Episódios
-
Við hefjum þennan lokþátt Tengivagnsins í grasrót tónlistarinnar sem verður hampað á tónleikaröðinni Upprás sem fram fer í Hörpu í vetur. Róshildur, Flaaryr og virgin orchestra hleypa tónleikaröðinni af stað 5. september en við tókum skipuleggjendur hátíðarinnar, þær Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur og Ásu Dýradóttur tali.
Hin íslenska litabók er nýjasta verk myndlistarkonunnar Sísí Ingólfsdóttur þar sem hún teiknar Ísland og Íslendinga frá spaugilegum sjónarhornum. Upprunalegu myndirnar eru til sýnis í bókabúðinni Sölku og við lítum þangað inn í þætti dagsins.
Í síðari hlutanum ræðir leikkonan Ebba Katrín Finnsdóttir ræðir við fyrirmynd sína Nínu Dögg Filippusdóttur um leiklistina, leikhúsið, traustið og ferlið. -
Estão a faltar episódios?
-
SUND er glænýtt íslenskt leikverk sem frumsýnt verður annað kvöld, en það er leikhópurinn Blautir búkar sem setur verkið upp á fjölum Tjarnarbíós. Leikmyndin og ein aðalpersónan, sjálf sundlaugin, er í höndum Krassasig en í henni munu leikarar og dansarar bregða sér í hlutverk sundgesta sem upplifa laugina allir á sinn hátt. Birnir Jón Sigurðsson leikstjóri og einn höfunda verksins leit við hjá okkur en hann segir sundmenningu okkar Íslendinga vera hversdagslega, heilaga og horní.
Kántrítónlistin er enn vinsælasta tónlistin vestanhafs þó lítið af henni flæði út fyrir landsteinana. Nýjasta stjarnan er söngvaskáldið Oliver Anthony sem sló í gegn upp úr þurru með laginu Rich Men North of Richmond, sem sagt hefur verið mótmælasöngur heillar kynslóðar. En ekki er allt sem sýnist í kántríinu. Við rýnum í málið í fyrri hluta þáttarins og höldum svo áfram með annars konar tónlist í síðari hlutanum en við litum við í Plötumarkaði Óla, stærsta vínylsafni landsins og grúskuðum í safninu með eigandanum. -
Við hefjum þáttinn á heimsókn í Hamraborgina, þar var pönk um helgina á Hamraborg Festival sem gladdi marga en angraði einhverja. Gerð voru skemmdarverk á verkinu Andskotans hávaði, kakófóníu Curvers Thoroddsen sem hann vann upp úr 8 íslenskum pönklögum.
Viktor Pétur Hannesson rekur Listheima í Súðavogi. Það er ekki bara vinnustofa heldur líka gallerí, innrömmun og verkstæði. Við lítum við hjá honum og heyrum af verkum sem Kristín gunnlaugsdóttir hefur unnið inn í ramma Viktors.
Í síðari hlutanum heimsækjum við svo Sveinssafn í Krýsuvík þar sem listmálarinn Sveinn Björnsson kom sér fyrir með vinnustofu á seinni hluta ævi sinnar. Sveinn Björnsson var fæddur árið 1925 í Hafnafirði og byrjaði ungur að starfa við sjómennsku en á ákveðnum tímapunkti í lífi sínu fékk hann vitrun, úti á Halamiðum, og ákvað í kjölfarið að segja skilið við sjóinn og helga líf sitt listagyðjunni. -
Í fyrri hluta þáttar er rætt við Helenu Margréti Jónsdóttur sem opnar sýninguna Alveg eins og alvöru í D-sal Hafnarhússins annað kvöld. Ásgeir H. Ingólfsson segir frá kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary og Þórður Ingi Jónsson ræðir við stofnanda Found Records í Los Angeles.
Og í síðari hluta þáttarins verður spilaður jazz því í dag hefst Djazzhátíð Reykjavíkur. Jón Ómar Árnason listrænn stjórnandi hátíðarinnar verður gestur okkar og segir frá áherslunum í ár, listamönnunum sem stíga á stokk og málþingi sem fjallar um steríótýpísk hlutverk innan senunnar. -
Við byrjum á að heyra flakk Lísu Pálsdóttur og Vilhjálms Hjálmarssonar um Útvarpshúsið en Vilhjálmur, einn af þeim sem teiknaði húsið, féll frá á dögunum.
Við kíkjum líka á alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Karlovy Vary í Tékklandi með Ásgeiri H. Ingólfssyni og lítum á sýninguna Myndlistin okkar á Kjarvalsstöðum en almenningur fékk að velja verkin sem sett voru upp.
