Episodes
-
Gunni Hilmarsson er heillandi maður og mörgum kunnur sem mikill tískufrömuður. Hann byrjaði aðeins 16 ára í tískubransanum og hefur síðan þá unnið að ýmsum stórum hönnunarverkefnum í gegnum tíðina. Hann er nýjasti viðmælandi Marín Möndu í Spegilmyndinni og ræðir um líf sitt af mikilli einlægni. Þegar hann var unglingur var hann í tónlist en það var ekki fyrr en í kringum fertugsafmælið að hann ákvað að fara lengra með tónlistina. Úr varð tvíeykið, Sycamore Tree ásamt Ágústu Evu Erlendsdóttur söngkonu. Gunni er ótrúlega skemmtilegur listamaður og framundan eru spennandi verkefni á döfinni - en einnig ný plata sem hann segir að eigi eftir að koma skemmtilega á óvart.
-
Unnur Már Unnarsson Osteópati er nýjasti viðmælandi Marín Möndu í Spegilmyndinni. Unnar Már rekur Sigma heilsumiðstöðina en hann vinnur með manneskjunni á heildrænan hátt og leitast við að finna orsakavaldi sársaukans í stað þess að meðhöndla einungis einkennin. Unnar hefur ákveðnar skoðanir þegar kemur að því að hlúa að heilsunni en sjálfur hefur hann alltaf haft mikinn áhuga á líkamanum. Hann telur hraðann í samfélaginu mikið áhyggjuefni þar sem fólk er farið að venjast því að vera verkjað. Hann var lengi í fótbolta og þegar hann sjálfur slasaðist fékk hann meðferð hjá Osteópata sem breytti lífi hans.
# Þátturinn er í boði Netgíró sem er þægileg og örugg greiðslulausn.
-
Missing episodes?
-
Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti er nýjasti gestur Marín Möndu í Spegilmyndinni. Hún hefur sérhæft sig í að leiðbeina fólki varðandi blóðsykurstjórnun og sykurlöngun, með það að markmiði að bæta líðan og heilsu fólks - til að koma í veg fyrir bólgusjúkdóma. Hún deilir reglulega hinum ýmsu fróðleiksmolum á samfélagsmiðlunum og heldur í dag netnámskeið fyrir fólk sem vill huga betur að heilsunni sinni, sigrast á sykrinum og jafnvel komast í fitubrennsluform. Hér er á ferðinni ákaflega skemmtileg kona sem brennir fyrir því að láta gott af sér leiða og fræða fólk um blóðsykurójafnvægi sem hún telur vera einn helsti heilsufaraldur þessarar aldar.
-
Gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni er Aníta Rún Guðnýjardóttir eigandi verslunarinnar Sassy sem selur nærfatnað, aðfaldsfatnað og aðgerðarfatnað. Aníta er með ótrúlega gott úrval af vörum fyrir konur sem eru með eitt, tvö eða engin brjóst og leggur mikið upp úr því að fræða konur um hvernig þær eiga að klæðast brjóstahöldurum í réttri stærð. Saga Anítu er áhugaverð en hún eignaðist 3 börn á þremur árum og hefur farið í gegnum allskonar breytingar á líkama og sál í gegnum lífið. Hér er á ferðinni skemmtileg kona sem hvetur aðrar konur til þess að setja sjálfar sig í fyrsta sæti til þess að líða betur í eigin skinni.
-
Hin dásamlega Hekla Guðmundsdóttir er viðmælandi í Spegilmyndinni að þessu sinni. Hekla hefur gengið í gegnum röð áfalla á sinni lífstíð en hefur tekist á við þau verkefni af mikilli þrautseigju og jákvæðni. Hún var frá vinnumarkaði í um 14 ár vegna veikinda en hefur í dag fundið sína köllun. Bandvefslosun er hennar hugarfóstur en það kennir hún í Dans og jóga ásamt því að halda pop up viðburði reglulega. Hekla deilir sögu sinni af mikilli einlægni í þessum þætti og lýsir því hvernig Bandvefslosun bjargaði henni eftir röð áfalla.
