Episódios
-
Síðasti þátturinn í seríu 2 hefur litið dagsins ljós! :(
Alma og Fjóla setjast niður og ræða um stemninguna sem þær vilja hafa í lestrinum í sumar. Bæði í bókunum og í umhverfinu sem þær ætla að lesa í.
Heyrst hefur að þær séu báðar að plana mikið ferða og sólarfrí, spurningin er bara hvort að veðurguðirnir hlusti á bænir þeirra og gefi þeim smá sól með lestrinum.
Og auðvitað fóru þær í smá útirdúr um Dungeon Crawler Carl, því hvenær talar maður ekki um cultið sitt?
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Anna Karen og Fjóla standa vaktina að þessu sinni á meðan Alma spókar sig í sólinni á Spáni.
Efni þáttarins að þessu sinni er létt bókaspjall og svo RDG eða R**a, drepa, giftast þar sem þemað eru bæði bókakarakterar og bókalegir hlutir eða aðstæður.
Léttur og skemmtilegur þáttur að þessu sinni!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Estão a faltar episódios?
-
Alma og Fjóla eru báðar nýbúnar með bók sem er sjóðheitt umræðuefni þessa dagana, en það er engin önnur en bókin Yesteryear eftir Caro Claire Burke!
Stelpurnar gætu talað endalaust um bókina en hafa þó sett niður nokkur atriði sem þær ætla að tala um, einfaldlega því þær fengu ekki lengri upptökutíma. Annars sætu þær líklega ennþá í Kompunni á Borgarbókasafninu í Grófinni að tala um þessa bók...
Þær eru sammála, ósammála og taka svo auðvitað nokkra útidúra, því hvað væru þættirnir án þeirra?
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Við erum strax komnar með annan þátt af poppkorn í blaðsíðunum!
Í þetta sinn setjast Alma og Fjóla niður og ræða saman um bók og mynd; Remarkably Bright Creatures.
Þær eru sammála um flest allt sem viðkemur bæði bók og mynd en við viljum endilega heyra hvað ykkur finnst!
Kolkrabbar, menn að taka út þroska og bara allt væbið.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Þátturinn í dag er heldur rólegur og smá sár.
Við förum yfir þær bækur sem hafa látið okkur gráta í gegnum tíðina. Við fórum samt ekki yfir allar, Alma og Fjóla væru enn í upptökum ef svo væri...
Við viljum alltaf á okkur tárum bæta svo ef þið hafið grátibækur í farteskinu endilega deilið þeim með okkur!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Í þessum þætti fáum við frábæran gest, en það er engin önnur en hún Íris sem rekur Bókakrydd.
Við stelpurnar erum búnar að vera ansi forvitnar um Bókakrydd þar sem við erum rétt að fá smjörþefinn af þeim frábæru hlutum sem sem Íris ætlar sér.
Við ræðum við hana um hvað Bókakrydd er, hvað er henni mikilvægt og hvert hún ætlar sér. Að sjálfsögðu förum við svo langt út fyrir umfjöllunarefnið eins og okkur einum er lagið!
Við skulum öll bjóða Írisi og Bókakrydd velkomin í litla bókasamfélagið okkar!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Bókakrydd getið þið svo nálgast á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; bokakrydd
Insta; bokakrydd
og svo að sjálfsögðu ef þið viljið fara í röð fyrir sumarpakkann hjá þeim;
https://bokakrydd.is
-
Í dag, eftir tveggja vikna pásu, kemur út nýr liður hjá okkur sem við erum að kalla Poppkorn í blaðsíðunum!
Í þessum þáttum lesum við bók, horfum svo á myndina og ræðum bæði bók og mynd.Erum við sáttar við hvernig bókin kom út?
Hvort fannst okkur betri platform fyrir söguna?
Ná karakterarnir að skína í gegn?
Var myndin jafnvel betri en bókin????Umfjöllunarefni þáttarins er SPOILER Project Hail Mary en Alma og Fjóla lásu bókina, skelltu sér á myndina og ræða nú saman um hvað þeim fannst!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Alma og Fjóla tækla verkefnið "fyrsta blaðsíða - síðasta blaðsíða" sem stelpurnar settu sér fyrir fyrir nokkrum þáttum síðan.