Í síðari hluta þáttar kemur svo Sævar Karl Ólason í heimsókn. Hann er flestum kunnur sem klæðskeri og tískufrömuður með meiru en Þegar Sævar var fimmtugur settist hann á skólabekk í Myndlistarskóla Reykjavíkurog síðar í Listaháskóla Íslands og þegar hann var sextugur seldu þau hjónin verlsuninaS;var Karl og fluttust til Münchenar. Þar hefur Sævar stundað meira nám í myndlist og vinnur nú alla daga að myndlistinni, bæði í Reykjavík og München.
Sævar opnar sýningu á fimmtudag í Grafíksalnum og fer yfir þessa ástríðu sína fyrir myndlist og margt fleira í þættinum í dag. -
Við hefjum leika á því að heyra af draugasögum sem tengjast miðbæ Reykjavíkur, kynnumst svo ungum og efnilegum leikstjóra, Ninnu Pálmadóttur, sem frumsýnir sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd, Tilverur, á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto í september. Í síðari hluta þáttarins koma tveir góðir gestir, rithöfundarnir Guðrún Brjánsdóttir og Kristín Eiríksdóttir í fyrirmyndaspjall. Þær ræða líf rithöfundarins, hver má skrifa hvað og hvenær maður getur kallað sig rithöfund. Svona meðal annars.
-
Í fyrri hluta þáttar förum við heimsókn á vinnustofu listamannsins Loga Marr. Undanfarin ár hefur hann látið til sín taka á tónlistarsviðinu með hljómsveitum á borð við Lily of the Valley og Shakes en 1. september opnar hann sína fyrstu myndlistarsýningu, Samofinn - dregið frá náttúrunni, þar sem náttúran er í senn myndheimur og verkfæri olíu- og prentverka Loga.
Júlía Margrét Einarsdóttir tók svo Úlf Eldjárn tali, hann hleypur heilt maraþon núna á laugardaginn til styrktar minningarsjóðs bróður síns, Kristjáns Eldjárn.
Einnig heyrum við sögu, sögu eins og margar aðrar sem hafa flækt störf ritsjóra vísindaskáldskapartímarita vestra.
Í síðari hlutanum bregðum við okkur suður í Hafnarfjörð, í Hellisgerði en garðurinn fagnar aldarafmæli á þessu ári. Við ræðum við myndlistarmennina Oddrúnu og Kristberg Pétursbörn sem opna myndlistarsýningu á morgun þar sem þau heiðra minningu ömmu sinnar, Guðmundínu Oddrúnar Oddsdóttur sem bjó í 30 ár í Hellisgerði. Einnig kynnum við okkur sögu garðsins sem oft hefur verið tengdur við huldar víddir og af manni sem sá slíkar víddir og þurfti að láta loka fyrir þann hæfileika. -
Við hefjum þáttinn úti á Granda á húðflúrstofunni Valkyrie þar sem Nördaflashdagur var haldinn á sunnudaginn. Ógrynni fólks merkti sig fyrir lífstíð með sínum uppáhalds teiknimyndafígúrum og Tengivagninn tók stöðuna á flúrurum sem lifandi strigum.
Þriðja og síðasta útvarpsleikrit Melkorku Gunborgar Briansdóttur, Flotbollar, verður flutt en verkið er unnið upp úr setningum sem Melkorka hleraði í kringum sig.
Nílarflóði er fagnað í Egyptalandi á þessum degi ár hvert og við hlustum á nokkur lög með Mahmoud Fadl og trommurunum frá Níl.
Í síðari hluta þáttar verður rætt við Frey Sigurjónsson flautuleikara en hann hefur verið búsettur í Basklandi og leikið með sinfóníuhljómsveitinni í Bilbao í fjóra áratugi. Í vor spilaði hann sína síðustu tónleika með sveitinni en hann hefur ekki lagt flautuna á hilluna heldur kemur hann fram á tónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld, sem vill svo til að er æskuheimili hans. -
Sorgin kemur við sögu í þætti dagsins, leikarinn Richard E. Grant hefur tjáð sig opinskátt um sorgina eftir fráfall eiginkonu hans Joan Washington. Tengivagninn fór á stúfana og ræddi við Karólínu Helgu Símonardóttur, fyrrum stjórnarformann Sorgarmiðstöðvarinnar um makamissi og Richard E. Grant.
Tónlist Högna Egilssonar úr Netflix-þáttaröðinni Kötlu frá árinu 2021 kemur út á morgun og blásið verður til útgáfuhófs í 12 tónum þar sem högni kemur fram með GDRN. Af því tilefni grípum við niður í spjall Guðna Tómassonar og Högna úr Víðsjá þegar þættirnir komu fyrst út.
Við höldum svo áfram að blaða í tímariti Hinsegin daga og tökum Guðmund Jóhann Guðmundsson tali, ræðum skyndikynnaforritið Grindr, kynfrelsi og karlmennsku.