* Þessi þáttur er í boði Neostrata húðvörur og Netgíró sem er örugg og einföld greiðsluleið.
-
Helga Ólafsdóttir er nýjasti viðmælandinn í Spegilmyndinni. Hún starfar í dag sem stjórnandi Hönnunarmars sem er hátíð hönnunar og arkitektúrs. Helga er með gríðarlega víðtæka reynslu í heimi hönnunar, þróunar skapandi verkefna, í stjórnun og rekstri. Hún er með BA gráðu í fatahönnun og vöruþróun frá Hellerup Textile College í Kaupmannahöfn og fatahönnun frá Kent Institute of Art and Design á Englandi. Í 11 ár rak hún hönnunarfyrirtækið sitt Ígló og Indí með barnaföt og hefur starfað sem hönnuður hjá All Saints á Englandi, yfirhönnuður hjá Ilse Jacobsen og vöruþróunarstjóri hjá Nikita. Í þessum þætti ræðir hún Hönnunarmars og margt annað sem tengist ástríðunni að hanna og skapa.
* Þessi þáttur er í boði Neostrata húðvörur og Netgíró sem er örugg greiðsluleið.
-
Í þessum þætti ræðir Marín Manda við Judith Jóhannsdóttur hjúkrunarfræðinema, en hún ferðaðist til Tyrklands fyrir nokkrum vikum síðan og lagðist undir hnífinn til þess að fá nefið sem hana hafði dreymt um. Síðan hún man eftir sér átti hún erfitt með að sætta sig við nefið sitt, þrátt fyrir að hafa ekki skort sjálfstraust. Hún var staðráðin í því að breyta nefinu og lét til skarar skríða fyrir nokkrum vikum. Hún er himinlifandi með útkomuna þó hún sé enn að venjast nýrri útgáfu af sjálfri sér. Hér er á ferðinni ákaflega skemmtileg ung kona sem deilir sögu sinni á skondin en einlægan hátt
** Þessi þáttur er í boði Neostrata og Netgíró
-
Lilja Sigurgeirsdóttir er eins og ferskur andblær þegar hún kemur inn í upptökuverið, en hún er nýjasti viðmælandinn í Spegilmyndinni. Hún hefur aldrei verið þessi týpíska liðuga fimleikastelpa en starfar sjálfstætt í dag sem liðleika og hreyfanleika þjálfari. Lilja hefur verið með vinsæl námskeið sem heita Stirðir strákar og Flex Fit og segir alltof marga vera að eiga við stoðkerfisvandamál í dag. Nútimasamfélagið hafi gert það að verkum að fólk hafi hætt að hreyfa eins og áður þegar við vorum veiðimenn og því þurfi að bæta úr. Áhugavert og skemmtilegt spjall við Lilju sem segist brenna fyrir því að hjálpa fólki að eldast vel í eigin líkama.
-
Jarþrúður eða Jara Gian Tara er viðmælandi Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Hún er mögnuð kona. Hún er listakona, jógakennari og stjörnuspekingur sem semur tónlist og lærði heimspeki við Háskóla Íslands. Jara trúir á stjörnurnar og Human design. Hún aðhyllist stjörnuspeki og dulspeki og segir að það skipti máli hvenær og hvar við fæðumst. Jara vill meina að við höfum öll tilgang en oft þurfum við að komast í dýpri tengingu við okkur sjálf til þess að lífið verði magískt. Marín Manda ræddi við hana um alla þessa hluti og fékk hana örlítið til að skyggnast inn í stjörnukortið hennar.
Þessi þáttur eru í boði Neostrata og Netgíró.
