í mjög heitum umræðum við borðið. Björn Þorláks fær góða gesti til sín til að ræða bridge, eitthvað sem Bjössi hyggst bjóða uppá reglulega næstu vikur. Þetta eru þau Matthías Imsland, Sigurpáll Ingibergsson, María Haraldsdóttir Bender, Anna Guðlaug Nielsen og Hallveig Karlsdóttur. Finnur G Olguson, leikmyndasmiður mætir til Oddnýjar með harðorða gagnrýni i garð fréttastofu RÚV í tengslum við þjóðarmorðið á Gaza. Reykjadoom er nýleg tónlistar og menningarhátíð af harðari gerðinni sem fer fram núna um helgina. Hörður Jónsson, einn skipuleggjenda leiðir okkur í allan sannleikann um Doom metal og fara yfir dagskránna með Maríu Lilju. Frosti Sigurjónsson, fyrrum alþingismaður ræðir um efasemdir sínar um loftslagsbreytingar af mannavöldum. -
Miðvikudagur 2. apríl
Sósíalísk stjórnarandstaða - 11. þáttur
Gestir þáttarins eru félagar í Sósíalistaflokknum, þeir Valdimar Andersen Arnþórsson frístundabóndi og Jón Þórir Guðmundsson garðyrkjufræðingur sem eru búsettir á Akranesi. Í þættinum munum við kynnast þeim, félagsstarfi sósíalista á Akranesi og þeirra hugarefnum, kjördæminu, sveitarfélaginu þeirra og væntanlegum sveitarstjórnarkosningum sem fara fram 16. maí 2026. -
Miðvikudagur 2. apríl
Fiskur undir steini, brottvísun, Reynsluboltar, Borgarahreyfing, fólkið og tækniauðvald
Byrjum þáttinn á Stiklu úr umræðuþætti frá 1974 um Fisk undir steini og förum svo í viðtal við þá
Ólaf Hauk Símonarson leikskáld og Þorstein Jónsson kvikmyndaleikstjóra sem gerðu á sínum tíma heimildarmyndir fyrir Ríkissjónvarpið, meðal annars Fiskur undir steini sem fjallaði um menningarneyslu í sjávarþorpinu Grindavík. Sú mynd verður sýnd á Pálmasunnudag í Bíó Paradís. Af því tilefni segja þeir félagar Gunnari Smára frá myndinni og ekki síður harkalegar viðtökur sem myndin fékk. Þá flytjum við frétt af brottvísun, Jón Sigurðsson lögmaður segir frá máli Zahra Hussein (móðir) og Farah Mohamed dóttur hennar. Mál þeirra er flókið, föður hefur verið vísað frá landi, hann var settur í herinn um leið og hann snéri aftur og síðast þegar spurðist til hans var hann særður en síðan eru nokkrir mánuðir. Ekki hefur verið tekin afstaða til erfiðra veikinda sem leiddu til fötlunar móður og skólagöngu stúlkunnar sem gengur í flensborgarskóla. Reynsluboltar Sigurjóns að þessu sinni eru þau Ólína Kjerulf Þorvarðardóttir, Ólafur Þ. Harðarson, Kristinn Sigmundsson og Kristjám Möller rætt er um fréttir vikunnar sem eru af ýmsu tagi að venju. Margrét Tryggvadóttir rithöfundur segir Gunnari Smára frá deilum og átökum innan Borgarahreyfingarinnar, stjórnmálahreyfingar sem klofnaði og sprakk. María Lilja og Oddný Eir réðust að fólki með hljóðnema á lofti á Þjóðarbókhlöðunni og spurðu gesti um fjölmiðla og gervigreind. Guðröður Atli Jónsson, tæknimaður, ræðir að lokum við Oddnýju um ógnir tækniauðvaldsins, gervigreind og framtíðina. -
Þriðjudagur 1. apríl
Flóttafólk, fjármálaáætlun, Breiðholt, tungumál, Kristni og Íslam