Eftir fréttir heyrum við svo í Eddu Guðmundsdóttur stílista stjarnanna í Hollywood en hún hefur unnið með stórum nöfnum á borð við Björk, Bebe Rexha, Mariuh Carey og Taylor Swift. -
Tengivagninn er helgaður hinsegin málefnum á Hinsegin dögum.
Við lítum við á sýningunni Grímur/Masker sem opnar á morgun í Norræna húsinu en hún var upphaflega sett upp fyrir 40 árum. einhverjar af ljósmyndum þeirra Görans Ohldieck og Kjetils Berge þóttu ósæmilegar og þeir voru beðnir um að fjarlægja þær. Í stað þess að gangast undir slíka ritskoðun pökkuðu þeir sýningunni saman og fóru beinustu leið heim til Noregs.
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir kemur í heimsókn og segir frá grein sinni í Tímariti Hinsegin daga, Þegar veiran nam land, um orðræðu og viðhorf í tengslum við HIV-faraldurinn en einnig stendur hún fyrir hinsegin sögugöngu, Dansiböll, dramatík og leitin að sjálfum sér, í kvöld klukkan 20:00. Gangan hefst við Borgarbókasafn Reykjavíkur.
Í síðari hluta þáttarins ræða þeir Andreas Tinni Waage og Kristmundur Pétursson við Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur um hvernig það er að vera trans, hvernig það er að koma út og gleðina sem felst í því að fá að vera eins og maður er. -
Sviðlistir eru í forgrunni í fyrri hluta þáttar. Rætt er við Sigríði Jónsdóttur, leikhúsgagnrýnanda og sérfræðing á Leikminjasafni um hinsegin sviðslistir. Hinsegin dagar eru enda farnir af stað og standa fram á sunnudag.
Við heyrum líka annað af þremur útvarpsörleikritum Melkorku Gunborgar Briansdóttur, Hansel og Gretel.
Í síðari hluta þáttar er rætt við Óskar Hallgrímsson, ljósmyndara, listamann og annan helming teppaverka-tvíeykisins Comfortable Universe sem nú sýnir í Gallerí Porti. Óskar og Ma Riika, eiginkona hans og nánasti samstarfsmaður, eru búsett í Kyiv í Úkraínu og í sköpun þeirra mætir yfirstandandi stríðástand notalegri mýkt en Óskar hefur skrásett stríðið með myndavélina á lofti frá fyrsta degi. -
Ægir Sindri Bjarnason segir okkur frá dagskránni á Norðanpaunk í ár, tónlistarhátíð sem verður haldin um helgina á Laugarbakka. Sigríður Sunna Reynisdóttir kemur og segir frá verkefninu Þykjó, sem er þverfaglegt hönnunarverkefni fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Og svo rifjum við upp viðtal við tvo meðlimi hljómsveitarinnar Graveslime frá því í fyrra.
Í seinni hluta þáttar ræðum við við aðstandendur söng- og kammerhátíðarinnar Seiglu og fáum pistil frá fjölmiðlakonunni Snærósu Sindradóttur um minni, gleymsku og Helförina. -
Twitter er orðið að X. Þetta ákvað Elon Musk. X getur staðið fyrir hvað sem er og á X á að vera hægt að gera hvað sem er. Það er þó snúið að skipta ekki bara um nafn heldur vörumerki og stefnu og í þættinum í dag er rætt við Írisi Mjöll Gylfadóttur framkvæmdastjóra vörumerkjastofunnar Brandr og Lenyu Rún Töhu Karim, varaþingkonu og tístara um þessar skyndilegu og óvæntu breytingar.
Við rifjum líka upp umfjöllun um japanska kvikmyndagerðamanninn Hayao Miyazaki og teiknmyndaver hans Studio Ghibli.
Í síðari hluta þáttar hlustum við á tónlist Sinéad O'Connor sem féll skyndilega frá á dögunum, langt fyrir aldur fram og tónlistarkonan Brynja Bjarnadóttir segir frá plötu sinni Repeat sem kom út á bleikum vínil í dag. -
Við ræðum við Sigurð Starr Guðjónsson sem á sér hliðarsjálfið Gógó Starr, sem er ein ástsælasta dragdrottning landsins. Í seinni hluta þáttar ræðum við við ungan sviðshöfund, Melkorku Gunborg Briansdóttur og flytjum nýtt leikrit eftir hana, Bræður í Kristi, það fyrsta af þremur sem verða flutt hér í Tengivagninum. Leikritin skrifaði hún í skapandi sumarstörfum í Kópavogi. Loks heyrum við um afmælisbarn dagsins, sjónvarpsstöðina MTV og Kurt Cobain.
- Mostrar mais