-
Björn Þór Sigurbjörnsson eða Bjöddi þjálfari er nýjasti gestur Marín Möndu í Spegilmyndinni. Björn er einnig Ostopatíu nemandi og starfar í World Class. Hann er með yfir 20 ára reynslu af heilsu -og líkamsræktargeiranum og margir skjólstæðingar hans í dag eru konur á breytingaskeiðinu. Hér er á ferðinni ansi fræðandi og skemmtilegt spjall við Björn sem hefur sterkar skoðanir á matarkúrum, markaðsöflunum og hugarfari. Samkvæmt honum þarftu að hafa hugann í lagi til þess að þjóna líkamanum sem allra best, bæði á æfingum og í lífinu.
*Þessi þáttur er í boði Neostrata húðvörur og Netgíró - örugg og þægileg greiðslulausn.
-
Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og markþjálfi er nýjasti gestur Spegilmyndarinnar. Hún er mikill matgæðingur, hefur gefið út matreiðslubækur og rak Gulur rauður grænn og salt, eitt vinsælasta matarblogg um langt skeið. Fyrir ekki svo löngu síðan stóð hún á tímamótum þegar hún þurfti að kveðja vörumerkið sitt og það tók virkilega á. Berglind er dásamlega skemmtileg og einlæg kona sem í dag heldur úti Instagram miðlinum Lífsgleðin og vefmiðlinum Salina. Einnig sér hún um fararstjórn í skemmtiferðum fyrir konur til Ischia á Ítalíu. Mögnuð kona hér á ferð sem í dag segist einungis gera það sem gleður sig og þráir að lyfta öðrum konum upp.
* Gleðiferð fyrir konur til Ischia: Hér
Þessi þáttur í boði Neostrata sem eru frábærar húðvörur sem vinna gegn ýmsum húðvandamálum og öldrun húðarinnar. Vörurnar fást hjá Hverslun.
-
Ásdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir er nýjasti viðmælandi Marín Möndu í Spegilmyndinni. Hún hefur rekið sína eigin stofu um árabil en hún útskrifaðist með BSc í grasalækningum frá University of East London árið 2005. Í dag hefur hún sérhæft sig í kvenheilsu og þótti því viðeigandi að ræða breytingarskeið kvenna, mataræði og ýmis náttúruleg bætiefni sem konur geta stuðst við á þessu tímabili. Ásdís starfar einnig í dag með GreenFit og hefur sjálf prófað allt undir sólinni í mataræði. Ásdís er skemmtileg og yndisleg kona sem þið getið fundið á Instagram: asdisgrasa
* Þessi þáttur er í boði NEOSTRATA sem eru húðvörur sem fást í öllum helstu apótekum en einnig Hverlsun.
-
Hilmir Petersen Hjálmarsson starfaði áður sem bakari en starfar í dag sem öndunarþjálfari og gengur undir nafninu Breatheviking á samfélagsmiðlum. Hann er nýjasti viðmælandi Marín Möndu í Spegilmyndinni. Hann ræðir á mjög einlægan hátt hvernig hann upplifði mikið þunglyndi í fjölda ára og var búin að ákveða hvenær, hvernig og hvar hann ætlaði að taka eigið líf. Í dag er hann nýr og breyttur maður og deilir með hlustendum hvernig hann náði að vinna sig út úr þessum erfiðleikum. Í dag aðstoðar hann fólk við að læra rétta öndun til þess að brjótast út úr stressi og vanlíðan til að verða heil. Mögnuð vegferð hjá áhugaverðum manni sem segir að rétt öndun getur raunverulega breytt hugarfari og lífi fólks.
-
Að þessu sinni eru það Kristín Edda Óskarsdóttir og Sigríður Guðjónsdóttir sem komu í spjall í Spegilmyndina, en þær eru eigendur fataleigunnar og umboðssölunnar Spjöru. Þessar frábæru konur sem eru fullar af eldmóð, ákváðu að opna fataleigu fyrir sparilegri tilefni og leigja út fallega merkjavöru með sjálfbærni og umhverfismál að leiðarljósi. Þær fengu þessa hugmynd til þess að sporna við textílvandanum með von um það að fá fólk til þess að hugsa tísku upp á nýtt.