Fundur stjórnmalafræðinema um málefni flóttafólks fór fram í HÍ í dag. Við María Lilja og Pétur Fjelsteð vorum þar og tókum Vilhjálm Árnason þingmann sjálfstæðisflokks tali eftir fund. Hann sagði á fundinum að helsta hindrun frjáls flæðis á landamærum væri í raun verkalýðshreyfingin og við þurftum að vita meira. Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar ræðir um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Hvað breytist, ef eitthvað, frá stefnu fyrri ríkisstjórnar? Birna Gunnlaugsdóttir kennari í Breiðholtinu blandar sér í umræðu um skólamálin. Kann að vera að umræðan um grunnskólana litist af fordómum? Lítum við sama vandann ólíkum augum eftir því hvaða hverfi um ræðir? Björn Þorláks ræðir við Birnu Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, rithöfundur og íslenskukennari við Háskóla Íslands og áhugamaður um tungumálalega fjölbreytni og framgang íslenskunnar, segir okkur frá frumlegum tungumála-viðburði sem verður á bókasafninu á Ísafirði á föstudaginn; Tungumálaskipti/Tandem language sem er einhverskonar tungumála-tinder-stefnumót. Muhammed Emin Kizilkaya, doktorsnemi í félagsfræði við Háskóla Íslands og meðlimur í Félagi Horizon, sr. Matthildur Bjarnadóttir, prestur í Vídalínskirkju og MA í trúarbragðafræði og sr. Sigurvin Lárus Jónsson prestur í Vídalínskirkju og doktor í nýjatestamentisfræðum ræða við Gunnar Smára um kristni og Islam á Íslandi, fordóma milli trúarbragða og hvernig skapa megi frið og sátt í samfélaginu. -
Rauða borðið 31. mars
Fjölmiðlar, skattur, veiðigjöld, No Other Land og útskriftartónleikar
Í dag eru tvö ár liðin síðan Fréttablaðið fór á hausinn og hætti starfsemi. Stórt gat varð til í fjölmiðla- og þjóðmálaumræðu landsmanna sem hefur ekki verið fyllt. Þau Sigurjón Magnús Egilsson, María Lilja, Gunnar Smári og Björn Þorláks ræða áhrifin af falli Fréttablaðsins og stöðu fjölmiðlunar í dag. Töluverðri orku hefur verið varið í umræðu um hvort veiðigjöld séu skattur eða ekki. Og skiptir skilgreiningin einhverju máli? Gísli Tryggvason lögmaður ræðir skilgreiningar við Rauða borðið sem virðast vera ólíkar eftir því hvaða fræðigrein á í hlut. Arnar Atlason, framkvæmdastjóri Tor fiskvinnslu og formaður Samtaka fiskframleiðenda, ræðir um breytingar á veiðigjöldum og fjölgun strandveiðidaga. Hans sjónarmið eru allt önnur en þau sem stórútgerðin heldur á lofti. Palestínska Óskarsverðlauna Heimildarmyndin No Other Land verður sýnd í Bíó Paradís í þessari viku, Unnur Andrea Einarsdóttir, myndlistarkona kom og ræddi myndina og þjóðarmorðið við Maríu Lilju. Þessa dagana eru nemar við Menntaskóla í tónlist að ljúka framhaldsstigi og útskrifast frá skólanum og verður mikil tónleikaröð næstu daga þar sem almenningur getur komið í Hörpu og hlustað á framtíð Íslands. Þau Fannar Árni, Oddný Þórarinsdóttir og Þórdís Árnadóttir, 18-20 ára brottfararnemendur Menntaskóla í tónlist, ræða við Björn Þorláks um tímamótin. -
Sunnudagurinn 30. mars
Synir Egils: Veiðigjöld, átök, börn og Flokkur fólksins
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og ræða fréttir vikunnar og stöðu stjórnmálanna. Salvör Nordal umboðsmaður barna kemur og ræður stöðu barna, en mörg mál hafa komið upp undanfarið sem benda til þess að þau börn sem eru í vanda séu ekki gripin. Styr hefur staðið um Flokk fólksins undanfarnar vikur. Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður flokksins ræðir pólitíkina, ríkisstjórnina og flokkinn. -
Fimmtudagur 27. mars
Sjávarútvegsspjallið - 45. þáttur
Grétar Mar fær til sín þá Arnar Atlason og Rúnar Björgvinsson að þessu sinni en þeir ræða litlar útgerðir, strandveiðar, útflutning og fleira. -
Laugardagur 29. mars
