Episoder
-
Í þessum þætti sunnudagaskólans ræða þeir Birgir og Hjalti við rithöfundinn, fyrrverandi ritstjóra Spegilsins og dæmda guðlastarann Úlfar Þormóðsson. Auðvitað var mikið rætt um guðlast og Spegilsmálið, en einnig var rætt um áhugaverð málefni eins og upphaf alheimsins, prestastéttina og túlkun biblíunnar.
-
Í dag eru tíu ár síðan Birgir Baldursson birti greinina Lygin um sannleikann á þá nýstofnuðu vefriti sem bar nafnið Vantrú. Að því tilefni birtum við þriðja og síðasta hluta afmælisþáttarins með Birgi, Matta Á. og Óla Gneista við hljóðnemann. Þessi hluti fjallar um háskólamálið, félagsfræðilegar skilgreiningar, gagnrýnendur og fylgismenn Vantrúar og þau áhrif sem Vantrú hefur haft á trúmálaumræðu á Íslandi. Fyrsta hluta afmælisþáttarins má finna hér og annan hluta hér.
-
Mangler du episoder?
-
Hér birtist annar hluti afmælisþáttar Vantrúar með þeim Birgi, Matta Á. og Óla Gneista við hljóðnemann. Þessi hluti fjallar um trúmálaumræðurnar, úrskráningar, svarthöfða, páskabingó, háskólamálið ásamt mörgu öðru.
-
Fyrir tíu árum tóku nokkrir trúleysingjar sig saman og stofnuðu vefritiði Vantrú. Í tilefni af þessu settust þrír af stofnendum vefritsins niður fyrir framan hljóðnema og rifjuðu upp upphaf vefritsins og nokkra merka punkta í sögu vefritsins og félagsins sem stofnað var í kjölfarið. Eins og flestir vita er vefritið og félagið fyrir löngu síðan orðinn mikilvægur vettvangur fyrir skoðanaskipti um trúmál og tengd málefni. Við hljóðnemann sátu þeir Birgir Baldursson, Matthías Ásgeirsson og Óli Gneisti Sóleyjarson. Afmælisþátturinn verður sendur út í þremur hlutum. Fyrsti þáttur fjallar um upphafið á strik.is, rökræður á Annáll.is, stofnun vefritsins og félagsins.
-
Þátturinn var tekinn upp þann 30. maí og meðal efnis í þessum þætti er trúlausir fara til helvítis eftir allt, kynning á þremur eftstu sætunum í Ágústínusarverðlaunum Vantrúar 2012 og hótun í póstkassa. Þáttastjórnandi var Hafþór Örn og gestir voru Haukur Ísleifsson, Óli Gneisti og Matthías Ásgeirsson.
-
Þátturinn var tekinn upp fyrsta apríl og meðal efnis er ólöglegt páskabingó, krossfestingar og páskaegg. Að auki var tekið létt viðtal við Svein Atla Gunnarsson, sem ásamt Höskuldi Búa Jónssyni er ritstjóra vefsíðunnar Loftslag.is. Rætt var við Svein Atla meðal annars um efasemdarmenn, afleiðingar hlýnunar og hinn vísindalega leiðarvísi, sem er upplýsingabæklingur sem þeir félagar hafa tekið sig til og þýtt. Þáttastjórnandi var Hafþór Örn og gestir voru Haukur Ísleifsson og Kristján Lindberg.
-
Nokkrir félagsmenn úr Vantrú hafa tekið sig saman og sett í loftið Útvarp Vantrú, sem er podcast þáttur með léttu spjalli og gestum. Þátturinn var tekinn upp 9. febrúar og meðal efnis er trúleysisskatturinn, draugar og viðtal við Sigurð Hólm frá Siðmennt, rætt var við hann um breytingar á lögum um lífsskoðunarfélög sem Siðmennt hefur barist fyrir. Þáttastjórnandi var Hafþór Örn og gestir voru Matti, Haukur og Kristján.
-
Matthías Jochumsson, spíritismi, únítarismi, frjálslynda guðfræðin, KFUM, kvennaguðfræði, galdrabrennur og djöfullinn, framtíð kirkjunnar, syndabyrði og AA. Samtal Birgis og Hjalta við Torfa fann sér ótal vinkla í síðari hluta viðtalsins.
-
Að þessu sinni ræddu þeir Hjalti og Birgir við Torfa K. Stefánsson, höfund bókarinnar Íslensk kirkjusaga, um ýmislegt það sem lítur að kristindómnum á Íslandi gegnum aldirnar. Í þessum fyrri hluta er byrjað á fermingum og endað á trúarlegri hegðun. Torfi hafði margt til málanna að leggja.