Alma var með bókina "The Nowhere Girls" og Fjóla var með bókina "The Inevitable Victorian Thing". Þetta voru eins ólíkar bækur og hugsast getur og sagan segir að Fjóla er ennþá mjög ringluð og Alma er enn meiri rauðsokka eftir þennan þátt.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Í þessum þætti fengu þær Fjóla og Anna Karen það verkefni frá Ölmu að lesa eina kúrekarómans. Alma var stödd á bókamessu og var því fjarri góðu gamni (eða bara í öðru gamni). En hún skildi eftir þau fyrirmæli að við læsum Chasing the wild eftir Elliott Rose og ræddum svo í þætti.
Við setjum höskuldar viðvörun á þennan þátt þar sem við förum frekar vel yfir söguna en einnig er um frekar gróft orðbragð á köflum þannig að við mælum með að hlusta ekki á þennan þátt í nálægð við ungmenni.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Fjóla og Alma fara í gegnum nokkur tips and tricks til að koma mani í gegnum erfiðu lestralægðirnar sem vilja stundum leggjast á man. Alma kemur einnig með nokkrar hugmyndir af bókum, sem er auðvelt að lesa, ef þið eruð alveg týnd í bókaflórunni!
Gleymdum við einhverju eða viltu segja frá þínum aðferðum til að losna úr lægð? Segðu okkur frá því á samfélagsmiðlunum okkar!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Alma og Anna Karen ræða saman um nokkra bókahrolla (e. bookish pet peeves) og fara yfir hvað fer verst í þær.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Stelpurnar eru komnar með lista af spurningum, svona Ég hef aldrei stemning, og svara þær allar!
Einnig erum við að byrja nýja áskorun þar sem við lesum fyrstu og síðustu blaðsíðuna af bók og reynum að giska hvað gerist í henni.
Síðan komum við saman og látum ykkur vita hvað gerðist í raun og veru í bókunum okkar.Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Alma og Anna Karen taka fyrir bókina Pucking Mad About You eftir elsku bestu Karen C. McDermott okkar.
Þetta er bókin sem kom okkur í íshokkí gírinn áður en Heated Rivalry tók yfir líf okkar, já allra nema Önnu Karenar þó að hún hafi lofað að horfa á þættina fyrir næstu upptökur!
Bókina hennar Karenar má finna á Amazon en einnig er hægt að sérpanta hana í gegnum bóksölu stúdenta ef þið viljið eiga physical eintak af henni.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Alma og Fjóla setjast niður í þætti dagsins og tala um nýjasta æðið sitt. Íshokkí rómans þættina Heated Rivalry!
Myndatakan, þættirnir, bækurnar, höfundurinn, leikararnir, þetta bara getur ekki orðið betra!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Stelpurnar koma saman og segja okkur frá nokkrum einnar stjörnu umsögnum um bækurnar sem þær hafa lesið og nokkrar sem þær ætla sér að lesa, twistið er að þær íslensku þýddu þær allar!
Mikið hlegið, smá pirringur og svakalega skemmtilegar umsagnir svo þið ættuð ekki að láta þennan þátt framhjá ykkur fara!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Alma og Fjóla taka upp fyrsta þátt ársins. Stiklum við á ansi mörgu þennan þátt en við förum snögglega yfir þær bækur sem við lásum í jólafríinu, tölum um tölvuleikinn Split Fiction sem Alma kláraði yfir jólin og leikritið Hamlet sem þær fóru á ásamt Lilju og Þorbjörgu skvísum.
Við hlökkum til frábærs lesárs með ykkur!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Í þættinum í dag förum við í smá hraðaspurningar og teljum upp flestar bækurnar sem við höfum lesið frá því í byrjun ágúst. Alma sá algjörlega um að búa til spurningar svo Fjóla og Anna KAren vita ekkert hvað þær eru að fara út í.