Helgi-spjall: Gyrðir Elíasson
Gyrðir Elíasson, rithöfundur, skáld, myndlistarmaður og þýðandi ræðir um líf sitt og köllun í skáldskap og listum en líka í einmanaleika og jaðartilvist, um vináttutengslin við textann og náttúruna. -
Föstudagur 28. mars
Vikuskammtur: Vika 13
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri Félag kvenna í atvinnulífinu, Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir bókmenntafræðingur, Þórdís Claessen grafískur hönnuður og Hringur Hafsteinsson sköpunarstjóri Gagarín og ræða fréttir vikunnar sem voru fjölbreytilegar og snertu alla strengi mannssálarinnar, færðu okkur harm, gleði og undrun. -
Fimmtudagur 27. mars
Flóttafólk, börn í vanda, orðræða fjölmiðla, framtíð lýðræðis og bókabúðarhljómsveit
Við hefjum leik á nýrri frétt um að flóttafólk er að lenda á götunni hér á næstu vikum. María Lilja Þrastardóttir ræðir við Þóri Hall Stefánsson umsjónarmann gistiskýlis hjá Rauða krossinum. Í dag hafa verið sagðar fréttir um öryggi og auknar eftirlitsheimildir lögreglu. Oddný Eir Ævarsdóttir ræðir við Þórlaugu Borg Ágústsdóttur vefkyrju og doktorsnema um áhrif tækni-kapítalisma á lýðræðið, varnir Íslands, netöryggismál, áróður og fleira. Hvernig horfir MAST-dómurinn í gær við neytendum? Breytir það einhverju til góðs fyrir íslenskan almenning að Hæstiréttur hafi dæmt að starfsfólk MAST og fréttamenn Rúv höfðu rétt á tjáningu um brotalamir kjúklingabús? Við fáum svör með formanni Neytendasamtakanna, Breka Karlssyni, hann ræðir ásamt Tryggva Aðalbjörnssyni fréttamanni sem skúbbaði Brúneggjamálinu á sínum tíma við Björn Þorláks. Við fjöllum einnig um börn í vanda og orðræðu fjölmiðla. Þórhildur Ólafs barnasálfræðingur, Hermann Austmar pabbi stúlku í Breiðholtinu og Óskar Steinn sem vann á Hamrinum, sem er úrræði fyrir erlend börn, ræða það mál við Maríu Lilju. Það er vel geymt leyndarmál meðal Íslendinga að í húsi við Laugaveg hefur verið spiluð lifandi tónlist fyrir erlenda ferðamenn hvert einasta kvöld í þrjú ár. Þetta upplýsa þau Ragnar Ólafsson og Marína Ósk Þórólfsdóttir tónlistarmenn sem líta við og ræða þetta merka og mjög svo þrautseiga menningarframtak. -
Miðvikudagur 26. mars
BNA, reynsluboltar, óþekkti þingmaðurinn, gerjun, víðerni og diplómati deyr.
Íslenskir fræðimenn eru farnir að hunsa boð um ráðstefnur í Bandaríkjunum í mótmælaskyni við harðlínustefnu yfirvalda í garð minnihlutahópa og skerðingu málfrelsis þar í landi. Björn Þorláksson fær til sín þá Rúnar Helga Vignisson og Guðmund Hálfdánarson, prófessora við Háskóla Íslands til að ræða breytt landslag. Hinir vikulegu reynsluboltar fara yfir mál málanna hjá Sigurjóni M Egils. Að þessu sinni fær hann til sín þau Oddnýju Harðardóttur, Guðrúnu Öldu Harðardóttur, Þorstein Sæmundsson og Ómar Valdimarsson. Halla Hrund Logadóttir er óþekkti þingmaður þessarar viku á Samstöðinni. Björn Þorláks reynir að skyggnast undir yfirborð nýrra þingmanna og ræðir Halla Hrund kvöldið þegar kappræðan í sjónvarpinu gekk ekki sem skyldi í fyrrasumar en líka kraftinn og gleðina. Maður lærir ekkert í logninu, segir Halla Hrund. Fágun, félag áhugafólks um gerjun á fimmtán ára afmæli um þessar mundir. Þau Helga Dís Björgúlfsdóttir - Formaður, Dagur Helgason - Ritari og Sigfús Örn Guðmundsson - Fyrrverandi stjórnarmeðlimur kíkja til Maríu Lilju og líta yfir farinn veg og segja frá frelsisbaráttu sem ku framundan. Þorvaldur víðförli, ljósmyndari og rithöfundur Til oddnýjar um sveitina og háskólamál. Diplómati deyr heitir ný bók, fyrsta skáldsaga okkar fyrrum forsetafrúar Elizu Reid. Eliza lýsir við Rauða borðið skriftunum og ljóstrar í leiðinni upp þætti Guðna Th. Jóhannessonar sem hún segir að hafi verið gagnlegur yfirlesari. -