-
Hér birtist síðari hluti viðtals Hjalta og Birgis við Guðmund Inga. Umræðan fer út um víðan völl og tæpt er á ýmsu áhugaverðu.
-
Fyrir fáeinum misserum settust þeir Hjalti og Birgir niður með Guðmundi Inga Markússyni trúarbragðafræðingi og ræddu um þann geira fræðimennsku sem snýr að trú og trúarbrögðum. Í þessum sunnudagaskóla hlýðum við á fyrri hluta þess spjalls, en síðari hlutinn birtist hér að viku liðinni.
-
Í síðari hluta rabbsins við Hjalta Hugason byrja hlutirnir örlítið að snúast upp í "góða löggan - vonda löggan". Hjalti Rúnar mætir til þessara viðtala vel undirbúinn og með spurningalista, en Birgir leikur þetta meira af fingrum fram og spurningar hans eru tíðum meira "óþolandi". Hjalti Hugason kemst þó vel frá öllu saman.
-
Í þessum sunnudagaskóla ræða Hjalti og Birgir við Hjalta Hugason prófessor í kirkjusögu við Háskóla Íslands. Meginefni þessa fyrri hluta er samband ríkis og kirkju gegnum söguna, en einnig er litið til framtíðar.
Viðtalið fór fram í aðalbyggingu Háskólans seint á síðasta ári þegar mikið óveður dundi yfir. Rokið skilar sér inn á upptökuna og einnig glymjandi hurðarskellir hinna bergmálandi ganga. Vonandi truflar það ekki einbeitinguna. -
Áfram héldu þeir Hjalti og Birgir að þjarma að prestinum í Reykjanesbæ og má segja að aðeins meiri harka hafi færst í leikinn.
-
Í þessum þætti setjast þeir Hjalti Rúnar og Birgir niður með Skúla S. Ólafssyni, presti í Reykjanesbæ, og bauna á hann ýmsum álitamálum um sannleika trúarbragða og hugsanlega skaðsemi þeirra. Þessi fyrri hluti er bráðfjörugur og ýmislegt kemur í ljós.
-
Í síðari hluta viðtalins við Bjarna Karlsson, Laugarneskirkjuprest, berst talið að því hvort ritningartexti aftan úr fornöld eigi eitthvert erindi við samtíð okkar. Þetta er m.a. rætt út frá fullyrðingum Nýja-testamentisins um tilvist illra anda. Spennandi samtal, en þögli farsíminn blandar sér áfram í umræðuna með ruddaskap, ofstæki og öfgum.
-
Sunnudagaskólinn í dag einblínir á kynhegðun, samkynhneigð, klám og kvenfrelsi. Bjarni Karlsson, prestur í Laugarneskirkju, fer með þeim Hjalta og Birgi gegnum ritningarorð bæði í Gamla-testamentinu og því nýja. Var Jesús á móti samkynhneigð? Var Páll Postuli kvenhatari? Er barnaklám afleiðing gömlu grísku tvíhyggjunnar?
Þetta er fyrri hluti viðtalsins við Bjarna. Síðari hlutinn verður á dagskrá eftir viku.
Sunnudagaskólinn biðst velvirðingar á innrás farsíma nokkrum sinnum í upptökunni. Þessi sími var á "silent", en hefði betur verið alveg "off". -
Í ágætu kaffispjalli á skrifstofu Sigríðar Guðmarsdóttur í Guðríðarkirkju saumuðu þeir Hjalti Rúnar Ómarsson og Birgir Baldursson að prestinum og veltu upp ýmsum kenningum kirkjunnar um meyfæðingu, altarisgöngu, erfðasynd og upprisu holdsins, auk þess að tæpa á bælingu og skaðsemi. Þetta er æsispennandi viðtal og sérann á þarna frábær tilsvör. Takk Sigríður fyrir góðar móttökur og fyrir að hafa haft þor til að hleypa svona snarbiluðum ofstækismönnum inn á gafl hjá þér.
-
Í dag ætlum við að endurvekja sunnudagaskólann okkar og næstu vikurnar birtast viðtöl við presta og guðfræðinga.
Fyrst ríður á vaðið Sigríður Guðmarsdóttir prestur í Guðríðarkirkju. Þeir félagar Hjalti Rúnar Ómarsson og Birgir Baldursson litu inn til hennar í kaffispjall síðsumars.
Umræðuefnið er maðurinn Jesús, heimspekingurinn og jafnvel femínistinn. Lagt var upp með friðþægingarkenningu kirkjunnar, en auðvitað barst talið út um víðan völl. Afraksturinn er í það minnsta skemmtilegur og fyrri hluta hans er að finna í spilaranum hér að neðan. Njótið. -
Óttar Ottósson sat fyrir svörum hjá Birgi og Hjalta í síðustu viku.
- Se mer