Við viljum óska ykkur gleðilegrar hátíðar og frábært nýtt ár, við þökkum innilega fyrir að þið hafið verið okkur samferða á þessu frábæra bóka ári!
Megum við eiga frábært bókaár framundan og getum við ekki beðið eftir að halda þessu ævintýri áfram!Bækurnar sem við nefndum í dag voru!
Þú sem ert á jörðu
Alchemised - SenLinYu
Silfurberg - Sesselía Ólafs
Lokar augum Blám - Margrét S. Höskuldsdóttir
Blue Sisters - Coco Mellors
A Hue of Blu - Marie France Leger
Serían; Rebel Blue Ranch - Lyla Sage
Tál - Arnaldur Indriðason
Arcana Academy - Elisa Kova
Prettir í Paradís - Christina Lauren
Mín er hefndin - Nanna Rögnvaldardóttir
Carmilla - J. Sheridan Le Fanu
Book Lovers - Emily Henry
A Short stay in Hell - Steven L. Peck
Sjáandi - Ester Hilmarsdóttir
Brimstone - Callie Hart
Pucking Mad About You - Karen C. McDermott
Slewfoot - Gerald Brom
Lost and Lassoed - Lyla Sage
Sólgos - Arndís Þórarinsdóttir
Immortal Consequences - I. V. Marie
Chasing the Wild - Elliott Rose
Hamnet - Maggie O'Farrel
Vaxtaræktarkonan Einmana - Yukiko Motoya
The Knight and the Moth - Rachel Gillig
Tunglóður - Karl Ólafur Hallbjörnsson
Graveyard Shift - M.L. Rio
Deep End - Ali Hazelwood
Strá fyrir straumi - Erla Hulda Halldórsdóttir
Piparmeyjar - Sigríður K. Þorgrímsdóttir
Fröken Dúlla - Kristín Svava Tómasdóttir
Ballad of Fallen Dragons - Sarah A. Parker
Game On - Navessa Allen
Cleopatra - Saara El-Arifi
The Lion and the Deathless Dark - Carissa Broadbent
Red God - Pierce Brown
The Knave and the Moon - Rachel Gillig
Holy Monsters- Imani Erriu
Ruinous Ends - I. V. Marie
Realese Me - Tahereh Mafi
Japanese Gothic - Kylie Lee Baker -
Alma og Anna Karen taka smá spjall um jólin og bækur. Fjóla er því miður fjarri góðu gamni en við óskum henni góðra jóla þar sem hún er stödd!
Anna Karen stjórnar þessum þætti með sterkri hendi og spyr Ölmu nokkrar spurningar sem hún svo sjálf svarar líka. Gott spjall um allt tengt jólunum og eins og svo oft með þessar stöllur fer spjallið um víðan veg, kannski of víðann en samt ekki.
VVið óskum öllum gleðilegrar hátíðar og þökkum fyrir alla nýja vini og öll þau tækifæri sem við höfum fengið á þessu ári.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
-
Fjóla sest niður með Lilju Ósk Snorradóttur í einlægu spjalli um upplifun hennar af veikindum í kjölfar höfuðáverka. En Lilja skrifaði og gaf út bókina Heimsins besti dagur í helvíti þar sem hún segir frá þessu ferli. Bókin er einlæg og hrá með persónulegri frásögn þar sem engin glansímynd er til staðar. Þessi bók á fullt erindi inn á hvert heimili og er virkilega mikilvæg til að vekja athygli á stöðu fólks sem er að takast á við veikindi sem gjörbreyta lífi einstaklinga.
Við þökkum Lilju kærlega fyrir að vilja koma til okkar í spjall um þessa persónulegu upplifun.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Instagram: tbrlistinn
-
Fjóla veik, Anna Karen þunn og Alma með rugluna.
Þetta getur ekki verið nema góður þáttur!
Hér förum við yfir nokkrar bækur úr jólabókaflóðinu, þær sem við erum sérstaklega spenntar fyrir eða höfum þegar lesið og elskum!
(Einnig kemur Alma með eilítið skemmtiatriði, en við skulum ekkert vera að tala um það...)Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
- Mostrar mais