Miðvikudagur 26. mars
Sósíalísk stjórnarandstaða - 10. þáttur
Gestir þáttarins eru Halldóra Skúladóttir frá Kvennaráð.is, sjúkraliði, markþjálfi, sérfræðingur í fræðslustjórnun og þjálfun starfsfólks og sérfræðingur í breytingaskeiði kvenna, og Oddný Eir Ævarsdóttir, rithöfundur, heimspekingur og blaðamaður á Samstöðinni. Við ræðum um breytingaskeiðið, áhrif þess á heilsu kvenna og bjargráð. -
Þriðjudagur 25. mars
Rektorskjör, sönglist í hættu, sósíalísk hreyfing og trúmál
Við hefjum leik við Rauða borðið á viðtali Gunnars Smára Egilssonar við rektorsefnin tvö, Magnús Karl Magnússon og Silju Báru Ómarsdóttur. Kosning milli þeirra tveggja fer fram á morgun og hinn daginn. Hver eru einkenni rektorsefnanna? Við ætlum líka að standa fyrir umræðu um stofnanir í listheiminum. Söngnám er í hættu vegna peningamála. Þau Gunnar Guðbjörnsson, Hallveig Rúnarsdóttir og Guðrún Jóhanna koma í heimsókn og segja Birni Þorláks sögur af fjárhagslegu basli en líka ræða þau fegurð listarinnar og tækifæri. Pétur Tyrfingsson, sálfræðingur, ræðir í samtali við Oddnýju Eir Ævarsdóttur ágreining í sósíalískri hreyfingu, rofið í stéttabaráttunni og samræðunni. Við ljúkum svo þættinum á spjalli við sóknarprest einnar stærstu sókar landsins. Arna Ýrr Sigurðardóttir, ræðir Elon Musk, mannúð og skort á henni og aukna þöf landsmanna á að ræða trú með opinskáum hætti. -
Rauða borðið 24. mars
Skemmdarverk, fjölmiðlar, barnsmissir, sekt, fólk og kvár
Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri um gjaldþrot Kvikmyndaskólans, en Friðrik var um tíma rektor skólans. Hvað áhrif hafði skólinn á uppbyggingu kvikmyndagerðar og hver verða áhrifin af hruni hans? Friðrik Þór kemur í spjall við Gunnar Smára. Einyrkjafjölmiðlun og blaðamennska á litlum fjölmiðlum verður til umræðu við Rauða borðið í dag. Mál Ástu Lóu Þórsdóttur verður til umræðu. Þau Frosti Logason, Steingerður Steinarsdóttir og Brynjar Birgisson blaðamenn tala við Björn Þorláks.
Laufey Líndal ætlar á næstu vikum að fjalla um barnsmissi frá ýmsum hliðum. Við hefjum umræðuna með frásögn Maríu Pétursdóttur um hennar reynslu og hvernig sú reynsla hefur mótað hana. Lára Magnúsardóttir, sagnfræðingur ræðir um barnamálaráðherramálið í samhengi sakamála sögunnar og hlutverk Ríkisútvarpsins í spjalli við Oddnýju Eir. María og Oddný fara á Eiðistorg og ræða við fólk á förnum vegi um mál málanna. Í tilefni Kváradagsins ræðir María Lilja svo við Reyn Alpha, forseta Trans-Íslands um tímamótin. -
Sunnudagur 23. mars
Synir Egils: Afsögn ráðherra og staðan í pólitíkinni
Fjórir gestir koma í þáttinn Synir Egils að þessu sinni. Þau eru: Birta Björnsdóttir yfirmaður erlendra frétta, Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður
og Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður. Staða Ásthildar Lóu Þórsdóttur munu örugglega rata á góma gestanna. Mörg önnur mál bíða umfjöllunnar og verða því á dagskrá þáttarins. - Montre plus