-
Í þessum þætti ræðir Marín Manda við Írisi Björk Reynisdóttur förðunarfræðing, ljósmyndara og eiganda Beautybox verslunarinnar en Íris ræðir meðal annars um hversu varhugavert það er orðið að börn og unglingar séu að sækjast í virkar húðvörur. Hún telur að þessi þróun sé mikið áhyggjuefni í þessum heimi samfélagsmiðla þar sem skilaboðin herja á börn og unglinga (og fullorðna) að það eigi allir að vera með fullkomna húð. Þessi þáttur er stútfullur af fróðleik fyrir foreldra sem og aðra sem vilja kynna sér þessa þörfu umræðu.
-
Í þessum fyrsta þætti ársins fékk Marín Manda hana Áslaugu Kristjánsdóttur kynfræðing í spjall til þess að ræða kynlíf, samskipti, kynhegðun og sambönd, en hún gaf út bókina; LÍFIÐ ER KYNLÍF, á síðasta ári. Áslaug er einnig hjúkrunarfræðingur að mennt og segist hafa vitað snemma hvað hana langaði að starfa við. Áhugavert samtal við skemmtilega konu sem hvetur fólk í langtímasamböndum til þess að sinna nándinni og kynlífinu betur með allskonar góðum ráðum.
-
Viðmælandi Marín Möndu að þessu sinni er Aldís Arna Tryggvadóttir en hún starfar sem PCC vottaður markþjálfi, streituráðgjafi, klínískur dáleiðari, heilari og fyrirlesari hjá Heilsuvernd. Í þessum skemmtilega þætti ræðir hún um sína persónulega vegferð í gegnum streitu og áföll, upprisuna eftir leit að lífsins svörum, dáleiðslu og undirmeðvitundina. Aldís Arna var einstaklega áhugaverður viðmælandi sem virkilega fær mann til að doka við og hugsa líf sitt í þaula.
-
Gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni er Þóra Hrund sem er markaðsspekúlant, mannræktarmógull, markþjálfi og upplifunarhönnuður. Hennar nýjasta hugarfóstur er verkefnið „fjölskyldanmínehf" sem er einskonar leiðirvísir að betra skipulagi, samvinnu og samskiptum innan fjölskyldunnar. Ákaflega skemmtilegt spjall við hugmyndaríka og áhugaverða konu sem veit ekkert betra en að efla fólk í kringum sig með jákvæðri sálfræði.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar hér: thorahrund.com og Fjölskyldanmínehf
-
Fanney Magnúsdóttir sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari hjá TÁP er viðmælandi Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Hún hefur sérhæft sig í grindarbotninum og kvenheilsu en heldur einnig úti Instagram miðlinum Móðurmáttur ásamt samstarfskonu sinni. Í þessum þætti ræðir hún mikilvægi þess að vinna betur með grindarbotninn sem getur verið lykillinn að allskyns vandamálum sem konur eru sérstaklega að eiga við, hvort sem það er tengt spennu í líkamanum, þvagleka eða verkjum við samfarir. Áhugavert og fræðandi spjall við konu sem finnur lausnir fyrir aðrar konur.
-
Viðmælandi Spegilmyndarinnar að þessu sinni er förðunarfræðingurinn Harpa Káradóttir. Hún er móðir, frumkvöðull, förðunarfræðingur og förðunarkennari en hún rekur Makeup studio Hörpu Kára. Hún ræðir meðal annars um öfgana í förðunarheiminum á samfélagsmiðlum við Marín Möndu, um vinsælu námskeiðin sem hún heldur fyrir fólk á öllum aldri og ástríðuna að hvetja áfram upprennandi förðunarfræðinga á Íslandi. Skemmtilegt spjall við dásamlega konu.
- Show more